Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Page 4
4 MANUDAGUR 15. SEPTEMBER 1997 Fréttir ^ Deilur sveitarfélaga um greiðslur fyrir skólavist: Atta ára drengur án skólavistar „Það er algjörlega siðlaust af hálfu sveitarstjórnarmanna aö tala um að þau hafi enga skyldu gagnvart skóla- vist átta ára gamals drengs vegna þess að hann á ekki lögheimili í hreppn- um. Það var sameiginleg niðurstaða fundar með skólastjórum og oddvitum Villingaholtshrepps og Hraungerðis- hrepps fyrir rúmu ári síðan að það ætti að skapa drengnum skólavist í Þingborg," segir Soffia Sigurðardóttir, fósturmóðir 8 ára drengs, sem hefur ekki enn fengið að hefja skólagöngu á þessu skólaári. Litli drengurinn á lögheimili í Reykjavík en vegna misþroska drengsins og skertra félagslegra að- stæðna býr hann hjá fósturfjölskyldu sinni að Neistastöðum í Villingaholts- hreppi. Fyrir rúmu ári síðan hóf hann nám í grunnskólanum Þingborg í Hraungerðishreppi eftir víðtæka fundi fagaðila er málið varðar, meðal annars oddvita Hraungerðis- og Vill- ingaholtshrepps, skólastjómendum og fulltrúum Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar. Nú hefur þessum sama dreng verið neitað um áfram- haldandi skólavist í Þingborg vegna ósamkomulags á milli sveitarfélaga um greiðslur fyrir skólavist drengs- ins. Skólamálin skoluðust til Að sögn Soffiu hafa skólamál drengsins þróast heldur undarlega. Þegar hann átti að hefja nám í 6 ára bekk i Reykjavík var hann innritaður í sinn hverfísskóla. í samráöi leik- skóla og grunnskóla var svo búið um að honum yrði stýrt þaðan í sérdeild við sitt hæfi. Eitthvað ófjóst varð til þess að mál drengsins skoluðust til og honum var gert aö hefja nám í 26 bama bekk. Þrátt fyrir að hann fengi þar fulla sérkennslu, gáfust yfirvöld skólans upp og um miðjan nóvember hóf hann nám í skólanum á barna- og unglingageðdeildinni við Dalbraut. Fjölskylda Soffiu hafði um árabil verið stuöningsfjölskylda drengsins en var á þessum tíma flutt í Villinga- holtshrepp. Þaðan fylgdust þau meö málum drengsins og leist ekki á þró- un mála. Því var það að Soffia kann- aði vilja á meðal ráðamanna í sinni heimasveit hvort það væri gerlegt að taka að sér umsjón drengsins. Endanleg greiösla ófrágengin Þegar samþykkt var á sínum tíma að drengurinn hæfi nám í Þingborg var ekki gengið frá endanlegri greiðslu fyrir skólagöngu hans á milli Reykjavíkurborgai- og Hraungerðis- hrepps. Samkvæmt bókun hrepps- nefndar var skólaganga hans sam- þykkt gegn því að allur kostnaður yrði greiddur af Reykjavíkurborg. Borgin greiðir ákveðinn meðalkostn- að með hverjum nemanda en Hraun- gerðishreppur telur greiðslur borgar- innar ekki nógu háar til að skóla- ganga drengsins geti hafist. Á fundi 3. september bað fulltrúi fræðslumið- stöðvar, Anna Kristín Sigurðardóttir, oddvita Hraungerðishrepps um sund- urliðaöa kröfu hreppsins en þá höfðu engar tölur verið lagðar fram af hálfu hreppsins. Soffia hefur margbeðið fræðsluyfir- völd í Reykjavik og Félagsmálastofn- un að ganga frá málum drengsins. En að hennar sögn hafa menn þar á bæ aðeins dregið lappimar og ekki gert skyldu sína. Guðmundur Einarsson, oddviti Hraungerðishrepps, vildi ekki tjá sig um málið á þessari stundu en sagðist vona að lausn væri í sjónmáli. Þegar DV spurði hvort ekki hefði verið eðli- legra fyrir drenginn að hefja nám á tilskildum tíma þrátt fyrir deilur sveitarfélaganna, sagði Guðmundur að ekki hefði þótt ráðlegt í málefhum drengsins að hann hæfi nám við upp- haf skólaárs ef til breytinga kæmi síð- ar. Nú eru 15 dagar liðnir frá því að skólahald hófst í Þingborg en drengn- um hafa ekki verið boðin nein önnur úrræði í skólamálum. -ST Mannmergð í Tungnaréttum Þúsundir manna sóttu Tungnaréttir á laugardaginn í einstakri veðurblíöu. Fólk var fleira en fé. Því hafa réttirnar ver- ifi færfiar af mifivikudegi yfir á laugardag. í kjölfar réttanna var haldifi ball í Aratungu. Margar rútur fluttu útlendinga á staðinn. Þeir skemmtu sér ekki sífiur en Tungnamenn. Einar Geir Þorsteinsson stýrfii söng svo undir tók í allri sveitinni. DV-mynd GTK Skeifiaréttir voru á laugardaginn. í réttunum voru um fimm þúsund fjár og mikill fjöldi fólks, bæfii úr sveitinni og þéttbýlinu. Ungir og aldnir skemmtu sér konunglega enda lék vefirifi vifi menn og skepnur. DV-mynd EJ Dagfari Um hvað á þá að tala? íslendingar eiga ekki konungs- fjölskyldu, eilífa uppsprettu frétta og umfjöllunar. Þá eru stjórnmál- mennimir svo litlausir að lítið gagn er aö þeim í almennu slúðri. Það er varla að menn muni hvað þingmennirnir heita eða að þeir þekkist á mynd. Sá síðasti sem al- þýða manna vissi eitthvað um ákvað að hætta og fara í pólitíska útlegð til Washington. Þegar fólk verður raunverulega þekkt þá veit alþýða manna um daglegt lif þess, maka og börn, bú- setu og áhugamál. Það vissu til dæmis allir að Jón Baldvin átti Bryndísi og að þau hjón búa á Vesturgötunni. Menn kannast við nöfn bama þeirra og fá jafnvel fréttir af því þegar barnaböm bæt- ast í hópinn. Flestir vita að vísu eitthvað um Davíð og gætu sennilega sagt hvað konan hans heitir en þá er það upptalið. Vegna þessa ástands héma heima verðum við aö biða tíöinda úr sendiherrabústaðnum í höfuðborg Bandaríkjanna. Það verður þó ekki fyrr en eftir áramót sem Jón og Bryndís fara að hitta Bill og Hillary og fleira frægt fólk. Á meðan verðum við að búa við það litla sem við höfum. En eitthvað verður fólk þó að tala um á vinnustöðum og manna- mótum. Þar hefur blessuð þjóö- kirkjan heldur betur gegnt hlut- verki sínu. Daufir stjómmálamenn hafa alveg fallið í skuggann fyrir prestum kirkjunnar og biskupi. Kirkjunnar þjónar hafa séð til þess að eitthvað mátti ræöa annað en veður og aflabrögð ef fleiri en tveir menn hittust. Títtnefnd stjórnarandstaða eða svartstakkar innan kirkjunnar hafa sótt mjög að biskupi. Þar hafa menn orðið miklu frægari en helstu pólitíkusar og svo mjög að hvert mannsbarn þekkir prestafé- lagsformanninn Geir Waage, vígslubiskupinn Sigurð að ógleymdum Ólafi biskupi sjálfum. Frægir leikarar ná tæplega jafn langt og þessh' aðalleikarar kirkj- unnar. Útiit og fas Reykholtsklerks er til dæmis með þeim hætti að engu er líkara en hann sé sóttur beint til 19. aldarinnar. Hið kirkjulega leikrit sem flutt hefur verið undanfarin misseri er þáttaskipt eins og vera ber. Þar rak hver þátturinn annan meö auka- leikurum sem komu og fóm. Má þar meðal annarra nefna Jón org- anista og Flóka. Þungamiðja verks- ins var þó eilíf barátta biskups og svartstakkanna. En það er engu aö treysta. Það á jafnt viö um þjóðkirkjuna og annað í voru samfélagi. Ólafur biskup mun nefnilega stíga af sviðinu um leið og Jón Baldvin fer til Was- hington. Um hvað á þá aö tala? Meirihluti presta hefur nefnilega komiö sér saman um það að Karl Hallgrímskirkjuklerkur, sonur Sig- urbjöms biskups, taki við af Ólafi. Hann hefur boðað það að þeir 150 prestar sem em innan þjóðkirkj- unnar eigi að snúa sér að trúar- uppeldi fólks. Þetta er auðvitað fróm ósk hins nýkjöma biskups og enn ekki vitað hvort prestamir verða viö henni. Þá er heldur ekki vitað hvað verður um meinta stjómarandstööu innan kirkjunnar og hvort Karl biskup fær sína svartstakka til að kljást við. En það er hugsanlegt að prest- amir fari aö fyrirmælum hins nýja biskups og snúi sér að trúamppeld- inu í stað þess að berjast innbyrðis og við biskup. Þá verða samkomur fólks heldur daufar og fátt um að tala. Jón Baldvin náði því í öllum helstu skoðanakönnunum að vera óvinsælasti stjómmálamaöurinn ámm saman. Þá hafa síðustu miss- eri Ólafs biskups tæpast verið dans á rósum. En um áramót sannast enn hið fomkveðna: Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.