Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Blaðsíða 17
Jt>"V MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1997 Persónur í leit að veruleika „Þegar ég lék Stúf elskuðu mig all- ir,“ segir Pétur leikari armæðulega. Hann vill helst leika hlutverk sem afla honum sjáifum vinsælda og er hræddur um að fá á sig stimpil vegna þess að hann er að leika í verki sem fjallar um tvo homma. Spurningin um hlutverk leikarans er áleitin og eins og margir aðrir velt- ir Kristín Ómarsdóttir, höfundur Ást- arsögu 3, því fyrir sér hvernig leikur og veruleiki geta skarast þegar nærri kviku er komið. í upphafi leiks eru mörkin skýr þama á milli en smám saman fer áhrifa frá andrúmi verksins að gæta 1 samskiptum persónanna og fram- vindan verður flóknari. Kristín flétt- ar saman ljóðrænan texta og kaldr- analegan þannig að yfirborð sýning- Leiklist Auður Eydal arinnar er hrjúft en undir niðri skín í löngun eftir bliðari samskiptum. Mér fannst uppbygging fyrri hluta Ástarsögu 3 takast mæta vel og vekja meiri vonir en rættust í seinni hlut- anum. Hann virkaði á mig eins og verið væri að teygja lopann með ýms- um leikrænum uppákomum sem voru bæði í mótsögn við heildarblæ verksins og óhjákvæmilegt uppgjör I lokin. Kannski hefði verið til bóta að stytta verkið og sýna það án hlés. Eins og í fyrri verkum sínum leikur Kristin sér með textann og ljóðræn tilfinning bregst henni ekki. Atburðarásin er ekki skýr og inn á og í miklum ham í nokkrum at- riðum, t.d. sem dragdrottning. Ámi Pétur Guðjónsson leikur Jóhannes/Hrafn. Leikarinn Jó- hannes er fremur óræð persóna og hamskiptin þegar hann bregð- ur sér í hlutverk hins yfirgangs- sama og forherta Hrafns því sterk. Árni Pétur ræður mjög vel við að túlka þessar tvær ólíku persónur. Þórhallur Gunnarsson er í hlutverki Péturs/Geirs þar sem höfundur lætur eftir sér að kom- ast næst kviku persónanna og ef til vill snýst allt þetta leikrit einmitt um Pétur. Mér fannst Þórhallur ná innilegu sambandi við persónuna og túlka tilfinn- ingabaráttuna sannfærandi. Auður Bjcirnadóttir leikstjóri hefur ásamt Þórunni Jónsdóttur skapað sýningunni prýðilegt um- hverfi og andrúm. Skilin á milli leiksviðs og „veruleika" innan verksins eru skörp í upphafi en eiga síðan eftir að verða móðu- kennd þegar hvað grípur inn í annað. Þarna er sannarlega á ferðinni athyglisverð sýning. Ekki galla- laus því tómahljóð seinni hlutams veikir heildina, en á móti koma afburðagóðir sprettir i texta og traust frammistaða leikara. Leikfélag Reykjavíkur sýnir á Litla sviði Borgarleikhúss: Ástarsögu 3 eftir Kristínu Ómarsdóttur Leikhljóð: Ólafur Örn Thoroddsen Tónlistarval og ráðgjöf: Hákon Leifsson Lýsing: Lárus Björnsson Leikmynd og búningar: Þórunn Jónsdóttir Leikstjórn: Auður Bjarnadóttir Þórhallur Gunnarsson og Þorsteinn Gunnarsson í hlutverkum Geirs og sögumanns. DV-mynd Hilmar Þór milli er skotið örsögum bæði í máli og þöglum „myndum“. Þessi atriði voru mörg hver hreint afbragð og þar kom Þorsteinn Gunnarsson ekki hvað síst við sögu í hlutverki sögumanns sem er ekki allur þar sem hann er séður. Þorsteinn er alveg dæmafár í flíruskap og framgangi öllum Sigurþór Albert Heimisson fór vel með túlkanir á persónum litla bjarnarins, geithafursins (gleymdist í leikskrá), skógarvarðarins og mús- arinnar. Guðmundur Haraldsson fór með hlutverk litla tígrisdýrsins og tónelska apans. Það var einhver asi yfir túlkun hans sem virkaði eins og hann mætti ekki vera að því að njóta leiksins. Þetta er fyrsta leikstjórnarverk- efni Sigurðar Líndal. Sýningin er oft skemmtileg, einkum þegar tilþrif og látbragð vinanna fá að njóta sín. Þátttaka barnanna var ekki mikil í sýningunni og hefði kannski mátt vera meiri. Sigurði Atla, 4 ára frænda mín- um, fannst þessi leiksýning það skemmtilegasta sem hann hafði séð. Ekki vOdi hann gera upp á milli persónanna í verkinu en samt fannst honum músin dálítið frek. Leiktjöld voru litskrúðug og féllu vel að umgjörðinni. Þá fengu allir gestirnir skemmtilega litabók, sem var einnig leikskrá verksins, með myndum eftir Snorra Ásmundsson. Litli björninn og litla tígrisdýrið í umferðinni. Farandsýning, unnin í samvinnu við Umferðarráð. Hugmynd: Miroslav Janosh Leikstjóri: Sigurður Líndal Leiklist Sesselja Traustadóttir er að vera „fræðandi og skemmtileg sýning fyrir yngstu áhorfendurna". Því nær hún að hluta, en stundum er sem samvinnan við Umferðarráð taki yfir alla frásagnargleði. Endur- tekið efni um hvemig ganga eigi yfir götu er ágætt en mann langar samt til að fá meira af ærslagangi og hversdagslífi félaganna. Ferðim- ar til borgarinnar höfðu of lítið vægi og örlög músarinnar i ferða- laginu fengu engan endi. Litli björninn og litla tígrisdýrið em ofurgóðir vinir sem styðja hvorn annan í amstri lífsins. Skyndilega grípur litla tígrisdýrið ógurleg löngun í páskaegg, en það fæst hvergi i skóginum enda pásk- arnir löngu liðnir. Því er ekki um annað að ræða en halda til borgar- innar; þar fæst flest sem hugurinn gimist. En til þess að lifa af borgar- ferðina þarf að kunna umferðarregl- urnar og þær þekkja félagarnir ekki. Þetta er farandsýning sem ætlað Þur ign eng oðir Síðdegisdjass á Jómfrúnni á fimmtudaginn bauð upp á Hljóm- sveit Gunnars Hrafnssonar bassa- leikara og Andreu Gylfadóttur. Með þeim voru Stefán S. Stefáns- son á saxafón, Jónas Þórir píanó- leikari og Jóhann Hjörleifsson. Þau fluttu nokkur vel valin lög sem sum heyrast ekki oft, eins og „In the Still of the Night" eftir Cole Porter sem var virkilega gaman að heyra í ágæt- um flutningi hópsins. Og mikið getur hún Andrea leikið á sálina í manni, ekki síst er hún söng „No More Blues" í óvenju lágri tóntegund með þokkafullri, eilítið hásri rödd. Tríó Egils Straume Qutti 80 mínútna langt djassverk eftir hljómsveitarstjórann í Sunnusal Hótel Sögu á fimmtudagskvöldið. Djass Ingvi Þór Kormáksson Verkið er byggt á lettneskum þjóðlögum, en tríóið er einmitt frá Lettlandi. Straume er virt tón- skáld þar í landi og kannski fyrst og fremst tónskáld á nútímaklass- íska vísu, en hann er líka ágætis djassleikari, sem og félagar hans, bassaleikarinn Ivars Galenieks og trommuleikarinn Maris Briezkalns. Það mátti vel heyra á upphafstónleikum hátíðarinnar í Útvarpshúsinu og einnig á hljóm- diski tríósins, Jazz Standards, sem kom út í fyrra. En þetta kvöld var djasstónlist sem slík ekki í forgrunni þó að djass sé hluti af tónverkinu. Það hófst með þvi að Straume var eig- inlega hálfur á kafi inni í flygli á sviðinu og strauk strengina með fmgrunum; einnig notaði hann trommuslegla á píanóstrengina. Segja má að hann hafi notað flygilinn til ýmissa hluta annarra en sem venjulegt píanó. Nokkrar efstu nóturnar hljómuðu eins og sílafónn eða marimba og á eft- ir kom íljós aö naglar höfðu ver- ið festir við strengina sem breyttu tóninum. Höfundurinn lék einnig á saxafóna, klarinett og blokk- flautur og stundum allt að því samtímis og hann „lék“ á píanóið. Ekki er gott að segja hvar skrif- aðir hlutar verksins enduðu og spuni tók við eða hvenær þjóðlög- in voru inni í myndinni; allt rann þetta saman í eina órofa heild og orkaði sterkt á áheyrendur, að minnsta kosti þann sem þetta skrifar. Ekki var skvaldri eða há- vaða fyrir að fara til að trufla við- kvæman flutning verksins því fátt var um manninn á tónleikunum. Það er leitt hve margir tónlistar- menn og áhugamenn um góða tón- list létu þennan viðburð framhjá sér fara. Tónsmiðir og flytjendur úr djassi og klassík hefðu haft virkilega gott af að heyra í þess- um frábæru tónlistarmönnum flytja svo magnaðan tónagjöming. Maður sat eiginlega dolfallinn all- an tímann. menning • • • Allt vald til stúlkna „Stelpurnar hafa tekið yfir rokk- ið og poppið. Þær em ekki lengur bara poppsíli, rokkskvísur eða femínistar. Þær hafa bylt dægur- tónlistinni," segja greinarhöfundar Politiken um næstsíðustu helgi. !! „Slagorðið er Girl Power," allt vald til stúlkna! Þær hafa alist upp við það frá frumbemsku að jafnrétti sé sjálf- sagt. Engin spurning. Þær sjá enga þörf fyrir harða heldur taka þær þátt í baráttu ald- arlokanna fyrir því að hver fái að vera eins og hann vill. Þær þola eng- ar hömlur á val- frelsið. í rokkinu hafa í lengi verið sterkar konur en í nýju | bylgjunni eru hvorki utangarðs- kvenmenn, kynbombur né vísna- söngkonur heldur dætur vaxandi millistéttar, stúlkur með bein í nef- inu sem vita hvað þær vilja og hafa | metnað til að koma því i verk. Síð- an em talin upp nöfn margra þess- ara framúrskarandi tónlistar- kvenna, og meðal hinna fremstu er I auðvitað Björk. „Girl Power“ er um réttinn til að vera maður sjálfur, tala hreint út og skammast sín ekkert fyrir að vera stelpa í poppinu, segja greinar- höfundar, og hvað gæti átt betur við hana Björk? kvennabaráttu, Var Leifur Eiríksson Skandinavi? Dag Ahlander, aðalræðismaður Svía í New York, er ásamt fulltrú- um Náttúrusögusafnsins í New York og Kanadíska menningar- safnsins í Ottawa og fleiri aðilum að skipuleggja hátíðahöld árið 2000 i tilefni af fundi Ameríku árið 1000. Hann sagði í blaðagrein í Svíþjóð í sumar að mikill áhugi væri á mál- inu í Bandaríkjunum. „Leifur Ei- ríksson er óuppgötvuð hetja og hvað væri ekki hægt að gera með hann á Broadway ef tækifæri gæf- ist?“ Dag Ahlander sér þarna „tækifæri til að koma Skandinavíu og Skandinövum í brennipunkt þetta mikilvæga ár og sýna hvað saga Skandinavíu er löng.“ Mál- þing verða haldin um spurningar eins og Hver var Leifur Eiríks- son og hvenær ná- kvæmlega lenti hann á megin- landi Am- eriku? Og loks bend- ir Dag á að skandinav- ísku þjóð- irnar fimm séu arftak- ar sameigin- legrar vík- ingamenning- ar... Nú er sjálfsagt farið að fara um einhvem íslenskan lesanda. En spumingin „Hver var Leifur Eiríksson" er ekki svo galin. Hann var fæddur á íslandi en for- eldrar hans vom norskir. Hann fluttist úr landi kannski ekki nema 5-10 ára gamall og fólkið hans varð ein af stofnfjölskyldum norrænnar byggðar á Grænlandi. Ef sömu sið- ir hefðu gilt þá og nú hefði hann borið grænlenskt vegabréf - rétt eins og Bjarni geimfari ber kanadískt vegabréf. En afrek hans var ekki bara grænlenskt. Kunnáttunni sem skapaði afrekið höfðu forfeður hans í Noregi og víðar í Skandinavíu komið sér upp á löngum tíma. Ef á það er litið fyrst og fremst mætti vel segja að Leifur hefði verið Skandinavi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.