Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Blaðsíða 10
10
MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1997
Sjálfboðaliðar
óskast
Fréttir______________________________________________pv
Brjálaður hani réðist á dreng:
Reykjavíkurdeild Rauða kross íslands leitar að sjálfboðaliðum sem
vilja starfa með Vinalínunni. Vinalínan er símaþjónusta ætluð öllum
18 ára og eldri sem eiga í vanda eða hafa engan að leita til í sorg
og gleði. Sjálfboðaliðar svara í síma öll kvöld frá kl. 20-23.
Kynningarfundur verður haldinn miðvikudaginn 17. september
kl. 20 í Fákafeni 11,2. hæð.
Nánari upplýsingar og skráning í síma 551 8800 og 561 6464.
Innanhússknattspyrna
Hægt er að leigja sal í Tennishöll-
inni undir innanhússknattspyrnu.
Saiurinn sem er til leigu er 39 m x 18 m = 702 m2. Hægt er
að fá tíma alla daga, m.a. frá kl. 16.30 - 23.30 virka daga.
Fyrstir til að
staðfesta,
fyrstir til að fá
DALSMÁRI9-11 • 200 KÓPAVOGI • SÍMI: 564 4050 • FAX: 564 4051
oo903 o5670oo
nútan. 8mi VMO fyrlr aila li
—w,
og
ykkur
líða vel!
alltaf betra og betra
Vörður - Fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík
Fundur vegna prófkjðrs
Fundur verður í Verði - Fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík, í Súlnasal Hótel Sögu miðvikudaginn 17.
september, kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Tillaga stjórnar Varðar - Full-
trúaráðs - um að fram skuli fara
prófkjör vegna framboðs til borgar-
stjórnarkosninga næsta vor.
2. Ræða formanns Sjálfstæöis-
flokksins, Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra.
Vinsamlega athugið að fundurinn
er eingöngu opinn félögum í Full-
trúaráði sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík.
Stjórnin
DV, Egilsstööum:
„Við vorum í fríi í Fær-
eyjum og vorum að keyra
að Kirkjubæ og sáum þá á
leiðinni hænsni sem voru
að róta í sorpi við kofann
sinn. Við Andri fórum nið-
ur að kofanum og gáfum
hænsnunum Frónkex sem
þau átu. Svo kallaði
mamma á okkur og Andri
fór upp að bílnum en ég
varð eftir því mig langaði
að komast nær og ætlaði
að ná hananum en þá
réðst hann á mig og læsti
klónum í hnén á mér. Ég
varð dauðhræddur og þeg-
ar hann sleppti mér hljóp
ég í áttina að bílnum en
haninn kom á eftir mér,
alveg snælduvitlaus. Ég
rétt náði að skjótast inn í
bílinn áður en hann náði
mér og ég hef áreiðanlega
sett met, ég hljóp svo
hratt. Það komu fjögur göt
á hnén á mér og við fórum
á sjúkrahúsið í Þórshöfn.
Læknamir sögðu að ef ég
hefði verið orðinn 15 ára
hefði ég getað fengið stif- Bræðurnir Elvar Freyr, níu ára, til vinstri og Andri Geir, tíu ára.
krampa," sagði Elvar
Freyr Elvarsson, 9 ára snáði frá dóttir, móðir drengjanna, sagði að
Borgarfirði eystra, reyndar nýflutt- þetta hefðu veriö töluverðir áverkar
ur í Egilsstaði, sem lenti í þessum og Elvar verið haltur næstu daga.
óskemmtilega hanaslag í Færeyjum Hún sagðist þó ekki vera til stór-
fyrir nokkrum dögum. Ásta Geirs- ræöanna í svona tilfelli því hún
DV-mynd Sigrún
væri hrædd við hænsni og þyrði
ekki að taka upp hænu, hvað þá
meira, svo það hefði verið eins gott
aö Elvar hljóp hanann af sér.
Læsti klonum
í hnén á mér
Búnaðarfélög fjárfestu í Hótel Bjarkalundi:
Peningarnir koma
úr Framleiðnisjóði
DV, Akureyri:
„Við fengum þessa peninga bein-
línis til þess aö leggja þá í hlutafjár-
kaup i Gesti hf. sem á Hótel Bjarka-
lund og úthlutun peninganna var
skilyrt þannig að þeir yrðu notaðir
til þess, þá mátti ekki nota í annað,“
segir Eiríkur Sveinbjömsson, for-
maður Búnaðarfélags Reykhóla-
hrepps, en búnaðarfélög Reykhóla-,
Gufudals- og Geiradalssveitar fengu 5
milljóna króna styrk frá Framleiðni-
sjóði landbúnaðarins til að leggja í
hótefreksturinn í Bjarkalundi.
Sögusagnir segja að Kaupfélag
Króksfjarðarness hafl fengiö pen-
ingana sem veittir hafi verið til að
mæta breyttum búskaparháttum
bænda og notað þá til hlutabréfa-
kaupa í Gesti hf. Eiríkur segir þetta
alrangt. „Búnaðarfélögin fengu
þessa peninga og ráöstöfúðu þeim,
kaupfélagið átti ekkert í þeim. Það
var hins vegar skilyrði fyrir því að
við fengjum peningana að kaupfé-
lagiö legði fram jafnháa upphæð á
móti í hótelreksturinn og það var
gert.
Ég efast um að við hefðum fengið
þessa peninga til annarra hluta en
að nota þá í fjárfestingu í hótelinu.
Við sóttum t.d. líka um peninga fyr-
ir sláturhúsið en fengum ekki,“ seg-
ir Eiríkur.
Sameining Kaupfélags Króks-
fjaröamess og hótelsins í Bjarka-
lundi stendur fyrir dymm og segir
Eiríkur að það leggist vel í bændur.
„Það kemur vel við okkur, menn sjá
þá möguleika á að fá arð af þessum
peningum og geta varið þeim á ein-
hvem hátt í þágu bænda,“ segir Ei-
ríkur.
-gk
Skólaliöadeilan:
Starfsmannamálin
ekki á okkar könnu
- segir formaöur ráösins
Sigrún Magnúsdóttir, formaður
skólamálaráðs Reykjavíkur, segir
um deiluna milli borgarinnar og
Framsóknar/Dagsbrúnar um stéttar-
félagsaöild skólaliöa að hugsanlega
hefði mátt ganga frá hinni verkalýð-
spólitísku hliö málsins þannig í upp-
hafl að deilan hefði aldrei komist á
það stig sem hún er á.
„Þáttur skólamálaráðs er ekki
annar en sá að ég sem formaður þess
lagði fram tiilögu um að þessi til-
raun yrði gerð i þremur skólum. Það
var síðan úrvinnslumál annarra
stofnana borgarinnar hvernig starfs-
mannamálunum yrði ráðið til
lykta," sagði Sigrún Magnúsdóttir
við DV í gær.
Sigrún segir að störf skólaliða séu
ný störf í þremur grunnskólum borg-
arinnar og hluti tilraunaverkefhis.
Hvað varði ræstingarvinnu skólaliða
á skólatíma þá liggi þar að baki
ákveðin skólahugsun. í henni felst
m.a. það að hafa fleira fólk á staðn-
um meðan bömin eru í skólanum.
„Það minnkar m.a. hættu á einelti og
við byggjum þetta m.a. á reynslu
annarra sveitarfélaga af sams konar
fyrirkomulagi," sagði Sigrún Magn-
úsdóttir.
-SÁ