Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Blaðsíða 31
MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1997 S9 Fréttir Sveitarfélög i V-Hún. og Bæjarhreppur: Sameining hagkvæm DV, Norðurlandi Niðurstöður liggja nú fyrir um hag- kvæmni sameiningar sveitarfélaga í Vestur-Húnavatnssýslu og Bæjar- hrepps í Strandasýslu. Haraldur Ingi Haraldsson vann þessa úttekt að beiðni heimaaðila og sýnir hún fram á að sameiningin er hagkvæm. Úttektin var tvíþætt, annars vegar á rekstri sveitarfélaganna og hins vegar skól- anna. Niðurstaðan er sú að við sam- einingu sveitarfélaga og skóla á svæð- inu aúkist ráðstöfúnarfé sameinaðs sveitarfélags um 25-26 milljónir á ári. Fundur sveitarstjómarmanna í V- Hún. sem haldinn var nýlega sam- þykkti aö beina því tO sveitarstjóma á svæðinu að þær taki formlega afstöðu til kosninga um sameiningu þessara sveitarfélaga á grunni tillagna Harald- ar L. Haraldssonar. Framkvæmda- nefnd berist skriflegar niðurstöður sveitarstjómanna fyrir 31. ágúst. Úttekt Haraldar gerir m.a. ráð fyrir því að grunnskólar á svæðinu verði tveir undir einni sameiginlegri stjóm, á Laugarbakka og Hvammstanga, en skólasel verði fyrir böm í Bæjarhreppi á Ströndum. Tillögumar gera ráð fyrir þvi að hluti af þeim fjármunum sem sparast við sameiningu verði varið til samgöngubóta á jaðarsvæðum, s.s. í Bæjarhreppi og Þverárhreppi, til þess að auðvelda heimakstur skólahama. Tillögumar á eftir að útfæra frekar. Gert er ráð fyrir því að 2. október nk. komi sameiningamefhdin saman með umboð frá hreppsnefhdum og ákveði hvort og hvenær verði kosið og hvenær kynning fari fram. í skýrslu Haraldar Líndal kemur m.a. fram að íbúum á áðumefndum svæði hefur fækkað um 16% á síðustu 10 árum, um 279. -ÞÁ NYKOMNIR NYKOMNIR EKTA ÍTALSKIR OSTAR MOZZARELLA PARMIGIANO REGGIANO GRANA PADANO GORGONZOLA KÍSILL h/f, sími 551 5960 Ánanaust 15, fax 552 8250 Dalvík: Snæfell hf. tekur til starfa - nýtt hlutafélag sem hefur yfír 10.200 þorskígildistonnum að ráða Nýtt sjávarútvegsfyrirtæki tók til starfa á Dalvík 1. september sl., Snæfell hf. Hiö nýja fyrirtæki var stofnað 19. júní 1997 og hefur nú þegar yfirtekið eignir KEA á sviði fiskvinnslu. Þar er um að ræða frystihús á Dalvík, frystihús í Hrís- ey, fiskhús á Akureyri og fiskverk- un á Hjalteyri. Þann 1. október nk. mun Snæfell síðan yfirtaka Útgerð- arfélag Dalvíkinga, og þar með tog- arana Björgvin og Björgúlf, og dótt- urfyrirtæki ÚD í Vestmannaeyjum sem m.a. hefur gert út Sólfell VE. Ari Þorsteinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Snæfells hf. og aðstoðarframkvæmdastjóri og út- gerðarstjóri verður Valdimar Bragason. Að sögn Valdimars er auk áður- talinna eigna í gangi samrunaáætl- un sem gengur út á það að dóttur- fyrirtæki ÚD, Njörður, og Gunnars- tindur á Stöðvarfirði og Snæfelling- ur í Ólafsvík, sem em að stærstum hluta í eigu KEA, renni inn í fyrir- tækið. Á þeim samruna að vera lok- ið eigi síðar en 1. janúar 1998. Valdi- mar sagði jafhframt að höfuðstöðv- ar Snæfells yröu á Dalvík og það yrði rekið þaðan. Gert væri ráð fyr- ir að rekstrarstjórar auk eins skrif- stofumanns yrðu á Stöðvarfirði og Ólafsvík. Um 11 manns vinna á skrifstofum félagsins. Snæfell er enn sem komið er al- farið í eigu Kaupfélags Eyfírðinga en við innkomu Gunnarstinds og Snæfellings koma fleiri aðilar inn í fyrirtækið, þó ekki sé ljóst á þessari stundu hversu stór hlutur þeirra verður. Valdimar sagði að stefnt væri að því að fyrirtækið yrði sett á almennan hlutafjármarkaö. Það yrði þó aldrei gert fyrr en eftir að gengið hefði veriö endanlega frá sameiningu. Hið nýja fyrirtæki er í 9. sæti yfir útgerðarfyrirtæki, ef miðað er við úthlutaðan kvóta fyrir næsta fisk- veiðiár í þorskígildistonnum talið, alls 10.200 þorskígildistonn. Fyrir- tækið á sex togara, Björg\7in EA, Björgúlf EA, Sólfell VE, Kambaröst SU, Snæfell SH, og Má SH. Síðastt- alda skipið hefur nú verið auglýst til sölu og liggur bundið við bryggju á Dalvík. Hvað útgerðarmynstur skipanna varðar sagði Valdimar að Björgvin yrði áfram á frystingu, og þá til skiptis á grálúðu og rækju og Björgúlfur mundi í auknum mæli sinna veiðum fyrir landvinnsluna á Dalvik. Kambaröstin verður á bol- fiskveiðum fyrir fiskvinnsluna á Stöðvarfirði og á Dalvík hálft árið, en á rækjuveiðum fyrir rækju- vinnsluna í Ólafsvík hinn helming- inn. Sólfellið mun sækja í síld og loðnu og leggja upp á Stöðvarfirði. -hiá unu A VERDIÐ I <-:v/ > . ■ T.l.lsBMS.V.ERO ! . ______■ '.Jm&Má. ( / ^i990f Samsung CB-3373 Z 14" sjónvarpstæki með tærum svörtum skjá, fullkomin fjarstýrinq, aögerðastýringar á skjá, inniloftnet o.m.fí. (Einnig til meö textavarpi á 25.990,- kr.) Samsung CB-5073 T 20" Black Matrix-myndlampi, Scart-tengi, aögeröastýringar á skjá, þráölaus fjarstýring, textavarp o.m.fl. Opil laugardaga kl. 10:00-14:00 Grensósvegi 1 1 Sími: 5 ÖÖ6 ÖÖ6 QKO Group Teka AG Heimilistæki Sumartilboð Anna Heiöa og Póra kotrosknar meö fslenska lerkiö. DV-mynd SB Egilsstaðir: Fýrsta plontun a íslensku lerki DV, Egilsstöðum: „Ég reikna með að í haust verði plantað um 300 þús. plöntum af ís- lenska lerkinu en það er fyrsta ræktun af því fræi sem safhað var á Hallormsstað fyrir tveimur árum. Við vonumst til að þessar plöntur séu betur aðlagaðar íslenskum að- stæðum en það sem við höfum ver- ið að rækta hingað til enda er sumt af því þriðja kynslóð sem vaxin er hér á landi,“ sagöi Jón Kr. Amar- son, framkvæmdastjóri Barra hf. á Egilsstöðum. Nú stendur yfir haustplöntun hjá Héraðsskógum. Einhverju verður plantað af öðrum tegundum en lerki, bæði frá Barra og Hallorms- stað. Barri hf. er stærsti framleiðandi skógarplantna hér á landi og nú eru til hjá stöðinni um tvær milljónir plantna af ýmsum tegundum, þó mest af lerki og birki. Megnið af þessum plöntum verður geymt í stöðinni i vetur og plantað að vori en Barri framleiðir fyrir Land- græðsluskóga, auk Héraðsskóga. -SB kr. 39.800 stgr. iStk. eöa sambærilegt). ^ & | 3 stk. í pakka I (verð miðast við að keypt séi Innifalið í tilboði: Innbyggingarofn, gerð HT490 eða HT490ME, undir- eða yfirofn, undir-yfii+iiti. Grill, mótordrifinn grillteinn. 5 eldunaraög. Einnig fáanlegur m. sjáHbreinsibúnaði og tímarofa. Helluborð E60/4P eða SM4P, með eða án stjómborðs, litir hvitt, bnint eða ryðfritt stál. Vrfta CE60, sog 310 m.klst., litur hvítt eða brúnt Teka eldunartæki eru ein mest seldu eldunartæki á islandi 3 stk. í pakka Kf. 74.900 (verð miðast við að keypt séu 3 stk. eða sambæri Innifalið í tilboði: Innbyggingarofn, gerð HT610 eða HT610ME, undir eða yfirofn, blástur, sjálfhreinsibúnaður. FJölviriair. 8 eldunaraðgerðir. Litun hvftt, bnint Keramikhelluborð VTN eða VTCM, með eða án stjómborðs, gaumljós, litir á ramma: hvitt, briint eða ryðfrftt stál. Ath. staðalbúnaður í öllum Teka blástursofnum en Privíddarblástur, 3 hitaelem. Mótoidrilin grillteinn og forritanleg klukka Vifta CE60, sog 310 m.klst, Irtur hvftt eða brúnt Tilboð nr. 4 Verð kr. 47.600 stgr. TnnnUI 1000 sn.I Aðeins 40 cm breið, tilvalin þar sem pláss er lítið Topphlaðin Þvottavél Tekur 5 kg. af þvottl 18 þvottakerfi Stiglaus hitastiliing. Stiglaus vinding 600/1 OOOsn. Litur: hvítur VERSLUN FYRIR ÞA SEM VIUA GERA HAGSTÆÐ KAUP 1 Tilboð nr. 3 Verð kr. 48.600 s,9r i„rr verði! -/ryggin?F Vi& Fellsmúla Sími 588 7332 OPIÐ: Mánud. - föstud. kl. 9-18, laugard. kl. 10-14 Uppþvottavél LP 770 Tekur borðbúnað fyrir 12, örsíur á vatni, tvöfalt flæðiöryggi, 5 þvotta- kerfi, spamaðarkorfi, hljóðlát, aðeins 45 dB. Fæst einnig til innbyggingar. Litir: hvítt eða brúnt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.