Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.1997, Blaðsíða 20
20 2pn i MÁNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1997 imi Kynlíf og morí meðal eldflugna Ekki er allt gull sem glóir. Það má svo sannarlega heim-1 færa upp á kvendýr ákveðinn-: ar tegundar eldflugna. Kvenfl- ugur þessar lokka til sín karlfl- ugur ann- , f'Ts. arr- * • teg- und ar með ljósmerkjum en í stað þess að veita körlun- um kynlífsunað, eins og þeir máttu þó eiga von á, éta þær þá. Með því móti komast þær yflr efni eitt sem ver þær gegn áreitni óvina, svo sem kóngu- lóa og fugla, sem hefðu áhuga á leggja þær sér til munns. Þetta kemur fram í rann- sókn sem vísindamenn við hinn virta Comell- háskóla í Bandaríkjunum gerðu og sagt er frá í tímariti bandarísku vís- indaakademíunnar. Aðferð sem þessi til að verj- ast óvininum ku ekki vera óal- geng í heimi skordýranna. Tóbaksreykur eykur kólesterólhættu Börn sem hafa erft tilhneig- ingu til hás kólesterólmagns í blóðinu era í enn meiri hættu ef þau komast í snertingu við sígarettureyk. Vísindamenn á vegum banda- rísku hjartaverndarsamtak- anna komust að því að óbeinar reykingar verða til þess að magn góða kólesterólsins, sem svo er kallað (HDL), lækkar um 10 prósent í börnum á aldrinum tveggja til átján ára. HDL-kólesterólið veitir vemd gegn hjartasjúkdómum, öfugt við vonda kólesterólið (LDL) sem sest innan á æðarn- ar og stíflar þær. Rannsókn vísindmannanna náði til 103 bama með hátt kól- esterólmagn í blóðinu. í mörg- um tilvikum vora hjartasjúk- dómar algengir í íjölskyldum bamanna. Sjáandi hvítur stafur fyrir blinda Bandarískir visindamenn hafa þróað hvítan staf fyrir blinda sem getur greint tálma á vegi þeirra, að sögn tímaritsins New Scientist. Stafur þessi, ef staf má kalla, lítur út eins og upprétt ryk- suga. Hann vegur um fjögur kiló og sér betur en venjulegir róbótar. „Margir iðnaðarróbótar eru sterkir og til margs brúklegir en þeir eru svo til alveg blind- ir,“ segir Johann Borenstein við háskólann i Ann Arbor í Michigan, einn þeirra sem þró- uðu stafinn, i viðtali við tíma- ritið. Stafurinn notar inn- byggða tölvu sem túlkar gögn frá nemum sem skoða nánasta umhverfi sitt. Á grundvelli þeirra gagna reiknar tölvan út bestu leiðina á 50 millísekúndna fresti. - Pínuplánetan Vesta í glyrnum Hubble-geimsjónaukans: Smástirnamóðirin á rnilli Júpíters og Mars Vísindamenn telja sig jafnvel hafa fundið móður þúsunda smástima sem era á sporbaug um sólu milli Mars og Júpíters. Móðir þessi er pinuplánetan Vesta og á nýlegum myndum frá hinum rómaða Hubble- geimsjónauka má sjá að á henni er djúpur og mikiU gígur, hvorki meira né minna en 459 kílómetra breiður. Þvermál þessarar pínuplánetu er hins vegar aðeins 531 kílómetri. Gíg- urinn hefur ekki sést áður. Gígurinn mikli, sem varð til við árekstur fyrir um það bil milljarði ára, er þrettán kílómetra djúpur og nær í gegnum jarðskorpu Vestu, alla leið niður í möttul hennar. Sambærilegur gígur á jörðinni væri ámóta stór og Kyrrahafið. Efni úr gígnum á Vestu þeyttist út í geiminn við áreksturinn. Stórir hlutar úr því mynda senni- lega einhver smástim- anna í innra smá- stima- belt- inu milli Júpít- ers og Mars. Þetta kem- ur fram í grein vísinda- manna í nýjasta hefti tímaritsins Science. Sjálf er pínuplánetan Vesta ekkert ný uppgötvun. Þýski stjamfræð- ingurinn Wii- helm Olbers tók fyrstur manna eft- nvhenni sem mjög björtum hlut á himnin- ' rnn árið 1807. Það sem vis- indamenn eru hins vegar spenntir yfir nú er að þeir hafa komist að uppruna ýmissa lítilla smást- Leitað að fornum skipsflökum Fornleifafræðingurinn Robert Ballard, sem uppgötvaði flakið af Fitanic, vonast til að fara til Svartahafsins á næsta ári til að leita að fornum munum á hafsbotninum Ballard, sem sannaði nýlega að fornir sæfarendur sigldu langt út á Miðjarðarhafið í stað þess að sigla með ströndum eins og Söur var taliö, ætlar að beita tækni úr kalda stríðinu til að leita á hafsbotni á allt að metra dýpi Róbótinn Jason sem kafar undir yfirborð sjávar Gerir nákvæmar sónarmyndir af skipsflök- um með aðstoð tölvu NR-1 kafbátur bandaríska sjóhersins Notar ratsjá til að leita skipsflaka á hafsbotni Armur róbótans tekur upp muni til aldursgreiningar Grískar nýlendur og verslunarleiðir um árín 600 f. Kr. Af hverju Ballard valdi Svartahafið ♦ Merk siglingasaga til forna, þar á meðal sagan um Jason og gullna reifið, um 2000 eða 3000 f.Kr. ♦Vegna lítils flæöis um Bosporussund, er vatnið þar sem dýpst er mjög kalt og salt. Skipsflök varðveitast mjög vel við þær aðstæður ♦ Vestrænir fornleifafræðingar hafa þar til nýlega ekki haft aðgang að Svarta- hafi vegna kaldastríðsins REUTERS Maturinn við Miðjarðarhaf: Langbestur fyrir hjartað Vilji maður vera góður við hjart- að sitt er sennilega best að flytja suður að Miðjarðarhafi og taka upp matarvenjur innfæddra, svo sem að borða grænmetiskássur sem soðnar era í ólífuolíu en láta stórsteikurn- ar alveg eiga sig. Rannsóknir sanna sem sé að mataræði í Miðjarðar- hafslöndunum dregur úr hjarta- sjúkdómum. „Það er mataræðið í heild sinni sem hefur jákvæð áhrif,“ segir hol- lenski vísindamaðurinn Daan Kromhout. í mataræði Miðjarðarhafslanda- búans ber mest á grænmeti, heil- hveitiafurðum, ávöxtum, berjum og fiski. Hins vegar er þar tiltölulega lítið um dýraafurðir eins og kjöt. „Jafnvel þótt við vitum ekki hvaða þáttur Miðjarðarhafsmatar- æðisins ber ábyrgðina á því að koma í veg fyrir hjartasjúkdóma, hefur mataræði þar sem grænmeti og ávextir eru i fyrirrúmi jákvæð áhrif,“ segir finnski vísindamaður- inn Jukka Salonen. Upplýsingar þessar komu fram á ráðstefnu evrópskra hjartalækna í Stokkhólmi fyrir skömmu. Vísindamennirnir byggðu niður- stöður sínar á gamalli rannsókn, Sjö landa rannsókninni svokölluðu, þar sem sextán hópar meira en tólf þúsund miðaldra karla voru rann- sakaðir á áranum 1958 til 1964. Sú rannsókn leiddi í ljós að dauðsfóll af völdum hjartasjúkdóma vora fjórum sinnum fleiri í Evrópu norðanverðri en í löndunum við Miðjarðarhaf. í nýrri rannsókn voru notuð gögn frá Finnlandi, Hollandi og Italíu og þar var mataræðið tíundað. Vís- indamenn komust þá að því að fæst dauðsfóll vora í hópi þeirra karla sem snæddu heilnæmustu fæðuna á hverju menningarsvæði fyrir sig. „Það er mikilvægt að gæta jafn- vægis í mataræðinu," segir Krom- hout. „Mataræði Miðjarðarhafsbú- ans er dæmi um það, svo og matar- æði Japanans." í báðum tilvikum er fiskur og grænmeti uppistaða þess sem fólk lætur ofan í sig, en hvort tveggja er talið vera meinhollt. Hafa íslending- ar ekki heldur farið varhluta af þeim áróðri. ima í þessum hluta geimsins. Stað- setning þeirra bendir til að þau gætu þeyst alla leið til jarðar. „Gígurinn bendir til að fúndin sé slóð brota úr Vestu til jarðarinnar," segir Richard Rinzel, einn höfúndur greinarinnar í Science. Harrn starfar við hinn virta háskóla MIT í Banda- ríkjunum. Rinzel segir að búið sé að staðfesta að um 30 lítil smástimi séu komin frá Vestu en þúsundir brota úr henni kunni þó að vera í smástimabeltinu. Um sex prósent loftsteina sem falla til jarðar eru úr sama frosna hraun- grýtinu og Vesta, sem myndaðist að öllum líkindum fyrir 4,5 milljörðum ára og hefur breyst ótrúlega litið sið- an, ef myndun gígsins er undanskilin. Loftsteinar komast þó ekki beina leið frá Vestu til jarðar þar sem nógu sterkur þyngdarkraftur togar ekki í þá. Hins vegar eru smástimi sem lík- lega eru komin frá Vestu i þeim hluta geimsins þar sem þyngdarkraftar Júpíters gætu komið þeim inn í þyngd- arsvið jarðarinnar. Vísindamenn ætla nú að skoða lit- myndir úr Hubble til að fræðast enn frekar um Vestu og yfirborð hennar, einkum þó næsta nágrenni gígsins mikla. Pínuplánetan Vesta heitir eftir róm- verskri gyðju heimiliseldsins en í hof- um sem Rómveijar helguðu henni brann eldur sem aldrei mátti slokkna. Frjósemisgenið í körl- um og konum fundið Læknar í Edinborg hafa fundið gen sem ræður fijósemi í bæði körlum og konum, gen sem kann að skýra hvers vegna sjöttu hver hjón eiga í erfiðleikum með að eignast böm. Geniö sem Howard Cooke og hópur sérfræðinga fúndu í músum er kallað DAZLA. Það er skylt ófijósemisgeninu í karldýrum, erf- ist til bæði karl- og kvendýranna og getur haft áhrif á frjósemi beggja kynja. Cooke segir í grein í tímaritinu Nature að þegar DAZLA-genið hafi verið fjarlægt úr bæði karl- og kvenmúsum hafi dýrin orðið óftjósöm en voru áfram fullkom- lega heilbrigð að öðru leyti. Karldýrin gátu ekki framleitt sæðisfrumur og kvendýrin gátu ekki framleitt egg. Svo virðist því sem gen þetta gegni mjög veiga- miklu hlutverki fyrir þroska æxl- unarfæra beggja kypja. „Við teljum að gallar í þessum genum geti verið orsök ófijósemi í mönnum. Þetta kann að auðvelda læknum að greina óftjósemi sem í sumum tilvikum orsakast af göll- uðum genum,“ segir Cooke. Skýringar finnast ekki á ófijó- semi meira en þriðjungs þeirra hjóna sem ekki geta eignast böm. Frostlögur bjargar bjöllunum Það eru ekki bara bílamir sem þurfa á frostlegi að halda í bruna- gaddi norðurhjarans. Bjöllur þurfa einnig á þessum undravökva að halda og þær framleiða hann sjálf- ar. Vísindamenn í Kanada sendu nýlega bréf tO tímaritsins Nature þar sem þeir skýrðu frá því að þeir hefðu fúndið fiögur mismunandi frostlagarprótín í bjöllum. Prótinin gera líkömum bjallnanna kleift að starfa eðlilega í miklum kulda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.