Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1997, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 24. SEPTEMBER 1997
7
DV Sandkorn
Til Hurdy Gurdy
í leiðara nýjasta tölublaðs Úrvals er
sú árátta margra íslendinga að vera sí-
fellt að þýða hvers konar heiti yfir á
erlendar tungur,
einktim þó ensku,
gerð að umtalsefni.
Sigurður Hreiðar
ritstjóri segist í leið-
aranum aldrei hafa
orðið þess var að út-
lendingar geri sér
sérstaka rellu út af
því hvað nöíh staða
eða fyrirtækja
kunni að þýða. Þýð-
ingaráráttuna hijóti því að mega rekja
til einhvers konar minnimáttarkennd-
ar landans sem kallar á þýðingar eins
og á nafni Lundeyjar sem ferðaþjón-
ustuaðilar kalli Puffin Island og mat-
reiðslumenn sem hafi kallað Sláturfé-
lag Suðurlands The South Coast Kill-
ing Company. Mál- og þjóðháttafræð-
ingur Sandkorns lætur sér í léttu rúmi
liggja hvort þýðingaráráttuna sé að
rekja til minnimáttarkenndar eða ein-
hvers annars en er þess eindregið
fylgjandi aö öll nöfn og heiti séu þýdd
jafnharðan fram og til baka. Þannig
heyrði hann nýlega listmálara lýsa
námsferli sínum við háskóla í
Öxnafurðu í Englalandi og gott var ef
hann kom ekki líka við að Kamarbrú
og Lifrarpolli. Fræðimaður Sandkorns
telur sjálfsagt að leiðsögumenn sem
fara með erlenda ferðamenn austur
yfir fjall renni endilega við á Parli-
ament Fields, komi við á Well-Water,
fari þaðan til Golden-Waterfall og svo
niður Bishop’s Tongues, fram hjá
Teeth-Farm og vestur Ale-County inn í
Eden í Hurdy Gurdy og þaðan tÚ baka
til Smoky-Bay.
Vestmannaeyja-
meistararnir
Knattspymumenn í Vestmannaeyj-
um hafa notið mikillar velgengni í
boltanum í sumar og Vestmannaeying-
ar almennt eru upp
með sér af sínum
mönnum og líta til
þeirra meö velþókn-
un. Er nú svo kom-
ið aö menn eru
farnir að ræða það
sín í milli að
skammstöfunin ÍBV
standi nú orðið fyr-
ir annað en íþrótta-
bandalag Vest-
mannaeyja. Nú þýði hún nefhilega „ís-
lands- og bikarmeistarar Vestmannaey-
inga“. Þetta er óneitanlega mun já-
kvæðara en bandaríska geimferðastofn-
unin NASA lenti í eftir aö geimfeijan
Challenger sprakk í loft upp í flugtaki
um árið og sjö geimfarar um borð fór-
ust. Þá sögðu kaldhæðnir Kanar að
skammstöfunin NASA hefði fengið
nýja merkingu og hún væri Need
Another Seven Astronauts, eða „Vant-
ar sjö nýja geimfara”.
Ljóska gefur blóð
Sandkom heyrði á dögunum um
ljósku vestur í Ameríku sem fór í blóð-
banka til að gefa blóð en sá banki
greiddi fimm doll-
ara fyrir. í anddyr-
inu hittir hún kunn-
ingja siim sem segir
henni að hann ætli
að vísu að gefa blóð /
líka, en fyrst ætli
hann að koma við í
sæðisbankanum á
hæðinni fyrir ofan,
en sá banki greiði
50 doliara fyrir
skammtinn. Viku síðar hittast þau aft-
ur í anddyrinu þegar ijóskan er á leið
inn en kunninginn út. Kunninginn
spyr ljóskuna hvort hún sé aftur að
gefa blóð en hún hristir höfuðið neit-
andi, umlar eitthvað með lokaðan
munninn og bendir á stigann upp á
næstu hæð.
Viljiði sjúss?
Þórarinn Tyrfingsson, jfirlæknir á
Vogi og framkvæmdastjóri SÁÁ, vora
saman um eina stöng í Svartá í þrjá
daga í sumar. I
veiðihúsinu með
þeim vora einnig
fjórir Siglfirðingar
sem voru feimnir
við að fá sér í staup-
inu að kvöldi fyrsta
veiðidagsins fyrir
framan bindindis-
frömuðina og lædd-
ust þvi út undir
vegg eða bak viö
stein tii að staupa sig. Aö kvöldi annars
dagsins vora þeir heldur brattari og
staupuðu sig inni á einu herberginu í
veiðihúsinu, en á þriðja degi hafði þeim
þó magnast svo Hjarkur að þeir skelltu
bokkunni á borðiö í stofunni fyrir fram-
an þá SÁÁ-menn og sögðu: - Það má
víst ekki bjóðá templurunum sjúss?
Umsjón: Stefán Ásgrímsson
Fréttir
Sameiningarkosning í Eyjafirði:
Frestað vegna
kjörskrárinnar
DV, Akureyri:
„Það eru engin lög til um kosn-
ingu vegna sameiningar sveitarfé-
laga en við vildum bara tryggja það
að ekki yrði hægt að koma í lok
kosningarinnar og kæra hana vegna
þess að kjörskrá hefði ekki legið
frammi nógu lengi,“ segir Kristján
Ólafsson á Dalvík en hann er form-
aður nefndar sem annast kosningu
tun sameiningu þriggja sveitarfélaga
við utanverðan Eyjafjörð.
Sveitarfélögin sem um ræðir eru
Dalvík, Svarfaðardalshreppur og Ár-
skógshreppur. Sameining þessara
sveitarfélaga var samþykkt á sínum
tíma en þá var Hrísey einnig inni í
kosningunni og þar var sameining
felld. Þarf því að kjósa að nýju hjá
þeim sveitarfélögum sem samþykktu
sameininguna en samþykkja þarf
hana í öllum sveitarfélögtmum eigi
hún að verða staðreynd.
Kosningin átti upphaflega að fara
fram í september en«var frestað til
18. október og hefur kjörskrá þá leg-
ið frcunmi í lengri tíma en skylt er
fyrir aðrar kosningar hér á landi.
Þannig þurfa kjörskrár að liggja
frammi í 5 vikur fyrir sveitarstjórn-
arkosningar en 3 vikur fyrir kosn-
ingar til Alþingis. -gk
Ffnn gangur
DV, Eskifirði:
Hagnaður
Hraðfrystihúss
Eskifjarðar hf. af
reglulegri starf-
semi fyrstu 8
mánuðina 1997
var 332 milljónir
króna. Hagnaður
sama tímabils
1996 var 344
milljónir. Þá hef-
ur verið tekið til-
lit til breytinga á
útreikningi verð-
breytingafærslu,
en í átta mánaða
A lla rí ka
Hagnaður hjá Alla ríka
3.000 '97 '96
2 Rnn 2.929 mllljönlr 2.944 milljónlr EO Velta
2 nnn 1 iHagnaöur eftlr skatta
1.500 1.000 500
236 263 *
ról
uppgjöri 1996 var notuð bygginga-
vísitala en nú er stuðst við vísitölu
neysluverös.
Hagnaður Hraðfrystihússins fyrir
afskriftir og vexti var meiri nú en á
sama tímabili í fyrra, eða 585 milijón-
ir samanborið við 540 milfjónir árið
1996. Veltufé frá rekstri jókst líka, úr
426 mihjónum í 469 milljónir.
Velta félagsins þessa fyrstu átta
mánuði ársins var 2.929 milijónir,
ASV óskar leikskólakennurum til hamingju:
Enginn ætti að
hafa undir 100
á mánuði
þus.
- segir Pétur Sigurðsson, formaður ASV
„Við hér fyrir vestan óskum leik-
skólakennurum til hamingju með
árangurinn í kjarabaráttu þeirra.
Hann sýnir að samstaða launafólks
og harðar aðgerðir er eina leiðin til
að ná mannsæmandi launum fyrir
láglaunafólk," segir Pétur Sigurðs-
son, formaður Alþýðusambands
Vestfjarða, í samtali við DV.
Pétur segir að allir launamenn
sem hafa undir 100 þúsund krónum
á mánuði fyrir dagvinnu séu lág-
launafólk og leikskólakennarar séu
fyrsti láglaunahópurinn sem nær
100 þúsund króna markinu. Árang-
ur leikskólakennaranna sé þvf
merkur áfangi.
Stjóm ASV kom saman í fyrradag
og samþykkti ályktun um málið. í
henni segir m.a. að vonandi beri
sveitarstjómarmenn gæfu til að láta
af baráttu sinni gegn bömum og
unglingum sem þeir nú heyja í þeim
tilgangi að halda grannskólakenn-
urum áfram á sultarlaunum. Ósk-
andi sé að árangur leikskólakennar-
anna verði til þess að kennarar nái
nú í kjölfarið að semja um kjör sem
þeim sæmi og enginn kauptaxti hjá
þeim ætti að vera undir 100 þúsund
krónum á mánuði. -SÁ
ÖRBYLCJUOFMAR
MJan! > i
17 lítra, 750 W, 9 stillingar, (lííing,
snúningsdiskur, 60 min klukka o.m.fl.
M j.tn' /"Tpí®
17 lítra, 800 W, 9 stillingar, frííing,
snúningsdiskur, 60 mín klukka o.m.fl
17 lítra, 800 W, 10 stillingar, þíðing, snúnings- 26 lítra, 1000 W, 10 stillingar, þííing, snúnings-
diskur, 99 mín tölvuklukka, 3 forstillingar o.m.fl. diskur, 99 mín tölvuklukka, 6 forstillingar o.m.fl.
-I J?.900,z
26 lítra, 900 W, 10 stillingar, þiíing, snunings- 80 lítra, 10 stillingar, þlðing, snúningsdiskur, 99
diskur, 99 mín tölvuklukka, 6 forstillingar, minni, mín tölvuklukka, 6 forstillingar, 1400 W grill,
1800 W grill, barnalæsing o.m.fl. 1450 W kitablástur^minni, jgrnalæsing o.m.fi.
TIL ALLT AD 36
Grensásvegi 1 1
Sími: 5 8Ö6 886
♦
Heigarferð til
Parísar
9. okt.
frá kr.
en var 2.944 milijónir á sama tíma-
bili árið 1996. Bókfært eigið fé í lok
timabilsins er 1.050 milljónir og hef-
ur aukist um 24,2% frá áramótum.
Útlit er fyrir að rekstur félagsins
verði í jafnvægi það sem eftir er árs-
ins. Stjóm félagsins hefur ákveðið
að sækja um skráningu á Verðbréfa-
þingi íslands en hingað til hafa
hlutabréf félagsins verið skráð á
Opna tilboðsmarkaðnum. -Regína
24.990
Viö höfum nú fengið viðbótargistingu í París 9. október
á afbragðsgóðu tveggja stjörnu hóteli og getum nú
boðið helgarrispu á ótrúlegum kjörum. Hótel Campanile,
öll herbergi með baði, sjónvarpi, síma, nýtt hótel og
smekklegt. Að auki bjóðum við úrval gististaða, spenn-
andi kynnisferðir og íslenskir fararstjórar Heimsferða
tryggja þér ánægjulega dvöl í heimsborginni allan
tímann.
Verð kr. 19.990
Flugsæti tll Parísar meO flugvall-
arsköttum, flug á mánudegi til
fimmtudags.
Verð kr. 24.990
M.v. 2 íherbergi á Hotel
Campanile, 4 nætur, B.október.
Bókaðu strax -
aöeins 10 herbergi
D
Austurstrætt 17,2. hæð * sími 582 4600
„INTERNATIQNAL SNAKE SHOW"
#
A SVIÐi:
* Meðhöndlun á eiturslöngum
* Eitruð cobra mjólkuð
* Eitraðir mangrófar
* o.m.fl.
í fyrsta skipti í Evrópu
Upplýsingar gefur Gula Ifnan 580-8000.
I JL-HUSINU
Hringbraut 121
Opið daglega frá 14-20
MlðaverO
Fullorönlr kr. 700
Elllllfeyrlsþegar og
námsmenn kr. 600
Börn kr. 500
TILBOÐ FYRIR HÓPA