Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1997, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1997
7
Halldór Ásgrímsson utanriklsráðherra tók á móti Gerhard Schröder og fylgdarliði
hans á Akureyrarflugvelli ásamt ýmsum fyrirmönnum bæjarins. DV-mynd gk
Þýski ráðherrann
heimsótti Akureyri
DV, Akureyri:
Opinber heimsókn Gerhards
Schröders, forsætisráðherra Neðra-
Saxlands í Þýskalandi, ásamt 40
manna fylgdarliði hófst á Akureyri
í gær. 1 dag mun Schröder vera í
Reykjavík og á Suðumesjum og
m.a. eiga viðræður við Þorstein
Pálsson sjávarútvegsráðherra, Dav-
ið Oddsson forsætisráðherra, Hall-
dór Ásgrímsson utanríkisráðherra
og þá hittir hann hr. Ólaf Ragnar
Grímsson forseta.
Gerhard Schröder er einn af
kunnustu stjórnmálamönnum
Þýskalands og hefur verið nefndur
sem hugsanlegur eftirmaður
Helmuths Kohl kanslara. í fylgdar-
liði hans hér á landi era háttsettir
embættismenn og þar er einnig
einn íslendingur, Finnbogi A. Bald-
vinsson, framkvæmdastjóri útgerð-
arfyrirtækisins Deutsche Fischfang
Union í Cuxhaven, sem er í meiri-
hlutaeigu Samherja.
Á Akureyri heimsóttu Schröder
og fylgdarlið hans höfuðstöðvar
Samherja og Útgerðarfélags Akur-
eyringa, þá fór hann í stutta kynnis-
ferð um Akureyri og heimsótti m.a.
Nonnahús. í gærkvöldi sat ráðherr-
ann boð Jakobs Bjömssonar bæjar-
stjóra. -gk
Yfirvofandi klofningur á ísafirði:
Bæjarstjóri vill
skýra afstöðu
Skýrsla sem VSÓ ráðgjöf vann fyr-
ir bæjarstjóm ísafjarðarbæjar um þá
möguleika sem fyrir hendi era varð-
andi úrlausn á húsnæðisvanda
Grunnskólans á Isafirði hefúr verið
kynnt. Skýrslan er unnin í samræmi
við samþykkt bæjarstjómar frá því
18. september. Þá var ljóst að ekki var
samstaða um það í bæjarstjóminni
hvaða leið skyldi farin. Skipaður var
starfshópur sem lagði fyrir VSÓ að
gera úttekt á kostum og gölium sex
valkosta í húsnæðismálum skólans.
Um er að ræða nýbyggingar á Torf-
nesi, á Wardstúni, á Skeiði, á Hauga-
nesi eða á skólalóðinni með uppkaup-
um nálægra húsa. Því til viðbótar sá
kostur að kaupa og breyta Norður-
tangahúsunum við Sundstræti. í nið-
urstöðu, sem Kristinn Guðjónsson
rekstrarverkfræðingur hjá VSÓ
kynnti, kemur fram að kaup á Norð-
urtangahúsunum og breytingar á
þeim er talinn ódýrasti kosturinn, en
það er sú leið sem mestur ágreining-
ur hefur verið um í bæjarstjóm. Ljóst
er að meirihluti Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks í bæjarstjóm er klofinn
í málinu. Þar hafa tveir af fimm fúil-
trúum Sjálfstæðisflokks, þau Kolbrún
Halldórsdóttir og Jónas Ólafsson,
ásamt Sigurði Ólafssyni, Aiþýðu-
flokki, lýst yfir andstöðu við kaupin
á Norðurtanganum strax og hug-
myndir um þau vora kynntar í sum-
ar. Á fundinum með fréttamönnum í
gær sagðist Kristján Þór Júlíusson
bæjarstjóri vilja fá fram afstöðu bæj-
arfiilltrúa um málið ekki seinna en í
næstu viku, en þá er ætlunin að efna
til aukafúndar um málið í bæjar-
stjóm. Foreldrar og starfsfólk skólans
verður að fara að fa vitneskju um það
umhverfi sem hér verður á næsta
skólaári!" sagði Kristján Þór og vísaði
til þess að strax næsta haust vantaði
sex kennslustofur fyrir skólann vegna
fjölgunar kennslustunda. Hann sagði
menn hafa rætt það að fresta þessu
máli til kosninga, en þá hefðu menn
bara ekki nema um einn mánuð til að
leysa vandann og það gengi ekki.
Hins vegar var einn kostur til viðbót-
ar ræddur á bæjarráðsfúndi á mánu-
dag. Hann felst í því að taka tvær
hæðir í svokölluðu Kaupfélagshúsi á
leigu og útbúa þar kennsluaðstöðu til
bráðabirgða. Það er því deginum Ijós-
ara að menn komast ekki hjá því að
taka afstöðu til þeirra kosta sem í
stöðunni era og ef menn skipta
gjörsamlega ekki um skoðun, eða
sættast á einhverja málamiðlun, þá er
bæjarstjómin í raun fallin. -HKr.
Kuldaskóp fyrir krakkana
Litur: svart. St. 31-39.
Verð 3.890
Litur: svart m/brúnu.
St. 31-39. Verð 2.790
Leður/nubuk. Litur:
rauður m/brúnu.
Brúnir m/brúnu.
St. 20-30. Verð 3.990
Póstsendum ffítt samdægurs
UTV7007
AKAI
• 20" Black Matrix
myndlampi
• Textavarp
• 50 stöðva minni
• Allar aðgeröir á skjá
• Scart-tengi
• Fullkomin fjarstýring
CT2019
Kr. 32.900 stgr.
13 KCL5TEF
• 28" Black Line myndlampi
(svart er svart - hvítt er hvítt)
• 40w Nicam Stereo magnari
• Textavarp meb ísl. stöfum
• Allar abgerðir á skjá
• Sjálfvirk stöbvaleitun
• Tenging fyrir auka hátalara
• Svefnrofi 15-120 mín.
• Tvö Scart-tengi
• Fullkomin fjarstýring
TVC283
Kr. 54.900 stgr.
Sjónvarpsmiðstöðin
h'mI! LýiU L/á m• SLLv'lL LviUí L U ° L
Umbobsmenn um land allt:
VESTU81AND: Hljómsýn, Akranesi. Kaupfélag Borgfirðinga. Borgarnesi. Blómsiurvellir. Hellissandi. Guðni Hallgrimsson. Grundarfiröi.VESTFIRÐIR: Ratbúð Jónasar Þórs, Patreksliröi. Pdllinn. Isalirði. NOROURIAND: KF Steingrimsfiarðar. Hólmavik.
KF V-Húnvetninga. Hvammstanga. KF Húnvetninga. Blönduósi. Skagfirðingabúð, Sauðárkrúki. KIA. Dalvík. Búkval. AKuteyti. Liósgjafinn. Akureyri. Oryggl Húsavik. KF Þingeyinga. Húsavik. Urð, Raufarhöfn. AUSTURLAND: (F Héraðsbúa, Egilsstððum.
Verslunin Vik Neskaugsstað. Kauptún. Vopnafirði. Kf Vopnfirðinoa. VopttafitSi. Kf Héraðsbúa. Seyðisfiröi Turnbræður, SeyðisfirðLKF Fáskrúðsljatðar. Fáskrúðsfirði. KASK. Djúpavogi. KASK. Hóln Hornalirði. SUÐURLAND: Rafmagnsverkstæði Kfl,
Hvolsvelli. Mwjjl Helln. Heimstækm. Sellessi. KÁ. Sellassi. Rás. Porlákshöln. Brimnes, Vestmannaeyjum. REYKJANES: Rafborg. Grindavik. Rallagnavinnust. Sig. Ingvarssonar. Garði. nafmætti, Halnarfirði.
’HPff
Áskrifendur fá 10%
aukaafslátt af
smáauglýsingum DV
o\\t milff hirry-n<;
V.
9-
Smáauglýsingar
1>
550 5000