Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1997, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1997
Fréttir
13
Hörður Sigurbjarnarson við Húsavíkurhöfn. í baksýn er Haukur sem Norður-
sigling notar í hvalaskoðunarferðirnar. DV-mynd gk
Norðursigling á Húsavík:
Farþegum fjölg-
ar í hvalaskoð-
unarferðum
DV, Akureyri:
„Sumarið var mjög gott hjá okk-
ur. Mér reiknast til að farþegum í
hvalaskoðunarferðum með okkar
skipum hafi fjölgað úr 5.500 í fyrra í
um 9.500 og við erum auðvitað mjög
ánægðir með þessa þróun,“ segir
Hörður Sigurbjamarson, einn eig-
enda Norðursiglingar hf. á Húsavík,
sem er umfangsmesta fyrirtækið
með hvalaskoðunarferðir hér á
landi.
Norðursigling gerir út tvö skip í
hvalaskoðunarferðimar, bæði göm-
ul eikarskip sem hafa verið gerð cil-
gjörlega upp og era hin smekkleg-
ustu. Hörður segir að vissulega hafi
þessi skipakostur aðdráttarafl, ekki
síst fyrir íslendinga.
„Þessi mikla fjölgun farþega hjá
okkur kemur ekki frá neinum ein-
um stað frekar en öðram. Það er
helst að íslendingum, sem sækja í
þessar ferðir, hafi ijölgað og á því
virðist ekkert lát,“ segir Hörður.
Hann segir aö Norðursigling hafi
farið í 384 hvalaskoðunarferðir í
sumar og í öllum þeirra nema þrem-
ur sáust hvalir. Þetta þykir einstak-
ur árangm- og hvergi i heiminum er
hægt að státa af öðram eins tölum.
Hörður segir að næsta vor verði
bryddað upp á ýmsum nýjungum
varðandi þessar ferðir, m.a. verði
settar upp sérstakar ferðir fyrir
hópa skólabarna þar sem ýmsan
fróðleik verður að finna, m.a. er fyr-
irhugað að fara út í Flatey og kynna
þar „veröldina sem var“. -gk
Forréttir:
Graflax, koníakslax, hunangs-
reyktur lax, hreindýrapaté,
kjúklingalifrarpaté,
lúðupaté, laxa- og rœkjufrauð,
rússneskt síldarsalat,
karrísíld og jólasíld.
Aðalréttir:
Drottningarskinka, svínapurusteik,
fylltur kalkún, hamborgarhryggur
og hangikjöt.
Eftirréttir:
ísbar, ris a la Mande og eplapie.
Heitar sósur:
Rauðvínssósa og sveppasósa
Kaldar sósur:
Graflaxsósa, Cantillysósa
og Cumberlandsósa.
Meðlœti:
Rauðkál, Waldorfsalat,
sykurbrúnaðar kartöflur,
gratinerað grœnmeti,
laufabrauð, brauðbar,
kartöflujafningur o.fl.
Verð aðeins
kr. 1.990.-
POTTURINN
OG
Brautarholti 22
Jtfanari uþþlij
í súna 661 /ÓQO
Fyrirtœki og hópar: Sendum jólahlaðborð í fyrirtœki eða heim!
HU'
Rétti tíminn til
aðjjárfesta.
Laxaslátrun hjá Strandarsíld.
DV-mynd Jóhann
Grípa í lax
í síldar-
leysinu
DV, Seyðisfirði:
Lítið hefur borist hingað af síld
frá því um síðustu mánaðamót þar
til rétt fyrir helgi. Þá lifnaði aðeins
yfir veiðinni á ný og nokkur hundr-
uð tonn bárast, einnig á nokkra
aðra staði á Austfjörðum.
Lítið hefur því verið að gera hjá
vinnslustöðvunum, Skagstrendingi
og Strandarsíld, en hjá Strandarsíld
era menn útsjóncU-samir og hafa
lengi haft laxeldiskvíar skammt frá
landi, fram undan stöðvarhúsunum.
Þess vegna er það svo að þegar ekki
kemur afli af veiðiskipum geta
menn nýtt tímann, slátrað laxi og
gengið frá honum til sendingar. Við
það hafa menn unnið að undan-
fórnu.
Mikael Jónsson framkvæmda-
stjóri segir skipstjóra nótaveiði-
skipa vera bæði reiða og hneyksl-
aða yfir því stjórnunarleysi hjá
ráðuneytismönnum að ekki skuli
vera bannað að skarka með botn-
troll á veiðislóð nótaveiðiskipanna.
-J.J.
tói úljihtvið
n öOtuti'.
.\i i ö-'
Viðtal við
Sigurð B. Stefánsson
á bls. 2-3
Ef þú hefur ekki
þegar fengið
þjónustulistann,
vinsamlega hringdu
í síma 560-8900
og við
sendum hann.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
• Aðili að Verðbréfaþingi Islands •
Kirkjusandi. Sími 560-8900, 800-4-800. Myndsendir: 560-8910.