Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1997, Síða 14
14
FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1997
Frjálst, óháð dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaéur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EVJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON OG ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON OG ELÍN HIRST
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritsýórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVÍK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Bandaríkin einangrast
Bandaríkjamenn náðu ekki samstöðu með fyrri
bandamönnum um aðgerðir gegn stjórn Saddams
Husseins íraksforseta. Aðeins Bretar fylgdu þeim skil-
yrðislítið að málum, en aðrir bandamenn vildu friðsam-
legri viðbrögð. Flestir vilja nú auka viðskipti við írak.
Afleiðingin er, að Bandaríkjamenn treystu sér ekki til
átaka að þessu sinni. Saddam Hussein vann enn einu
sinni hálfa lotu í langvinnum þvergirðingi gegn tilraun-
um Sameinuðu þjóðanna til að framfylgja vopna-
hléssamningnum frá lokum Persaflóastríðsins.
Bandalagið gegn Saddam Hussein byrjaði að bila, þeg-
ar Bandaríkjamenn stóðu skyndilega upp í miðju
Persaflóastríði, lýstu yfir sigri og flúðu heim. Þannig
skildu þeir eftir Saddam Hussein ósigraðan og létu fram-
tíðinni eftir að fást við óleysanleg vandræði.
Ekki dugir endalaust að beita viðskiptaþvingunum,
sem greinilega losa ekki um veldistauma Saddams
Husseins, heldur valda saklausum almenningi gegndar-
lausum hörmungum. Leið viðskiptaþvingana kemur
ekki í staðinn fyrir úthald í alvörustyrjöld.
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings varpaði handsprengju
inn á fund öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna fyrir helg-
ina, þegar stjóm Bandaríkjanna var að reyna að safna
liði gegn Saddam Hussein. Deildin felldi greiðslu upp í
skuld ríkisins við Sameinuðu þjóðimar.
Bandaríkjamenn þurfa ekki að borga meira á mann til
Sameinuðu þjóðanna en Vestur-Evrópumenn gera. Mun-
urinn er sá, að hinir síðamefndu greiða yfirleitt gjöld
sín til samtakanna á réttum tíma, en Bandaríkjamenn
em orðnir meðal hinna allra skuldseigustu.
Það þýðir ekki í neinu samstarfi að reyna að skipa
öðrum fyrir og rífa síðan kjaft, þegar á að fara að taka
þátt í kostnaðinum við samstarfið. Þess vegna mim
ákvörðun fulltrúadeildar Bandaríkjaþings flýta fyrir
vaxandi einangrun Bandaríkjanna í umheiminum.
Við sjáum einangrunina vaxa á öðrum sviðum.
Bandaríkjamenn neituðu að taka þátt í samkomulagi
heimsbyggðarinnar um bann við jarðsprengjum. Þeir
eru ekki fáanlegir til að taka á sig svipaðar byrðar af
mengunarvörnum og Vestur-Evrópmenn vilja gera.
Einna alvarlegust er einangrun Bandaríkjanna af
völdum öxulsins, er þeir hafa myndað með hryðjuverka-
ríkinu ísrael, sem er orðið að illkynjuðu æxli í Miðaust-
urlöndum. Bandaríkjamenn láta þennan tryllta banda-
mann sinn komast upp með nánast hvað sem er.
Svik ísraels og Bandaríkjanna við Óslóarsamninginn
um friðarferli í Palestínu magna andstöðu íslamskra
þjóða og ríkja við Vesturlönd yfirleitt og Bandaríkin sér-
staklega. Meðal annars hafa íslamskir bandamenn Vest-
urlanda úr Persaflóastríðinu snúið við blaðinu.
Það er heimssöguleg nauðsyn eftir lok kalda stríðsins
að halda áfram friðarferli milli menningarheima og
draga úr spennu milli Vesturlanda og ríkja íslams. Öx-
ull Bandaríkjanna og ísraels hefur þveröfug áhrif. Hann
magnar spennuna og mun leiða til átaka í framtíðinni.
Bandaríkjamenn geta ekki stjómað heiminum í krafti
peninga. Þeir segjast ekki einu sinni hafa ráð á að taka
þátt í kostnaði við stækkun Atlantshafsbandalagsins.
Þeir geta ekki lengur stjórnað í skjóli hervalds. Þeir
flúðu frá Víetnam, Líbanon, Sómalíu og írak.
Á innanlandsmarkaði bandarískra stjómmála er ein-
angrunin túlkuð sem vanþakklæti útlendinga. Viðbrögð-
in eru í stíl fulltrúadeildarinnar: Meiri einangrun.
Jónas Kristjánsson
íslenska skólakerfiö er í mikilli lægö, þaö er staöreynd," segir dr. Bragi m.a. í greininni.
Spútnik og TIMSS
irmyndai-skólakerfi,
heilbrigðiskerfl,
tryggingakerfi o. fl.
Góð frammistaða ís-
lenskra námsmanna
erlendis benti einnig
til þess að menntun-
arástand þjóðarinnar
væri ekki bara gott
heldur jafnvel fram-
úrskarandi.
Landsmenn ráku
upp stór augu
Alþjóðlegir mæli-
kvarðar geta verið af
ýmsum toga. Stund-
um virka þeir eins og
sprengja á heims-
byggðina. Besta dæmi
„...þá virðist mér Ijóst að skóla-
kerfí okkar stenst ekki lengur
samanburð við það sem sjá má
víða erlendis, jafnvel meðal
þjóða sem fyrir tveim-þrem ára-
tugum stóðu okkur langt að
baki.“
Kjallarinn
Bragi Jósepsson
prófessor
Fyrir mörgum1
árum vakti Ármann
Snævarr, þáverandi
rektor Háskóla ís-
lands, athygli á því
að okkur íslending-
um væri nauðsynlegt
að mæla frammi-
stöðu okkar með al-
þjóðlegum mæli-
kvörðum; ef við ger-
um það ekki værum
við einungis að
blekkja okkur sjálf.
Hugsunin þarna á
bak við er sígild og
gagnleg til umhugs-
unar.
Góöar forsendur
Eftir að ísland
gerðist aðili að Sam-
einuðu þjóðunum
var oft vakin athygli
á smæð þjóðarinnar
enda var ísland lengi
framan af langm-
innsta aðildarríkið.
Margir íslendingar
litu svo á, og sjálfsagt
margir aðrir, að aö-
ild íslands að Sam-
einuðu þjóðunum
væri alþjóðleg viður-
kenning á menningu og sögu þjóð-
arinnar.
Á þessum árum og lengi þar á
eftir var oft rætt um sérstöðu ís-
lands og íslendinga með það fyrir
augum að skipuleggja og þróa fyr-
irmyndarsamfélag. Bent var á
menningarlega sérstöðu þjóðar-
innar, vel þróað ritmál, öruggt og
lýðræðislegt stjómarfar, lága af-
brotatíðni og smábamadauða með
þvi minnsta í heiminum. Ýmislegt
fleira var tínt til.
Þetta vom sem sagt taldar góðar
forsendur þess að íslendingar
hefðu möguleika á því að þróa fyr-
um það er án efa Spútnik þegar
Rússar skutu Ameríkönum ref fyr-
ir rass haustið 1957.
í Bandaríkjunum var litið á það
sem meiriháttar áfall og þungan
áfellisdóm á bandaríska skólakerf-
ið. Viðbrögðin vom sterk og aukið
fjármagn var veitt til menntunar
kennara, til skólamála almennt og
til rannsókna.
Haustið 1996 voru birtar niður-
stöður úr viðamikilli alþjóðlegri
rannsókn (TIMSS) um frammi-
stöðu skólabarna í stærðfræði og
náttúrufræði. Þá kom í ljós að „ís-
lensku keppendurnir“ höfðu stað-
ið sig illa og landsmenn ráku upp
stór augu. Einhverjir héldu e.t.v.
að menn hefðu ruglast á skýrslum
og væru með niðurstöður frá
Ólympíuleikunum en ekki þessa
stóm, alþjóðlegu samanburðar-
könnun sem menn höfðu beðið eft-
ir. En því miður, enginn hafði
raglast á skýrslum; þetta var
heilagur sannleikur.
í stærðfræði í 7. bekk var ísland
í 30. sæti af 39 mögulegum og i 8.
bekk var ísland í 32. sæti af 41
mögulegu. Árangurinn í náttúra
fræði var lítið betri. Þótt hér sé
um að ræða vandaða samanburð
arrannsókn má án efa finna ýmsai
ástæður fyrir lélegri frammistöðu
islenskra skólabama. Leiðrétting
á einhverjum slíkum atriðum gæti
e.t.v. hækkað okkur um einhver
stig og þannig gætum við jafnvel
orðið sambærilegir við landsliðið í
handbolta.
Stenst ekki samanburö
En svo öllu gríni sé sleppt, þá
virðist mér ljóst að skólakerfi okk-
ar stenst ekki lengur samanburð
við það sem sjá má víða erlendis,
jafnvel meðal þjóða sem fyrir
tveim-þrem áratugum stóðu okk-
ur langt að baki. Ekki vegna þess
að við komum illa út á áðumefndu
prófi, heldur vegna þess að mér
virðist að ýmsar þjóðir, sem ég
þekki til, séu á hraðri siglingu
fram úr okkur með betra og skil-
virkara skólakerfi. Islenska skóla-
kerfið er í mikilli lægð, það er
staðreynd.
Gallinn er bara sá að menn sjá
það ekki eða vilja ekki skilja það.
Okkur hefur því miður ekki tekist
að færa okkur í nyt þær hag-
kvæmu ytri og innri aðstæður
sem ég nefhdi í upphafi og álitið
var að mætti nýta almenningi til
heilla.
Bragi Jósepsson
Skoðanir annarra
Þríklofinn þingflokkur
„Sú ákvörðun meirihluta á landsfundi Kvennalist-
ans um helgina að samtökin skuli ganga með form-
legum hætti til viðræðna við Alþýðuflokkinn og Al-
þýðubandalagið er aðeins nýjasta merki um þá al-
vöru sem komin er í málið. Þótt þriggja manna þing-
flokkur Kvennalistans sé ljóslega þriklofmn í af-
stöðu sinni til slíkra viðræðna var meirihlutinn á
landsfundinum ekki lengur tilbúinn að þæfa málið
endalaust innan samtakanna, heldur knúði fram at-
kvæðagreiðslu sem í reynd felur i sér ákvörðun um
að hlutverki Kvennalistans sem sjálfstæðra stjóm-
málasamtaka sé lokið.“
Elías Snæland Jónsson í Degi 19. nóv.
Matur án milliliða
„Nútímafólk hreinlega étur í sig hörgulsjúkdóma,
sjúkdóma sem voru fátíðir í byrjun aldarinnar. Allt
þrátt fyrir heilsubúðir sem aldrei fyrr, fullar af
vítamínum og öðram heilsuvörum... Grænmetisætur,
sem oft halda að þeirra mataræði sé hið eina rétta,
eiga á hættu að fá ýmis hörguleinkenni sem rekja má
til vannæringar á framefmun eins og t.d. járni. Þá
hefur nútíma verksmiðjuvinnsla matvæla einnig haft
í fór með sér minnkun á magni frumefna. Matur án
allra milliliða er því hollastur eins og fyrrum."
Páll Stefánsson efnaverkfr., í Mbl. 19. nóv.
Alþýðubandalagið og
Evrópumál
„ísland er aðili að EES í dag og hæpið er að Alþýðu-
bandalagið sem flokkur myndi gera það að kröfu að
segja EES-samningnum upp ef verið væri að fjalla um
þátttöku í stjórnarsamstarfi... Flokkurinn hefúr mýkt
harða afstöðu sína gagnvart evrópsku samstarfi og
bent á að aukin umræða sé nauðsynleg. Flokkurinn
vill að áhrif EES-samningsins á íslenskt þjóðfélag séu
metin og flokkurinn vill líka opna heiðarlega og lýð-
ræðislega umræðu um stöðu íslands i Evrópu. Flokk-
urinn vill því Evrópumálin á dagskrá."
Ari Skúlason í Degi 19. nóv.