Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1997, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1997, Blaðsíða 15
FIMMTUÐAGUR 20. NÓVEMBER 1997 15 Tíðindalaust af versl- unarvígstöðvunum Kaupheitum íslendingum hleypt inn í fríhöfnina i Leifsstöö. Lendingin er dálítið harkaleg, og mér koma í hug flugslysamyndir og sprengjuhótanir og loka augunum þess al- búin að sjá haug af blóðugum sundurbútuð- um líkum þegar ég opna þau aftur. En svo er ekki, og ég heyri flugfreyju segja afsak- andi við innkaupanda: „Við erum svo létt, við skoppum bara, þetta verður allt annað á heimleiðinni. Þá þurf- um við alla brautina til að takast á loft og lend- um mjúkt og maga- þungt." Og það stendur; kvið- síð heimalendingin var áberandi laus við blóðuga drauma. Dublin - ein risastór Kringla En nú hafa innkaupaglaðir ís- lendingar risið úr sætum og eru tilbúnir með vísakortin á lofti að leggja Irland í auðn, öðru sinni. Það kemur babb í (flug)bátinn, ósvífnir flugvallarstarfsmenn eru lengi að tengja túbuna við dymar. „Þetta er ekki hægt“, kveður einn andþungur upp úr, „dagurinn er meira en háifnaður!" Að hugsa sér allan þann tíma sem fer til spillis, á meðan hefði mátt kaupa fatnað og leikfong, alla vega á hálft bam. Ekki tekur betra við þegar dym- ar opnast og æst liðið gubbast út: Verslendur eru tafðir af vegabréfa- skoðun. „Að þeir skuli ekki hafa reddað þessu,“ seg- ir ein, hneyksluð, enda hafa „vega„bréf‘ ekki þekkst í millilanda- ferðum nema rétt um þúsund ár. Auk þess er þetta fólk í raun alls ekki að ferðast milli landa, fyrir því er Dublin ekkert annað en risastór Kringla, verslunarmiðstöð með meiru. „Þetta er bara alveg eins og í Síberíu," segir einn, glaðhlakka- legur, og stíflar röð- ina í umfangsmik- illi leit að vegabréfi á botni tóm- legrar tösku. Samanburður nútímanum í óhag En aflt tekur þetta enda og Is- lendingar dreifa sér jafht á verslan- ir Dyflinnar. Heyrst hefúr að fólk hafi grátið þegar ekki náðist að kaupa nóg, enda er kappið gríðar- legt. „Dublin var byggð af viking- um,“ segir leið- sögukona á leið til Glendalouch en þar var eitt af fjölmörgum klaustrum sem vikingar rændu og brenndu. „Núna koma ís- lendingar í heilum flugfórmum og gera jólainnkaupin í Dublin." Ein- hvern veginn fékk ég á tilfinning- una að samanburðurinn væri nú- tímanum í óhag, þrátt fyrir stolið gull og brenndar bækur. Yfirgefin taska I flugstöðinni flykkist múgur- inn, nú ofurliði borinn af tösku- burði, að innritunarborðunum. Æsingurinn er greinilega mikill að koma heim og finna út hvað eiginlega er í töskunum. Tvær dömur í alveg eins spánnýjum vattjökkum líta mig og mínar tvær linkulegu íþróttatöskur horn- auga og mjaka sér fimlega fram- fyrir mig í „röðinni". Ég er svo upptekin af því að safna efni í þessa grein að ég veit ekki fyrr en heill frændgarður og eitt harðneskjulegt par að auki hefur fylgt á eftir. En ég hnerra bara, enda handhafi þeirra forrétt- inda að geta smitað 360 íslendinga af flensu á heimleiðinni. Það er hleypt í hollum inn í frí- höfnina í Leifsstöð og Mackintosh konfekt í margra lítra kössum freistar kaupheitra íslendinga. „Hvað ætlarðu eiginlega að gera við aflt þetta sem við keyptum," hvislar maður að konu sinni, eftir að hafa sagt borginmannlega við annan: „Jú, við fórum með um 12 hundruð." „Ekki spyrja að neinu svona flóknu núna,“ svarar hún. Töskumar koma seint, enda er bandið svo ofhlaðið að það stöðvast hvað eftir annað. „En við eigum sex böm,“ mótmælir ein móðir þegar glaseygir tollverðir glugga i töskufiallið. Þegar allt er yfirstaðið ferðast ein einmana, yfirgefin taska hring eftir hring eftir hring eftir hring. Úlfhildur Dagsdóttir Kjallarinn Úlfhildur Dagsdóttir bókmenntafræðingur „/ flugstöðinni flykkist múgurinn, nú ofuriiði borinn af töskuburði, að innritunarborðunum. Æsingur■ inn er greinilega mikill að koma heim og finna út hvað eiginlega er í töskunum.u Biðlistar í Hafnarfirði Samkvæmt lögum um dagvistar- heimili er tilgangur þeirra m.a. að búa bömum umhverfi og skilyrði sem auka þroska þeirra. Sam- kvæmt þessu er rökrétt að áætla að tilgangur með rekstri leikskóla hljóti að vera sá að veita bömun- um og foreldrunum sem besta þjón- ustu og koma sem mest til móts við þarfir þeirra. Margir þættir koma til og málið snýst ekki bara um að hafa sem bestan aðbúnað eða sem glæsilegust húsakynni. Að sjálfsögðu eru gæði í leikskól- um samspil margra þátta, t.d. að- búnaðar bama, innra starfs, að- búnaðar starfsfólks, viðmóts starfs- fólks, húsakynna, sveigjanleika í vistun, frjáls vals um vistunartima o.fl. Grundvallaratriðið er það að gæði leikskóla em ekki fólgin í því hversu miklum fjármunum sveitar- félagið ver í þá. Gæðin byggjast á því að fjármunir séu vel nýttir, dagvistunarkerfið í heild sé hvetj- andi og að það góða starfsfólk sem þar er að fmna fái að njóta sín. Forgangshópar á sérsamningi? Skortur á stefnumótun til langs tíma, framtíðarsýn og forgangsröð- un hafhfirskra yfirvalda varðandi dagvistunarmál hefur valdið því að ekki hafa verið til næg dagvistun- arrými fyrir hafnfirsk böm og reyndar standa þessi atriði öllum eðlilegum rekstri Hafnarfjaröar- bæjar fyrir þrif- um. Óvæntir lið- ir, eins og íjölgun bama í árgöng- um eða krafa for- eldra um breytta þjónustu, kemur hafnfirskum ráðamönnum í opna skjöldu þar sem nothæfar áætlanir um framtíð þessarar þjónustu hefur skort. Eitt af því sem einkennir núver- andi leikskólakerfi er að það er byggt upp á flóknu kerfi forgangs- röðunar. Gift fólk eða fólk í sam- búð hefur átt í erfiðleikum með að finna dagvistunarlausnir í Hafhar- firði; hvergi á höfuðborgarsvæðinu em lengri biðlistar eftir dagvistun- arplássum en i Hafn- arfirði. Endurskoða þarf stefnu Hafnar- Qarðar í dagvistunar- málum frá grunni. Foreldrar eiga rétt á að fá pláss í dagvistun fyrir börnin og það fjármagn sem til skiptanna er þarf að nýta betur. Það er hægt að gera með því að nýta kosti markað- arins og frjálsrar sam- keppni á þessu sviði eins og öðrum. Einkareknir leik- skólar hafa fyrir löngu sannað gildi sitt og það eina sem menn hafa fundið þeim til foráttu er kostnaður foreldra vegna bama þar. Það vandamál getrnn við leyst með því að taka upp ávísanakerfi. Hvað er ávísanakerfi? Ávísanakerfið byggist upp á því að foreldrar fá ávísun að ákveðinni upphæð með hverju barni á leik- skólaaldri. Þeir geta síðan ákveðið hvort þeir vilja senda bamið í leik- skóla, til dagmömmu eða einfald- lega að vera heima með baminu. Upphæð slíkrar ávísunar er í gróf- um dráttum fundin þannig að heildarkostnaði bæjarfélagsins vegna dagvistunar er deilt með fjölda bama á leikskólaaldri. For- eldrar fá þessa ávísun síðan i hendur og geta eins og áður sagði val- ið sér dagvistunarleið í framhaldinu. Þá geta þeir sem vilja dýrari dagvistun bætt við upphæðina en þeir sem velja ódýrari leið- ir, eins og til dæmis að vera heima með börnunum, geta nýtt mismuninn á móti launatapi. Forsendan fyrir þvi að þetta kerfi gangi upp er sú að Hafhar- fjarðarbær selji smám saman eða leigi út þá leikskóla sem hann nú rekur og búi þannig um hnútana að starfsemin verði með tímanum öll á hendi einkaaðila, þó að sjálfsögðu undir ströngu eftirliti opinberra aðila. Með þessu er talið að hægt sé á frekar stuttum tíma að útrýma biðlistum, laun starfsfólks á leik- skólum hækki og að gæði leik- skólastarfsins aukist. Komist ég í bæjarstjórn Hafnarfjarðar mun ávísanakerfi í dagvistunarmálum verða eitt af mínum helstu baráttu- málum. Svavar Halldórsson „Foreldrar eiga rétt áaðfá pláss í dagvistun fyrir börnin og það fjár- magn sem til skiptanna er þarf að nýta betur. Það er hægt að gera með því að nýta kosti markaðar- ins og frjálsrar samkeppni á þessu sviði eins og öðrum.u Kjallarinn Svavar Halldórsson tekur þátt í prófkjöri Sjálfstæöisflokksins f Hafnarfirði Með og á móti Á Kvennalistinn að fara í málefnasamstarf við aðra flokka? Nú er tæki færi til aö hafa áhrif Guöbjörg Linda Rafnsdóttir. „Mér finnst andinn í þjóðfélag- inu þannig að málefnasamstarf sé leið kvennabaráttunnar. Ég gekk í Kvennalistann á ný í vik- unni vegna þess að ég er ánægð með að meirihlutinn er tilbúinn í þessa málef- naumræðu. Þegar fram- boðið var stofnað á sín- um tíma var litið svo á að baráttan fyndi sinn eigin farveg. Við töldum þá leiö mjög sterka enda skilaði hún sínu. Nú hefur tíðarandinn breyst, sér í lagi meðal ungs fólks. Þar er meðbyr með þeim málefnum sem kvenna- framboðið og Kvennalistinn hafa lagt áherslu á. Við stöndum nú frammi fyrir því að fólk í Grósku og fleiri leggja áherslu á aö fé- lagshyggjufólk sameinist. Mér finnst kjörið tækifæri að sjá til þess aö kröfur kvenna heyrist - í þaö minnsta í málefhaumræðu og hafi þannig áhrif á þá hreyfmgu sem hugsanlega er að mótast. Ég lít á að ákveðin hreyfing sé í upp- siglingu og að kvenfrelsissjónar- mið hafi tiltekin meðbyr. Þess vegna á Kvennalistinn að grípa tækifærið og hafa áhrif í hinu nýja afli sem er að myndast á meðal félagshyggjuflokkanna. Ég vísa til dæmis í Reykjavíkurlist- ann sem ég tel að hafi gefið gott fordæmi. Mér finnst við hafa séö þar að það er hægt að fram- kvæma jákvæða hluti ef aðrir vilja leggja áherslu á svipuð mál- efni og gert hefur verið í Kvenna- iistanum." Áherslur okkar munu þynnast „Ég held að það sé hægt að fara svo margar leiðir í kvennabar- áttu. Miðað við það sem nú er lagt í hef ég meiri trú á að aðrar leið- ir séu heppi- legri. Listinn hafði á sínum tíma margt fram að færa sem var nýtt og ferskt í íslensk- um stjórnmál- um. Það sem ég held er að helsti ágalli þessa sé að stórhætta er fólgin í þeim breyt- ingum sem margar kvennanna hafa nú áhuga á. Breytingamar munu þynnast út og verða víkj- andi. Ég veit að þetta er ekki sú leið sem mér finnst vænleg til ár- angurs. Ég held aö þaö séu brýn verkefni frammidan i kvennabar- áttunni og að við þolum ekki þessa útþyningu. Strax á stefnu- mótunarstigi er farið að móta þessar hugmyndir í samráði við fólk sem ekki hefur þessa brenn- andi löngun til að bæta kjör kvenna á sama hátt og við. Þetta er stærsta ástæða þess að ég er þessu mótfaflin. Auðvitað er margt sem við eigum sameigin- legt með öðrum. En Kvennalist- inn varð til með ákveönu verklagi og því aö sýna með málefnum og vinnubrögðum hvemig nýir hlut- ir eru brotnir upp.“ -Ótt Anna Ólafsdóttlr Björnsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.