Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1997, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1997
Fréttir
Varaborgarfulltrúi krata íhugar úrsögn:
Ef maður er ekki vel-
kominn þá fer maður
að Gumar styddu Hrannar Amars-
son. Plottið hafi gengið eftir og Gunn-
ar fallið út, ekki síst vegna þess að
fundarsókn var fremur dræm og að-
eins um helmingur fulltrúaráðs-
manna mættur. Stuðningsmenn
Gunnars sem DV hefur rætt við segja
að þeir hafi þetta í raun staðfest því
þeir viti nú nákvæmlega hvernig at-
kvæði féllu í fúlltrúaráðinu og hveij-
ir greiddu hverjum atkvæði sín.
Ungliði sem DV ræddi við í gær
vísar því á bug að um plott hafi ver-
ið að ræða. Hann sagði að ungliðar
hefðu ekki greitt Gunnari Levy at-
kvæði af þeirri ástæðu einni að
hann heföi ekki áhuga á R-listasam-
starfinu og teldi það ekki skref í átt-
ina að sameinuðum jafhaðarmanna-
flokki og væri þeirri hugmynd and-
snúinn. Hann væri því í raun and-
stæðingur yfirlýstrar stefiiu ungra
jafiiaðarmanna og þess vegna heföu
þeir ekki greitt honum atkvæði sín
á fúndinum. -SÁ
- segir Gunnar Levy Gissurarson
Gunnar Levy á R-listafundi í Kornhlöðunni. DV-mynd Hilmar Þór
Gunnar Levy Gissurarson, vara-
borgarfulltrúi R-listans í borgar-
stjóm, íhugar nú úrsögn úr Alþýöu-
flokknum eftir að blokkir vom
myndaðar gegn honum á full-
trúaráðsfundi og hann felldur út af
lista þátttakenda í prófkjöri R-listans
af hálfu Alþýöuflokksins. „Svona af-
greiðslur leggjast aldrei vel í mann.
Það er augljóst aö þegar maður finn-
ur sig ekki velkominn í partíinu þá
fer rnaður," segir Gunnar viö DV.
Missagt var í fyrirsögn fréttar DV
í gærmorgun að ungkratar væm
æfir vegna þess að Gunnar hefði
verið felldur út því það vom ekki
síst ungkratar sem greiddu atkvæði
gegn Gunnari, fyrmm frambjóð-
anda sínum. Gunnar segir við DV
að ákveöiö plott hafi verið í gangi
sem endaöi svona. „Það átti að
losna við mig og það tókst og maður
veröur aö taka því,“ segir hann.
Um er aö ræöa ungliöa og svokall-
að Gumalið, sem kennt er viö Birgi
Dýrfjörö, auk krata innan félagsins
Rósarinnar en Birgir Dýrfjörð er
formaður þess. Gunnar segir að
þessar fylkingar hafi efnt til sam-
blásturs gegn sér.
Stuöningsmenn Gunnars segja að
Pétur Jónsson hafi óttast um gengi
sitt og framtíð innan R-listans. Hann
hafi því fengið Rósarkrata og
Gumaliðið til liðs viö sig. Þeir hafi
gengið í málið og samiö viö ungliö-
ana, fyrrum stuöningsmenn Gunnars
Levys, um að þeir styddu Pétur Jóns-
son á fúlltrúaráðsfúndinum gegn því
Áhöfn Hvannabergs sagt upp eftir Qölda dómsmála:
Skip á kolsvörtum lista
- segir Sævar Gunnarsson, forseti Sjómannasambands fslands
Sakaferill
1997
18. desember
Félagsdómur hafnar frðvísunarkröfu LIÚ.
16. desember
Áhðfninni ailri sagt upp störfum.
2. desember
Áhöfn Hvannabergs óskar eftir þvl aö Úrskuröarnefnd sjómanna
og útgeröar ðkvaröi verö á iönaöarrækju.
1. október
Útgeröin dæmd í Félagsdómi fyrir brot á lögum um sjómannadag
Júní
Félagsdómur úrskuröar verkfallsboöunina lögmæta.
Júní
Útgeröln kærö fyrir aö halda sklpinu úti á sjómannadegi.
14 maí
Sjómannafélag Ólafsfjaröar boöaöl verkfall á Hvannabergl vegna
þess aö útgeröin borgaöi ekki samkvæmt dómnum.
Maí
Útgeröin kæröl verkfallsboöunina til Félagsdóms.3.
5. mars
Félagsdömur dæmdi útgeröina seka um brot á kjarasamningum.
30. Janúar
Hæstlréttur hafnar frávísunarkröfu LÍÚ.
1996
28. nóvember
Mállö þlngfest á ný fyrir Fálagsdöml, nú I kjarasamnlngsbúningl.
15. október
Hæstlréttur staöfestl frávfsun Fálagsdöms.
27. september
Félagsdömur vfsaöl málinu frá þar sem krafan byggölst á lögum en
ekki kjarasamnlngum. Úrskuröurlnn kæröur tll Hæstaréttar.
Júlí
Dellu áhafnar og útgeröar Hvannabergs um þátttöku I kvötakauþum
vlsaö tll Félagsdóms
„Það er ekkert nýtt hjá Þormóði
ramma að beita bolabrögöum gagn-
vart áhöfnum sínum,“ segir Sævar
Gunnarsson, forseti Sjómannasam-
bands islands, vegna uppsagna
áhafnarinnar á togaranum Hvanna-
bergi ÓF. Það sem vekur sérstak-
lega athygli við uppsagnimar er að
deila hefúr staðiö siðan í júlí 1996
milli útgerðar og áhafnar skipsins
um fiskverð og þátttöku áhafnar í
kvótakaupum. Deilan hefur farið
um fjölda dómstiga meö ótal til-
brigöum. Áhöfnin er búin aö vinna
málið fyrir öllum dómstigum og síð-
ast fyrir Hæstarétti. Þá tóku viö ný
málaferli þar sem útgerðin neitaði
aö greiöa samkvæmt dómnum. Það
mál er enn óútkljáð og hefúr Þor-
móður rammi- Sæberg greitt um 40
prósent af kröfúnni sem nú er fyrir
Héraösdómi. Loks má nefna að út-
gerðin var dæmd til aö greiða
áhöfninni fyrir að hafa brotiö á
henni meö því aö halda skipinu úti
á sjómannadaginn. Útgerðin segir
uppsagnimar ekki tengjast deilun-
um og að þær séu eingöngu hluti af
eðlilegri hagræöingu. Sjómenn
halda því aftur á móti fram að þær
séu í beinum tengslum viö deilu-
málin og skólabókardæmi um aö
sjómenn hafi engin ráð gegn því aö
verða hlunnfamir vegna kvóta-
brasks.
Sævar segir að þetta sé ekki í
fyrsta sinn sem Þormóöur rammi-
Sæberg beiti áhafnir sínar hörðu
þegar upp hefúr komiö ágreiningur
um fiskverð.
„Fyrirtækið gerði þaö í vor þegar
Sjómannafélag Ólafsfiarðar boðaöi
verkfall í því skyni aö innheimta þá
fiármuni sem Félagsdómur hafði
dæmt þá til aö greiða áhöfiiinni.
Það hótaði aö kalla skipið heim frá
Flæmingjagrunni
og leggja því og hélt
þeirri hótun til
Streitu þar til verk-
fall var að skella á.
Þá borgaði það að-
eins hluta upphæð-
arinnar," segir
hann.
Fleiri refsað
„Þetta sama fyrir-
tæki hélt líka tveim-
ur skipa sinna, Stál-
vík og Sigluvík, í
landi 7 vikur í
fyrrahaust og neit-
aöi að fara inn í Úr-
skurðarnefnd með
hið umdeilda rækju-
verð. Það hefði ver-
ið kallað ólöglegt
verkfall hjá sjó-
mönnum. Þaö tók
enginn fiölmiðill,
ekki einu sinni DV,
eftir því að þeir
héldu þeim í landi
þangað til sjómenn-
imir samþykktu að
skrifa upp á lægsta
rækjuverð sem sést
hafði á Norður-
landi. Þetta er
harkalegt og það er
þeirra taktur að
snúa upp á
handlegginn á mönnum ef þeir
mögulega geta,“ segir hann.
Kolsvartur listi
„Viö eigum engin vopn því þaö er
gagnkvæmur réttur að segja upp.
Þetta fyrirtæki er komið á kolsvart-
an lista hjá verkalýðshreyfingunni
og þá sérstaklega sjómönnum. Það
er alveg sama hvað kemur upp hjá
þessu fyrirtæki, ofbeldi er beitt. Það
er regla þessa fyrirtækis fremur en
undantekning að eiga í styijöld viö
fólkið,“ segir Sævar.
Guðjón A. Krisfiánsson, forseti
Farmanna- og fiskimannasambands
íslands, tekur í sama streng og Sæv-
ar. Hann segir aö með uppsögnun-
um sé verið aö framfylgja nýrri
stefnu útgeröarmanna.
Jólaboðskapur
„Nú eru menn byijaöir að fram-
kvæma hótanir sínar í samræmi viö
stefnumörkun formanns Útvegs-
mannafélags Noröurlands. Þama
sýna menn sinn gleöilega jólaboð-
skap og náungakærleikann í verki.
Þeir eru teknir til við að berja milli-
liðalaust á launþegum sínum án af-
skipta ríkisvaldsins," segir hann.
„Við teljum fyrirtækið Þormóð
ramma ekki vera í hópi þeirra fyrir-
tækja sem hafa eölileg samskipti við
sína starfsmenn," segir Guðjón.
-rt
Fuglainflúensa:
Faraldur á næsta ári
- segir Sigurður Guðmundsson
„Það er alveg mögulegt að
þessi stofn berist til Vesturlanda,
eins og reyndar inflúensustofnar
gera venjulega. Þeir eru oftast
upprunnir i Austur- eða Suðaust-
ur-Asíu,“ sagöi Sigurður Guð-
mundsson, smitsjúkdómasér-
fræöingur á Landspítalanum, í
samtali við DV í gær. „Þaö er
hugsanlegt aö þetta eöa skyldur
stofii verði faraldur næsta árs.“
Að minnsta kosti tvö dauðsföll
hafa orðiö undanfama daga í
Hong Kong af völdum þessarar
nýju tegimdar inflúensu sem köll-
uð hefur verið fuglainflúensan
því svo virðist sem hún hafi smit-
ast úr fiöurfé í fólk. Siguröur
sagði það reyndar ekki óþekkt
fyrirbrigði.
„Það era yfirleitt ekki sömu
stofnamir sem sýkja skepnur og
menn en í þessu tilviki viröist
svo vera. Þaö era til dæmi um
þaö áöur, ég man ekki betur en
aö inflúensufaraldurinn 1918 hafi
verið undir svipuðum formerkj-
um,“ sagöi Sigurður.
Hann kvaðst eiga von á aö unn-
iö yrði bóluefhi gegn fuglainflú-
ensunni á næstunni til að hægt
væri aö bólusefia fólk gegn henni
bærist hún hingað til lands. Sig-
uröur sagöi að þessi inflúensa
væri í raun ekkert skæöari en
aðrar tegundir. Það sem réöi
mestu um hversu skæð flensa
yröi væri í raun hversu næmur
hópurinn sem fær hana væri fyr-
ir henni. Þannig væri alls óvíst
að hún legöist eins þungt á fólk á
Vesturlöndum og hún geröi nú í
Asíu.
-Sól
Stuttar fréttir x>v
Breytt Borgarleikhús
Rekstrarráðgjafi verður feng-
inn til að endurmeta rekstrar-
stjóm Borgarleikhússins og fiár-
þörf. Niðurstaða á að fást I mars.
Gert er ráð fyrir því að rekstur
Leikfélags Reykjavíkur og leik-
hússins verði aðskilinn.
Nýr mjólkursamningur
Nýr búvörasamningur milli
ríkisins og kúabænda hefur verið
geröur. Formaður kúabænda
vonast til að hann bæti kjör
bænda jafnframt því sem hann
auki frjálsræði og samkeppni.
Tveir náðust upp
Búið er að ná upp flökum
tveggja af þremur bátum sem
brunnu og sukku í höfninni á
Rifi í gær. Þeim þriðja verður
náð upp í dag. Þeir era allir geró-
nýtir.
Slappt rafmagnseftirlit
Ögmundur Jónasson sagði í ut-
andagskrárumræöu á Alþingi í
gær að raf-
magnseftirliti
hefði stórlega
hrakað síðan
opinbert raf-
magnseftirlit
var lagt nið-
ur, auk þess
sem það væri
nú dýrara.
Finnur Ing-
ólfsson iðnaðarráðherra vísaði
hvora tveggja á bug.
Vantar hjúkrunarpláss
Hátt í 200 gamalmenni bíöa eft-
ir plássi á hjúkranarheimilum á
höfuðborgarsvæðinu. Meöalbið-
tími er nú upp undir eitt ár og
formaður félagsmálaráðs segir
ástandið óviðimandi. Stöð 2 sagði
frá.
Þreifað á Kringlunni
Stöö 2 segir að þreifingar séu
milli eigenda Kringlunnar og
þeirra sem hyggja á aö byggja
nýja verslanamiöstöð í Smáran-
um í Kópavogi. Þeir síöamefndu
fái hlutdeild i stækkun Kringl-
unnar gegn því að hætta viö nýju
miöstöðina.
Læknamistök
Landlækni hafa borist um 750
kærur og kvartanir vegna lækna-
mistaka síöustu sjö árin og telur
aö um þriöjungur þeirra eigi viö
rök aö styðjast.
Groddaleg vinnubrögð
Dómsmálaráöherra sagði á Al-
þingi í gær að
vinnubrögð
lögreglusfióra-
embætta við
að klippa
númer af bíl-
um væru ekki
þau sömu alls
staðar. Sum
embætti
sendu út að-
vöran til bíleigenda áður en
númer væra fiarlægö, en önnur
ekki. Hann sagði að þessu yrði
kippt í liðinn.
Ingólfur hissa
Ingólfur
Margeirsson,
höfundur ævi-
sögu Esra Pét-
urssonar
læknis, kveðst
í samtali við
Sjónvarpiö
vera undrandi
yfir írafári
um bókina.
Jólatónleikar
Hinir árlegu jólatónleikar ís-
lenska listans, Coca-Cola og
Háskólabíós verða í kvöld. Á
tónleikunum kemur hljóm-
sveitin Nýdönsk fram í síöasta
skipti í bili aö minnsta kosti.
Aðrir listamenn era Helgi
Bjömsson og söngvarar úr
Bugsy Malone.
-SÁ