Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1997, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1997, Page 19
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1997 ennmg Edda Erlendsdóttir. DV-mynd Pjetur Gaman að gera allt sjálf Edda Erlendsdóttir píanóleikari var að gefa út hljómdisk með píanó- verkum eftir Tchaikovsky. Annars vegar eru á honum Árstíðimar op. 37, verk í tólf köfhim, hins vegar sjö smálög, sérstaklega valin af flytj- anda úr aragrúa fallegra laga eftir tónskáldið. Edda hefur gefið út tvo diska áður með píanóleik en þetta er í fyrsta sinn sem hún gefur út sjálf. „Maðurinn minn tók diskinn upp og gerði umslagiö," segir hún, „okk- ur fannst mjög spennandi að sjá um þetta allt sjálf.“ Þau hjónin hafa líka gefið út tvo diska með tangótónlist og væntanlegur er einn slíkur í við- bót sem var tekinn upp i tónlistar- húsi í Stokkhólmi. Enn eru hrifnum áheyrendum í fersku minni töfrandi tangótónleikar sem þau hjónin, Edda og Olivier Manoury, héldu með völdum aðstoðarmönnum í Loftkastalanum á Listahátíð í fyrra. Edda hefur búið í París í 24 ár og er nú prófessor i píanóleik við Tón- listarháskólann í Versölum. Hún hefur leikið á tónleikum víða um heim, klassísk verk og nútímaverk. „Það eru forréttindi að fá að spila tónlist af fleiri en einni gerð,“ segir hún, „þannig verður lífið svo skemmtilegt." - Er öðruvísi að spila á tónleikum hér heima en erlendis? „Já, það er alltaf gott að koma heim að spila. Maður hefur meiri tengsl út í sal, af einhverjum ástæð- um. Annars skiptir alltaf miklu máli hvemig afstaða manns er með- an maður spilar. Það er nauðsynlegt að hugsa um áhorfendur sem vini sína.“ Edda harmar að ekki skuli vera búið að byggja tónlistarhús nægi- lega stórt fyrir Sinfóníuhljómsveit- ina en dáist að Kópavogsbúum fyrir að ætla að reisa tónlistarhús við hliðina á Gerðarsafni; þar hélt hún tónleika síðast þegar hún var heima. „Hljóðfærið í Gerðarsafni er frábært og salurinn viðkunnanleg- ur,“ segir hún, „en nýi salurinn verður auðvitað ennþá betri. Og allt er þetta Jónasi Ingimundarsyni að þakka!" Japis sér um dreifmgu á hljóm- diski Eddu. 19 Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígrcen eðaltré, í hcesta gceðaflokki og prýða þau nú mörg hundruð íslensk heimili. >* / 0 ára ábyrgð Eldtraust •'* 10 stcerðir, 90 - 370 cm Þarfekki að vökva ** Stálfótur fylgir t* íslenskar leiðbeiningar f* Ekkert barr að ryksuga >* Traustur söluaðili t* Truflar ekki stofublómin t* Skynsamleg fjárfesting Æ3?í:gpagfy BANDALAG ÍSLENSKRA SKÁTA Tímamótaplata frá vinsælustu röppurum heims. Vegna komu meðlima úr.. WU-TANGCUN ...hingað til lands, ætlar Japis að bjóða allar Wu-Tang plðtur með 20% afslætti Enter The Wu Tang: Með henni hófst Wu Tang æðið. Gravediggaz: 6 Feet Deep. Eldri plata RZA og félaga. The Pick, The Sick & Th RZA, höfuðpaur Wu Tai eigin sveit með nýja pl -hljóma betur BRAUTARHOLTI • KRINGLUNNI • LAUGAVEGI 13 SÍMI 562 5200 Genius: GZA úr Wu Tang - frábær plata. Raekwon: Only Built for Cuban Links. Klassísk plata frá Raekwon úr Wu Tang. Alkaholics: Likwidation. OI'Dirty Bastard aðstoðar Alkaholiks á þessari nýju plötu sveitarinnar. HipHop sveitin Quarashi, vinsælasta hljómsveit landsins verður gestur á tónleikum Wu Tang í Höllinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.