Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1997, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1997, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1997 Fréttir i>v Æsumálið: Sjóslysanefnd stendur á gati Sjóslysanefnd hefur enn ekki skil- aö niðurstöðu vegna sjóslyssins í Arn- arfirði í júlí 1996. Tveir menn fórust með skipinu sem sökk í blíðviðri og án þess að neinar haldbærar skýring- ar hafi fengist. Það vekur nokkra undrun að ekki skuli enn komið álit frá nefndinni og samkvæmt heimild- um DV standa neíhdarmenn á gati í málinu. Meðal þeirra atriða sem ekki hefur fengist skýring á er sú breyting sem gerð var á stýri bátsins. Engin leyfi voru gefin fyrir breytingunum og engar teikningar liggja fyrir. Þegar er búið að leggja í rannsókn slyssins hátt í 30 milljónir króna þeg- ar allt er talið. Samgönguráðuneytið hefur óskað eftir aukafiárveitingu vegna rannsóknarinnar upp á 12 millj- ónir króna. Ráðuneytið svaraði á sin- um tíma ekki erindi íslenskra kafara sem vildu ná í skipið á hafsbotn fyrir 18 milljónir króna. -rt Keramikjólatré glæsilegu úrvali. Forhrennd jóíaíré. Verð frá kr. 220,- (9em há). Forbrennd jóla- tré með Ijosum. Verð frá kr. 1470,-(án fylgi- h luta) 7. lenumlir. Dalshraun 1 • Hafnarfirði • S:565-2105 Krakkar! íkvöid kemur ökyrgámur til byggða. JAPISS smjan Óróleiki á verðbréfamörkuðum í Asiu: Sækjum ekki hækkanir vegna falls jensins - segir framkvæmdastjóri söluskrifstofu ÍS í Tokyo „Almenningur hér er greinilega hræddiu- og fólk kaupir ódýrt. Það er ekki að spandera pening- um að óþörfu," segir Teitur Gylfa- son, framkvæmdastjóri markaðs- skrifstofu ÍS í Tokyo, um ótta al- mennings vegna þess óróleika sem verið hefur á verðbréfamörk- uðum og gjaldþrota stórfyrir- tækja. „Þetta má greinilega mæla á því að smásala hefur dregist sam- an á þessu ári. Þar spila inn í áhrif vegna hækkunar sölu- skatts," segir hann. Hann segist telja að óróleikinn á mörkuðum sé ekki þess eðlis að þjóðir nái ekki að yfirstíga hann. „Maður heldur nú að sérstak- lega Japan standi þetta af sér þar sem þetta er geysilega auðug þjóð. Aftur á móti eru tapaðar skuldir í bankakerfinu gríðarlegar og það er spurning hvemig menn vinna úr þessu og ná tökum á því bulli sem tíðkast hefur hér í fiármála- viðskiptum," segir hann. Hann segir viðskipti íslendinga og Japana vera í jafnvægi og þar séu ekki blikur á lofti. Góðar horf- ur séu á sölu frystra loðnuafurða. „Stærsta vandamálið sem við stöndum frammi fyrir er staða yens- ins. Ef það fellur þá verður erfitt að velta verðfallinu út i verðlagið. Við munum ekki sækja verðhækkanir út á það hér. Eftirspum eftir loðnu er góð og allt í góðu lagi með það. Það verða engar verðlækkanir í yeninn talið en það hefur fallið um 12 prósent frá síðustu loðnuvertíð,“ segir Teitur. -rt Greiningarefni úr blóðplasma innkallað: Sjúklingar verða ekki eltir uppi - hverfandi líkur á að hættu, segir aðstoðarlandlæknir „Líkumar eru svo hverfandi að nokkur hætta hafi verið á ferðinni. Það hefur aldrei verið sýnt fram á að þessi sjúkdómur hafi smitast við blóðgjöf eða við að gefa efni sem er unnið úr blóði," segir Matthías Halldórsson aðstoðar- landlæknir aðspurður um grein- ingarefni sem unnið var úr blóð- plasma. Efnið var innkallað þegar í ljós kom að blóð úr breskum manni, sem greindist með sjúk- dóminn Creutzfeldt-Jakob, var not- að við gerð efnisins. 35 hettuglös með greiningarefn- inu hafa verið notuð af efninu hér á landi. Aðspurður segir Matthías að ekki þyki ástæða til að elta sjúk- lingana uppi sem þegar hafa fengið efnið. „Hættan em svo hverfandi að við teljum ekki ástæðu til þess. Það er margt annað sem getur skapað miklu meiri hættu sem er látið eiga sig í heilbrigðiskerfmu. Það var ýtrasta varúðarráðstöfun að innkalla það efni sem ekki hafði verið notað. Heilbrigðisyflrvöld í öðrum löndum hafa velt þessu mikið fyrir sér og við höfum fylgst með aðgerðum þar. írar hafa elt uppi þá sjúklinga sem hafa fengið efnið og Danir em að íhuga það. Önnur lönd hafa hins vegar ekki séð ástæðu til þess. Það er í sjálfu sér ekki hægt að gera neina ráð- stöfun við þessu og það hefði eng- an tilgang. Þá væri maöur að gefa til kynna að þetta væri eitthvað stórhættulegt sem ekki er. Sjúk- dómurinn er afar sjaldgæfur og hann greinist einungis við krufn- ingu. Það er ekkert efni í blóðinu til að skima fyrir þó við myndum reyna það,“ segir Matthías. -RR Kjaradeilan á Sultartanga: Skagafjöröur: Mikið starf fram undan DV, Akureyri: „Við erum að fara af stað með vinnu vegna sameiningarinnar og það er heilmikið starf fram undan og ljóst að við þurfúm að halda vel á spilunum til að málin verði til- búin á réttum tíma í vor,“ segir Snorri Bjöm Sigurðsson, bæjar- sfióri á Sauðárkróki, um vinnu vegna sameiningar 11 sveitarfé- laga í Skagafirði. Sameiningin var samþykkt í at- kvæðagreiðslu i byrjun nóvember og á hún að koma til ffamkvæmda að loknum kosningum til sveitar- stjórna næsta vor. Snorri Bjöm segir að vinna þurfi samþykktir fyrir nýtt sveit- arfélag fyrir þá sveitarstjóm sem kjörin verður næsta vor og ramma að skipulagi sfiómsýslunnar. Nýja sveitarsfiómin hafi þá eitthvað til að taka afstöðu til, samþykkja, breyta eða hafna. „Mér finnst að það sé nauðsyn að vinna þetta fyr- ir tilvonandi sveitarsfióm þannig aö þeir sem i hana verða ifiörnir þurfi ekki að byrja á því að eyða miklum tíma í að vinna þessa hluti upp. Það er fiölmargt sem taka þarf afstööu til og sú vinna er að hefiast. Ég reikna með að nefndin, sem vann að sameining- unni, komi að þessu máli, hugsan- lega með fleiri aðilum og einnig að fengið verði ráðgjafarfyrirtæki til að koma að þessari vinnu," segir Snorri Björn. -gk Skinnaiðnaður hf.: Stokke tripp trapp Stóllinn sem vex með barninu 5 ára ábyrgð Sama verð og annars staðar á Noröurlöndum Kr. 10.970 Skeifunni 6 s. 568 7733 Bitist um 300 þúsund krónur Fengu tvívegis arögreiðslur Frá Sultartanga. Verkamenn og verktakafyrirtækið Fossvirki deila um launa- auka. DV-mynd Friðrik Þór Guðmundsson. Ekkert hefur þokast í deilu verka- manna við Sultartangavirkjun og Fossvirkis. Deilan snýst um það að iðnaðarmenn hafa fengið greitt 300 króna álag ofan á laun. Ófaglærðir verkamenn hafa krafist svipaðs en ekki fengið. Már Guðnason, trúnaðar- maður verkamanna við Sultartanga, vildi ekkert um deiluna segja annað en reynt væri að þoka henni í sam- komulagsátt. Sigurður Bessason, formaður deild- ar byggingamanna innan Verka- mannafélagsins Dagsbrúnar, sagði að í kjarasamnignum væri ákvæði um að hefðu báðir aðilar hag af mætti koma á afkastahvefiandi launakerfi. í samræmi við þetta ákvæði hefðu ver- ið haldnir fundir um slíkt kerfi á Sult- artanga. Fossvirki hefði í framhald- inu lagt fram tilboð sem verkamenn svöruðu með gagntilboði sem Foss- virki hefði hafnað. Fossvirki hefði svo í ffamhaldinu gert samkomulag við trésmiði um 300 króna aukaálag á tímann. DV ræddi við Hermann Sigurðs- son, staðarsfióra Fossvirkis við Sult- artanga. Hann sagði að hluti starfs- manna hefði óskað eftir almennri launahækkun umfram kjarasamn- inga. Aðspurður um aukaálag sem trésmiðum væri greitt sagði hann að það væri til að samræma laun þeirra því sem trésmiðir fengju greitt á Reykjavíkursvæðinu. Þau laun sem verkamenn hefðu viö Sultartanga væru sambærileg við það sem verka- menn fengju á höfuðborgarsvæðinu og í samræmi við kjarasamninga.-SÁ DV, Akureyri: Aðalfundur Skinnaiðnaðar hf. á Ak- ureyri, sem haldinn var í desember, samþykkti að greiða hluthöfum 7% arð vegna ársins 1997. Þar með verður arð- greiðsla til hluthafa fyrirtækisins alls 17% á almanaksárinu því i vor var greiddur út 10% arður vegna ársins 1996. Ástæða þess að tveir aðalfundur hafa verið haldnir á árinu er sú að uppgjöri félagsins hefur verið breytt og nær nú frá 1. september til 31. ágúst. Síðasta rekstrarár, sem náði yfir fyrstu 8 mánuði ársins, var hagstætt fyrir Skinnaiðnað hf. og reksturinn stóð fyllilega undir þeim væntingum sem gerðar voru til hans. Hagnaður nam 39,5 milljónum, eigið fé jókst um 37,6 milljónir og nam 350 milljónum í lok þess. „Það er stefnt að því að arðsemi eig- in fiár verði 12% á því rekstrarári sem nú er hafið. Við gerum ráð fyrir að brúttóveltan verði um 1130 milljónir króna og hagnaðurinn eftir skatta um 45 milljónir. Þá gerum við ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði um 75 milljón- ir króna," sagði Bjarni Jónasson fram- kvæmdasfióri. -gk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.