Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1997, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1997, Síða 26
34 FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1997 íþróttir ________________________________________________________x>v Nýtt íþróttahús tekið í notkun á Fáskrúðsfirði: Krakkarnir hurfu af götum bæjarins - bylting á mörgum sviðum fyrir 650 manna bæjarfélag Fáskrúðsfjörður, nánar tiltekið Búðahreppur, er 650 manna byggð- arlag á Austfjörðum. Þar var um síðustu helgi vígt nýtt og glæsilegt íþróttahús með löglegum keppnis- völlum og tækjum fyrir allar innan- hússgreinar. Eins og áður hefur komið fram mættust handboltaliðin FH og Haukar í vígsluleik hússins, en þama um að ræða aðeins annað húsið á Austurlandi sem rúmar lög- legan handboltavöll. Húsið var sex ár í byggingu og kostaði 118 milljónir króna, sem er gífurlegt átak fyrir ekki stærra sam- félag. Það var tekið i notkun í byrj- un desember og er að vonum mikil bylting fyrir bæjarbúa sem fram að síðustu mánaðamótum höfðu orðið að láta lítinn 12x6 metra „stóran“ leikfimis£d duga fyrir alla iðkun innanhússíþrótta. Eins og 30 hús í Hafnarfirði Til samanburðar er eitt svona íþróttahús á Fáskrúðsfirði á við 30 slíkar byggingar í Hafnarfírði, svo miðað sé við höfðatölu. Þetta eitt segir meira en mörg orð um þann áfanga sem nú er að baki eystra. Ungmennafélagið Leiknir á Fá- skrúðfirði fagnar 60 ára afmæli um aldamótin og bygging og vígsla hússins er stærsti áfanginn í sögu félagsins. Knattspyrna, sund og frjálsar íþróttir hafa verið veiga- mestu greinarnar í starfi Leiknis þó aðrar hafi komið við sögu á ýmsum tímum. Aðstöðuleysið hefur hins- vegar til þessa hindrað framgang flestra þeirra. Jóna Björg Jónsdóttir, formaður Leiknis, sagði við DV að svona hús hefði ótrúlega mikiö gildi fyrir fé- lagið og bæinn í heild og viðbrigðin séu mikil. „Það má lýsa breytingunni þannig að litli salurinn hafi verið eins og frímerki á þessu gólfi. Ég sé þetta þannig fyrir mér í sambandi við krakkana að nú geta þau stund- að æfingar yfir vetrartímann, t.d. í fótbolta og frjálsíþróttum, sem þau höfðu ekki kost á áður. Þeirra tíma- bil hefur verið 3-4 mánuðir til þessa en nú er mikil breyting orðin á því,“ sagði Jóna Björg. Bæjarbúar streyma í húsið Frá því húsið var opnað um síð- ustu mánaðamót hefur stöðugur straumur bæjarbúa á öllum aldri legið þangað og Jóna Björg segir að allir tímar sem Leiknir hafi fengið til umráða séu fullnýttir. „Við höfum fengið 24 tima á viku fyrir yngri krakkana sem allir eru komnir í fulla notkun og stöndum auk þess fyrir leikjanámskeiðum. Síðan eru meistaraflokkarnir og aðrir fullorðnir þar fyrir utan. Áhuginn fer vaxandi fyrir nýjum greinum og það er til dæmis oft fullt í badmintontímunum þó sex slíkir vellir rúmist í húsinu. En við erum það fámenn að spumingin er hvaða greinar lifa af þegcir fram líða stundir." Hefur vonandi áhrif á ákvörðun fólks um búsetu „Ég vona að húsið nýtist vel fólki á öllum aldri og byrjunin lofar góðu þar um. Það á vonandi eftir að reyn- ast einn hlekkur i keðjunni þegar fólk velur sér stað tO búsetu í fram- tiðinni. íþróttaaðstaða hefúr mikið að segja þegar fólk með böm ákveð- ur hvar það reisir sitt framtíðar- heimili. Þessi aðstaða getur leitt til þess að fólk ýti frá sér þeirri hugsun aö það þurfi að fara að koma sér burt af staðnum og vonandi dregur hún úr þeim fólksflótta sem hér hefur verið síðustu árin. Ég á mér líka þann draum að í tengibyggingunni, sem eftir er að innrétta að hluta, verði auk þrek- miðstöðvar hægt að koma upp góðri aðstöðu fyrir sjúkraþjálfara, sem vantar tilfinnanlega á staðinn. íþróttahúsið skilar kannski ekki miklum fjárhagslegum gróða en það skilar öragglega miklum gróða til samfélagsins hér á Fáskrúðsfirði," sagði Jóna Björg Jónsdóttir. Mörg ný andlit Ingólfur Hjaltason var formaður Leiknis um árabil og formaður byggingarnefndar íþróttahússins frá 1994. Hann segir að ánægjulegt sé að sjá viðbrögð bæjarbúa eftir að húsið var opnað. „Það er engin spuming að nú fær fullt af fólki í bænum tækifæri sem ekki gáfust áður til að stimda ýms- ar íþróttagreinar að vetrarlagi. Það er magnað hvað maður hefur séð mörg ný andlit hér i húsinu, fólk sem hefur beðið eftir þvi að komast inn í íþróttahús og maður hafði ekki hugmynd um að hefði áhuga á íþróttum. Ég segi fyrir sjálfan mig að ég hef beðið eftir þessu íþróttahúsi í ára- tugi. Það er loksins komið, og þó ég sé að verða 42 ára gamall, þá kann maður sér ekki læti og mætir í alla mögulega tíma,“ sagði Ingólfur. Krakkahóparnir skyndilega horfnir af götunum Hann telur að áhrif hússins fyrir samfélagið á Fáskrúðsfirði séu þeg- ar komin í ljós á margvíslegan hátt, meðal annars hvað varðar tóm- stundir bama og unglinga. „Menn undraðust það eftir að húsið var opnað um daginn að skyndilega voru krakkahóparnir horfnir af götunum. En þá kom í ljós að krakkarnir vora allir komnir meira og minna inn í íþróttahús og farnir að ástunda þar mun heilbrigðara líferni en áður. Manni fannst vera að myndast miðbæjarstemning hér á götunum á kvöldin, eins og i stærri bæjum. Krakkamir komu út í stórum hóp- um eftir að fór að skyggja. En nú koma þau í íþróttahúsið og finna að þar er mikið meira gaman. Æfingar byrja strax eftir að skóla lýkur á daginn og standa framyfir kvöldmat. Ég held að íbúamir séu almennt yfir sig stoltir með húsið, enda hafa viðbrögðin verið afar góð. Sumum þótti þetta mál allt mikil frekja á sínum tíma en nú sjá menn hvað þetta þýðir fyrir æskuna á staðnum og þar með framtíðina hér.“ Betri íþróttalegur árangur „Síðan á þetta eftir að skila sér i mun betri íþróttalegum árangri Leiknis á næstu árum. Nú standa okkar krakkar loksins jafnfætis jafnöldrum sínum á ársgrundvelli. Þau vora einfaldlega ekki sam- keppnishæf á sumrin í fótboltanum og vora 2-3 skrefum á eftir þeim sem höfðu betri aðstöðu. Það var ekki fyrr en um haustið sem þau voru komin á svipað ról og hinir vora í byrjun sumars. Núna getum við verið með þrjár æfingar á viku fyrir hvem flokk all- an veturinn og þetta á eftir að skila sér þegar fram líður stundir. Það tekur tíma en eftir 3-4 ár verður íþróttahúsið farið að skila sér í mun betri árangri yngri flokkanna," sagði Ingólfur. Fleiri greinar stundaðar Eins og áður sagði hafa fyrst og fremst þrjár greinar verið stundað- ar hjá Leikni undanfarin ár. Nú eru hins vegar möguleikar á mun meiri fjölbreytni. „Handknattleikssambandið hefur sýnt því áhuga að halda handbolta- skóla hér og það gæti leitt til þess að handboltinn kæmist af stað eftir langt hlé. Þá hefur badmintonsam- bandið, sem gaf húsinu nóg af spöð- um, boðið okkur að senda hingað þjálfara til að halda námskeið. Enn fremur er í bígerð að stofna körfu- knattleiksdeild á næsta aðalfundi Leiknis og þá hafa Norðfirðingar boðið okkur liðsinni við að koma blakíþróttinni af stað hér. Það er ekki ónýtt að geta leitað til mesta blakbæjar landsins i þeim efnum. Sem betur fór fengum við hús í fullri stærð en fyrst átti það að vera 20x32 metrar. Þó okkur hefði ekki veitt af þessu húsi 10 árum fýrr get- um við á vissan hátt hrósað happi yfir því að þetta dróst á langinn. Þar með var byggt stærra hús og betur búið en til stóð og við náðum enn fremur að læra af mistökum sem gerð voru við byggingu annarra húsa,“ sagði Ingólfur Hjaltason. -VS Ingólfur Hjaltason, formaður byggingarnefndar fþróttahússins, og Jóna Björg Jónsdóttir, formaður Leiknis, með sveitarstjórann, Steinþór Pétursson, á milli sfn. Ánægjan og stoltið skinu úr andlitum þeirra á laugardaginn, sem og annarra fbúa á Fáskrúðsfirði. DV-myndir Ægir Kristinsson Landsleikir og æfingabúðir? Örn H. Magnússon, framkvæmdastjóri Handknattleikssambands íslands, og Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari voru viðstaddir vfgsluna á Fáskrúðsfirði á laugardag. Örn sagði við DV að það kæmi fyllilega til greina að spila lands- leiki í nýja húsinu, það féllu oft til vináttuleikir sem tilvalið færi að fara með austur. Þorbjörn sagði að sá möguleiki yrði alvarlega skoðaður að fara með landsliðið austur í æfingabúðir því þar væri nú öll aðstaða fyrir hendi, hvað varðaði æfingaaðstöðu og gistingu. Hvernig er íþróttahús Qármagnaö í fámennu byggðarlagi? Kostaði 155 þúsund krónur á hvern íbúa íþróttahúsiö á Fáskrúðsfiröi kostaði 118 milljónir króna. Þar af greiddi Jöfnunarsjóður sveitafé- laga rúm 10 prósent en heimamenn afganginn. Góöæri í sveitarfélag- inu hjálpaði verulega til og flýtti því að húsbyggingunni var lokið. Ungmennafélagið Leiknir stóð að fjársöfnun til kaupa á öllum tækjum í húsið. Félagið safnaði einnota gosdrykkjaumbúðum fyrir 600 þúsund krónur og fékk síðan 1.300 þúsund á þann hátt að fjöldi bæjarbúa greiddi 100 krónur á viku í sjóðinn. Að viðbættum styrkj- um fyrirtækja söfiiuðust um þrjár milljónir til tækjakaupa. Fyrir þá upphæð var húsið full- búið af íjölbreyttum búnaði til æf- inga fjölda greina, auk fullkomins hátalarakerfis og stigatöflu. í heildina litið hefur hver bæjar- búi á Fáskrúðsfirði lagt um 155 þúsund krónur til byggingar húss- ins. Þetta jafngildir því að Reyk- víkingar reistu íþróttamannvirki fýrir 15 milljarða króna á sex áram. Það segir mest um það af- rek Fáskrúðsfirðinga að koma sér upp fullbúnu íþróttahúsi. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.