Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1997, Síða 35
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1997
43
Fréttir
Fossvirki i Hvalfjarðargöngum:
Reynsluríkari úr
Vestfjarðagöngu m
DV, Akranesi:
Nú blasir við að Hvalí]arðargöng
verði tilbúin síðsumars 1998, háifu
ári fyrr en áætlað var i upphafi.
Margir samverkandi þættir skýra
að verkið hefur gengið jafn fljótt og
vel og raun ber vitni.
Bergið var afar þétt og hagstætt til
jarðgangagerðar. Vatnsleki inn í
göngin því lítill. Minna var um tíma-
ffekar bergþéttingar en gert var ráð
fyrir í upphafi en hins vegar nokkuð
meira um bergstyrkingar með sér-
stökum bergboltum. Verktakinn ák-
vað fljótlega eftir að framkvæmdir
hófust að láta vinna á vöktum allan
sólarhringinn beggja vegna fjarðar.
Tæknibúnaði borvagna var breytt til
að hægt væri að sprengja 5 metra í
hvert sinn í stað til dæmis 4,3 metra
eins og í Vestfjarðagöngum. Starfs-
menn Fossvirkis urðu reynslunni
ríkari við gerð Vestfjarðaganga. Það
skilar sér í Hvalfjarðargöngum. Mjög
lítið var um að tæki biluðu, enda er
beitt kerfisbundnu viðhaldi.
Mikil vinna er eftir við Hvalfjarð-
argöng. Lokið var við að steypa 220
metra langan vegskála við munnann
að sunnanverðuí október og síðan
verður steyptur 60 metra langur veg-
skáli að norðan. Bergið í göngunum
verður styrkt og klæðningu komið
fyrir að hluta. Þá verður settur upp
öryggisbúnaður af ýmsu tagi: viftur,
neyðarsímar, slökkvitæki, neyðar-
ljós og dælukerfi, svo eitthvaö sé
nefht. Akbrautir í göngimum verða
malbikaðar og lokið við vegtenging-
ar beggja vegna. Gjaldskýli verður
norðan megin. Nálægt hringtorgi
sem tengir göngin við þjóðveginn.
-DVÓ
Nær allir leikendur á sviöinu.
DV-mynd SÞ
Eyrarbakki:
Þriggja alda sýn frumsýnt
DV, Hveragerði:
Leikritið Þriggja alda sýn eftir
Magnús J. Magnússon var frumsýnt
í samkomuhúsinu á Eyrarbakka 4.
desember. Magnús er einnig leik-
stjóri en Amdís Harpa Einarsdóttir
er aðstoðarleikstjóri og hefúr að
mestu séð um æfingar.
Leikendur eru nemendur í bama-
skóla Eyrarbakka og Stokkseyrar og
em höfundar efnis. Þeir sáu um
leikskrána og þar skrifar Vigdís í 8.
bekk um tildrög leikritsins:
„Þegar skólinn byrjaði var farið í
að ákveða um hvað leikritið ætti að
vera. Það var skipt í hópa og þeir
áttu að búa tii hugmyndir. Benna
fékk mjög góða hugmynd og byggist
leikritið á henni. Hún var sú að það
yrðu fjórir hópar og í hverjum hópi
yrðu að vera faðir, móðir, unglingur
og fleiri persónur. Hver hópur átti
að leika á sérstökum ámm og fengu
flestir að velja í hvaða hópi þeir
yrðu. Árin voru 1897, 1967, 1997 og
2067.“
Leikendur era 26 talsins og mikill
hraði og fjör einkenndi sýninguna.
Húsfyllir var og greinilegt að fólk
skemmti sér konunglega. Sýningin
er meginuppistaða árshátiðar nem-
enda í bamaskólanum á Eyrar-
bakka og Stokkseyri og er framlag
skólans til 100 ára afmælishátíðar
Eyrarbakkahrepps. -ehr
Heimamenn styðja „sinn mann“. Siguröur Rúnar Marinósson, starfsmaöur
í hljómdeild Bókvals á Akureyri, meö söluhæsta geisladiskinn þar á bæ um
síöustu helgi, geisladiskinn „Meö á nótunum" sem er afurö Akureyringsins
og Húsvíkingsins Bjarna Hafþórs Helgasonar. DV-mynd gk
Verðlaun
frá Ítalíu
DV, Hverageröi:
Ljóðskáldið Eggert Laxdal er
mörgum kunnur fyrir verk sín en
hann hefur gefið út nokkrar ljóða-
bækur. Ekki alls fyrir löngu tók
Eggert þátt í alþjóðlegri verölauna-
samkeppni sem kennd er við Jean-
Monnet. Hún er haldin árlega á ítal-
íu og þar era veitt-
ar viðurkenningar
fyrir bestan skáld-
skap. Eggert Lax-
dal fékk síðan ný-
verið sent skjal frá
Ítalíu. Þar segir að
hann hafi verið
einn af þeim fimm
sem hlutu viður-
kenningu sem
helstu skáld í
heimi.
Eggert er fæddur
á Akureyri 5. apríl
1925. Hann býr nú í
Frumskógum í
Hveragerði - í einu
af húsum dvalar-
heimilisins
Áss/Ásbyrgis.
Hann situr ekki
auðum höndum, málar og skrifar
ljóð. Auk þess er hann nú að skrifa
æviminningar Sigurðar Krist-
mundssonar, fyrrum matsveins á
Gullfossi, sem einnig býr í Hvera-
gerði.
Verðlaunaljóð sitt, Elli, þýddi
Eggert á ensku fyrir keppnina og
sendi til Italíu. -ehr
DV-mynd Eva
Eggert meö verölaunaskjaliö.
Þrír léttir
og liprir
BOSCH
GSEl'M-Com 906
• 135g • 55 klst. rafhlaða í biðstöðu og
(180 mín. í stöðugu tali
• Grafískur skjár • Innbyggð klukka
• 100 númera minni með nafni í
símanum • Skyndihringing
9 númer* CLI Númerabirting
10 númer • SMS skilaboð
• 12 mismunandi hringingar
• Tölvu og faxtengingar 9600bp
• Hraðhleðslu-
SHARR
GSEl' Q-G700Y
• 185g • 70 klst. rafhlaða í biðstöðu
og í 170 mín. í stöðugu tali
• Innbyggt: klukka, vekjari og reiknivél
• Grafiskur skjár • Titrings hringing
• 100 númera minni í símanum
• SMS skilaboð
10númer
• Endur-
hringing
á 10
númer
GSim M-Com 506
215g • 60 klst. rafhlaða íbiðstöðu
og í 180 mín. ístöðugu tali
100 númera minni I símanum
Skyndihringing 9 númer
CLI númerabirting 10 númer
SMS skilaboö »12 mismunandi
hringingar
Tölvu og
faxteng-
ingar
9600bps
(Jrval
- gott í hægindastólinn