Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1997, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.1997, Page 40
48 FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1997 Sviðsljós Costner leikstýrir eigin börnum Kevin Costner getur nú loks slapp- að af því búið er að frumsýna mynd hans, The Postman, sem er framtíð- arlýsing. Kevin framleiðir myndina, leikstýrir henni og leikur í henni. í myndinni leika einnig þrjú barna Costners. Hann segir Annie og Lilly ekki hafa linnt látum fyrr en hann lét þær fá lítil hlutverk. „Þær suðuðu í mér. Þær vildu vera með. Joe langaði hins vetar ekkert sérstaklega að vera með. Ég sagði honum að það yrði gaman og spurði hvort hann vildi vera með. Hann spurði hversu langan tíma það tæki og samþykkti þegar hann komst að því að það væri bara um einn dag að ræða,“ sagði Costner í viðtali við fréttamenn er hann var að kynna mynd sína. Það voru fleiri hlutverkaskipanir sem komu á óvart en skipun bama Costners. Rokkstjaman Tom Petty birtist í lok myndarinnar sem bjarg- vættur Costners. Hann hefur þó alls ekki breytt um ímynd, að því er Costner segir. Þeir séu kunningjar frá því áður og þetta hafi bara verið um einstakt tilfelli að ræða hjá Tom. Costner er nú farinn að huga að jólahaldi eins og margir aðrir. Hann hefur þó ekki gefið upp í hverri af villunum sínum hann ætlar að halda jólin. Úr nógu er að velja því kappinn á glæsivillur í Los Angeles, Santa Barbara og Aspen í Colorado. Efst á óskalista leikarans og leik- stjórans era kyrrlát jól. Talsverðrar ólgu hefur gætt í einkalífmu að und- anfomu. Costner og eiginkona hans Cindy skildu er í ljós kom að hann hafði bamað aðra konu, Bridget Rooney. Með þeirri síðarnefndu á hann ungan son sem er 1 árs. Sá stutti heitir Liam. Costner býr þó ekki með móður hans, að því er þeir sem kunnugir eru málavöxtum greina frá. Costner getur að minnsta kosti séð fyrir drengnum því hann þénar um einn og hálfan milljarð króna fyrir hverja mynd Kevin Costner og börn hans Annie, Joe og Lilly á leiö á frumsýningu myndarinnar The Postman sem þau leika öil í. Kvikmyndin, sem er framtíöarlýsing, var frumsýnd í Kaliforníu um síöustu helgi. Símamynd Reuter. Camilla lævís á refaveiðum Camilla Parker Bowles, ást- kona Karls Bretaprins, tók þátt í hinum árlegum Beaufortrefa- veiðum á dögunum og það gerði Karl líka. Camilla var hins vegar svo lævís að hún gætti þess að láta eingöngu sjá sig í félagsskap þjóns Karls en ekki með prinsin- um sjálfum. Það þótti greinilegt að CamUlu var ljóst á hvaða veiðum ljósmyndaramir vom. Camilla og Karl hafa gætt þess að hafa sambandið ekki mjög áberandi eftir fráföU Díönu prinsessu. Fergie óvelkom- in um jólin Efst á óskalista Elísabetar Englandsdrottningar er að vera laus við hertogaynjuna af Jór- vik, sem kölluð er Fergie, um jól- in. Þetta fuílyrða að minnsta kosti erlend dagblöð. Fergie kvartaði nýlega undan kulda fyrrverandi tengdamóður sinnar í bandariskum sjónvarpsþætti. Lundúnarblöðin vorkenna ekki hertogaynjunni og segja að hún verði að gæta tungu sinnar vUji hún komast á konunglegan dans- leik á ný. Fortíðarþráhyggjuliðið getur bara átt sig: Brosnan er James Bond hvað sem hver segir Pierce Brosnan hefur unniö hug og hjörtu áhorfenda og gagnrýnenda í hlut- verki James Bonds, ofurnjósnara hennar hátignar. Hér er hann meö kærust- unni Keeley Shaye-Smith. Sean Connery verður að víkja tU hliðar. Verðugur eftirmaður hans í hlutverk ofurnjósnarans James Bonds er fundinn og sá er enginn annar en Pierce Brosnan. Menn eins og Roger Moore, George Lazen- by eða Timothy Dalton skipta engu máli þegar saga Bond verður skrif- uð. Brosnan fer nú mikinn á hvíta tjaldinu í Reykjavík og víðar í elt- ingarleik sínum við erkibófa og fagrar konur. Margir voru hikandi við að taka hann í sátt eftir fyrstu Bondmyndina sem hann lék í, Gullauga. Nú þykir ekki leika nokk- ur vafi á því að kappinn er sannur James Bond, siðfágaður, gamansam- ur, skarpgreindur og harður í hom að taka. Þeir sem hins vegar könn- uðust við Brosnan úr sjónvarpsþátt- unum um Remington Steele vissu alltaf hvers hann var megnugur. Michael Wilson, einn framleið- enda nýju Bondmyndarinnar, hefur verið viðriðinn ofumjósnarann og lið hans í 25 ár. Hann segir að Brosnan hafi laðað nýjan hóp áhorf- enda að þessum sígildu hasarmynd- um. „Konum sem komnar era yfir 25 ára aldurinn finnst hann mjög að- laðandi. Það kemur kannski á óvart en þessi hópur er mjög iðinn við að fara í bíó,“ segir Wilson. Hanks hættir hjá rebba Geðþekki leikarinn Tom Hanks hefur sagt skilið við 20. aldar rebbakvikmyndafélagið. Heimildarmenn segja að hann hafi verið óhress með markaðs- setningu fyrstu kvikmyndarinn- ar sem hann leikstýrði, That Thing You Do. Hanks hefur hins vegar undirritað þriggja mynda samning við Universal. Honum er ætlað að framleiða, leikstýra og leika í myndum þessum. Gwyneth kynn- ir kærastann Þetta er bara alveg eins og í bíó. Gwyneth Paltrow, fyrram kærasta hjartaknúsarans Brads Pitts, fór með nýja kærastann, leikarann Ben Affleck, heim til pabba og mömmu á þakkargjörð- ardaginn. Þau gæddu sér á kalkúnakjöti, eins og siður er vestra, en eyddu síðan nóttinni á glæsihóteli í Santa Barbara. Ekki fylgir sögunni hvernig for- eldrum stúlkunnar leist á stráksa. Það er þó fyrir öllu að Gwyneth sjálf er hæstánægð. Alicia er ánægð á baðvigtinni Leikkonan unga Alicia Silver- stone er hæstánægð í hvert skipti sem hún stígur á baðvigt- ina. Hún segir þó að það komi bara ekki nokkrum manni við hvað hún sé þung. Ef marka má myndir af henni, þarf hún nú ekki að hafa of miklar áhyggjur af fitukeppunum. Samt hefur nú verið kölluð fitubolla. Alicia hef- ur leikið í ýmsum kvikmyndum en sennilega er hún frægust fyr- ir að vera með þeim Bíbí og Blaka í samnefndri mynd.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.