Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1997, Side 2
2
MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 1997
Fréttir
Ætlaði ekki að láta
þjófahyskið sleppa
- segir Hjálmar Hlöðversson sem elti uppi innbrotsþjófa að næturlagi
Hjálmar Hlöðversson elti uppi þrjá innbrotsþjófa í Grafarvoginum á dögun-
um. Hér sýnir hann staðinn þar sem þjófarnir földu þýfið. DV-mynd S
„Þetta var allsvakaleg atburðarás
um nóttina. Öll hræðsla vék fyrir
þeirri hugsun að láta þetta þjófahyski
ekki sleppa og komast upp með þetta.
Þetta lið hefur látið greipar sópa í
húsum hér í hverfmu og það eru
margir íbúar óttaslegnir. Það er einn
maður sem virðist stjóma þessum
þjófnuðum. Hann býr ásamt konu
sinni í háhýsi í Grafarvogi og hefur
yfirsýn yfir allt svæðið. Ég og lögregl-
an teljum að þar sitji þau, tímasetji og
skipuleggi hvenær og hvar best sé að
brjótast inn,“ segir Hjálmar Hlöðvers-
son, en hann tók heldur betur til
sinna ráða í viðureign við innbrots-
þjófa að næturlagi.
Hjálmar og eiginkona hans, sem
búa í Funafold, höfðu brugðið sér út í
rúman klukkutíma laugardagskvöldið
13. desember sl. Þegar þau komu til
baka sáu þau ljós loga í húsinu og þeg-
ar þau gáðu betur aö hafði gluggi ver-
ið spenntur upp og þjófar látið greip-
ar sópa. Videotæki, tölvu, geisladisk-
um, myndavél o.fl. dóti hafði verið
stolið.
Bjó til gildru
„Ég hringdi strax á lögregluna.
Við leituðum í nágrenninu en fund-
um ekkert í fyrstu. Ég gat ekki
sofnað um nóttina og ákvað að leita
betur í hverfinu. Eftir stutta leit
gekk ég fram á tölvuna þar skammt
frá. Hún hafði verið falin í rúmlök-
um og lá bara þama á jörðinni.
Ég ákvað að setja stóla í lökin og
búa þannig til gildm fyrir þjófana. Ég
beið í bíl mínum ef vera skyldi að þeir
kæmu að vitja þýfisins. Stuttu seinna
kom ljóslaus bíll þarna að og stoppaði
rétt við staðinn. í honum vora tveir
menn og ein kona. Ég hringdi þá á
lögregluna og sagði henni hvað var í
gangi. Ég keyrði síðan að fólkinu þar
sem það hafði greinilega komist aö
þvi að tölvan var horfm. Fólkið hljóp
inn í bílinn og keyrði af stað og ég á
eftir.
Hótaði með hníf á lofti
Ég náði að króa bílinn þeirra af
inni í botnlanga en þá bökkuðu þau á
bílirrn minn. Þau komust þó hvergi á
bílnum þar sem minn bíll lokaði hann
af. Annar mannanna hljóp út úr bíln-
um og öskraði alls kyns hótanir á
mig. Ég fór út úr mínum bíl og þá tók
hann upp hníf og gerði sig líklegan að
ráðast á mig. í þann mund kom lög-
reglan að á þremur bílum. Mennimir
vora handteknir Konan hafði hlaupið
í burtu en eftir stutta leit fannst hún.
Fólkið viðurkenndi innbrotið hjá
lögreglu og var sleppt daginn eftir.
Það er auðvitað hræðilegt að vita af
svona þjófahyski í hverfinu og það
gengur laust. Síðustu daga hef ég far-
ið sjálfur og heimsótt þetta par í þjófa-
bælið til að fá afganginn af hlutimum
sem þau stálu frá mér. Maðurinn hef-
ur hótað mér öllu illu en ég læt hann
ekki hræða mig. Það má ekki láta
þetta hyski komast upp með svona
glæpaverk," segir Hjálmar.
í gæsluvarðhald
Maðurinn sem um ræöir er var um
helgina úrskurðaður í gæsluvarðhald
til 5. janúar vegna þess máls og fjölda
annama þjófnaðarmála sem hann er
grunaður um. Maðurinn sem er fer-
tugur, er á sakaskrá fyrir þjófnaði og
fikniefhamisferli.
-RR
Lögreglustjóri og yfirlögregluþjónn ósáttir við „Franklínsskýrslu“ Atla Gíslasonar:
Telja Atla hafa brotið
á sér réttarfarslög
- fengu báðir auk annarra í yfirstjórn harkalega gagnrýni i bréfi Atla Gíslasonar
„Ef það er rétt sem fram kemur í
umræddu bréfi aö yfirlögregluþjónar
hafi ekki fylgt gildandi erindisbréf-
um og starfslýsingum í veigamiklum
atriðum þá tel ég ljóst að brotin hafi
verið á mér réttarfarslög. Ég mun
eiga fund með ráðuneytisstjóra dóms-
málaráðuneytisins á morgun (í dag)
vegna þessa máls og mun ekki sætta
mig við þetta. Ég ætla að fara fram á
að Atli skýri þetta eða leiðrétti,"
sagði Guðmundur Guöjónsson, yfir-
lögregluþjónn í Reykjavík, í samtali
'við DV í gær.
Böðvar Bragason lögreglustjóri
tekur i sama streng og Guðmundur
varðandi skýrslu Atla Gíslasonar
setts rannsóknarlögreglustjóra í
„tengslamáli" Franklíns Steiners og
fikniefhalögreglunnar. Böövar sagði
við DV í gærkvöldi að vel væri hugs-
anlegt að einnig hefðu verið brotin á
homun réttarfarslög þegar hann var
yfirheyrður sem granaður í málinu.
Voru báðir „grunaðir“
Guðmundur og Böðvar telja báöir
að þegar þeir vora yfirheyröir sem
grunaðir hafi rannsóknaraðilinn,
Atli Gíslason, ekki skýrt þeim frá því
að skipulag lögreglunnar væri til
rannsóknar - nokkuð sem dómsmála-
ráðherra hefur skýrt frá úr skýrslu
Atla á Alþingi. Þar segir m.a. að
rannsókn Atla hafi leitt í ljós að
skipulagi lögreglunnar í Reykjavík
sé ábótavant gagnvart fikniefiiadeild.
Umsjón og eftirlit með henni sé ófúll-
nægjandi. Lögreglufulltrúar, deildar-
lögfræðingar, aðstoðaryfirlögreglu-
þjónar og yfirlögregluþjónar fylgi
ekki gildandi erindisbréfum og
starfslýsingum í veigamiklum atrið-
um. Einnig segir að svo virðist sem
lögreglustjóri hafi ekki haft vitneskju
um eða yfirsýn yfir stöðu mála og
ekki beitt sér fyrir nauðsynlegmn úr-
bótum.
„Þegar ég mætti í yfirheyrslu hjá
Atla Gíslasyni á lokastigi rannsókn-
ar málsins vora engar ávirðingar á
mig bomar," segir Guðmundur. „Ég
var ekki yfirheyrður með hliðsjón af
neinu slíku. Settur rannsóknarlög-
reglustjóri sá sérstaka ástæðu til að
vekja athygli mína á því að rannsókn
hans hefði ekki leitt í ljós neinar
ávirðingar eða neitt um að ég hefði
ekki starfað eins og mér bar.
Skýrsla rannsóknarlögreglustjór-
ans til ríkissaksóknara er leiðbein-
andi plagg honum tO handa varðandi
ákærameðferð. Að þar skuli vera
settar fram ávirðingar án þess að
mér hafi verið gefinn kostur á að tjá
mig um þær eða bera hönd fyrir höf-
uð mér er ekki í samræmi við réttar-
farsreglur,“ sagöi Guðmundur.
Hvers vegna var ég tekinn
fyrir?
Böðvar Bragason lögreglustjóri
sagði aðspurður í gærkvöld að „vel
sé hugsanlegt" að Atli Gíslason hafi
einnig brotið á honum réttarfarslög:
„Ég hefði kannski átt að spyija að
því hvers vegna ég var tekinn fyrir
sem grunaður. Það hefur aldrei ver-
ið skýrt,“ sagði Böðvar. „Þetta er
umhugsunarefni. Það var aldrei
minnst á þaö við mig að það væri
verið að athuga skipulag lögregl-
unnar í Reykjavík.
Ég tel aö fýrir 8-9 árum, á þeim
tíma sem rannsóknin beindist að,
hafi lögreglan i Reykjavík búið við
hvað best skráð skipulag og starf-
slýsingar allra lögregluliða í land-
inu,“ sagöi Böðvar Bragason.
Böðvar leggur áherslu á að hon-
um sé síst á móti skapi að skipulag
lögreglunnar sé rannsakað, þar sé
um eilífðarverkefni að ræða. Hann
tekur fram að það sé hins vegar
verkefni dómsmálaráðuneytsins en
ekki verkefni sérstaks rannsóknar-
lögreglustjóra að framkvæma slíkt.
-Ótt
Afsal Sjúkrahúss Reykjavíkur til ríkisins:
Alger uppgjöf
- segir Árni Sigfússon
„Ég tel það algera uppgjöf ef
borgin ætlar að afsala sér Sjúkra-
húsi Reykjavíkur til ríkisins. Það
hefur ekkert breyst frá því áform
voru upp um þetta á sínum tíma
þegar framsóknarmenn voru mjög
áfjáðir aö sameina spítalana í eitt
ríkisrekiö bákn. Þá mótmæltum
við sjálfstæðismenn þessu og ég
vona að við geram það öll enn,“
segir Ámi Sigfússon, aöspurður
um hugmyndina aö ríkið taki viö
Sjúkrahúsi Reykjavíkur af Reykja-
víkurborg.
Borgarstjóri og heilbrigðisráð-
herra hafa báðar lýst yfir áhuga á
því að borgin afsali sér sjúkrahús-
inu. Sjá Fréttaljós bls. 6 -RR
„Afsal Sjúkrahúss Reykjavíkur til
ríkisins er algjör uppgjöf," segir
Árni Sigfússon, leiðtogi sjálfstæð-
ismanna í borgarstjórn.
Stuttar fréttir
Esra og Ingó í rannsókn
Embætti
lögreglustjór-
ans í Reykja-
vik hefur sent
mál Ingólfs
Margeirsson-
ar og Esra S.
Péturssonar
til ríkissak-
sóknara. Ósk-
að er eftir að málið verði afgreitt
með hraði.
* f ^
► 'Á
Feður fá orlof
Frá og með áramótum eiga ís-
lenskir feður rétt á tveggja vikna
fæöingarorlofi án þess að þaö
skerði fæðingarorlof barns-
mæðra þeirra. Stöð 2 skýrði frá.
58 milljarðar í tekju-
skatt
Ríki og sveitarfélög áætla að
fá um 58 milljarða með tekju-
skatti og útsvari á næsta ári. Þar
af renna um 33 milljaröar til
sveitarfélaga. RÚV skýrði frá.
Endurgreiðir Össuri hf.
Fyrrverandi framkvæmdastjóri
Össurar hf., Tryggvi Sveinbjöms-
son, hefur verið dæmdur til að
endurgreiða fyrirtækinu 21 millj-
óna króna. Stöð tvö sagði ffá.
Lög um lífeyrisréttindi
Merkasta lagasetning á nýaf-
stöðnu haustþingi er að flestra
mati lög um skyldutryggingu líf-
eyrisréttinda. Víðtæk sátt tókst
um meginþætti málsins. Sjón-
varpið greindi frá.
Bónus og Hagkaup
saman
Hagkaup og
Bónus hyggj
ast stofiia nýtt
fyrirtæki til
að reka saman
verslun á
Smáratorgi í
Kópavogi.
Stöð 2 skýrði
frá.
m rr
» . V-
Sjómenn óhraustir
íslenskir sjómenn eru ekki
eins hraustir og hingað til hefur
verið haldið. Óhollar matarvenj-
ur hafa þar mikil áhrif. Sjón-
vaipið skýrði frá.
Mikið af e-tóflum
Lögi-eglan segir að mikið sé til
af e-töflum og öðrum flkniefnum
í landinu um þessar mundir.
Hald hefur veriö lagt á yfir 2000
e- töflur að undanfömu. RÚV
sagði frá.
Skemmdarverk í Árbæ
Skemmdarverk hafa verið
unnin í verslunarmiðstöð í
Árbæ um hveija helgi i desem-
ber. Verslunareigendur vilja lög-
reglustöð í hverfiö. Stöð 2
greindi ffá.
Samið á Sultartanga
Verktakafyrirtækið Fossvirki
hefur samið við starfsmenn sína
í kjaradeilunni á Sultartanga.
Milljón handa maka
Makar bankastjóra Lands-
bankans hafa á tæplega fimm
ára tímabili fengið tæpa milljón
hver í dagpeninga. Áætlaður
feröakostnaður makanna er um
3,1 milljónir króna. Sjónvarpið
skýrði frá.
Viðræður um
Barentshaf
íslendingar,
Norðmenn og
Rússar eru
byijaðir að
ræða saman
um veiðar í
Barentshafi.
Halldór Ás-
grímsson seg-
ir að málin _______________
hafi skýrst á fundi í Moskvu þótt
ekki hafi þokast í samkomulags-
átt. RÚV sagði ffá. -glm