Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1997, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1997, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 1997 xu Fréttir Nefnd um eflingu íþróttastarfs: Meiri fjárveit- ingar til íþrótta Nefhd um eflingu íþróttastarfs, sem skipuð var fyrr á árinu, skilaði fyrir skömmu áliti sínu. Þar kemur fram að efling íþróttastarfs í land- inu hvíli að miklu leyti á auknu samstarfi ríkis og annarra opin- berra aðila við íþróttahreyfinguna. Þannig sé nauðsynlegt að fjármagn komi frá ríki og sveitarfélögum til að hægt verði að hlúa betur að íþróttastarfi bama og unglinga, auk þess sem opinbert fjármagn verði einnig að veita til afreksfólks. Ne&idin leggur áherslu á forvam- argildi íþrótta gagnvart neyslu vímuefha og vill meina að verði fé veitt til grasrótar íþróttahreyfingar- innar verði hægt að minnka líkur á að imgt fólk afvegaleiðist. Þannig skuli veita fjármuni til að lækka æf- ingagjöld og fagmennta þjálfara. Opinber stuðningur við afreks- fólk á að mati nefndarinnar að fel- ast í þátttöku ríkis í afreksmanna- sjóði íþróttahreyfingarinnar. Jafn- framt leggur hún til að hægt verði að fá fyrirtæki inn í fjármögnun sjóðsins. Einnig er í skýrslu nefnd- arinnar lögð áhersla á að ríki styrki sveitarfélög og sérsambönd við gerð þjóðarleikvanga. Slíkir leikvangar yrðu fastur samastaður ákveðinna íþróttagreina þar sem fullkomnar aðstæður era til keppni og æfmga viðkomandi greina. Að auki ályktar nefiidin að ríki og sveitarfélög þurfi að stuðla að aukinni þátttöku fagfólks innan heilbrigðis- og menntakerfis í að hvetja almenning til að stunda íþróttir. Þannig á að auka vægi al- menningsíþrótta í daglegu lífi fólks. Tillögumar gera því ráð fyrir mjög aukinni þátttöku ríkis og sveitarfélaga í eflingu íþróttastarfs í landinu. Einnig kemur fram í skýrslu nefndarinnar að þessir aðil- ar þurfi að koma á auknu samstarfi við íþróttahreyfinguna um stefhu- mótun og framkvæmd nýrra áætl- ana. Skýrsla nefndarinnar verður kynnt bæjar- og sveitarstjómum landsins á næstu vikum. Nærri má geta að tillögumar sem koma fram í henni geti skipað stóran sess í kom- andi sveitarstjómarkosningum. -KJA Lagt er til að ríkissjóöur stuðli að byggingu þjóðarleikvanga. Slíkt myndi auðvelda byggingu íþróttamannvirkja eins og Laugardalsvallar. D-listinn í borginni: Deildar meiningar um Guðrúnu P. Deildar meiningar era meöal borgarfúlltrúa Sjálfstæðisflokksins um að Guðrún Pétursdóttir taki 8. sætið á lista flokksins. DV hefur rætt við marga borgarfulltrúa sem fæstir vilja tjá sig opinberlega um málið. Afstaða þeirra til þess að Guðrún komi til liðs við listann er í tvö hom; ýmist telja menn að hún muni ná til vafaatkvæðanna eða þeir telja hana vera eins konar Trójuhest R- listans sem muni skaða listann. Þar er vísað til vin- skapar hennar og Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur borgarstjóra. Þá er talið að seta hennar í stjóm Afl- vaka sé dæmi um að hún sé höll undir R-listann. Þessu hafna aðrir borgarfulltrúar og segja að hún hafi verið valin til þeirrar setu vegna mikillar reynslu úr atvinnulífinu. Talið er að Guðrún svari tilboði um að taka baráttusætið eftir áramót. -rt Sjónvarpsmiðstöðin Umboðsmenn um land allt: VfSTUHIAHD: Hljómsýa Akranesi. Kauplélao Borglirðinga. Borgarnesi. BlómstufveJlii. Hellissandi. Guóni Hallgrímsson. GnindartifðLVESTFIBBIR: Rafbúð Jónasar tos, Pairekslirði. Ptllinn, Isalirði. NORBURLAND: Kl Steingrimsljaröar. Hólmavík. KF V-Hónvetninga. Hvammstanga. Kf Húnvetninga. Blðnduósi. Skagfirðingabúð. Sauðárkróki. KfA. Dalvík. Bókval. Akurevri. Ljósgjafina Akureyri. Oryggi, Húsavík. (f Þingeyinga. Húsavik. Urð. Baufarhófn. AUSIURIAND: Kf Héraösbúa. Egilsstöðum. Verslunin Vik, Neskaupsstað. Kaupiún. Vupnafiröi. Kf Vopnfirðinga, Vopnafirði. Kf Héraðsbúa. Seyðisfírði. Turnbræöur, Seyðisfirði.Kf Fáskrúösfjarðar. Fáskrúðsfirði. KASK Ojúpavogi. KASK, Höfn Homalirði. SUDURLAND: Hafmagnsverkstæði KR. Hvolsvelli. Moslell, Hellu. Heimslækni. Sellossi. (A, Sellnssi. Hás, borlákshöfn, Brimnes, Vestmannaeyjum. REYKJANES: Rafborg, Grindavík. Raflagnavinnusl. Sig. Ingvarssonar, Garði. Hafmætli. Hafnarfirði. Áskrifendur fá m% aukaafslátt af smáauglýsingum DV 0Ht mil)f hlrr)ín<! V/c X Smáaugiýsingar OV! 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.