Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1997, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1997, Síða 14
14 MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 1997 Frjálst, óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON OG ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON OG ELÍN HIRST Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI11,105 RVlK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMiÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblað 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins I stafrænu formi og i gagnabönkum án endurgialds. Pottagaldur heilbrigðisráðherra Alþingi fór í jólaleyfi og skildi stóru sjúkrahúsin þrjú eftir í fjárhagslegu uppnámi. Langt á annan milljarð króna vantar til að þau geti mætt uppsöfnuðum halla og haldið óbreyttum rekstri á næsta ári. Sjúkrahúsin byrja því nýtt ár í fjárhagslegri spennitreyju, og hafa aldrei áður staðið andspænis jafnmikilli óvissu um afdrif sín. Heilbrigðisráðherra hefur svarað gagnrýni á þá lund að 300 milljóna króna „pottur“ hafi verið smíðaður á fjárlögum og eigi að nýta til að laða fram enn meiri hag- ræðingu. Það sér hver heilvita maður að það hrekkur hvergi nærri til. Sjúkrahúsin eru tálguð inn að beini. Pottagaldrar og sjónhverfmgar ráðlausra stjórnvalda breyta litlu um það. Meðferðin væri skiljanleg hefðu sjúkrahúsin orðið uppvís að því að sólunda fjárveitingum sínum með óráðsíu. Staðreyndimar tala allt öðru máli. Framleiðni spítalanna hefur aukist verulega. Þetta er staðfest í ný- legri skýrslu óháðra ráðgjafa sem sýndi fram á að fram- leiðni stóru sjúkrahúsanna stenst fyllilega samjöfnuð við bestu sjúkrahús erlendis. Vissulega er það skylda fj árveitingavaldsins að fara vel með fé skattborgaranna og veita stofnunum ríkisins aðhald. Kröfumar, sem nú eru settar á hendur spítölun- um, eru hins vegar fullkomlega óraunhæfar. Þær virðast byggðar á algeru skilningsleysi á stöðu spítalanna. Nú þegar hefur legudögum á hvem sjúkling fækkað. Það þýðir að veikt fólk er oftar en áður útskrifað áður en það nær fullum bata. Afleiðingin er sú, að endurkom- um útskrifaðra sjúklinga fjölgar. Á lyflækningadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur hefur hlutfall þeirra tvöfaldast síðan árið 1993. Er þetta raunverulegur sparnaður? Fjórði hver sjúklingur sem leggst inn á spítala lendir í því að vera vistaður á göngum, skotum og jafnvel í bað- herbergjum. Oft er um að ræða verulega veikt fólk, sem liggur með vökva- og blóðgjafir og þarf svefnfrið sem það fær ekki í ónæði ganganna. Aldraðir sjúklingar eru iðu- lega útskrifaðir án þess að tryggt sé að þeir njóti viðun- andi heimahlynningar. Þannig eru nýleg lög frá Alþingi þverbrotin daglega. Er á þetta bætandi? Heilbrigðisráðherra hefur látið í veðri vaka að lausn á fjárhagsvanda stóru sjúkrahúsanna felist í því að sam- eina þau. Skýrsla ráðgjafarfyrirtækisins VSÓ gefur vissulega tilefni til að ætla að í því kunni að felast fjár- hagslegt hagræði. Fjárhagslegt svelti er þó ekki rétta leiðin til að sameina sjúkrahús. Svo örðugar pólitískar torfærur eru líka á þeirri leið, að hún verður löng og erf- ið, ekki síst með tvennar kosningar fram undan. Það er einfaldlega veruleikinn, ekki síst sá sem birtist í sam- starfsflokki ráðherrans. Jafnvel þó að samstaða tækist um sameininguna myndi það litlu breyta fyrir rekstur- inn næsta ár. Kostimir í stöðunni eru því þrír: Spara með því að loka heilum deildum og segja upp fjölda starfsmanna, margfalda biðlistana, eða leggja fram aukið fjármagn. Heilbrigðisráðherrann hefur ekki pólitíska innstæðu til að taka tvo fyrstu kostina, enda myndi Alþingi ekki leyfa það þegar á hólminn kæmi. Raunverulegt val hennar stendur því um eftirfarandi: Hafa sjálf fmmkvæði að lausn vandans, eða bíða eftir því að forsætisráðherra komi ríðandi á hvítum hesti með pólitískt lausnargjald hennar í hnakktöskunni. Hvort er skynsamlegra? Össur Skarphéðinsson „Hvenær sem ég heyri orðið menning opna ég öryggislásinn á skammbyssunni," segir storm- sveitarmaður í leikritinu Schlaget- er (1934) eftir nasistahöfundinn Hanns Johst, en setningin hefur ýmist verið eignuð Hermanni Gör- ing eða Joseph Goebbels. Hún lýs- ir með gagnorðum hætti viðhorf- um valdhafa og skósveina þeirra við menningunni og málsvörum hennar, þeim sem nefndir hafa veriö á íslensku „menningarvitar" og er niðrandi þýðing á því sem á ensku nefnist „intellectuals“ og á norrænum tungum „intellektu- elle“ eða „intelligentsia". Segir ekki íslenska nafngiftin sína sögu um viðhorf orðasmiða og almenn- ings hér á landi? Fyrsti menningarvitinn Hver skyldi vera orsök þess að valdhafar í öllum pólitískum lit- brigðum og fjölmargir hversdags- gæfir góðborgarar hafa horn í síðu þeirra sem standa vilja vörð um menningarviðleitni samfélags- ins og efla hana? Ég á engin ein- hlít svör við þeirri spumingu, en helst fundið það til foráttu, að þeir telji sig vera skynugri en Pétur og Páll og vilji endilega hafa vit fyrir öðrum. Aug- ljóslega fer það í taugarnar á „gáf- uðustu þjóð ver- aldar“, að til skuli vera einstakling- ar sem álíta sig þess umkomna að segja ráðandi öfl- um til syndanna og vekja svefnuga samborgara til umhugsunar, enda er framlag þeirra allajafna afgreitt sem taut, þus, raus, nagg, nöldur eða arga- þras. Er útaf fyrir sig umhugsunar- vert hversu mörg orð við eigum yfir þetta tiltekna fyr- irbæri. í sam- Ætli Sókrates hafi ekki verið fyrsti eiginlegi menn- ingarvitinn? Til hvers eru menningarvitar? heitaorðabókinni eru þau ekki færri en 26 talsins! Hlutverk brodd- flugunnar Ég er hinsvegar sann- færður um að erindi menningarvitans sé hrapallega misskilið og vanmetið hér á landi. Allt sem lífsanda dreg- ur, jafnt líf manna og dýra sem samfélagið og menning þess, er ofur- selt hnignun og hröm- un, sé ekki að því hlúð með umönnun, uppörv- un og aðhaldi. Verkefni menningarvitans er öðru fremur að koma í „Verkefni menningarvitans er öðru fremur að koma í veg fyrir að köld hönd vanans fái kæft þann lífsneista sem er forsenda endurnýjunar og nýsköpunar. í alræðisríkjum eru menningarvit- ar verst séðir allra manna, af því að þeir eru í senn talsmenn og tákn frjálsrar hugsunar, sem grefur undan valdinu.“ Kjallarinn Sigurður A. Magnússon rithöfundur mér segir svo hug- ur, að óvildina megi rekja til þess að svonefndum menningarvitum má jafna við brodd- flugurnar sem Sókrates líkti sjálf- um sér við. Ætli hann hafi ekki ver- ið fyrsti eiginlegi menningarvitinn? Hann leit á það sem höfuðhlutverk sitt að grafa undan sjálfumgleði sam- borgaranna, fá þá til að velta fyrir sér mikilsverðum spurningum, end- urskoða lífsviðhorf sín, ganga á hólm við viðteknar vana- hugmyndir sam- tímans, hugsa hlut- ina uppá nýtt. Þetta gerðu raunar líka aðrir forn- grískir heimspek- ingar, sem og harmleikaskáldin á fimmtu öld fyrir Kristsburð, en segja má að Sókrates hafi hreinræktað þá teg- und umræðu sem leggur rækt við heilbrigt hyggjuvit. Fyrir bragðið var hann dæmdur til dauða og varð fyrsti píslarvott- ur frjálsrar hugsunar í heiminum. Menningarvitum samtímans er veg fyrir að köld hönd vanans fái kæft þann lífsneista sem er for- senda endumýjunar og nýsköpun- ar. í alræðisríkjum eru menning- arvitar verst séðir allra manna, afþví þeir eru í senn talsmenn og tákn frjálsrar hugsunar, sem gref- ur undan valdinu. í lýðræðisríkj- um eru þeir saltið sem Kristur tal- aði um í öðru samhengi: „Þér eruð salt jarðar. Ef saltið dofnar, með hverju á þá að selta það? Það er þá til einskis nýtt, menn fleygja því og troða undir fóturn" (Matt. 5,13). Án menningarvita væri lýð- ræðið innantóm skel, form án marktæks innihalds. Þarsem ekki fer fram látlaus og markviss um- ræða hefur lömunin búið um sig og mun með tið og tima drepa alla hugsun í dróma. Þar sem hugsun- in er drepin í dróma, þar tærist lýðræðið upp, þar örkvisast menningin. Það er misskilningur að menn- ingarvitcir telji sig vita allt betur en aðrir. Afturámóti er hreyfi- aflið í viðleitni þeirra sú bjarg- fasta sannfæring, að með því að rækja hlutverk broddflugunnar, með því að espa, erta, angra og eggja samborgarana, séu þeir að hamla gegn dauðu lífi, sem hvart- vetna sækir á, og sá fræjum heil- brigðrar skynsemi í grýttan akur síngjarns, sérhlífins og makráðs samfélags. Kannski ber sú við- leitni í svipinn rýran sýnilegan árangur, en þá má kannski hafa hugfóst orð Krists um must- arðskomið: „Smæst er það allra sáðkorna, en nær það vex, er það öllum jurtum meira, það verður tré, og fuglar himins koma og hreiðra sig í greinum þess“ (Matt. 13,32). Sigurður A. Magnússon Skoðanir annarra Skortur í velferð Samsetning þess hóps, sem aðstoðar leitar fyrir jólin, hefur á hinn bóginn breytst mikið. Hlutfall at- vinnulausra er mun lægra nú en fyrir þremur árum. Hlutfall eftirlaunaþega og öryrkja hefur á hinn bóg- inn hækkað töluvert. Þessi þróun segir sína sögu, sem draga þarf rétta lærdóma af. Mitt í vaxandi ís- lenskri velferð er drjúgur hópur þurfandi fólks. Hann er síst minni nú en i fyrra en þá nutu um 1400 heimili í Reykjavík aðstoðar Mæðrastyrksnefndar. Hundruð heimila leita og aðstoðar Hjálparstofnunar kirkjunnar, Hjálpræðishersins og fleiri líknarfélaga. Ástæða er til þess að hvetja fólk og fyrirtæki til að hlaupa undir bagga með þessum líknarfélögum næstu dagana. Úr leiðara Mbl. 19. des. Samningar við unglækna Sáttasemjari ríkisins hefur lagt fram miðlunartil- lögu í óleystri deilu lækna við Sjúkrahús Reykjavík- ur. Ekkert bendir hins vegar til þess að miðlunartil- lagan leysi þann vanda sem skapast hefur vegna uppsagna unglækna - hvorki á Sjúkrahúsi Reykja- víkur né annars staðar. Þótt tillagan verði væntan- lega samþykkt - þar sem flestir unglæknar eru hætt- ir störfum og hafa því ekki atkvæðisrétt um tillög- una - mun hún engu breyta um alvarlegan læknaskort á spítölunum. Til þess þarf samninga við unglækna um skynsamlegt vinnuálag og yfirvinnu- greiðslur. Elías Snæland Jonsson í lelðara Dags 19. des. írska leiðin írar búa að mörgu leyti við erfiðari aðstæður en við. Atvinnuleysi er þar mikið og þjóðartekjur á mann lágar, en þeir eru á réttri leið og hefur tekist að halda uppi miklum hagvexti og lítilli verðbólgu þg eru að ná meðaltali ES í þjóðartekjum á mann. írar hafa farið aðra leið en við, þjóðarsamningaleið- ina. En hún felur það í sér að í stað þess að markað- urinn einn ráði ferðinni eru gerðir stórir samningar sem taka á flestum sviðum þjóðlífsins. Á síðasta ári var undirritaður samningur sem ber yfírskriftina: Partnership 2000 for inclusion, employment and competitiveness, sem ef til vill mætti útleggja: Þjóð- arsamningur til ársins 2000 um samheldni, atvinnu og samkeppnishæfni. Ásgeir Magnússon, í Mbl. 19. des.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.