Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1997, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1997, Blaðsíða 26
34 MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 1997 fife í<Sit ineu' to 'Netmane.- JbtaWfurtliH 1V9~7 -Aóú'ótÚhMKarOoMit v&ivtá 'Hnrte ■Spaf'dti Ötítð? Imafws 'PHnl Sworfcy LofÍWtír*: *#!frhttp: //iol.KíTrfBrtr.isT vs) -jluLl UIíj1 --------------------------- Salvör Gissurardóttir, lektor við Kennaraháskólann, með jólavef: -W' Hungur Samtök sem berj- ast gegn hungri í heiminum eru með vefsíðu þar sem þau koma sínum har- áttumálum á fram- færi. Slóð- in er http: //www.brown.edu/ Departments/World_Hunger_ Program. Mjöll Hólm Einn af mörgum íslenskum tónlistarmönnum sem komnir er með heimasíðu er Mjöll Hólm. Slóöin á síðuna hennar er http://www.centrum.is/ -mholm. Grafreitir forseta Minningarorö og legsteinar til handa þeim forsetum Banda- ríkjanna sem nú eru látnir eru á slóðinni http://starship. skysport.net/crew/manus/ Presidents/index.html. Microsoft áfrýjar Það fór eins og margir bjuggust við. Microsoft ákvað að áfrýja úr- skurði dómara um að ekki mætti samhæfa Windows 95 og Intemet Explorer. Fyrirtækiö hefúr hins vegar lýst því yfir að þangað til áfrýjunin verði tekin fyrir muni þeir hlita úrskurði dómarans. í yfirlýsingu frá Microsoft kom hins vegar fram að fyrirtækið myndi láta tölvuframleiðendur vita að það gæti eytt öllum möguleikum á vefflakki í Windows 95. Þetta myndi hins vegar gera stýrikerfið óstarfhæft. Einnig kom fram að fyr- irtækið myndi bjóða tölvufyrirtækj- um að fá fyrstu útgáfuna af Windows 95 sem kom í húðir í ágúst 1995. Intemet Explorer fylgdi ekki þeirri útgáfu. Microsoft hefur einnig upplýst að tölvuframleiðend- ur geti haldið áfram að senda frá sér tölvur sem í er allur hugbúnaðar- pakki Microsoft, þar á meðal Inter- net Explorer. Þetta ætla a.m.k. stærstu framleiðendurnir að gera. Dómsmálaráðuneytið er ekki sátt við þessar breytingar. Starfsmaður þess segir að ráðuneytið telji ekki að fyrirtækið hafi tilkynnt um þá stefnubreytingu sem samræmist dómsúrskurðinum. Séfræðingar era ekki sammála um þessi viðbrögð Microsoft. Sumir era ekki hissa á viðbrögðum fyrir- tækisins og telja þennan dómsúr- skurð óheillavænlegan þegar til lengri tíma sé litið. Öðram finnst hins vegar dálítið bamalegt af Microsoft að fara að bjóða nánast ónothæfa útgáfu af Windows 95 með þessum hætti. William Neukom, sem sér um mál tengd lögum og rétti hjá Microsoft, segir aö umræddur úr- skurður sé hættulegt fordæmi. „Þetta gæti leitt til þess að fyrir- tækjum í hátækniiðnaði yrðu tak- mörk sett vegna mats stjómvalda á hverjum tíma,“ segir hann. Á meðan á öllu þessu gengur er undirbúningur fyrir útgáfu Windows 98 í fúllum gangi. Það stendur enn þá til að það kerfi komi úr á fyrri hluta næsta árs. Þess má geta að ekki er búið að dæma í því máli sem dómsmálaráðu- neytið höfðaði gegn Microsoft. Ekki er búist við að það verði gert fyrr en um mitt næsta ár. -HI/Reuter Vantar alþýðumenningu á Netið Þess sjást víða merki á vefnum eins og annars staðar að jólin nálg- ast óðfluga. Jólavefsíður spretta upp hver af annarri um allan heim. Þannig hefur það hins vegar ekki verið hér á landi og meðal annars kvartaði pistlahöfundur í nýjasta tölublaði Tölvuheima yfir því að hann hefði aðeins fengið upplýsingar um íslensk jól á er- lendri vefsíðu. Svo slæmt er þetta reyndar ekki, þökk sé Salvöra Gissurardóttur, lektor í upplýs- ingatækni við Kennaraháskóla ís- lands. Hún hefur sett upp vefsíðu með ýmsum sögulegum fróðleik um íslensku jólin, svo sem Grýlu, jólasveinana, álfana o.fl. Bútasaumsteppi Salvör segist hafa gert þetta í fyrsta sinn í fyrra. „Þetta er í raun eins og bútasaumsteppi. Ég ætla að gera þetta á hverju ári og reyna alltaf að bæta einhverju nýju við í hvert skipti," segir hún. Salvör hefúr alltaf látið nemend- ur sína í Kennaraháskólanum gera vefsíður og þessi hugmynd kviknaði að hluta út frá því. „Þeg- ar ég byrjaði að gera þetta þá var nánast ekkert íslenskt efni á vefn- um annað en frá fyrirtækjum og stofnunum. Ég vildi með þessu sýna kennuram og kennaranemum hvað hægt væri að gera á vefnum. Nemendur vildu t.d. frekar gera síður á ensku en íslensku þar sem þeir litu frekar á vefinn sem glugga til útlanda," segir Salvör. Rammíslenskt Hún segir að með þessu hafi hún viljað sýna fram á að hægt væri að nota veftnn til að kenna okkur eitt- hvað um okkar menningu. Fyrsta jólavefsíðan var síðan hugsuð sem eitt slíkt sýnishom. Þama var sýnt hvað ein manneskja gat í raun gert á vefn- um. „Ég ákvað að velja eitthvað rammíslenskt en samt eitthvaö sem er ekki alltof hátt skrifað eins og íslend- ingasögumar. Þá datt mér í hug ann- aðhvort matarmenning eða þjóðtrú og í framhaldi af því kviknaði þessi jóla- hugmynd." Salvör segir að þessar síður hafi vakið hrifningu hjá þeim sem hafi skoðað hana. „Hins vegar er aðeins hluti þjóðarinnar tengdur og sá hluti hefúr kannski ekki sérstakan áhuga á svona efni. Það var reyndar tilgangur- inn með þessu að setja eitthvert efrii sem er ólíkt öðra sem er á vefnum. Al- þýðumenning fmnst ekki mjög víða,“ sagði Salvör. Fmmheimildir með Hún er ekki í vafa um að Netið sé góð leið til að kenna fólki eitthvað um íslenskra menningu. „Þetta er ódýr leið til þess og verður mjög aðgengi- legt þegar stærri hluti þjóðarinnar veröur orðinn nettengdur heldur en er það núna. Á vefnum er mun meiri möguleiki á að hafa frumheimildimar á bak við upplýsingamar, andstætt venjulegum bókum." Hún tekur sem dæmi umfjöllun um Grýlu en öll kvæðin um hana fylgja með umfjöll- uninni þannig að menn geta skyggnst í þau jafnóðum ef menn hafa áhuga. Salvör segir mikla skömm að því að allar íslendingasögumar skuli ekki vera komnar inn á vefinn. Nokkrar era inni á vef Netútgáfunnar (http://www.snerpa.is/net) sem DV talaði við í mars sl. Hins vegar hafa opinberir aðilar ekki haft frumkvæð- ið að slíkri netvæðingu og þaö fmnst Salvöra slæmt. Slóðin á jólavefsíðuna er http: //jol.ismennt.is. -HI Efnfcyfíríií: fjofasVpmfWiXtntWr .T JTTV IT IT f.f i i rj mmrmwmmmr Bill Clinton Bandaríkjaforseti verö- launaði í síöustu viku þá Vinton Cerf og Robert Kahn fyrir rannsókn- ir sem þeir geröu fyrir 25 árum á sendingum gagna milli tölva fyrir herinn án aöstoðar sérstakrar móö- urtölvu. Þessi tækni varö upphaf- iö aö sjálfu Netinu sem tröllriöið hefur öllu undanfarin misseri. Þessi tækni átti upphaflega aöeins aö leysa smávægilegt vandamál en hefúr nú leyst margfalt fleiri en ætl- aö var í upphafi. Margt spaugilegt var rifjaö upp viö verölaunaafhend- inguna, t.d. þurfti fólk oft aö spyija annan tvímenninganna leyfis þeg- ar það vildi nota Netiö. Rnnur bamaklámssíður Þýskur opinber starfsmaöur hefur þróaö hugbúnaö sem getur skynj- aö barnaklám sem geymt er á einkatölvum. Þetta getur einnig gagnast netþjónustuaöilum sem vilja finna hvort barnaklám er geymt á heimasvæði einhvers notanda. Forritiö leitar aö ákveönum upplýs- ingum um mynd sem hægt er aö ná í af Netinu. Opinberir aöilar í Þýskalandi segja aö þetta forrit hafi vakiö mikla athygli þegar þaö var sýnt á alþjóðlegri lögregluráöstefnu sem haldin var í Búdapest nýlega. Talið er að þetta forrit geti oröiö öflugt vopn í baráttunni gegn barnaklámi á Netinu. Microshaft Winblows Parroty Interactive, sem er grín- deildin hjá Palladium Interactive, hefur tilkynnt aö hinn umdeildi og umtalaöi geisladiskur Microshaft Winblows 98 veröi sýndur á tölvu- sýningu í San Francisco dagana 6.-9. janúar. Bæöi veröur hægt aö keyra diskinn á Macintosh og Windows. Eins og nafniö gefur til kynna er um aö ræöa háð sem beint er aö Microsoft og stýrikerfi þess. Reynt var aö sýna þetta á tölvusýningu Comdex en deildinni var þá vísaö á dyr eftir aö maöur í gervi Bill Gates gekk um sýning- argólfið. Meöal þess sem fylgir á þessum diski er Winblows Explod- er þar sem maöur skýtur sjálfum sér gegnum tölvuvírusa og allt ann- aö slæmt sem kemur nálægt manni. Ný Outlook-útgáfa Ny sýningarútgáfa af Microsoft Out- look 98 er komin inn á vef Microsoft. Þetta er önnur sýning- arútgáfan af þessu póst- og gagna- grunnsforriti sem sett er á vefinn. Meöal nýrra eiginleika er möguleiki á aö faxa tölvupóst, stuöningur fyr- ir Internet Explorer 4.01, betra alm- anak og nú er auöveldara aö finna einstök skjöl í Outlook. Fyrsta sýn- ingarútgáfan er þegar í um 67.000 tölvum. Outlook er forrit sem sam- hæfir ýmsa nettengda þjónustu viö dagbækur og aöra skipulagningu. Sýningarútgáfuna er hægt aö ná í fritt á heimasíöu forritsins á http://www.microsoft.com/ outlook. Áætlaö er aö endanleg útgáfa þessa forrits veröi komin á markaö fýrri hluta næsta árs. All- ir notendur Outlook 97, Exchange og Office 97 munu fá nýja forritiö A E531 Marglr eru orönlr þaö tæknlvædd- Ir aö þelr senda rafrænt jólakort (staö þess aö nota gamla góöa ' póstinn. Þaö eru til ýmsar skemmtilegar tegundir af slíkum kortum. Hér veröur bent á nokkr- ar síður sem þelr tæknlvæddu geta notast viö tll aö senda vin- um og ættingjum jólatölvupóst. - Mynd og hljóð Ein síöa uýöur upp á aö hægt er að spila skemmtilegt lag meðjóla- kveöjunni sem maöur vill senda. Hægt er áö velja úr nokkrum lög- um og myndum. Slóöin er http: //www.marlo.com/xmas/xmas. htm Hreyfimyndir Þaö er líka hægt aö láta jólakort- iö hreyfast og þá gjarnan í takt viö þá tónlist sem á aö fylgja meö. Myndirnar eru oft æöi skemmtileg- ar og mikið fjör í þeim. Slóðin er http://.www.bluemountain.com /eng/christmas/index.html Fallegri kort Þeir sem eru ekkert fýrir eitthvaö spaug og vilja bara þessi venju- legu, fallegu kort geta sent slík á http://www.ppstcard.com/chri stmas/cardrack.shtml og einnig á http://www.azstarnet.com/pub llc/hollday.html Búa til sjálf(ur) Þeir sem eru meö dálítið meiri sköpunargleöi geta búiö til kort sjálfir með nokkurri aðstoð þá. Slóöin á slíka síöu er http://www.iluvyou.com/christ Liverpool Heimasíða enska knatt- spymuliðsins Liverpool er á http: //anfield.merseyworld. com. Þar era fréttir, myndir og sögulegar staðreyndir um liðið. Þrenna Spilið Þrenna, sem nýlega var byrjað að selja hér á landi, er með heimasíðu á http://www.setgame.com. Þar er hægt að glíma við þraut- ir sem era eins og þær sem þarf að fást við í spilinu sjálfú. Radíóamatörar Heimasíðu íslenskra rad- íóamatöra er að finna á http: //www.itn.is/~ve/ira. Þungunarpróf Þótt ótrúlegt megi virðast er hægt að taka þungunarpróf á Netinu. Það skal hins vegar ósagt látið hversu áreiðanlegt þetta próf er. Slóðin á þetta sérstaka próf er http: //www .fosml.com /pregnant /index.html. Þeir sem era mikið fyrir að sjá fagrar stúlkur í efn- islitlum klæð- um geta kíkt inn á heima- síðu ónefndrar bikinikeppni. Slóðin er http://www. crackerjacks. com. Ij fm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.