Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1998, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1998, Side 14
14 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1998 53'V Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON OG ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON OG ELÍN HIRST Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT111,105 RVÍK, SIMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaöam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk., Helgarblaö 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og i gagnabönkum án endurgjalds. Pólitíkus geríst verkfræðingur Hefö hefur myndazt á mörkum pólitískrar spiUingar í forstjóraráðningum ríkisvaldsins. Afdankaöir ráðherrar eru einkum taldir eiga rétt á embættum utanríkisþjón- ustunnar og bankakerfisins, svo og á nokkrum stofnun- um á borð við Tryggingastofnun og Húsnæðisstofnun. Tæknistofnanir hafa jafnan staðið utan við spillingar- sviðið. Til skamms tíma hefur verið borin virðing fyrir verkfræði og tækni. Þannig hafa forstjórar Vegagerðar- innar, Orkustofnunar, Rafmagnsveitna ríkisins, símans og Flugmálastofnunar verið verkfræðingar. Landsvirkjun er ein þeirra stofnana, sem jafnan hefur haft tæknimann á oddinum. Þótt pólitísk spilling hafi áratugum saman verið mikil á íslandi og meiri en í ná- lægum löndum, hafa stjórnmálamenn hingað til ekki rennt gírugu auga til forstjórastóls Landsvirkjunar. Nú hefur orðið á þessu breyting. Núverandi valdhafar í þjóðfélaginu eru að ráðgera að víkka spillingarrétt sinn, þannig að hann nái til tæknilegrar stofnunar á borð við Landsvirkjun. Þegar sá ís hefur verið brotinn, munu aðrar tæknistofnanir senn fylgja í kjölfarið. Ástæðan er stundarhagur forsætisráðherra af því að losna við afdankaðan fjármálaráðherra, sem kemur rík- isstjórninni oft í vandræði, af því að hann kemur fram eins og eintrjáningur. Landsvirkjun er ætlað að verða fórnardýr þessara pólitísku hagsmuna. Ekkert hefur komið fram, sem bendir til, að fjármála- ráðherra hafi neitt til brunns að bera, sem hæfi forsfjóra Landsvirkjunar. Hann er bara gamall jámaður, sem hef- ur haft pólitík að ævistarfi og gætt sín á að stíga ekki á tær manna í þingflokki sjálfstæðismanna. Slíkir menn eldast illa sem ráðherrar og verða gjarna sendiherrar eða bankastjórar, sennilega af því að ekki hefur verið ætlazt til neinnar hæfni í þessi störf. Við sjá- um það að minnsta kosti á bönkunum, að afdankaðir stjórnmálamenn eru skaðlegir í fjármálum. Heppilegast væri að losna við fjármálaráðherra með því að gera hann að sendiherra. Það er innan ramma hefðbundinnar spillingar. En hann er því miður lögfræð- ingur, sem kann lítið í erlendum tungumálum og hefur ekki reynzt sérlega sleipur í mannasiðum. Af einhverjum ástæðum er ekki talið koma til greina að gera núverandi fjármálaráðherra að bankastjóra. Hafa þó sumir mestu furðufuglar stjórnmálanna fengið að verða bankastjórar og leika lausum hala, með skelfi- legum afleiðingum fyrir sparifjáreigendur. Væntanlega verður haldið fram við ráðningu afdank- aðs stjórnmálamanns í embætti forstjóra Landsvirkjun- ar, að pólitísk reynsla sé starfsreynsla og menn eigi ekki að gjalda þess, að hafa verið stjórnmálamenn. Þetta er gamalt viðkvæði til varnar pólitískri spillingu. Menn gjalda þess nánast aldrei á íslandi að vera stjórnmálamenn, frændur eða vinir. Menn gjalda þess hins vegar nánast alltaf að vera ekki stjórnmálamenn, frændur eða vinir. Þess vegna munu verkfræðingar gjalda, þegar Landsvirkjun fær nýjan forstjóra. í nágrannalöndum okkar er sífellt verið að reyna að draga úr spillingu, meðal annars í embættaveitingum. Á sama tíma er forsætisráðherra íslands átölulaust að reyna að gera afdankaðan stjórnmálamann að óhæfum forstjóra í einni helztu tæknistofnun landsins. Hér á landi er verið að ráðgera að víkka spillinguna, leyfa henni að leika lausum hala á spánnýju sviði. Það mun því miður verða talið hafa fordæmisgildi. Jónas Kristjánsson Þar nútímahug- sjónir Kórea er land sem var skipt þegar tvær helstu hug- sjónir nútímans fóru þar í stríð: Algera auðhyggjan og afleiðingin af langvarandi afbökun kommúnism- ans. Við skiptinguna urðu til fyrirmyndarriki. Ann- að var fyrir þá sem töldu sig vera harðsvíraða til hægri, hitt fyrir vinstrisinnuðu glópana. Sjaldan hafa verið sungnar í hinum siðmenntaöa heimi aðrar eins lofgerðir um leiðtoga og þá kóresku, í norðri og suðri, sem voru á réttum leiðum einka- framtaks eða því sem ég kalla lág- marksframtaksins. Áróðursvélarn- ar létu lofi rigna yfir Vesturlönd og brátt urðu þjóðirnar að eins konar tákni fyrir heiminn. Þær eru það á ýmsan hátt enn í dag. Salómons- dómi kalda striðsins tókst að kljúfa þjóðarlíkama í tvennt með hag- fræðilegum og pólitískum brögðum án þess að deyða hann. Hvað gerist þá við hrun þessarar aldar, sem við horfum á núna, og erum ekki mjög bangin, þegar menntaða glámskyggnin getur ekki lengur leynt sannleikanum um lög- mái huga mannsins, maga og handa hans? Svo er komið að hungursneyðin í norðri verður ekki falin með að- gerðum heimskommúnismans, og hið alþjóðlega auðvald getur ekki heldur breitt yfir fall fjármagnsins og væntanlegt hungur í suðri með efnahagsundri. Gjaldþrot beggja ríkjanna er dæmigert fyrir stefn- umar sem hafa stjómað heiminum á þessari öld. En hér er munur á: Hinn afbakaði kommúnismi er rætast ábyrgðarlaus og skilur lömb sín eftir á flæðiskeri og þykist hvergi hafa komið nærri öldugangi sjávar, eins og dæmið um Kúbu sannar; aftur á móti breiðir auðvaldið yfir skít sinn með fjáraustri úr Alþjóða- bankanum. Fúlgur úr sjóðum Aldrei í sögu fjármagnsins hafa aðr- ar eins fúlgur verið veittar úr sjóð- um til að breiða yfir skipbrot rangr- ar stefnu í stjóm- og efnahagsmál- um. Bankinn hefur þegar veitt Suð- ur-Kóreu 55 milljarða dollara. Á næstunni munu Kanada, Ástralía, Þýskaland, Bandaríkin, Japan og Bretland hella í hítina um tuttugu milljörðum í viðbót, svo suðurkóreu- fárið dragi ekki heiminn i diki öng- þveitisins. Ef Norður-Kórea fengi sömu hjálp yrðum jafnvel við að una okkur bara við kerti og spil á þess- um jólum. Að auki hefur al- heimsauðvaldið orðið að dæla 112 milljörðum í „efnahagsundrið í Suð- austur-Asíu“ frá því kreppa þess hófst, þann 2. júlí á þessu ári. Skelfllega vitleysan í Norður-Kóeru er þvi skömminni til skárri á mæli- kvarða peninganna. Hún hefur að- eins kostað heiminn nokkrar krónur til að bjarga börnum frá sjúkdómum og hungri. Þá vaknar þessi spurning: Skiptir það kristna menn meira máli að bjarga fyr- irtækjum frá hruni en bömum frá hungm-dauða? Erlend tíðindi Guðbergur Bergsson Sjálfstraust og mórall Kóreubúa hefur dalaö svo skart aö undanförnu aö líftryggingafélag skipaöi sölumönnum sínum aö fara út á götu og hrópa upphátt: „Ég kemst yfir þetta!“ Símamynd Reuter fskoðanir annarra_____________________x>v Nyrup tekinn á orðinu „Poul Nymp Rasmussen hefur aðeins góðar ósk- ir í garð Færeyinga og samskiptanna milli Færeyja og Danmerkur. Samskipti ríkjanna geta aftur orðið til fyrirmyndar með þvi að ræða saman. Það hljóm- ar allt fallega. En Nyrup Rasmussen, hvers vegna vom þá þögnin og getgátur látnar ráða ferðinni í svo mörg ár með þeim afleiöingum aö samband ríkjanna spilltist? Hvernig stendur á því að þú legg- ur svo mikla áherslu á að ræða við Færeyinga þeg- ar þú, stjórn þin og embættismenn hafa hagað sér þveröfugt í svo mörg ár? En betra er seint en aldrei og við tökum þig á orðinu þegar áhersla verður lögt á viðræður." Úr forystugrein Sosialurin 8. janúar 1997. Áfall fyrir friðinn „Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Israels, stóðst eldraunina er atkvæðagi'eiðsla fór fram um fjárlögin. Hann spáði því að stjóm sín myndi vera við völd út áriö 2000. En afsögn Davids Levys utanríkisráðherra á sunnudaginn var áfall fyrir Netanyahu og friðarstefnu Bandaríkjanna. Með brotthvarfí Levys er Netanyahu háðari hægri- sinnuðum flokkum og trúarflokkum heldur en hann hefur verið undanfama 19 mánuði.“ Úr forystugrein New York Times 7. janúar. Áhugavert forsetakjör „Kjör Valdas Adamkus í embætti forseta Lit- háens er ekki bara áhugavert vegna sögu mannsins sjálfs heldur einnig vegna þess hvað það segir um þá fjarlægð sem Litháen, eins og önnur fyrrum kommúnistariki, er komið i frá fyrmm Sovétríkjunum frá því að það endurheimti sjálf- stæði sitt 1991. Margir kjósendur vona að Adamkus, sem búsettur hefur verið í Bandaríkjunum í hálfa öld, muni koma á ferskum blæ við stjóm landsins." Úr forystugrein Washington Post 8. janúar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.