Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1998, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1998, Qupperneq 15
30 "V LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 1998 15 Gervihiarta á vaskinum Það var topplyklasett á eldhús- borðinu dag nokkurn í vikunni, ekkert annað. Ekki mjólk eða brauð og því síður kafFi. Bara þessir lyklar. Konan var hvergi sjáanleg. Ég á ekki topplyklasett og hef aldrei átt. Hæflleikar mínir liggja ekki á sviði viðgerða og við- halds. Það er auðvitað bagalegt og fráleitt til fyrirmyndar. Þessi vonda frammistaða mín í almenn- um viðgerðum heimilistækja og bíla þýðir að allur samanburður við handlagna menn, sem að okk- ur hjónum standa, er mér í óhag. Þá má nærri geta að synir okkar fara á mis við eðlilega handleiðslu föður síns slitni viftureim í bíl eða heimilistæki bugast. Þögul mótmæli? Topplyklasettið í eldhúsinu olli mér nokkrum heilabrotum. Bar mér að líta á þetta sem tákn eða þögul mótmæli vegna vankunn- áttu í viðgerðum almennt? Var hugsanlegt að konan hefði fengið nóg? í huganum fór ég í gegnum ástandið á húsinu og bílnum. Ég vissi ekki betur en bíllinn væri í lagi, skoðaður og klár. Hann fer alltaf í gang á fyrsta starti og hegðar sér eins og bílar eiga að gera. Var þá eitthvað að í húsinu? KafEívélin var á sínum stað sem og brauðristin. Örbylgjuofninn og eldavélin skiluðu sínu möglunar- laust. Kæliskápurinn kældi og ég vissi ekki annað en frystiskápur- inn frysti. Uppþvottavélin, það blessaða heimilistæki, slær ekki feilpúst. í fljótu bragöi sá ég ekki betur en allt væri í himnalagi. Viss skilningur Ég tel það ekki með þótt konan hafi suðað um það í nokkur ár að skipta um ljós í kjallaranum. Með nokkrum rétti hefur hún bent á að þau séu ljót. Þá tel ég það held- ur ekki meiri háttar ágreinings- efni hjóna þótt sírennsli sé í kló- settkassa. Hvað á ég svo sem að gera í því? Ég hef reynt að lemja í klósettkassann og sparka ef mikið liggur við. Kassinn skánar heldur við þá meðferð en tæplega verður það þó flokkað undir fullnaðarvið- gerð. Það má til sanns vegar færa að sírennsli í klósettkassa sé pirr- andi. Ég hef því vissan skilning á þeim kvörtunum sem borist hafa. Konunni, og eftir atvikum börn- unum, hef ég samt bent á að við búum það vel að í húsinu eru kló- sett til skiptanna. Það má því að mestu komast hjá samskiptum við duttlungafulla klósettkassann. Þessum ráðleggingum er fálega tekið. Apparat með æðakerfi Af hyggjuviti mínu kaus ég að nefna ekki topplyklasettið á eld- húsborðinu þá er við hjónin hitt- umst. Konan nefndi það ekki held- ur. Á yfirborðinu virtist allt með felldu. Mér datt í hug að yngri strákurinn okkar, sem stundar nám í listaskóla, þyrfti að brúka þetta við nám sitt. Þar læra menn furðulegustu hluti. Hann gat því allt eins þurft að skrúfa saman listaverk með topplyklum. Mér létti næsta dag er ég kom í eldhúsið. Topplyklasettið var horfið af borðinu. Ég þurfti því ekki lengur að hafa áhyggjur af meintum táknum konunnar um frammistöðu mína. Sú hugarró varði þó ekki lengi. Þá er ég kom að eldhúsvaskinum blasti við apprarat sem ég hafði aldrei séð áður. Það líktist einna helst gervi- hjarta. Þetta var að sjá einhvers konar dæla með æðakerfi. Sumar æðarnar voru stórar og aðrar smærri. Hjarta þetta var augljós- lega notað og slitið. Erindi í kjallarann Nú voru farnir að gerast hlutir í mínu eldhúsi sem ég skildi alls ekki. Látum topplyklana vera. Þá Laugardagspistill Jónas Haraldsson fréttastjóri má brúka í ýmislegt. Gervihjarta er aftur á móti allt annað mál. Nú dugði þögnin ekki lengur. Ég varð að spyrja konuna. Ég hafði tekið eftir því að hún átti ýmis erindi í kjallara hússins án þess að ræða það sérstaklega við mann sinn. Ég lét það afskiptalaust. Þóttist vita að hún væri eitthvað að rjátla í þvottahúsinu. Þar er ég einna veikastur fyrir í tækniþekking- unni. Með aukinni reynslu og þroska hef ég lært á kaffivél, ör- bylgjuofn og uppþvottavél. Sjálf þvottavélin, það mikla þarfaþing hvers heimilis, hefur hins vegar alltaf vafist fyrir mér. Ég er því ekki á heimavelli í þvottahúsinu. Ágæta þekkingu hef ég aftur á móti á þurrkaranum enda tæpast flókið apparat. Á honum er einn takki sem stillir lengd þurrktím- ans. Maskinan slekkur svo á sér sjálf. Það fór sem mig grunaði. Kon- an var í þvottahúsinu. Hún var ekki að þvo. Þvottavélin hafði ver- ið dregin út á gólf og hallaði baki upp að vegg. Hlíf hafði verið num- in á brott svo sá inn í vélbúnað hennar. Frúin var með uppbrettar ermar og á gólfinu sá ég topp- lyklasettið. í okkar löngu og far- sælu sambúð hefur hún oft sent mér ástúðlegra augnaráð en hún gerði þarna í þvottahúsinu. Upp rann Ijós „Þú veist það kannski ekki að þessi þvottavél hefur verið biluð að undanförnu?" sagði konan. „Það verður ómögulega sagt að það sé mikið lið í þér í því sam- bandi,“ bætti hún við. „Dælan er ónýt,“ sagði frúin og benti inn í vélarhúsið. Þá var eins og skepnan skildi. Gervihjartað sem ég sá á eldhús- vaskinum var dælan úr þvottavél- inni. Eiginkona mín hafði endan- lega gefist upp á mér í viðhaldi heimilistækjanna. Það hvarflaði ekki að henni að leita eftir aðstoð minni vegna bilaðrar þvottavélar. Hún fór því og fékk lánað topp- lyklasettið, setti þvottavélina upp á rönd og hóf að skrúfa. Henni hafði greinilega tekist að losa hjartað úr þvottavélinni. Þótt hún sendi mér auga greindi ég stolt og ánægju vegna þessa undir niðri. Konan var engum háð, hvorki eig- inmanni né þvottavélaviögerðar- manni. lilbúin í aðgerð „Af hverju fékkstu þér ekki viðgerðarmann í þetta, elskan?" spurði ég sykursætur í framan. „Með leyfi að spyrja, kannt þú að gera við þvottavélar?" „Ekki gerir þú það að minnsta kosti,“ svaraði frúin snúðugt. „Þú hefur líka staðið þig vel i því að eyða öllu rekstrarfé þessa heimil- is,“ bætti hún við. Ég skildi það svo að það væri mér að kenna að við hefðum ekki efni á viðgerðar- manninum. Næsta dag kom konan heim með nýja dælu í þvottavélina. Hún var tilbúin í hjartaaðgerðina. í þessum ham minnti minn betri helmingur mig einna helst á s- afríska lækninn Blaiberg sem fyrstur skipti um hjarta í manni. Sjúklingurinn lifði aðgerðina af. Skömmu síðar hafnaði líkaminn þó varahjartanu og hjartaþeginn dó. Þegar frúin hóf aðgerðina kom í ljós að fylgihluti vantaði, ígildi ósæðar og fleiri liffæra. Hún varð því að hætta þá er hæst stóð leik- urinn. Það var þó huggun harmi gegn að sjúklingurinn kvartaði ekki. Þannig standa leikar enn. Þvottavélin biður með opið brjóst- holið. Gervihjartað liggur á gólf- inu fyrir framan vélina við hlið topplyklasettsins. Hafnar hún dælunni? Að mér læðist sá grunur að eins kunni að fara fyrir hjartasér- fræðingi heimilisins og Blaiberg, að þvottavélin hafni nýju dæl- unni. Þá er um tvennt að velja. Kalla til sérfræðing og láta hann klára verkið, hvað sem líður rekstrarfjárstöðu heimilisins, eða veita maskínunni nábjargirnar og flytja hana í Sorpu. Ef ég þekki allt mitt heimilis- fólk rétt á þvottavélin skammt eft- ir ólifað. Konan er flink og fjölhæf en sérfræðingur í innyflum þvottavéla er hún ekki. Engrar aðstoðar er að vænta frá eigin- manninum í málinu. Ég trúi því tæplega að annar fræðingur fái að fuflkomna verkið gangi hún frá þvi ókláruðu. Ég er því í laumi farinn að kíkja á verð á nýjum þvottavél- um. Hvað sem líður fjárhagnum getum við ekki án slíks kostagrips verið. Hver veit nema maður skelli sér á námskeið í þvottakerf- um og meðferð þvottavéla? Það myndi að minnsta kosti bæta prikastöðu mína á heimil- inu. Hún hefur oft verið bæri- legri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.