Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1998, Page 48

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1998, Page 48
D AG B L AÐ FRJÁLST, ÓHÁ Veðrið á morgun og mánudag: Hlýjast sunnanlands Á morgun verður nokkuð hvöss norðaustanátt með rigningu eða slyddu Veðurhorfur á mánudag. Norðan- og norðaustanstrekkingur og kóln- austanlands og einnig með norðurströndinni en lengst af þurrt suðvestan- andi veður. Slydda en síðan él um norðan- og austanvert landið en þurrt og vestanlands. Hiti 0-5 stig. Hlýjast sunnanlands. og bjart veður sunnanlands og vestan-. Veðrið í dag er á bls. 49. TAKH9 3ILINN AF HAU5NUM MER 1 JSm&QQ* DPELS -Þýskt eöolmerki ílheimar ehf. varhöfba 2a Sími:52S 9000 Stálin stinn hjá heilbrigðisráðuneyti og ákæruvaldi vegna fikniefnamáls: Bítast um alsælu Talsmaður heilbrigðisráðuneyt- isins segir að ljóst sé að ákæru- valdinu hafi ekki verið það ljóst að „alsæluefnið" MDEA - sem ekki hefur verið hægt að ákæra fyrir á síðustu misserum - sé fullkomlega ólöglegt samkvæmt reglugerð. Þess vegna sé ekki um að ræða trassa- skap hjá ráðuneytinu að hafa ekki bannað þetta hættulega fíkniefni. Talsmaður ákæruvaldsins segir þetta alrangt - reglugerð ráðuneyt- isins hafi verið þannig úr garði gerð að hvorki sé eða hafi verið hægt að ákæra eða dæma sakborn- inga fyi-ir meðferð MDEA-efna. Eins og fram kom í DV í gær var á fimmtudag ekki hægt að dæma sakborning í alvarlegu fikniefna- máli fyrir megnið af þeim fiknieöi- um (MDEA) sem hann var tekinn með í landi Vatnsenda í lok október síðastliðinn. Héraðsdómur Reykja- víkur gagnrýndi „yfirvöld" fyrir að hafa ekki bannað MDEA-efnin þrátt fyrir að þeim hafi verið kunnugt um eiginleika þeirra um árabil. Einar Magnússon hjá heilbrigð- isráðuneytinu sagði við DV í gær að MDEA-efni sé nákvæmlega það sama og N-ethyl MDA - efni sem var þegar bannað með reglugerð í ágúst 1990. „Þessi reglugerð var sett á grundvelli 2. greinar laga um ávana- og fikniefni," sagði Einar. „Samkvæmt henni er ráðherra heimilt að mæla svo fyrir um að varsla og meðferð annarra ávana- og fíkniefna en lögin kveða á um sé óheimil á íslensku forráða- svæði. Slíkt hefur verið gert,“ sagði Einar. Um þetta segir Egill Stephensen saksóknari: „Þrátt fyrir að efnið sem Einar nefnir sé í reglugerð frá árinu 1990 þá vantar hana tengingu við lögin um ávana- og fikniefni - nokkuð sem gerir meðferð MDEA-efnisins refsiverða. Efnið fellur því ekki undir lögin um ávana- og fikniefni og meðferð þess er ekki refsiverð samkvæmt þeim lögum eins og héraðsdómur hefur komist að nið- urstöðu um,“ sagði Egill. Hvert verður framhald þessa ágreinings? „Framhaldið verður tvímæla- laust að þessu verður kippt í lið- inn. Við treystum því aö ráðuneyt- ið geri það,“ sagði Egill. Aðspurður um það hvort bæði ákæruvaldið og héraðsdómur hafl rangt fyrir sér um reglugerð ráðu- neytisins sagði Einar hjá heil- brigðisráðuneytinu: „Ég er allavega að mótmæla þessari gagnrýni harðlega." Þarf þá engu að breyta í reglu- gerðinni? „Mér finnst það ekki. Ef eitthvað ætti að gera ætti að fella B-merking- una út sem Egill talar um. Hún ruglar málið,“ sagði Einar. -Ótt Mánudagur Skíðin á! é DV, Akureyri: „Ég er mjög ánægður, hér hefur snjóað nokkuð undanfarna daga þegar rignt hefur í bænum og við opnum tvær lyftur og göngubraut nú um helgina," segir ívar Sig- mundsson, forstöðumaður skíða- svæðisins í Hlíðarfjalli við Akur- eyri, en þar voru skíðalyftur ræstar í morgun í fyrsta skipti á þessum vetri. -gk 4 4 4 Ókyrrð olli óhappinu Rannsóknarnefnd flugslysa hefur sent frá sér skýrslu um óhappið þeg- ar Metróflugvél FÍ missti mikla hæö yfir ísafjarðardjúpi í sumar. Að sögn RÚV kemur þar fram að brotn- andi fjallabylgjur og blöndun heits og kalds lofts hafi valdið ókyrrð sem vélin lenti í. Skúli Jón Sigurðarson hjá Rann- sóknamefnd flugslysa sagði við DV að skýrslan fjallaði m.a. um samspil manns og náttúru. Að öðru leyti vís- aði hann i umrædda skýrslu. -HI Upplýsingar frá Veðurstofu íslands Sjúkraflutningamenn flytja einn hinna sex slösuðu í árekstrinum í Kópavogi í sjúkrabíl. Sem betur fór reyndist eng- inn alvarlega slasaður. Báðir bílarnir eru gjörónýtir eins og sjá má á innfelldu myndinni. DV-mynd S Kópavogur: Sex slasast - þar af tvö börn Harður árekstur varð milli tveggja bíla á gatnamótum Dalvegar og Ný- býlavegar um fimmleytið í gær. Sex voru i bílnum, þar af tvö börn, átta mánaða og þriggja ára. Allir voru fluttir á slysadeild sjúkrahúss Reykjavíkur en enginn reyndist al- varlega slasaður. Flytja varð báða bílana á brott með kranabíl. Mikið umferðaröngþveiti myndað- ist í kjölfar slyssins enda varð það á háannatíma. Hafði Lögreglan í Kópa- vogi orð á því að erfitt hefði reynst að fá fólk til að fylgja þeim merking- um sem settar voru upp. -HI FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.