Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1998, Blaðsíða 26
34
FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1998
Afmæli
Ingólfur Davíðsson
Ingólfur Davíðsson grasafræðing-
ur, Akurgerði 38, Reykjavík, varð
níutíu og fimm ára í gær.
Starfsferill
Ingólfur fæddist á Ytri-Reistará í
Arnarneshreppi í Eyjafirði. Hann
lauk stúdentsprófi frá MA 1929 tók
magisterpróf í náttúrufræðum með
grasasfræði sem aðalgrein frá Kaup-
mannahafnarháskóla 1936 og dvaldi
við nám við jurtasjúkdóma-
tilraunastöðina í Lyngby í Dan-
mörku 1935 og 1946.
Ingólfur var sérfræðingur í jurta-
sjúkdómum og grasafræði við
Atvinnudeild HÍ (Búnaðardeild)
1937- 65 og siðan við Rannsókna-
stofnun iandbúnaðarins 1965-73.
Auk þess sá hann um heilbrigðiseft-
irlit með innflutningi jurta og græn-
metis.
Hann var stundakennari við
Gagnfræðaskóla Vesturbæjar
1936-51, við Flensborgarskólann
1938- 40, Húsmæðrakennaraskóla
íslands 1942-77, við KÍ 1962 og
kenndi jafnframt grasafræði við
Lyfjafræðiskor HÍ 1959-83.
Ingólfur var ritari Garðyrkjufé-
lags íslands, ritstjóri Garðyrkjurits-
ins, ritari Skógræktarfélags Reykja-
víkur, í Náttúruverndarráði og í
stjórn Hins íslenska náttúrufræðifé-
lags. Hann er heiðurs-
félagi Garðyrkjufélags
íslands og Félags ís-
lenskra náttúrufræð-
inga.
Ingólfur hefur samið
fjölda rita og ritgerða
um náttúrufræðileg
efni, auk þess sem
hann skrifaði rúmar
þrjú hundruð greinar í
Tímann um forna bú-
skaparhætti hér á
landi. Hann er gott
skáld og hefur gefið út
Ijóðabók. Þá samdi
hann rit um nytjar ís-
lenskra villijurta fyrr
og síðar sem til er í
handriti.
Fjölskylda
Ingólfur kvæntist 28.6. 1936 Agn-
esi Marie Ingeborg vefnaðarkenn-
ara, f. 26.6. 1902, en hún er dóttir
Peter A.M. Christensen, faktors við
Álborg Amtstidende í Danmörku, og
konu hans, Birthe A.H. Christensen.
Böm Ingólfs og Agnesar eru Agn-
ar, f. 1937, vistfræðingur og
prófessor við H.Í., kvæntur Lindu
Wendel, starfsmanni Hjartaverndar,
og eiga þau tvo syni; Edda, f. 1939,
fóstra, búsett í Danmörku, var áður
Ingólfur Davíösson.
gift Frank Ame Larsen
múrara en þau skildu
og eignuðust þau þrjú
börn en seinni maður
hennar var Jörgen
Hansen en þau skildu
og eignuðust þau einn
son; Helga, f. 1942,
semballeikari, gift
Þorkatli Helgasyni
orkumálastjóra.
Systkini Ingólfs eru öll
látin. Þau vora Stein-
unn, f. 10.6. 1905, kenn-
ari, var gift Áma Rögn-
valdssyni, bamakenn-
ara á Ákureyri; Harald-
ur, f. 14.7. 1907, b. á
Stóru-Hámundarstöð-
um, var kvæntur Önnu
Baldvinsdóttur; Bergþóra, f. 22.12.
1909, sem var gift Þorgeiri Svein-
bjarnarsyni, skáldi og forstjóra
Sundhallarinnar í Reykjavík; Er-
lingur, f. 11.4. 1912, rithöfundur og
fyrrv. ritstjóri Dags á Akureyri, var
kvæntur Katrínu Kristjánsdóttur;
Hámundur, f. 12.11. 1917, en hann
lést ungur.
Foreldrar Ingólfs vom Davíð
Sigurðsson, f. 26.10. 1872, d. 21.1.
1951, hreppstjóri á Stóru-Hámundar-
stöðum á Árskógsströnd, og k.h.,
María Jónsdóttir, f. 3.5. 1872, d. 6.1.
1950, heimiliskennari og húsfreyja.
Ætt
Föðurforeldrar Ingólfs vom Sig-
urður, b. á Ytri-Reistará Hallgríms-
son og Steinunn Daviðsdóttir.
Móðurforeldrar Ingólfs voru Jón,
b. að Hólum og Hallgilsstöðum,
Ólafsson og k.h., Bergþóra Pálsdótt-
ir.
Steinunn var dóttir Davíðs, b. á
Glerá Tómassonar og Helgu Jóns-
dóttur, b. á Grjótgarði Þorláksson-
ar, dbrm. á Skriðu í Hörgárdal Hall-
grímssonar, bróður Gunnars, lang-
afa Hannesar Hafsteins. Davíð var
sonur Tómasar, b. á Grund, Davíðs-
sonar, b. á Amarstöðum, Tómasson-
ar, b. í Hvassafelli, Tómassonar.
Systir Tómasar á Gmnd var Sigríð-
ur, föðuramma Jóns Magnússonar
forsætisráðhema. Tómas í Hvassa-
felli var bróðir Jónasar í Hvassa-
felli, föður Rannveigar, móður
Jónasar Hallgrímssonar. Annar
bróðir Tómasar var Jósef, afi Sigur-
jóns á Laxamýri, föður Jóhanns
skálds. Systir Tómasar á Grund var
Þórunn, amma Káins. Systir Jóns
Ólafssonar á Hallgilsstöðum var
Anna, amma Hermanns Jónassonar
forsætisráðherra.
Gísli Scheving Kristmundsson
Gísli Scheving Kristmundsson
verkamaður, Efri-Brunnastöðum,
Vatnsleysustrandarhreppi, er átt-
ræður í dag.
Starfsferill
Gísli fæddist í Stakkavík í Selvogi
og ólst þar upp. Hann hóf ungur að
sinna bústörfum með föður sínum
auk þess sem hann var á vertíðum í
Grindavík.
Fjölskyldan flutti á Vatnsleysu-
ströndina 1943 en þá var Gísli kaup-
maður að Þúfum í Ölfusi. Síðar
stundaði hann ýmis störf í Hafnar-
firði um tuttugu og fimm ára skeið.
Hann hóf siðan störf hjá íslenskum
aðalverktökum en þar vann hann
þar til hann lét af störfum fyrir ald-
urs sakir.
Gísli býr nú, ásamt fjórum systk-
inum sínum, félagsbúi að Efri-
Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd.
Fjölskylda
Systkini Gísla; Eggert, f. 17.2.
1919, bóndi að Brunnastöðum; Val-
geir Scheving, f. 18.4. 1921, verka-
maður í Reykjavík, var kvæntur
Elsu Mikkelsen sem er látin og eign-
uðust þau þrjú börn, en Valgeir er
nú í sambúð með Rannveigu Krist-
jánsdóttur; Elín Kristín, f. 13.4. 1923,
húsfreyja að Brunnastöðum og á
hún tvo syni; Anna Sigriður, f. 12.5.
1924, húsfreyja á Vatnsleysuströnd,
gift Hannesi Kristjánssyni og eiga
þau fimm böm; Þorkell, f. 12.9.1925,
bóndi að Brunnastöðum; Valgerður
sem lést ársgömul; Hallgrímur, f.
1.7. 1928, verkamaður í Keflavík,
kvæntur Marý Auðunsdóttur en
hún á fjögur börn frá fyma hjóna-
bandi; Lárus Ellert, lést nokkurra
daga gamall; Lárus Ellert, f. 3.1.
1931, verkamaður og bóndi að
Brunnastöðum.
Börn Valgeirs og Elsu em Kristín
Lára, gift Hallvarði Sigurjónssyni
og eiga þau fjögur börn; Regína Val-
gerður, gift Halldóri Þorvaldssyni
og eiga þau þrjú böm; Ævar, kvænt-
ur Bergþóru Viktors-
dóttur og eiga þau þrjú
böm, en Valgeir á tíu
langafabörn.
Synir Elínar Kristín-
ar: Svavar Scheving, f.
23.3. 1941, d. 1986;
Skarphéðinn Hinrik,
var kvæntur Önnu Ing-
unni Jónsdóttur og eiga
þau þrjú böm auk þess
sem Skarphéðinn á
eina dóttur með Guð-
rúnu Maríu Guðmunds-
dóttur, en langömmu-
börn Elínar Kristínar
era þrjú talsins.
Böm Önnu Sigriðar
og Hannesar eru Gréta
Þórarinsdóttir sem lést 1973 en hún
átti eina dóttur, Önnu Kapitólu, f.
1974 sem ólst upp hjá Önnu Sigríði
og Hannesi; Grétar Ingibergur;
Kristján, kvæntur Guðríði og eiga
þau þrjú börn; Lára Elín Scheving;
Bergljót Þórdís.
Gísli Scheving
Kristmundsson.
Foreldrar Gísla vora
Kristmundur Þorláks-
son, f. að Hamarskoti í
Hafnarfirði 17.12. 1882,
d. 11.7. 1973, bóndi í
Stakkavík í Selvogi, og
k.h., Lára Elín Schev-
ing Gísladóttir, f. að
Ertu i Selvogi 6.9. 1889,
d. 16.11. 1985, hús-
freyja.
Ætt
Kristmundur var son-
ur Þorláks Guðmunds-
sonar verkamanns og
Önnu Sigríðar Davíðs-
dóttur húsmóður.
Lára Elín var dóttir
Gísla Gislasonar bónda og Valgerð-
ar Lárusdóttur húsmóður.
Gísli verður að heiman á afmælis-
daginn.
--------------7///////////1
Smáauglýsingadeild DV er opin:
• virka daga kl, 9-22
• laugardaga kl, 9-14
• sunnudaga kl. 16-22
Tekið er á móti
smáauglýsingum
til kl, 22 til birtingar
nœsta dag
Ath.
Smáauglýsing í
Helgarblað DV
þarf þó að berast
okkur fyrir kl. 17
á föstudag
aWtmil lihirpinx
Smáauglýsingar
550 5000
Bridge
Paramót í bridge:
Systkin sigruðu
DV, Skagafirði:
Systkinin Ásgrímur Sigurbjörns-
son og Stefanía Sigurbjörnsdóttir
sigruðu á paramóti Norðurlands
vestra í bridge sem fram fór á Sauð-
árkróki lO.janúar. Höfðu talsverða
yfirburði, - hlutu 69 stig og vora 30
stigum fyrir ofan næsta par. Stefan-
ía og Ásgrímur eru bæði úr hinni
þekktu bridgefjölskyldu á Siglur-
firði og það voru fleiri úr fjölskyld-
unni sem urðu í næstu sætum.
Röð þeirra para i plús á mótinu.
2. Björk Jónsdóttir-Jón Sigur-
björnsson, Siglufirði 39 stig. 3. Guð-
laug Márusdóttir-Ólafur Jónsson,
Fljót/Siglufirði 29 stig. 4.Ragnheið-
ur Haraldsdóttir-Hróðmar Sigur-
björnsson, Akureyri 27 stig. 5.Soffia
Guðmundsdóttir- Páll Þórsson, Ak-
ureyri 26 stig. 6. Ágústa Jónsdóttir-
Jón Öm Berndsen, Sauðárkróki 22
stig
Alls tóku 15 pör þátt. Spiluð 4 spil
milli para. Eins og röðin ber með
sér tóku nokkrir gestir þátt 7 mót-
inu.
-Ö.Þ.
Til hamingju
með afmælið
15. janúar
80 ára
Dalrós Sigurgeirsdóttir,
Þórannarstræti 130, Akureyri.
Sveinn Þórðarson,
Kvíabólsstíg 1, Neskaupstað.
Vilhelm Sigurðsson,
Aflagranda 40, Reykjavík.
75 ára
Anna Bjarnadóttir,
Kleifahrauni 3a,
Vestmannaeyjum.
Sólveig Aðalheiður Hjarðar,
Hjarðargrund,
Jökuldalshreppi.
70 ára
Gísli Guðbrandsson,
Veghúsum 31, Reykjavík.
Svanlaug Jónsdóttir,
Langholtsvegi 61, Reykjavík.
60 ára
Gígja Ámadóttir,
Langholtsvegi 118, Reykjavik.
Guðjón Guðlaugsson,
Vesturbergi 34, Reykjavík.
Gunnar Sigurðsson,
Núpabakka 17, Reykjavík.
Hildimundiu- Björnsson,
Garðaflöt 9, Stykkishólmi.
50 ára
Anna Friðrika Jensdóttir,
Frostaskjóli 21, Reykjavík.
Auður Elísabet
Ásbergsdóttir,
Urðarvegi 76, ísafiröi.
Lilja Pálsdóttir,
Fjarðarseli 34, Reykjavík.
Sigrún Steinþóra
Magnúsdóttir,
Háaleitisbraut 30, Reykjavík.
Steinbjörg Elíasdóttir,
Glæsivöllum 17a, Grindavík.
Toríhildur Torfadóttir,
Ægisgrund 19, Garðabæ.
Úlfhildur Jónsdóttir,
Hánefsstöðum,
Svarfaðardalshreppi.
40 ára
Anna Tim Gíslason,
Túngötu 5, Sandgerði.
Bjami Jóhannsson,
Grenibyggð 2, Mosfellsbæ.
Grétar Jóhannes Jónasson,
Fjarðarstræti 57, ísafirði.
Hera Garðarsdóttir,
Jöklatúni 16, Sauðárkróki.
Jóhanna Gréta Möller,
Laugaseli, Dalabyggð.
Kolbrún Pálina
Hafþórsdóttir,
Neðstaleiti 3, Reykjavík.
Magnús G. Benediktsson,
Vesturási 11, Reykjavík.
Oddur Rúnar Oddsson,
Safamýri 34, Reykjavík.
Sandra Sveinbjömsdóttir,
Eiðismýri 22, Seltjarnamesi.
Sigurður Davíðsson,
Þinghólsbraut 33, Kópavogi.
Sigurður R. Gunnlaugsson,
Ránargötu 30a, Reykjavík.
Örn Guömundsson,
Sjávargötu 30,
Bessastaðahreppi.