Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1998, Blaðsíða 18
26
FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1998
Iþróttir
Mlchael Klim, sá krúnurakaöi, óskar Rússanum Alexander Popov til hamingju meö silgurinn í 100 metra skriðsundi
á heimsmeistaramótinu í Perth í Ástralíu í gær. Mynd-Reuter
Heimsmeistaramótið í Perth í nótt:
Orn í 33. sæti og
komst ekki áfram
- bætti eigin tíma í 100 metra baksundinu. Keppir aftur á sunnudag
Bikarinn í handbolta:
Fram og
Stjarnan
llklegust
Framarar þykja sigurstrang-
legir í bikarkeppni karla í hand-
knattleik eftir að dregið var til
undanúrslitanna í gær.
Þeir fá HK í heimsókn í und-
anúrslitunum en ÍBV tekur á
móti Val í Eyjum.
í bikarkeppni kvenna er
Stjarnan líklegust eins og staðan
er í dag en Garðabæjarliðið fær
ÍBV í heimsókn í undanúrslit-
um. Vikingur tekur á móti
Gróttu/KR.
Allir bikarleikirnir fara fram
miðvikudaginn 21. janúar en úr-
slitaleikimir verða 7. febrúar I
Laugardalshöll. -VS
Stórmót ÍR:
Ein til
Þýski methafmn í stangar-
stökki kvenna utanhúss, Andrea
Muller, keppir á stórmóti ÍR í
frjálsum íþróttum um aðra helgi.
Andrea er síöasti keppandinn
sem ÍR-ingar semja viö og mótið
því fullmannað. Andrea hefur
hæst stokkið 4,30 metra og er í
Fnnmta sæti á heimslistanum.
Stangarstökkskeppnin verður
stjömum prýdd og reynt verður
við met á alla kanta.
-SK
Blcmcl í poka
Marseille vann góðan sigur á Guin-
gamp, 3-0, 1 frönsku 1. deildinni í
knattspymu í gærkvöld. Marseille er
i fjórða sæti, funm stigum á eftir
toppliðinu, Metz. Cannes og Chateau-
roux skildu jöfh, 2-2.
Panathinaikos, sem er í þriðja sæti
í grisku 1. deildinni í knattspymu,
lagði stórveldið Ajax frá Hollandi,
3-1, í vináttuleik í Aþenu í gærkvöld.
Atletico Madrid á Spáni fékk í gær
skipun frá Alþjóða knattspymusam-
bandinu um að greiða Juventus það
sem eftir er af kaupverðinu fyrir
Christian Vieri. Atletico skuldar Juv-
entus enn um 160 milljónir og verði
þær ekki greiddar á réttum tima á
spænska liöið yfir höföi sér þung við-
urlög.
Racing Santander hefur gripið til
þess óvenjulega ráðs að tryggja sig
gegn falli úr spænsku 1. deildinni í
knattspymu. Tryggingin kostar um
100 miÚjónir króna en fall myndi
kosta félagið margfalt meira í töpuð-
um sjónvarpstekjum.
Athletic Bilbao tapaði óvænt fyrir 2.
deildar liði Extremadura, 2-0, í
spænsku bikarkeppninni í knatt-
spymu. Real Zaragoza lagði Atletico
Madrid, 2-0, Mallorca sigraði Celta
Vigo, 1-0, Real Sociedad tapaði fyrir
Real Betis, 0-2, og Osasuna tapaði fyr-
ir Deportivo, 0-1. Valladolid og Mer-
ida skildu jöfn, 1-1.
Noregur sigraði Egyptaland, 21-20, i
vináttulandsleik I handknattleik sem
fram fór i Osló í gærkvöld. Geir Ou-
storp skoraði 5 mörk fyrir Noreg en
Ashraf Mabrouk 11 fyrir Egyptaland.
Larvik, undir stjóm Kristjáns HaU-
dórssonar, tapaði I gærkvöld fyrstu
stigum sínum á tímabilinu í norsku
úrvalsdeildinni í handknattleik
kvenna. Larvik tapaði þá fyrir
Bækkelaget, 27-19.
Larvik og Byásen eru nú jöfn og efst
í deildinni með 20 stig en síðan kem-
ur Bækkelaget með 16 stig.
Ólympiueldurinn, sem japanskir
íþróttamenn hlaupa nú með um land
sitt fyrir vetrarólympiuleikana, hefur
slokknað átta sinnum á leiðinni, af
ýmsum orsökum. Þetta hefur verið
heldur vandræðalegt en Japanir telja
sig nú hafa leyst málið. Framleiöandi
kyndlanna hefur breytt hönnun
þeirra aðeins og nú eiga þeir að loga
óslitið þar til leikamir verða settir í
Nagano 7. febrúar.
-VS
Öm Amarson, sundmaður úr SH,
varð í fjórða sæti í sinum riðli i 110
metra baksundi á heimsmeistara-
mótinu í sundi í Perth í nótt. Öm
synti á 58,01 sekúndu og bætti hann
sig um 0,11 sekúndur. Hann varð í
33. sæti af 51 keppanda í undanrás-
unum.
Þjóðverjinn Stev Theloke náði
bestum tíma í undanrásunum í nótt,
synti á 55,11 sekúndum.
Öm Amarson keppir í 200 metra
baksundi á sunnudag en sú vega-
lengd er hans sterkasta grein.
Yan meö annaö gulliö
Kínverska stúlkan Chen Yan
vann sín önnur gullverðlaun á
heimsmeistaramótinu í Perth þegar
hún sigraði i 400 metra skriðsundi í
gær en áður hafði hún unnið sigur í
400 metra fjórsundi. Yan kom sem
ömggur sigurvegari í markið en
ólympíumeistarinn Brooke Bennett
frá Bandaríkjunum varð önnur.
Claudia Poll, sem sigraði í 200
metra skriðsundi fyrr í vikunni, var
langt frá sínu besta og lenti í síðasta
sæti.
Chen Yan synti á 4:06,72 mínút-
um, Bennett á 4:07,07 mínútum og
þýska stúlkan Dagmar Hase varð í
þriðja sæti á 4:08,82 mínútum.
Rússinn Alexander Popov varði
heimsmeistaratitil sinn í 100 metra
skriösundi, synti á 48,93 sekúndum.
Hinn geysisterki Ástrali Michael
Klim varð í öðm sæti á 49,20 sek-
úndum og Svíar hafa eignast sund-
mann í fremstu röð en Lars
Frölander hreppti bronsverðlaun og
synti á 49,53 sekúndum.
Popov sýndi það og sannaði að
hann er besti sprettsundsmaður í
heiminum en sumir vildi meina fyr-
ir mótið að honum myndi ekki
takast að veija titilinn. Hann hefur
verið nær ósigrandi síðan á Evrópu-
mótinu í Aþenu fyrir sjö árum.
Bandaríkjamenn hafa sýnt styrk
sinn á mótinu eins og við var búist.
Lea Maurer bar sigur úr býtum í
100 metra baksundi kvenna. Hún
synti á 1:0,16 mínútum en Mai
Nakamura frá Japan vann silfur á
tímanum 1:01,28 mínútum. Hin
þaulreynda Sandra Völker frá
Þýskalandi lenti í þriðja sæti á
1:01,47 mínútum.
Maurer og Nakamura hafa
nokkrum sinnum háð harða keppni
og síðast þegar þær stöllur mættust
sigraði japanska stúlkan en það var
á Kyrrahafsleikunum sl. sumar.
Fyrrum heimsmeistari og hand-
hafi heimsmetsins í greininni, kín-
verska stúlkan, varð í síðasta sæt-
inu í úrslitasundinu.
Heimsmethafinn úr leik
Úkraínumenn hafa í gegnum tíð-
ina átt sterka sundmenn og á því
hefur engin breyting orðiö. Denys
Sylantyev vann gullverðlaun í 200
metra flugsundi, synti á 1.56,61 mín-
útum. Frakkinn Frank Esposito tók
silfrið á 1:56,77 mínútum og brons-
verðlaunin féllu Tom Malchow frá
Bandaríkjunum í skaut en hann
synti á 1:57,26 mínútum.
Heimsmethafinn og heimamaður-
inn Scott Goodman fékk ekki að
verja titil sinn því hann var dæmd-
ur úr keppni vegna þjófstarts.
-JKS
NBA-deildin í nótt:
Robinson og Duncan frábærir
Denver tapar og tapar og nú varð
liðið fyrir barðinu á Lakers í nótt.
Denver tapaöi 18. leiknum í röð og
stefnir hraðbyri í nýtt met í þeim
efnum.
Shaquille O’Neal átti mjög góð-
an leik og var fyrsti leikmaður liðs-
ins til að skora yfir 30 stig í fjórum
leikjum í röð í ellefu ár.
Úrslit í nótt urðu þessi:
Indiana-Detroit ............100-93
Hill 37, Miller 25 - Dumars 23.
Toronto-LA Clippers.......109-101
Stoudamire 36, Camby 20 - Murry 23.
Atlanta-Dallas..............108-82
Smith 29, Mutombo 21 - Finley 25.
Washington-San Antonio . . . 79-89
Webber 27, Howard 21 - Duncan 28,
Robinson 22.
Milwaukee-Golden State . . . 101-95
Robinson 31, Gilliam 20 - Marshall 20.
LA Lakers-Denver .......132-114
O’Neal 34, Jones 19 - Fortson 19.
Sacramento-Orlando ......108-96
Richmond 23 - Seikaly 24.
Nýliðinn hjá San Antonio, Tim
Duncan, og David Robinson yfir-
spiluðu þá Juwan Howard og Chris
Webber hjá Washington. Fyrirfram
var búist við hörðu einvígi þeirra í
milli. San Antonio er allt að koma
til og vann sinn þriðja leik í röð.
Larry Bird, þjálfari Indiana, var
ánægður með sína menn og sagði
að góð barátta hefði skilað sigri.
Indiana hefur átt góðu gengi að
fagna í janúar.
Steve Smith hjá Atlanta er í
stuði þessa dagana. Meðalskor
hans í síðustu sex leikjum eru 25
stig.
Sacramento er á uppleið og vann
sinn sjötta leik í síðustu 7. leikjum.
-JKS
I>V
Sund:
Yuan fékk
fjögurra
ára bann
- og þjálfarinn 15 ár
Alþjóða
sundsamband-
ið (FINA) tók
loks af skarið
í gær og
dæmdi kín-
verska sund-
konu og þjálf-
ara hennar í
langt bann.
Við komu kín-
verska lands-
liðsins á heimsmeistaramótið í
Perth um siðustu helgi lögöu toll-
verðir á flugvellinum hald á efni
sem þeir töldu vera grumsamlegt.
Efnið var sent í efnagreiningu og
kom þá í ljós að um hormón var að
ræða.
Taskan var rakin til Yuan Yuan
og dæmdi alþjóða sambandið hana í
fjögurra ára keppnisbann. Má lík-
legt telja að ferli hennar sem sund-
manns sé þar með lokið. Þjálfari
hennar, Zhou Zhewen, reyndist við
yfirheyrslu vera í samfloti með
henni og fullkunnugt um tilraun
hennar til að smygla efninu til Ástr-
alíu. Hann fékk enga miskunn og
var dæmdur í 15 ára bann frá allri
þjálfun. Hann verður þvi að leita að
annarri vinnu þegar heim verður
komið.
Kínverskt sundfólk hefur lengi
legið undir grun um að nota ólögleg
lyf til að bæta árangur sinn. Á
Kínaleikunum var hvert heimsmet-
ið á fætur öðru sett og vöknuðu
grunsemdir um að ekki væri allt
með felldu.
-JKS
NBA-DEILDiN
Mikið stuð hefur verið á Chicago
Bulls og er liðið nær ósigrandi á
heimavelli. I síðustu leikjum hefur
liðið unnið 19 þeirra og tapað aðeins
einum.
Charles Barkley er farinn að leika
aftur með Houston eftir að hafa verið
frá í tveimur leikjum vegna meiðsla.
Hakeem Olajuwon og Clyde Drexler
eru hins vegar áfram á sjúkralista.
Vancouver hlýtur að fara að hungra
í sigur í NBA-deildinni. Liðið vann
síðast leik þann 21. desember.
Litháinn Zydnmas Ilgauskas hefur
slegið í gegn hjá Phoenix það sem af
er. Hann hefur vaxið með hveijum
leik, skorað grimmt og hirt fjölda
frákasta.
Denver Nuggets hefur ekki átt jafn-
afleitu gengi að fagna i deildinni og
einmitt núna I ár. Liðið hefur
einungis sigrað í tveimur leikjum til
þessa og tapað 32.
Bobby Phills, hinn öflugi bakvöröur
Charlotte, missir af fimm leikjum i
það minnsta vegna tognunar á nára.
Donald Royal tekur væntanlega
stöðu hans á meðan en hann var
leystur undan samningi hjá Orlando í
siðustu viku.
-JKS/VS
í kvöld
Úrvalsdeildin i körfubolta:
Grindavik-KFÍ ..............20.00
Keflavík-ÍR.................20.00
KR-Njarðvik.................20.00
Haukar-Skallagrímur ........20.00
Valur-Þór, Ak...............20.00
1. deild i körfubolta:
Stjaman-Snæfell.............20.00