Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Side 2
2 MÁNUDAGUR 20. APRÍL 1998 Fréttir Ríkisendurskoðun hóf rannsókn á Búnaðarbankanum um helgina: Óttast ekkert Starfsmenn Ríkisendurskoðunar hófu um helgina rannsókn á hók- haldi Búnaðarbankans eftir að hafa átt fund með bankastjóminni sl. fostudag. Sem kunnugt er fór bankastjórnin fram á rannsókn sem þessa, hliðstæða þeirri sem gerð var á bókhaldi Landsbankans eins og frægt er orðið. Ekki náðist í Sigurð Þórðarson ríkisendurskoðanda þar sem hann fór utan um helgina. Verður hann fjarverandi næstu viku vegna end- segir Sólon R. Sigurðsson bankastjóri urskoðunarstarfa sinna í þágu Evrópuráðsins. Lárus Ögmundsson, einn skrif- stofustjóra Ríkisendurskoð- unar, sagði í samtali við DV í gær að vinnan væri hafin af fullum krafti. Öfl- un gagna hefði hafist á laugardag eftir fundinn með bankastjórunum á Sólon föstudag. Hann sagði Sigurðsson. ómögulegt að spá í hvenær skýrsla myndi liggja fyrir. Ríkisendur- skoðun myndi taka sér þann tíma sem þyrfti. DV náði tali af Sóloni R. Sigurðssyni í gærkvöld, skömmu eftir að hann kom heim frá dvöl erlendis. Hann sagðist ekki hafa ver- ið viðstaddur fundinn með Ríkisendurskoðun fyrir helgi. „Nei, ég geri það ekki,“ sagði Sólon er hann var spurður hvort hann óttaðist niðurstöðu Rik- isendurskoðunar, „en það er best að skýrslan sjái dagsins ljós og síðan má ræða hana er hún liggur fyrir.“ Aðspurður sagðist Sólon vera áhugamaður um laxveiði og að hann hefði gert töluvert af þvi að veiða lax, fyrst og fremst á eigin vegum. „Það hefur komið fram áður að Búnaðarbankinn hefur staðið fyrir 1-2 laxveiöiferðum á ári með helstu viðskiptaaðila bankans, oftast er- lenda,“ sagði Sólon. -bjb Seðlabankarannsókn: Beðið eftir Birgi ísleifi Bruni á Akureyri: Grunur um íkveikju DV, Akureyri: Flest bendir til þess að um íkveikju hafi verið að ræða þegar eldur kom upp í húsinu Strandgötu 9 á Akureyri í gærmorgun. Strandgata 9, sem er sambyggt KafFi Akureyri, hefur staðið autt undanfarið og rafmagn var ekki á húsinu. Eldurinn kom greinilega upp baka til þar sem Strand- gata 7 og 9 liggja saman en slökkviliðinu tókst að varna því að eldurinn bærist í húsið númer 7 þar sem Kaffi Akureyri er til húsa. -gk Davífl Gill Jónsson og Halldóra Sif Halldórsdóttlr náflu góðum árangri í Blackpool. Flotkvíin slitnaði aftur Átta þúsund lesta flotkví Vél- smiðju Orms og Víglundar slitnaði aftur aftan úr breskum dráttarbát í gær á leið sinni til landsins. Atvikið í gær átti sér stað 79-80 mílur suðvestur af Reykjanesi. Þetta er í annað skipti á stuttum tíma sem flotkvíin, sem er 17 metra há, shtnar frá dráttarbátnum. Flotkvíin átti að koma til hafnar í Hafnarfirði í dag. Flotkvíin var á reki í gærkvöld en ol- íuskipið Kyndill var þá komið að henni til að missa ekki sjónar af henni. -RR Slökkviliðsmenn afi störfum f brunanum á Akureyri í gærmorgun. Margir ungir og upprennandi skákmenn voru saman komnir á barna- og unglingaskákmótinu „Skák í hreinu lofti" sem fram fór á laugardaginn. Skákskóli íslands hélt mótið í samvinnu við Tóbaksvarnanefnd, Vöku-Helgafell, Visa Island og Sambíóin. Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, setti mótið og kynnir var Hermann Gunnarsson. Blackpool: Islendingar í úrslitum íslendingar hafa staðið sig vel í óopinberri heimsmeistarakeppni í samkvæmisdönsum í Blackpool á Englandi, en á laugardaginn var keppt í aldursflokknum 12-13 ára í foxtrot og tangó. Þar náðu þau Guðni Kristinsson og Helga Dögg að komast í undanúrslit en Davíð Gill Jónsson og Hahdóra Sif Hahdórs- dóttir komust í úrslit og höfnuðu í 4. sæti. Ekkert íslenskt par hefúr náð svo góðum árangri í þessum dönsum. Einnig var keppt í quickstep í ald- ursflokknum 12-15 ára og komust tvö íslensk pör í 24 para úrslit. Það voru þau Snorri Engilbertsson og Doris Ósk Guðjónsdóttir og Gunnar Hrafn Gunnarsson og Sigrún Ýr Magnúsdóttir. -Lára u „Slík ákvöröun hggiu- ekki fyrir en málið hefur komið th tals,“ sagði Eiríkur Guðnason, einn þriggja bankastjóra Seðla- bankans, við DV i gærkvöld, að- spurður hvort Seölabankinn hefði farið fram á það við Ríkisend- urskoðun að gera hliðstæða úttekt og gerö var á bók- haldi Landsbankans. Búnaðarbank- inn hefúr sem kunnugt er farið fram á slíka rannsókn. Eiríkur sagði að beðið væri með frekari ákvaröanir þar th Birgir ís- leifúr Gunnarsson, formaður banka- stjómar, kæmi til landsins á miðvikudag. Máhð hlypi ekki frá bankanum á meðan. „Ég geri ráð fyrir að Ríkisendur- skoðun geti skoðað það sem henni dettur í hug, óháð því hverju við óskum eftir," sagði Eirikur. Þröstur Ólafsson, formaður bankaráös Seðlabankans sagði aö þessi mál hefðu nýlega verið rædd innan ráðsins. -bjb Stuttar fréttir x>v Stórfelld hækkun Neytendur þurfa að taka á sig aht að 200-300 milljóna króna hækkun á vöruveröi á ári vegna reglna um vörumerkingar. Þar er einkum átt við reglur um sér- merkingar. Stöð 2 sagði frá. ÍSAL í vatnsvandræðum íslenska álfélagið neyddist th að breyta ferskvatnslögnum sín- um og ná í vatn frá Hafnarfirði, vegna mengun- ar af starfsemi í Kapellu- hrauni. Rann- veig Rist, for- stjóri ÍSAL, sagði við Sjón- varpið að þetta væri mjög slæmt ástand. Um 100 dómar Hátt í 100 dómar voru kveðn- ir upp í líkamsárásarmálum í Reykjavík á síðasta ári. Alvar- legum árásum hefur fjölgað og á meirihluti þeirra sér stað i mið- borginni. Stöð 2 sagði frá. Áskorun Hlrfar Verkamannafélagið Hlif skorar á stjómvöld að banna nú þegar verötryggingu skulda. Þetta sé mikhvægt, einkum þar sem fyrir- hugað sé að banna verðtryggingu innlána. Glóðum verðbólgubálsins sé haldið lifandi með þessu kerfi. Áfengissendill Veitingamaðurinn sem sér um ráðstefrmsali ríkisins við Borgar- tún hefúr oft séð um áfengiskaup hjá ÁTVR fyrir bankastjóra Lands- bankans. Hann segir að hta megi á þjónustu hans sem sendiferðir fyr- ir bankastjórana. RÚV sagði frá. Bleikja í Straumsvík Einstakt bleikjuafbrigöi hefur fundist í Straumsvík á Reykja- nesi. Sérstaðan felst í því hvernig hún nýtir sér umhverfi bæði fersks vatns og sjávar. RÚV sagði frá. Uppboð á Víkartindi Eitthvert stærsta uppboð hér á landi verður líklega haldið um mánaðamótin maí-júní. Þá verða vörur úr Víkartindi boðn- ar upp. RÚV sagöi frá. Veiðileyfi keypt Opinber fyrirtæki og einka- fyrirtæki hafa keypt um þriðj- ung allra veiðheyfa í bestu lax- veiðiánum á besta tíma á hverju sumri. Stöð 2 sagði frá. Hagyrðingar mætast Á laugar- dag varhald- ið hagyrð- ingamót í Fá- skrúðsfirði undir stjóm Hákons Aðal- steinssonar. Hagmæltir Austfirðingar gerðu þar feikna lukku. RÚV sagði frá. Leiruvegur í lagi Þorsteinn Þorsteinsson fugla- áhugamaður gefur lítið fyrir gagnrýni fólks um að Leiruveg- ur hafi haft slæm áhrif á fúgla- lífið. Líklegt er þó talið að á staðnum verði þar innan fárra ára ein stór sandeyri. Stöð 2 sagði frá. Nátttröll Fram- kvæmda- stjóri ASÍ segir að lög um vísitölu- bindingu húsa séu nátttröh á ís- landi. Þau verði aö Sjónvarpið sagðu frá. afnema strax. Vinsæl flösurannsókn Á annað hundraö manns létu skrá sig í flösurannsókn á veg- um Lyfjaverslunar íslands í gær. Thgangurinn er að prófa nýtt flösulyf. Stöð 2 sagöi frá. -HI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.