Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Blaðsíða 24
24
MÁNUDAGUR 20. APRÍL 1998
MILLER-TIME SÓMA
.........HUNANG
... DÚNDURFRÉTTIR
.....RP 06 ÞEGIÐU
SMIRNOFF www.smirnoff.com
Fréttir____________________________________________x>v
TálknaQöröur:
Allrahanda yfirtek-
ur fólksflutninga
Torfí E. Andrésson, sérleyfishafi
á Tálknafirði, er nú að íhuga að
Hvaða ahugamál hefur Tígri?
Hefur hann áhuga á sundi, fótbolta, körfubolta eða stangarstökki? Skyldi
hann hafa fariá á skíði? Með hvaða íþróttafélagi spilar hann?
Hefur eitthvað komið fyrir Tígra þegar hann er á æfingu?
Ef þú ert 12 ára eáa yngri getur þú tekið þátt í því að skrifa smásögu um
íþróttir og tömstundir Tígra.
Allir sem senda inn sögu fá senda gjöf frá Tígra.
50 sögur verða valdar og gefnar út í einni bók, Tígrabókinni. Þeir sem eiga
sögur í bókinni eiga möguleika á að vinna vegleg verðlaun.
Þú getur einnig haft samband við
í samstarfi við íþrótta- og tómstundaráð og Fræðslumiðstöðina.
hætta starfsemi sinni á svæðinu. í
samtali við Vestra sagði Torfi að
það gæti farið svo að hann seldi
reksturinn til Allrahanda. Sagði
hann að þetta væri þó ekki frá-
gengið en það skýrðist á næstu
vikum. Torfi sagði ef af því yrði
væri eins líklegt að hann flytti
burt af svæðinu.
Torfi sagðist vera búinn að
starfa við þetta á sautjánda ár.
Hann hefði ekið með farþega á Pat-
reksfjarðarflugvöll fyrir Flugleiðir
í 14 ár. Þá sagðist hann líka vera
búinn að keyra í tíu ár fyrir Arn-
arflug og síðan íslandsflug. Þar
hefur verið um það að ræða að aka
farþegum til og frá Bíldudalsflug-
velli til Tálknafjarðar og Patreks-
fiarðar. Þá var Torfi fimm ár með
sérleyfi á leiðinni Ísafiörður-Látra-
bjarg.
Torfi hefur að undanförnu verið
með þrjá bíla en var með 5 bíla í
akstri þegar mest var að gera.
- HKr.
(/iU*aA*nd<i í 8671313
Allrahanda mun væntanlega yfirtaka fólksflutninga í Vesturbyggö á næst-
unni.
Líkur á þrem listum í Vesturbyggð:
Oframkominn
listi skólastjóra
vekur óróa
Sterkar líkur eru nú á að
þrír listar verði í framboði
til sveitarstjórnarkosninga í
Vesturbyggð í vor. Sjálfstæð-
ismenn hafa þegar kynnt
sinn lista og sameinaður
listi félagshyggjuafla mun
vera svo gott sem tilbúinn
en að baki honum stendur
nýstofnað félag, Samstaða.
Ætlunin er að birta Sam-
stöðulistann á sumardaginn
fyrsta en á honum mun vera fólk
bæði af hægri og vinstri væng
stjómmálanna. Þá er undirbúning-
ur að stofnun þriðja listans kominn
vel á veg. Þar mun Guðbrandur
Stígur Ágústsson skólastjóri vera
fremstur í flokki. Ekkert hefur þó
enn verið gefið út um þann lista og
vildi Guðbrandur Stígur ekkert láta
hafa eftir sér um málið að svo
stöddu. Þó munu hugmyndir þeirra
hafa komið fram á almennum fundi
á dögunum. Þar kom fram að þetta
nýja framboð mundi berjast fyrir
róttækum aðgerðum í skólamálum.
Þær mundu m.a. felast í því að ná
fram sparnaði með því að taka upp
heimakstur á skólakrökkum af
Barðaströnd til Patreksfiarðar og
leggja niður kennslu í Krossholti og
í Örlygshöfn.
Skólum lokað?
Torfi Steinsson, skólastjóri í
Krossholti, sagði að það væri ljóst
að þessir aðilar ætluðu að loka skól-
unum í Krossholti og í Örlygshöfn.
Þá ætluðu þeir að taka einhverja
bekki ofan af skólanum á
Bíldudal og flytja krakkana
úr þessum skólum með bíl-
um til Patreksfiarðar. Torfi
sagði að fólki á Barðaströnd
litist mjög illa á þessar hug-
myndir. Það væri ljóst að ef
þetta næði fram að ganga
flyttu einhverjir á brott.
Sagði hann að Vesturbyggð,
með samtals 1313 manns,
mætti síst við meiri fækkun.
Taldi hann að ef fólk fengi ekki
kennslu í sinni gömlu sveit færi
það. Þarna væri veriö að tala um að
keyra börnin 150 til 200 km á dag.
Hann sagðist þó lítið geta tjáð sig
beint um þessi mál þar sem hann
hefði ekki skoðað þetta náið. Taldi
hann þó að spamaður næðist ekki
með slíkum aðgerðum því Jöfnunar-
sjóður sveitarfélaga greiddi einung-
is með akstri upp að 30 km, allt um-
fram það lenti á sveitarfélaginu. Þá
fengist enginn styrkur vegna akst-
urs á milli þéttbýliskjarna eins og
Bíldudals og Patreksfiarðar.
Þá nefndi Torfi öryggisþáttinn.
Þó snjólétt hefði verið í vetur kæmu
oft snjóflóð í Raknadalshlíðinni á
leiðinni til Patreksfiarðar. Þegar
svo vegurinnn lokaðist vegna snjóa
þá þyrfti að fara út í heimavist.
Torfi segir að menn á Barðaströnd
hafi verið að geta sér til um að 45
manns mundu strax flytjast á brott,
bara vegna þeirrar vinnu sem leggst
af við lokun skólanna í Krossholti
og i Örlygshöfn.
Guöbrandur
Stígur Ágústs-
son.