Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Blaðsíða 30
38 MÁNUDAGUR 20. APRÍL 1998 r Jh ■* Innræktun getur leitt til útrýmingar Finnskir liffræðingar hafa nú sannað það sem náttúru- verndarsinna hefur lengi grun- að, nefnilega að innræktun get- ur leitt til þess að dýr í útrým- ingarhættu deyi hreinlega út. Þeir birtu niðurstöður rann- sókna sinna í visindaritinu Nature fyrir skömmu. Vísindamennirnir notuðu fiðrildategund eina frá Álandseyjum í rannsóknum sínum. Fiðrildi þessi hafa ver- ið meira og minna einangruð og sjö af 42 hópum dóu út á ár- unum 1995 og 1996. Rannsóknirnar leiddu í ljós að hættan á útrýmingu jókst til muna þegar dró úr fjöl- breytni arfberanna. Það bendir aftur á móti til innræktunar. Rannsókn Finnanna er sú fyrsta sem færir heim sönnur á að innræktun tengist útrým- ingu dýrategundar. Einstein hafði rétt fyrir sér Enn einu sinni hafa vísinda- menn fært sönnur á að Albert Einstein hafði rétt fyrir sér. í afstæðiskenningunni spáði hann fyrir því að efnisheild sem snerist hlyti að breyta rúmfræði alheimsins með því að mynda sveigju á tímarúmið. ítalskir vísindamenn skoð- uðu sporbaug tveggja gervi- hnatta bandarísku geimferða- stofnunarinnar NASA og úr- skurðuðu að Einstein hefði haft á réttu að standa. Fyrirbæri þetta er kallað Lense-Thirring áhrifin, í höf- uðið á austurrísku eðlisfræð- ingunum Josef Lense og Hans Thirring. Þeir sögðu að him- intungl sem snúast, eins og sól- in, myndi kraft sem dragi rým- ið í átt til þeirra. Of mjór verður of feitur Tvisvar sinnum meiri líkur eru á því að böm sem missa alla ungbamafituna utan af sér fyrir fimm ára aldurinn verði of feit þegar þau verða fullorðin en börn sem halda lengur í ungbarnafituna. Þetta era niðurstöður rann- sókna vísindamanna í Banda- ríkjunum sem sagt er frá í tímariti um bamalækningar. Gildir þá einu hvort foreldr- arnir eru of feitir, en það er sterk vísbending um hvert um- fang bamsins verður síðar á lífsleiðinni. Öll börn grennast eftir fyrsta árið þar til þau verða 5 eða 6 ára. Þá fara þau að bæta utan á sig á ný. Vísindamenn- irnir fylgdust með 390 börnum þar til þau voru 21 til 29 ára og borið var saman á hvaða aldri þau urðu mjóst, áður en þau byrjuðu að fitna aftur. I I —J s Aðgát skal höfð við uppeldi barnanna: Flengingar gagnslitlar til að halda uppi aga Flengingar koma að engu meira gagni en aðrar aðferðir við að halda uppi aga meðal barna. Þar að auki verða flengingabörn mun árás- argjarnari, bæði sem unglingar og fulltíða einstaklingar. í leiðbeiningum sem sam- tök bandarískra barna- lækna hafa gefið út em fé- lagsmenn hvattir til að letja foreldra til að beita flenging- um við uppeldi barna sinna. Þá segja bamalæknarnir að börn sem hafa verið flengd séu líklegri til að eiga í vand- ræðum í hjónabandi sínu síðar meir og telja allt í lagi að leggja hönd á makann. Og því meira sem böm eru flengd, þeim mun meiri líkur em á að þau flengi eigin böm. „Þegar best lætur koma flengingar aðeins að gagni þegar þeim er beitt sjaldan og við alveg ákveðnar aðstæður," segir í skrifelsi barnalækna- samtakanna. Sérstök nefnd samtakanna sem rannsakaði flengingar og áhrif þeirra komst að þeirri niður- stöðu að bömin lærðu það af flengingum að of- beldi væri ásættanleg leið til að leysa ágreining, sérstaklega ef gripið væri til þess þegar foreldrið væri reitt. „Það er líklega ekki gott að hafa þetta fyrir börnunum," segir Mark Wolraich, barnalæknir í Nashville í Tennessee og formaður áðurnefndrar nefndar. Eftir því sem oftar er gripið til fleng- inga, þeim mun minni verður árangurinn af þeim. Það leiðir því líka til þess að tölu- vert erfiðara verður að halda uppi aga, einkum meðal táninga, þegar ekki er hægt að grípa til líkamlegrar refsingar, að því er samtök barnalækn- anna segja. Læknarnir segja að agann eigi að byggja á jákvæðri styrkingu og ástúðarfullu sam- bandi bams og foreldris. Ef beita þurfi refsingu eigi hún ekki að vera af líkamlegum Enn eitt ráðið til að varast offituna: Kolvetnisrík fæða toga, það er að segja barsmíðar. Ef refsa þarf börnunum er mælt með því að eldri bömin verði sett í eins konar straff og að yngri börnunum verði ekki gefinn neinn gaumur í einhvern tíma, foreldrið taki sér leikhlé eins og íþróttamenn, eins og barnalæknarnir orða það í leiðbeiningum sínum. „Flengingar eru svo sannarlega ekki betri en aðrar leiðir til að halda uppi aga,“ segir Wol- raich. Hann segir jafnframt að sjaldnast sé gripið til flenginga við kjöraðstæður, eins og þegar for- eldramir séu ekki reiðir út í börn- in og þeir beiti ekki öðrum tólum en höndunum. Barnalæknasamtökin segja að aldrei eigi að berja börnin með barefli af neinu tagi og aldrei eigi að slá þau annars staðar en á bossann eða útlim- ina. Þá mega ummerki ráðningarinnar aldrei sjást lengur en í nokkrar mínútur. Samkvæmt leiðbeiningunum er alveg ótækt að hárreyta barnið, kippa í handlegg þess, hrista það eða refsa í þvi augnamiði að valda sárs- auka. En hvað sem öllum svona leiðbeiningum líður, eru flengingar algengasta agatækið. Níu af hverjum tíu foreldrum beita þeim og í fjórðu hverju miðstéttarijölskyldu í Bandarikjun- um er danglað í bömin í viku hverri. Rannsókn frá árinu 1996 leiddi í ljós að meira en helmingur 13 og 14 ára unglinga var flengdur átta sinnum á ári að meðaltali. gerir Þeir sem vilja draga úr hættunni á að verða offitunni að bráð og verja sig um leið gegn alls kyns kvillum af völdum slælegs mataræðis skyldu gleypa kolvetnisríka fæðu af miklum móð. Menn skyldu þó vara sig á því að ofneysla á hvers kyns mat, þar á meðal fituskertum, leiðir fyrr eða síðar til uppsöfnunar auka- birgða af fitu ef ekki er stunduð nein likamsrækt. Þetta kemur fram í nýlegri gæfumuninn skýrslu sem Matvæla- og landbún- aðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) og Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunin (WHO) sendu frá sér. „Mataræði þar sem að minnsta kosti 55 prósent orkunnar koma úr ýmsum tegundum kolvetnisríkrar fæðu, en ekki úr fituríkri fæðu, dregur úr líkunum á þvi að fita safnist fyrir í líkamanum," segir í skýrslunni sem heitir Kolvetni í fæðu mannsins. Kolvetnisrik fæða, svo sem kom- matur, sykur, rótarávextir, ávextir, grænmeti og belgjurtir kemur að mörgu leyti að gagni við að hafa stjórn á líkamsþyngdinni og til að vernda gegn ýmsum sjúkdómum sem tengjast mataræði, segja vís- indamenn FAO. Skýrslan er byggð á gögnum frá iðnríkjunum. í henni koma ekki fram nein bein tengsl milli kolvetn- isríkrar fæðu og offitu. Aftur á móti segir þar að í þróunarlöndun- um, þar sem kolvetni er helsti orkugjafinn í fæðu inn- fæddra, sé hugsanlega þörf fyrir að borða meira af fitu- og prótínríkum mat til að mæta orkuþörfinni og til að bæta næringuna. Og heils- una um leið. Líkaminn hefur takmark- aða getu til að geyma bæði prótín og kolvetni, enga til að geyma áfengi og nánast ótak- markaða til að geyma fitu. Hitaeiningar úr áfengi eru nýttar fyrst, síðan úr prótín- um og svo kolvetni. Líkam- inn grípur síðast til hitaein- inga úr fitu. Þegar orkuþörf- inni hefur verið fullnægt safnast umframfitan fyrir í líkamanum, með afleiðingum sem allir þekkja. Það er nú ein ástæðan fyr- ir því að neysla kolvetnis- ríkrar fæðu dregur úr hætt- unni á offitu þegar til lengri tíma er litið. Hundgömul risa- eðla í Brasilíu Risaeðlumar, sem við íslend- ingar köllum svo, voru nú ekki allar risastórar. Gott dæmi um það er hundgömul risaeðla sem fannst í sunnanverðri Brasilíu í ársbyrjun. Reyndar fundust að- eins þrjú bein úr skepnu þessari sem lifði fyrir um 200 milljón árum og var á stærð við stóran hund. Þetta ku vera einhverjar elstu risaeðluleifar sem visinda- menn hafa fundið. Max Langer, steingervinga- fræðingur við kaþólska háskól- ann í brasilíska fylkinu Rio Grande do Sul, segir að risaeðla þessi hafi lifað á tríastímanum, fyrsta tímabili miðlífsaldarinn- ar, og hafi nærst á plöntum. Að sögn Langers fundust bein- in við uppgröft í Santa Maria, um 1400 kílómetra suður af borg- inni Sao Paulo. Þetta er í annað sinn sem risaeðlubein frá trías- tímanum hafa fundist í Brasilíu sunnanverðri. Fyrstu beinin fundust í Santa Maria árið 1936. Þau, svo og bein sem fundust í Argentínu, reyndust vera af-kjöt- ætu, náfrænku þeirrar sem fannst í janúar. Brasilískir steingervingafræð- ingar hafa uppgötvað risaeðlu- bein, flest frá krítartímanum fyr- ir um 100 milljón árum, vestur af Sao Paulo og við norðaustur- strönd landsins. V

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.