Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Qupperneq 16
MÁNUDAGUR 20. APRÍL 1998 16 1 wnning Ungir sem aldnir I Listaskálanum í Hverageröi stendur nú yfir sýning á verk- um „ungra“ myndlistarmanna undir yfirskriftinni „Ungir myndlistarmenn ’98“ og er hún kynnt sem nokkurs konar fram- hald af samnefndum sýningum sem annars vegar Félag ís- lenskra myndlistarmanna stóð fyrir árið 1967 og hins vegar Kjarvalsstaðir árið 1983. Einar Hákonarson, forstöðu- maður Listaskálans sem einnig var forstöðumaður Kjarvals- staða árið sem UM var haldin þar, lýsti því í sjónvarpsviðtali skömmu eftir opnunina hversu þarft framtakið væri og hvílík örvun og tækifæri fælust í þvi fyrir unga myndlistarmenn. í framhaldi var svo talað við einn listamannanna, Birgi Snæbjöm Birgisson málara en hann sigraði í samkeppni sem fram fór fyrir keppnina. Hann sagði viðurkenning- una mjög mikilvæga fyrir sig; hingað til hefði hann synt á móti straumnum þar sem hann hefði málað í ljósari litum en fólk óskaði eftir og sér þætti því gott að finna til þess að það streð væri ekki einskis metið. Ég varð nú svolítið hissa með sjáifri mér á þessum orðum Birgis. Ég veit ekki betur en honum hafi gengið nokkuð vel, meðal annars var hann einn af fulltrúum íslands á sýning- unni Líkamsnánd sem fór til fimm landa og var nýlega á Kjarvalsstöðum. Auk þess hélt ég að flestir væru orðnir þreyttir á gömlu klisjunni um listamanninn sem berst hetjulega gegn áliti fjöldans. Frá sýningunni. Myndlist Aslaug Thorlacius Ég ók samt austur og skoðaði sýninguna og ég verð að segja að ég er aldeilis gáttuð á því sem fyrir augu bar. Sautján myndlistarmenn hafa látið hafa sig í að senda inn verk. Mest er um málverk og undarlegt nokk - langflest eru í einhvers konar raunsæisanda. Ég geri ráð fyr- ir að þrýst hafi veriö á suma um að senda inn verk, það ræð ég bæði af aldri listafólksins og verkanna. Ég man ekki betur en auglýst hafi verið eftir verkum listamanna 30 ára og yngri, samt er aðeins rúmur helmingur þeirra sem náð hafa hlotið fyrir augum dómnefndarinnar fæddur 1968 eða síðar. Elstu verkin eru frá ár- inu 1994 og sum hver hafa þegar verið sýnd annars staðar. Ekki er það til marks um mikla örvun. Varla hefúr upphaflega hugmyndin ver- ið að gefa „miöaldra listafólki" tækifæri til að sýna „æskuverkin sin“. (Reyndar er vafasamt að miða við 30 ára aldurinn því flestir eru komnir vel yfir tvítugt þegar þeir hefja nám við MHÍ.) Ég man ágætlega eftir sýningunni 1983 og ég held að hún hafi verið prýöilegt framtak á þeim tíma þegar málverkið var í uppsveiflu. Sömu- leiðis hefur svona málverkasýning örugglega verið bæði nútímaleg og viðeigandi árið 1967. Ööru máli gegnir árið 1998. Nú á svona Salon- sýning ekki við þegar gefa á mynd af því sem unga fólkið er að gera. Ofan á allt er salurinn leiðinlegur, minnir helst á mötuneyti í sumar- búðum. Ég get ekki annað en tekið undir með einum sýningargestinum sem sagði að tilfinn- ingin inni í salnum væri eins og á sýningu á fé- lagsstarfi aldraðra - með fullri virðingu fyrir slíku starfi. Þessi sýning er hér um bil eins langt frá því að vera dæmigerð fyrir verk ungra myndlistar- manna og hægt er. . . Verðlaunaverk Birgis Snæbjarnar Birgissonar í Listaskálanum í Hverageröi. Myndir Eva Ég finn til samúðar með þeim sem standa að þessu mislukkaða fyrirbæri, bæði listamönn- unum sem eru ágætir sumir hverjir, en ekki síður dómnefndinni sem á heiöurinn af valinu og sjálfsagt upphengingunni á sýningunni. Sýningin stendur til 3. maí og er opin daglega kl. 13-15. Smá-borgarasaga Það getur verið vandasamt að finna leikrit, sem hæfir Nemendaleikhúsinu hverju sinni. Vægi hlutverka þarf að vera þannig að allir fái sín tækifæri á sviðinu og tala útskriftamema setur verkefnavali ákveðinn ramma. En stundum detta menn í lukkupottinn og Uppstoppaður hundur eftir sænska höf- undinn Staffan Göthe réynist alveg grá- upplagt leikrit .fyrir þann hóp sem nú er um það bil að ljúka ströngu námi. Staffan er snillingur í að setja sam- an persónuflóru sem hvergi á sinn líka. Framvinda og mannlýsingar jaðra við fáránleika, og enginn deplar auga þó að hundar tali og sýni oft með fasi sínu, að þeir skilja meira en margur maðurinn. Innileg hlýja og óbrigðul kímni lyfta verkinu upp í sér flokk, sem er á sinn hátt mjög skand- inavískur en þó algjör andstæða hinn- ar svartsýnu vandamálaumræðu, sem oft hefur einkennt verk landa höfúnd- arins - og kannski um leið andsvar við henni. Allt um það. Þessi makalausa mannlífslýsing sem á sér rætur á sjötta áratugnum segir frá íbúum smá- bæjar nokkurs, gieði þeirra og sorg- um. Við fylgjumst með þeim um nokkurt skeið og skiljum reyndar ekki alveg við þá fyrr en rúmum 20 árum síðar. Inn í framvinduna flétt- ast ástir og útþrá unglinganna, sem eru í leit að sjálfum sér, tvískinnungur hinna fullorðnu og hraðfara breytingar í þessum litla útnára meö tilkomu stóriðjudrauma. Viðteknar venjur og lífshættir eru á undanhaldi, nýr tími blasir við. Hver og einn finnur sína flóttaleið: Sumir fara burt, aðrir leita huggunar i trúnni og enn aðrir steypa sér í glötun með neyslu fikniefna. Og svo eru þeir sem aldrei haggast. Hilmar Jónsson leikstjóri bregst ekki. Hann finnur hinn rétta tón og það er sama hvort lit- ið er á persónuleikstjóm eða uppsetninguna í heild, útkoman er afskaplega skemmtileg sýn- hefur nokkuð meiri reynslu og sviös- öryggi en hin. í hópnum að þessu sinni eru Agnar Jón Egilsson, sem meðal annars leikur hinn eftirminnilega heimilisföður Sture, sem dundar sér við það að stoppa upp dýr í frístundum. Kona hans er hin óhagganlega Líney, sem Helga Vala Helgadóttir leikur, og sonur þeirra er svo piltungurinn Morgan, sem er i mið- punkti frásagnarinnar. Guðmundur Ingi Þorvaldsson leikur hann. Önnur fjölskylda býr í húsinu og þar er heimilisfaðirinn Pétur sem Ólafur Darri Ólafsson leikur með miklum tilþrifum. Linda Ásgeirsdóttir er í hlutverki Gunnfríðar konu hans og gestaleikarinn Hildigunnur Þráins- dóttir er dóttir þeirra, Karen. Gangastúlkan, sem kemur róti á hormónana í Pétri, er leikin af Eddu Björgu Eyjólfsdóttur og listakonan Nelly, sem dagar uppi með brotið hjarta hjá fiölskyldu Morgans, er leik- in af Sjöfn Evertsdóttur. Friörik Frið- riksson leikur bæði Ebeneser, von- Leiklist Auður Eydal Ungt fólk f tiivistarvanda: Hildigunnur Þráinsdóttir og Guðmundur Ingi biðil Nellyar, og Marcel, félaga þeirra Þorvaldsson í Uppstoppuöum hundi. DV-mynd Pjetur Morgans og Karenar. Leikmynd Finns Arnars og ljósa- hönnun Egils Ingibergssonar skapa úthugsaða fiölbreytni í umbúnaði sýningarinnar og allt rímar þetta einstaklega vel saman. Verkið er glettnisleg lýsing á amstri, bjástri og örlögmn íbúa í smábæ en það sem gefur því sérstakt gildi er væntumþykja höfundarins og næmur skilningur sem liggur undir allri frá- sögninni. Nemendaleikhúsið sýnir í Lindarbæ: Uppstoppaður hundur eftir Staffan Göthe Leikstjóri: Hilmar Jónsson Þýðing: Hallgrímur Helgason Leikmynd: Finnur Arnar Lýsing: Egill Ingibergsson Búningar: Þórunn María Jónsdóttir Hljóðmynd: Margrét Örnólfsdóttir Leikgervi og grímur: Ásta Hafþórsdóttir ing fyrir áhorfendur, sem hlýtur að vera upp- örvandi og góð reynsla fyrir hópinn. Leikend- umir, þó ungir séu að árum, ná fyrirtaksvel að túlka þróun og þroska persónanna sem sumar taka óvæntum breytingum í áranna rás. Leikendumir stóðu sig meö afbrigðum vel, allir sem einn, og gestaleikkonan Hildigunnur Þráinsdóttir, sem sjálf stóð í þeirra sporam fyr- ir ári, féll vel inn í hópinn þó að ljóst sé að hún Fyrirlestur um myndlist j Núna í hádeginu, kl. 12.30, verða I myndlistarmennimir Elsa Stansfield | og Madelon Hooykaas frá Hollandi í með fýrirlestur í Málstofu Myndlista- I og handíðaskóla íslands í Laugamesi. | Þær stöllur eru vel þekktar fyrir myndbandsinnsetningar og í fyrir- lestrinum munu þær fialla um eigin | verk og sýna myndbönd og skyggnur. ’ Ungmennafelag nírætt Ungmennafélag Biskupstungna var 1 stofnað á sumardaginn fyrsta árið 1908 á bænum Vatnsleysu og hefur starfað I linnulaust síðan. Það fagnar nú níræð- á isafmæli sínu, unglegra en nokkra | sinni fyrr. Deildir þess fiórar hafa skipt með | sér afmælisverkefnunum, meðal ann- ars hefur Leikdeild verið að sýna sjón- leikinn Síldin kemur og síldin fer eft- j ir Iðunni og Kristínu Steinsdætur og | eru áhorfendur orðnir nær eitt þús- und; Skógræktardeild efnir til skógar- dags í vor og Aðaldeild gefur út sér- stakt afmælistölublað af málgagni sínu Litla Bergþóri sem er helgað sögu 5 og starfi félagsins. | Að kvöldi afmælisdagsins, 23. apríl, | ætlar ungmennafélagið að minnast af- mælisins með veislu í Aratungu. Þar s verða fluttir kaflar úr leikritum sem í sýnd hafa veriö hjá félaginu á liðnum | árum, sungið, dansað og haldnar ræð- | ur. Óskað er eftir að sem flestir núver- - andi og fyrrverandi félagar og aðrir l Biskupstungnamenn láti sjá sig. St. Jósefssystur á íslandi Út er komið geysimikið og glæsilegt j rit sem rekur sögu St. Jósefssystra hér á landi og setur hana í íslenskt og al- j þjóðlegt samhengi. Höfundur er Ólafur j H. Torfason, blaðamaður og fræðimað- ur, sem einnig hef- ur útbúið fiölda grafa og taflna til skýringar máli sínu. | Bókin er gefin ; út af því tilefni að St. Jósefssystur | áttu 100 ára starfsafmæli á ís- landi árið 1996. Sagt er frá eðli og | framlagi þessarar | rómversk- kaþólsku reglu sem var j stofnuð í Frakklandi á 17. öld og sendi í hjálparsystur til sjálfboðaliðsstarfa j um Evrópu, Ameríku, Asíu og Afriku í! á 19. og 20. öld. Framlag þeirra var á sviði samfélagsmála, fyrst og fremst í * hjúkran og kennslu með rekstri J sjúkrahúsa og skóla en einnig í safh- aðarstarfi kaþólsku kirkjunnar. Áhrif St. Jósefssystra urðu umtalsverð á ís- | lenskt samfélag eins og Ólafur fiallar ítarlega um í bók sinni. Þær stofhuðu jj og ráku sjúkrahús á Fáskrúðsfirði, í ^ Reykjavík og Hafnarfirði og skóla líka í Reykjavík og Hafnarfirði. St. Jósefs- spítali í Reykjavík var aðalsjúkrahús landsmanna um 30 ára skeið og | kennslustofnun læknanema, og Landa- kotsskóli hafði mikil áhrif á skólahald í landinu. Meiri undran vekur þó að j þær létu leggja fyrsta holræsi Reykja- | víkur og önnuðust mestu vatnsöflun bæjarins. Útgefandi og dreifingaraðili bókar- innar er St. Jósefssystrareglan af j Chambéry, Hóltsbúö 87, Garðabæ. Skálaglamm Bókmenntaþátturinn Skálaglamm i er í umsjón Sigríðar Albertsdóttur á ij morgun og verður þá fiallað um tvær bækur frá síðasta ári sem báðar vöktu t talsverða athygli: skáldsöguna Góða nótt Silja eftir Siguijón Magnússon og f Sumar sögur, smásagnasafn Elínar j Ebbu Gunnarsdóttur sem hlaut bók- 1 menntaverðlaun Tómasar Guðmunds- sonar. Þaö eru bókmenntafræðingam- 8 ir Dagný Kristjánsdóttir og Jón Yngvi | Jóhannsson sem spjalla spaklega um þessar bækur við Sigríði. Þátturinn er kl. 13.20 á morgun á rás 1, strax á eftir hinu hörkuspenn- andi hádegisleikriti. -ÖLAFUftH. lClAFASOfJ ST. (ÓSEFSSYSTUR Á ÍSLANDI 1896 - 1996 Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.