Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Page 31
MÁNUDAGUR 20. APRÍL 1998
39
Farsímar eru hugsanlega
ekki eins öruggir og margir
vilja vera láta. Tölvunemar
í Berkley í Kaliforníu
reyndu að brjóta upp kóð-
ann sem notaður er í staf-
rænum símum til að gera
notendur sina örugga.
Þessir símar áttu að vera
alveg skotheldir. Eftir um
sex tíma vinnu hafði þeim
tekist að ráða í kóðann og
gátu þannig hringt úr sima
annars notanda án þess að
hann vissi af því. Það hvað
þetta tók langan tíma þykir
þó benda til þess að þeir
séu mun öruggari en næsta
kynslóð á undan. Engu að
síður er þetta hægt og nú er
spurning hvemig framleið-
endur bregðast við þessu.
Skýrar geimmyndir
Myndir, sem nýr gervi-
hnöttur hefur tekið í geimn-
um, þykja mun skýrari en
aðrar sambærilegar myndir
hafa verið. Þær þykja ná
einstaklega góðum nær-
myndum af jörðinni úr
geimnum og eru vísinda-
menn mjög ánægðir með ár-
angurinn. Vefnotendur geta
skoðað myndirnar sem
gervihnötturinn tók á vefn-
um. Slóðin er www.terraser-
ver.com
Tölvuinnsog
Ný tækni er farin að
ryðja sér til rúms í bílum
og á hún að hjálpa til við að
draga úr mengum hefð-
bundinna bensínbíla. Þetta
er nýtt innsogskerfi sem á
að gera það að verkum að
bíllinn mengi mun minna
en hann gerir í dag. AUir
bilar eru nú búnir sjálf-
virku innsogi en þetta þyk-
ir jafnvel enn öflugra og
þykir líklegt að mörgum
umhverfissinnanum lítist
vel á þetta nýja kerfi.
Margir eru reyndar þeirrar
skoðunar að allt tal um
rafmagnsbíla sé út úr
kortinu og að nú eigi menn
að einbeita sér að því að
gera bensínbílana
unhverfisvænari og betri
farartæki.
Brauðristar geta verið til ýmissa hluta nytsamlegar.
WKr , -.Jtl
LLi H §B
Brauðrist slekkur á
vekjaraklukkunni
Athyglisverð keppni fór fram
nýlega milli háskólanema í
Bandaríkjunum. Keppnin gekk
aðallega út á það að láta flókin tæki
framkvæma einfaldar athafhir. Það
sem vakti hvað mesta athygli var
brauðrist sem nemar í háskólanum
í Madison í Wisconsin bjuggu til.
Þessi brauðrist átti að skjóta
tveimur brauðsneiðum nógu hátt
upp til að koma af stað búnaði sem
var aðallega samsettur út pottum og
pönnum.
Og til hvers í ósköpunum kann
einhver að spyrja. Jú, tilgangurinn
var sá að ýta á takkann sem slökkti
á vekjaraklukkunni.
Keppni þessi er nefnd eftir
teiknimyndahöfundinum Robe
Goldberg en hann teiknaði mörg
flókin tæki sem framkvæmdu
einfalt verkefni. Nemamir, sem
taka þátt í keppninni, eiga að búa til
slika hluti. Keppni þessi er nú orðin
árviss viðburður og þetta árið tóku
sex háskólar þátt í henni.
Á hverju ári eiga menn aö búa til
tæki sem gera eitthvaö einfalt og
þetta árið átti tækið að slökkva á
vekjaraklukkunni. 500 manns sáu
keppnina, reyndar aöallega böm.
Þetta ofangreinda tæki vakti mjög
mikla athygli í keppninni. Mike
Forbers, einn hönnuðanna, hafði
áhyggjur af gagnsemi tækisins.
„Brauðristar eiga ekki að gera
þetta,“ sagði hann áður en hann
setti tækið í gang. Hún gerði hins
vegar nákvæmlega það sem fyrir
hana var lagt og það vel.
Örvar ímyndunaraflið
Samt sem áður reyndist þetta
tæki ekki vera sigurtæki í
keppninni. Það var hópur nema í
flugvirkjun við háskólann í Austin í
Texas sem sigraði í þessari keppni
og var þaö annað árið í röð sem
skólinn fór með sigur af hólmi.
Tæki þeirra er sennilega of flókiö til
að hægt sé að lýsa því hér en þetta
var eftirlíking af geimskipi sem fór
i gegnum flókið ferli áður en því
tókst að slökkva á klukkunni. Meöal
annars kom við sögu vatnsbuna,
stöng og músagildra.
Einn nemanna lét hafa eftir sér
að þeir félagar hefðu byrjað smíði
tækisins í janúar. Keppnin væri
hins vegar alltaf jafn erfið.
Meðal annarra tækja má nefna
eitt sem hönnuðirnir kölluðu
Plains, Trains and Automobiles
eftir samnefndri kvikmynd. Þar var
notaður stór vörubíll frá
eitmnarþjónustu sem var stútfullur
af rotnuðum úrgangi.
„Þessi keppni eykur
ímyndunarafl fólks, bæði keppenda
og áhorfenda," sagði Chad Goze,
stjómandi keppninnar. „Hún sýnir
öra hugsun og leysir
sköpunargáfuna úr læðingi." Hann
segir jafnvel til í dæminu að fólk
taki myndbandsupptöku af keppni
með sér í starfsviðtöl.
Það er ekki spuming að þessara
ungu vísindamanna bíða ömgglega
góð störf við þeirra hæfl. Sennilega
er þó ósk verðandi yfirmanna
þeirra að þeir búi til tæki sem gera
heldur meira gagn en tækin í
þessari keppni.
-HI/CNN
Tveir þættir á sömu rás
Stafrænt sjónvarp mun bjóða upp
á marga möguleika sem ekki hafa
boðist áður. Einn þeirra sem menn
hafa horft sérstaklega til er að þó að
menn ráði aðeins yfir einni
sjónvarpsrás geta menn sýnt fleiri
en einn þátt í einu. Þannig getur
maður á sömu rásinni hugsanlega
valið um nokkra mismunandi
fréttatíma eftir þvi hvar maður er
staddur á landinu. Einnig er hægt
að hafa sérrás fyrir íþróttir, aðra
fyrir stjómmál, þriðju fyrir ferðir
o.s.frv.
Það sem gerir þetta tæknilega
mögulegt er að stafrænt sjónvarp
notar tölvur til að koma efninu til
skila. Þannig er hægt að koma
meira af gögnum fyrir á því plássi
sem ein sjónvarpsrás getur gefið.
Sjónvarpsstöðvar eru nú að
kanna hvaða möguleikar em í boöi
með þessari nýju tækni. Þá era þær
reyndar ekki aðeins með vilja
áhorfenda í huga heldur einnig á
hverju þær geta grætt.
Sjónvarpsstjórar segja að þetta sé í
raun nýr miöill að mörgu leyti.
Meðal valkostanna er svokallaö
Kannski verður hægt aö velja um tvo leiki á sömu rásinni.
High Definition TV. Þar er myndin
skarpari en í hefðbundnu sjónvarpi.
NBC, ABCog CBS ætla allar að
hefja slíkar útsendingar. Það að
bjóða hins vegar marga þætti í einu
finnst mörgum vera meira heillandi
valkostur. Þá eru menn einkum að
tala um svæðisbundnar fréttir
þannig að notandinn geti valið um
fréttatíma eftir því hvar á
útsendingarsvæðinu hann býr.
Jafnvel væri hægt að bjóða
sambland af þessu tvennu.
Hvenær stafrænar útsendingar
hetjast er óljóst. Sumar
sjónvarpsstöðvar hafa lofað því að
hefja útsendingar strax í nóvember
næstkomandi. Tíu stærstu stöðvar
Bandaríkjanna verða að byrja fyrir
maí 1999. Allar stöðvamar verða að
hafa hafið útsendingar fyrir árið
2006. -HI/Associated Press
VW Vento GL1600 árg. '97,
4 d., ssk., ek. 32 þús. km,
> fjólublár, álfelgur. <
Verð 1.390 þús.
Borgartúni 26. símar 561 7510 & 561 7511
Cadillac de Ville árg. '64,
2 d., ssk., rauður/hvítur.
Verð 690 þús.
Ford Escort station árg.
'94,5 d., 5 g., ek. 59 þús.
km, blár.
Verð 890 þús.
Hyundai Pony LSi árg. '94,
4 d., 5 g., ek. 62 þús. km,
grár.
Verð 570 þús.
"n&í. i
-
Toyota Landcruiser árg.
'94,4 d., 5 g., rk. 60 þús.
km, rauður/grár.
Verð 3.700 þús.
M. Benz Sprinter 312D árg.
> '96,5 d., 5 g., ek. 99 þús. kmi
hvítur.
Verð 2.690 þús.
»VW LT 35 árg. '97,4 d„ 5
g„ ek. 33 þús. km, hvítur.
Verð 2.680 þús.