Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Qupperneq 45

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1998, Qupperneq 45
T~yyy MÁNUDAGUR 20. APRÍL 1998 Eitt verka Gunnlaugs á sýningu hans í Hafnarborg. Tvær sýningar Gunnlaugs Fyrir rúmri viku var opnuð sýning á fimmtán olíumálverk- um og tíu vatnslitamálverkum eftir Gunnlaug Stefán Gislason í Hafnarborg, Menningar- og lista- stofnun Hafnarfjarðar. Er þetta 1 fyrsta sinn sem Gunnlaugur sýnir olíumyndir á einkasýn- ingu. Á laugardaginn opnaði svo Gunnlaugur aðra einkasýningu á verkum sínum í Gallerí Fold. Þar sýnir hann aðallega eldri Sýningar vatnslitaverk. Þá má geta þess að á laugardaginn var opnuð samsýning á vegum Nordisk akvarell selskap í Djursholm, sem er skammt frá Stokkhólmi, og þar er að finna verk eftir Gunnlaug Stefán. Er sú sýning hluti af þeim listviðburðum sem Stokkhólmur gengst fyrir sem menningarborg Evrópu. Gunnlaugur Stefán hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í mörgum samsýning- um. Gunnlaugur er fæddur í Hafnarfirði 1944. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíða- skóla íslands og hefur kennt við þann skóla síðan 1979, Myndlist- arskólann í Reykjavík og víða á námskeiðum. Listaklúbbur Leikhúskjallarans: í Listaklúbbi Leikhúskjallarans verða í kvöld fluttir einþáttungam- ir Heyrt og séð eftir Ingibjörgu Hjartardóttur og Lófalestur eftir Jóninu Leósdóttur, báðir í leik- stjórn Ásdísar Skúladóttur. Leikar- ar 1 Lófalestri eru Erla Ruth Harð- ardóttir, Saga Jónsdóttir og Soffía Jakobsdóttir en í Heyrt og séð eru það Margrét Helga Jóhannsdóttir og Theodór Júlíusson sem leika. Lófelestur er gráglettinn einþátt- ungur um tvær systur, Matthildi og Unni, sem ákveða að láta spákonu lesa i lófana á sér. Matthildur er vel stæð ekkja sem á engin börn. Unn- ur er gift, vinnur hörðum höndum og á fjóra stálpaða syni. Báðar fýsir þær að vita hvað framtíðin ber í skauti sér og Salvör spákona kemur miklu róti á huga þeirra. Óvæntar upplýsingar koma fram við lófalest- urinn og systurnar, sem héldu að þær þekktu hvor aðra út og inn, sjá nú hvor aðra í alveg nýju ljósi. Heyrt og séð er lítil svört kómedía um hjón á sextugsaldri sem búa í Reykjavík. Þau eru ör- yrkjar. Maðurinn er nýbúinn að Leikhús missa vinnuna en konan fær smá- tekjur af léttri vinnu sem hún getur stundað heima og verður það ágæt viðbót við örorkubætumar. Maður- inn styttir þeim súmdimar á dag- inn með því að lesa upp úr dagblað- inu. Þennan dag sem við kynnumst hjónunum les hann dapurlega slysa- frétt um banaslys sem varð á göt- unni beint fyrir utan stofúgluggann þeirra þá um nóttina. Þessi frétt hrærir upp í minningunum þeirra og við fáum innsýn í þeirra eigin harmsögu. Dagskráin hefst kl. 20.30. Ingibjörg Hjartardóttir hefur skrifað fjölda leikrita, bæði fyrir at- vinnuleikhópa, áhugaleikhús og út- varp. Þessar vikurnar er verið að sýna eftir hana tvö leikrit hjá áhugaleikhúsunum, Sálir Jónanna ganga aftur, sem hún skrifaði í fé- lagi við tvo aðra höfunda, og Vel- komin í Villta vestrið. Jónína Leós- dóttir starfar sem blaðamaður en hefur bæði skrifað skáldsögur og leikrit, fyrir atvinnuleikhópa og út- varp. í febrúar sl. var t.d. flutt eftir hana leikritið Símastefnumót í Út- varpsleikhúsinu. Leikarar f einþáttungunum ásamt leikstjóranum, Ásdísi Skúladóttur, og höfundum. Heyrt og séd og Lófalestur Smáskúrir sunnanlands í dag verður aust- “ _ , og vestanlands. læg átt, allhvöss við VCOnð I QðS Hiti 0 til 10 stig, suðurströndina en-------------------------------------hlýjast suðvestan- heldur hægari annars staðar. Þoku- loft eða lítils háttar él austanlands og á annesjum norðanlands. Smá- skúrir með suðurströndinni en þurrt og allvíða bjart veður norðan- og vestanlands. Sólarlag í Reykjavík: 21.17 Sólarupprás á morgun: 5.35 Síðdegisflóð i Reykjavík: 12.41 Árdegisflóð á morgun: 1.22 Veórió kl. 6 í morgun: Akureyri alskýjaö 5 Akurnes skýjaö 5 Bergstaöir skýjaö 6 Bolungarvík skýjaó 4 Egilsstaöir 2 Keflavíkurflugv. skýjaö 8 Kirkjubkl. léttskýjaö 6 Raufarhöfn þokumóða 2 Reykjavík skýjaö 8 Stórhöföi rykmistur 5 Helsinki rigning 4 Kaupmannah. léttskýjaó 7 Osló skýjaö 7 Stokkhólmur 3 Þórshöfn úrkoma í grennd ' 5 Faro/Algarve skýjaó 17 Amsterdam skýjaö 11 Barcelona hálfskýjaö 17 Chicago hálfskýjaö 16 Dublin skúr 6 Frankfurt léttskýjaö 8 Glasgow skýjaö 11 Halifax léttskýjaö 18 Hamborg léttskýjaö 11 Jan Mayen léttskýjað -1 London rigning 9 Lúxemborg skýjaö 9 Malaga skýjaö 21 Mallorca skýjaö 17 Montreal heiöskírt 13 París rigning 10 New York alskýjaö 11 Orlando alskýjaö 30 Nuuk -5 Róm léttskýjaö 14 Vín skúr á síó.kls. 11 Washington súld 11 Winnipeg heiðskírt 9 Elín og Stefán eignast dóttur Þessi litla stúlka fædd- ist á fæðingardeild Land- spítalans 27. febrúar kl. 15.45. Við fæðingu var Barn dagsins hún 3.225 grömm að þyngd og mældist 48 sentimetra löng. Foreldr- ar hennar eru Elín Urður Hrafnberg og Stefán Óla- son og er hún þeirra fyrsta baim. Michael Keaton leikur moröingja sem tekst aó iosna úr prísundinni. Desperate Measure Bíóhöllin sýnir bandarísku spennumyndina Desperate Mea- sure en í henni má sjá Michael Keaton leika brjálæöinginn Peter McCape, morðingja sem er í ein- angrun. Þegar í ljós kemur að hann er eini maöurinn sem getur gefið syni lögreglumannsins Franks Connors (Andy Garcia) blóömerg fær Connor leyfi til að fá McCape til að vera lífgjafi sonar síns. McCape samþykkir að vera lífgjafinn, ekki vegna þess að hann vorkenni drengnum heldur sér hann tækifæri til að sleppa úr prísundinni og það tekst honum eftir blóðug- an bardaga. Hefst Kvikmyndir nú mikill eltingaleik- ur viö McCape þar sem Connor hugsar um það eitt aö ná honum lifandi. Leikstjóri Desperate Mea- sure er Barbet Schroeder og er Desperate Measure sjötta myndin sem hann leikstýrir í Bandaríkj- unum. Þekktust mynda hans er Reversal of Fortune. Nýjar myndir: Háskólabíó: Á hættumörkum Laugarásbíó: The Man in the Iron Mask Kringlubíó: Red Corner Saga-bíó: Litla hafmeyjan Bíóhöllin: Fallen Bíóborgin: The Rainmaker Regnboginn: Jackie Brown Stjörnubíó: Ma vie en Rose Krossgátan T~ r* sr r* r $ ir M J r 1 iS 7T rr VT W . „ J 2!j □ Lárétt: 1 glöggur, 5 gramur, 8 dáinn, 9 kusk, 10 borða, 11 spjót, 13 umhyggju- samur, 16 borgum, 17 angur, 19 þefa, 21 nöldur, 22 skordýr. Lóðrétt: 1 slappleiki, 2 glaðar, 3 hrinda, 4 úrkoma, 5 skens, 6 spíri, 7 friður, 12 lofa, 14 spildu, 15 úrgangur, 16 flas, 18 skóli, 20 frá. Lausn á slðustu krossgátu: Lárétt: 1 org, 4 skær, 8 fálki, 9 sá, 10 snar, 11 nið, 12 inn, 14 enni, 16 ný, 17 skrín, 19 átak, 20 aum, 22 mar, 23 skrá. Lóðrétt: 1 ofsi, 2 rán, 3 glansar, 4 skrekks, 5 kinn, 6 æsi, 7 ráðin, 13 nýta, *• “ 15 níur, 16 nám, 18 rak, 21 má. Gengið Almennt gengi LÍ17. 04. 1998 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollqengi Dollar 71,440 71,800 72,040 Pund 120,980 121,600 119,090 Kan. dollar 49,850 50,160 50,470 Dönsk kr. 10,3990 10,4550 10,4750 Norsk kr 9,5590 9,6110 9,5700 Sænsk kr. 9,2550 9,3060 9,0620 Fi. mark 13,0600 13,1380 13,1480 Fra. franki 11,8240 11,8920 11,9070 Belg. franki 1,9200 1,9316 1,9352 Sviss. franki 47,6400 47,9000 49,3600 Holl. gyllini 35,2000 35,4000 35,4400 Þýskt mark 39,6600 39,8600 39,9200 ít. líra 0,040080 0,04032 0,040540 Aust. sch. 5,6360 5,6710 5,6790 Port. escudo 0,3869 0,3893 0,3901 Spá. peseti 0,4667 0,4696 0,4712 Jap. yen 0,541700 0,54490 0,575700 írskt pund 99,900 100,520 99,000 SDR 95,300000 95,88000 97,600000 ECU 78,6100 79,0900 78,9600 Simsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.