Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1998, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1998, Page 26
34 FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 1998 Afmæli Gunnar Dal Gunnar Dal skáld, Hringbraut 43, Reykjavík, er sjötíu og flmm ára í dag. Starfsferill Gunnar Dal fæddist í Syðsta- Hvammi í Vestur-Húnavatnssýslu. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1946, stundaði heimspekinám við háskólann í Edinborg 1950-51, við háskólann í Kalkútta 1951-53 og við háskólann i Wisconsin 1956-57. Gunnar var kennari við Reykja- skóla í Hrútafirði 1948-49, við Gagn- fræðaskólann í Keflavík 1969-75 og við Fjölbrautaskólann í Breiðholti 1975-91. Hann sat í stjóm Félags íslenskra rithöfunda 1961-65 og var formaður þess um skeið, er meðlimur Pen- kiúbbsins frá 1960, var forseti félags- ins India frá 1961 og félagsins ís- land-Noregur 1960-61, leikdómari Tímans 1960-64 og í stjóm Leikdóm- arafélagsins 1960-62. Rit Gunnars em Vera, 1949; Sfinx- inn, 1953; Rödd Indlands, 1953; Þeir spáðu í stjömumar, 1954; Sókrates, 1957; Októberljóð, 1959; Leitin að Aditi, 1961; Tveir heimar, 1961, Líf og dauði, 1961; Hinn hvíti lótus, 1962; Yogasútra Patanjalis, 1962; Sex indversk heimspekikerfi, 1962; Grískir heimspekingar, 1962; Öld Sókratesar, 1963; Vamarræða Sókratesar, 1963; Raddir morguns- ins, 1964; Plató, 1966; Aristóteles, 1966; Orðstír og auður, skáldsaga, 1970; A heitu sumri, skáldsaga, 1970; Indversk heimspeki, 1972; Grískir heimspekingar, 1975; Kamala, skáldsaga, 1976; Kastið ekki steinum, ljóðascifn, 1977; Með heiminn í hendi sér, 1978; Existentíalismi, 1978; Líf- ið á Stapa, ljóð, 1979; Heimspekingar Vestur- landa, 1979; Gúrú Góvinda, skáldsaga, 1980; Öld fíflsins, ljóð, 1981; Hundrað ljóð um Lækjar- torg, 1982; Heimsmynd okkar tíma, 1983; Orð milli vina, ljóð, 1984; Und- ir skilningstrénu, ljóð, 1985; Dagur sem aldrei gleymist, afmælisdag- bók, 1988; Land minna mæðra, 1988; Hin trúarlega heimsmynd, 1990; Heimsmynd listamanns, 1990; Radd- ir morgunsins, ljóðasafn, 1990; Heimsmynd heimspekinnar, 1991; Hús Evrópu, ljóð, 1991; Harður heimur, heimildarskáldsaga, 1993; Meðan þú gefur, ljóð, 1996; Lífið eft- ir lífíð, skáldsaga, 1997; í dag varð ég kona, skáldsaga, 1997. Gunnar hefur þýtt Móður og bam eftir R. Tagore, 1964; Spámanninn, eftir Kahlil Gibran, 1958, endurút- gefinn þrettán sinnum fram til 1997; Mannssoninn, ljóð eftir Kahlil Gibr- an, 1986; Lögmálin sjö um velgengni eftir Deepak Chopra, 1996, Fyrsta ljóð heimsins, 1998; Bókina um Taó, 1998; og Litlu bókina um Zen, 1998; Samtalsbók Hans Kristjáns Áma- sonar við Gunnar Dal, Að elska er að lifa, kom út 1994. Gunnar hefur hlotið lista- mannaiaun frá 1953, laun Rithöfundasjóðs 1976, bókmenntaverðlaun RÚV 1976, og bókmenntaverð- laun VISA 1998. Fjölskylda Gunnar Dal. Kona Gunnars var Elísa- bet Lilja Linnet, f. 1.11. 1920, d, 9.9 1997, deildar- stjóri hjá ESSO. Hún var dóttir Kristjáns Linnet, sýslumanns í Skagafirði og bæjarfógeta í Vest- mannaeyjum, og Jóhönnu Júlíus- dóttur Linnet húsmóður. Stjúpböm Gunnars eru Kristján Svavarsson, rafvirki í Reykjavík; Hlíf Svavarsdóttir, skólastjóri ball- ettskóla í Hollandi; Guðrún Svava Svavarsdóttir, listmálari á Hellu; Edda Sigurðardóttir, húsmóðir í Reykjavík. Böm Gunnars og fyrstu konu hans, Pálinu Guðvarðardóttur, eru Gunnar Dal, kennari á Stokkseyri; Jónas, sálfræðingur í Reykjavík; Guðvarður, kennari í Reykjavík. Uppeldissonur Gunnars og sonur annarrar konu hans, Maríu Sigurð- ardóttur, er Sigurður Bjarnason, verslunarmaður i Hafnarfirði. Systkini Gunnars em Anna, Dav- íð, Garðar, Guðmann, Jón, Bjöm og Sofíia Haraldsdóttir. Foreldrar Gunnars voru Sigurður Daviðsson, f. 13.9. 1896, d. 27.3. 1978, kaupmaður á Hvammstanga, og Margrét Halldórsdóttir, f. 3.10. 1895, d. 22.4. 1983, húsmóðir. Ætt Sigurður var sonur Davíðs, b. í Kirkjuhvammi, einn Syðsta- hvamms-systkinanna, sonur Jóns, stúdents í Syðstahvammi, Arn- bjömssonar og Marsibilar Jónsdótt- ur. Móðir Sigurðar var Ingibjörg Sigurðardóttir, verts frá Hörgshóli Ámasonar. Margrét var dóttir Halldórs, húsa- smiðs á Fáskrúðsfirði, Stefánsson- ar, prests á Kolfreyjustað, Jónsson- ar, prests og skálds á Hjaltastað, Guðmundssonar. Móðir Stefáns var Margrét, systir Einars, afa Einars Benediktssonar skálds. Margrét var dóttir Stefáns, prests á Sauðanesi, bróður Hálfdáns, langafa Gunnars Gunnarssonar rithöfundar. Stefán var sonur Einars, prests á Sauða- nesi, Ámasonar, og Margrétar Lár- usdóttur, systur Jómnnar, ömmu Jónasar Hallgrimssonar skálds. Móðir Margrétar Stefánsdóttur var Anna Vídalín, systir Reynis- staðarbræðra en Benedikt bróðir hennar var langalangafí Sigurðar Nordals. Gunnar tekur á móti gestum í Eden í Hveragerði milli kl. 16 og 18 í dag. Áki Jónsson Áki Jónsson, fv. framkvæmda- stjóri, Stigahlíð 35, Reykjavík, er sextugur í dag. Starfsferill Áki fæddist að Hjalteyri og ólst upp þar og í Reykjavík. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Núpi í Dýrafirði og útskrifaðist frá Loftskeytaskóla íslands 1958. Áki vann við ýmis tæknistörf hjá B.Ú.R. 1958-60, hjá flugmálastjóm 1960-62, og hjá bandaríska hemum á Keflavíkurflugvelli 1962-65. Hann hóf störf að tölvumálum hjá Burroughs Intemational S.Á. 1965-75, en frá 1976 hefur hann verið framkvæmdastjóri við eigið fyrirtæki, ACO hf. Áki er starfandi Kiwanisfélagi og meðlimur Oddfellowreglunnar. Fjölskylda Áki kvæntist 4.6. 1960, Jónínu Á. Bjarnadóttur, f. 17.10. 1940, húsmóður. Hún er dóttir Huldu Guðmunds- dóttur og Bjarna Þor- varðarsonar. Synir Áka og Jónínu em Bjami Þorvarður, f. 30.12. 1961, framkvæmda- stjóri í Reykjavík; Jón Gunnar, f. 26.3. 1966, arkitekt í Osló; og Andri, f. 16.7. 1980, nemi í Reykjavík. Systkini Áka era Gísli, Áki Jónsson. f. 13.9. 1930, Erla, f. 4.10. 1931, Sigurður S„ f. 7.1. 1941, og Erna V., f. 12.9. 1948. Foreldrar Áka voru Jón M. Sigurðsson, f. 6.11. 1900, d. 2.11. 1982, sjómaður, og Kristín Sveinsdóttir, f. 29.9. 1904, d. 24.8. 1982, húsmóðir. Áki verður staddur erlendis á afmælis- daginn. Fréttir Brennuvargar voru á ferðinni við Faxafen á laugardaginn. Kveikt var í rusli meðfram loftræstingu og þurfti slökkviliðið að reykræsta húsið. Skemmdir urðu nokkrar. DV-mynd S Plötufrystar Vantar fyrir viðskiptavin okkar, sambyggða plötufrysta. Einnig kæmu til greina plötufrystar án vélbúnaðar (fyrir freon eða ammoníak). Vinsamlega hafið samband við Gísia hjá Celsíus ehf. Kælivélaverkstæði S. 564 3333 • fax 564 3310 • GSM 892 2890. Hraðfrystistöö Þórshafnar: Vegasamgöngur verði bættar DV, Akureyri: Aðalfundur Hraðfrystistöðvar Þórshafnar skoraði á samgönguráð- herra, alþingismenn og aðra yfir- menn samgöngumála að hefja þegar undirbúning að sérstöku átaki til að bæta vegasamgöngur við norðaust- urhorn landsins. Taldi fundurinn fyrirliggjandi vegaáætlun ganga allt of skammt i þessum efnum og slæm- ar vegasamgöngur séu famar að há verulega allri atvinnustarfsemi á því landshomi. Þá ályktaði aðalfundurinn og lýsti yfir stuðningi við átak iðnaðar- ráðherra, Byggðastofnunar og Orkustofnunar til að finna heitt vatn á svokölluðum köldum svæð- um til að minnka húshitunarkostn- að íbúanna og jafna með því að- stöðumun fyrirtækja og heimila. „Um langa hríð hafa menn horft upp á fólksflutninga fara vaxandi til höfuðborgarsvæðisins án þess að færa fram nokkrar tillögur sem gætu hamlað þessari óæskilegu þró- un þjóðfélagsins. Lengi hafa íbúar hinna „köldu svæða“ reynt að ná fram eðlilegu verðlagi á raforku til húshitunar og atvinnurekstrar án mikils skilnings eða árangurs. Aðal- fundur Hraðfrystistöðvar Þórshafn- ar fagnar því sérstaklega þessum áformum" segir í ályktun fundar- ins. -gk DV Til hamingju með afmælið 4* / / • Jimi 95 ára Jóhairn Guðmundsson, Klapparstíg 16, Njarðvík. 80 ára Hrefha Thoroddsen, Skjólvangi, Hrafnistu, Hafnarfirði. 75 ára Ámi Skarphéðinsson, Kleppsvegi 60, Reykjavík. 70 ára Halldóra Jónsdóttir, Smáraflöt 43, Garðahæ. 60 ára Gísli Baldur Jónsson matsveinn, Hörðalandi 18, Reykjavík. Hann verður að heiman. Guðjón Jóhannsson, Tjamarbraut 3, Hafnarfirði. Elisabet Valmundsdóttir, Esjubraut 43, Akranesi. Kristinn Ámason, Dynskógum 1, Egilsstöðum. 50 ára Halldór Hróarr Sigurðsson, löggiltur endur- skoðandi, Hagaflöt 1 Garðabæ. Hann og eiginkona hans, Guðrún Frederiksen, taka á móti gestum í Garðaholti í Garðabæ í dag kl. 17-20. Sigríður Snæbjörnsdóttir, Álfatúni 20, Kópavogi. Einar S. Ólafsson, Háholti 6, Garöabæ. Alda Aðalsteinsdóttir, Holtsbúð 18, Garðabæ. Hulda Erlendsdóttir, Reykjarhóli 2, Fljótum. Kristín Antonsdóttir, Lundargötu 12, Akureyri. Þorsteinn Bjarnason, Skólavegi 92a, Fáskrúðsfirði. Jóninna Pétursdóttir, Borgarhrauni 5, Hveragerði. Þórður Sigursveinsson, Smáragötu 7, Vestmannaeyjum. 40 ára Ágústa Guðmarsdóttir, Hvassaleiti 9, Reykjavik. Rannveig Björnsdóttir, Skálagerði 17, Reykjavík. Ingólfur Kristinsson, Heiðarbæ 10, Reykjavík. Ragnheiður K. Pétursdóttir, Asparfelli 6, Reykjavík. Stefán Öm Ástvaldsson, Laufrima 85, Reykjavík. Erla Sólveig Kristjánsdóttir, Bakkavör 16, Seltjarnarnesi. Urva! - hefur þú lesið það nýlega?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.