Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1998, Side 4
4
FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998
Fréttir
^ Enn óánægja meðal lögreglumanna 1 umferðardeUd:
Osáttir við að flytja
í þrengra húsnæði
- og uggandi yfir aö deildin verði lögö niöur
Lögreglustöðin við Hverfisgötu. Umferðardeild lögreglunnar hefur átt í hörð-
um deilum við yfirstjórn lögreglunnar undanfarna mánuði vegna breytinga á
húsnæðinu og skipulagsmála.
Mikil óánægja er enn eina ferðina
innan umferðardeildar lögreglunn-
ar í Reykjavík. Yfirstjórn lögregl-
unnar og dómsmálaráðuneytið hafa
ákveðið að flytja umferðardeildina
úr því húsnæði sem hún er í nú á
lögreglustöðinni við Hverfisgötu.
Til stendur að flytja alla 28 lögreglu-
menn deildarinnar yfir á gang al-
mennu deildar lögreglunnar í sama
húsi.
Hilmar Þorbjörnsson, yfirmaður
umferðardeildar lögreglunnar, stað-
festi við DV í gær að yfirstjórn lög-
reglunnar og dómsmálaráðuneytið
hefðu skipað svo fyrir að umferðar-
deildin skyldi flytjast nú þegar úr
núverandi húsnæði. Hilmar sagði
að til stæði að flytja alla deildina í
mun þrengri húsakost. Hilmar vildi
ekki tjá sig nánar um málið en sagð-
ist ætla að ræða nánar við lögreglu-
stjóra og óska eftir frekari skýring-
unum vegna þessa máls.
Lögreglumenn í umferðardeild
eru mjög ósáttir við þessar breyt-
ingar. Þeir sem DV ræddi við í gær
sögðu að húsnæði almennu deildar-
innar væri þegar of lítiö og því væri
óásættanlegt að bæta 28 mönnum
þar við. Lögreglumenn í umferðar-
deild eru einnig uggandi yfir því að
þessar breytingar séu fyrsta skrefið
í að leggja deildina niður. Telja þeir
að með því yrði umferðaröryggi í
borginni stefnt í mikla hættu.
Lögreglumenn 1 umferðardeild
hafa undanfarna mánuði deilt
harkalega við yfirstjóm lögreglunn-
ar vegna skipulagsmála. Einnig
gagnrýndi umferðardeildin harka-
lega þá ákvörðun yfirstjórnar að
leggja lögreglumótorhjólum á tíma-
bili síðastliðinn vetur.
Nauðsynlegar breytingar
„Það sem um er að ræða er að
verið er að endurskipuleggja allt
húsnæðið á fyrstu hæð lögreglu-
DV í sumarskapi:
stöðvarinnar. Innréttingar á hæð-
inni og allt skipulag er úr sér geng-
ið. Þetta eru því nauðsynlegar
breytingar. Ákvörðun um þessar
framkvæmdir lá fyrir í fyrra.
Böðvar Bragason, þáverandi lög-
reglustjóri, tilkynnti þessar breyt-
ingar í febrúar sl. Þetta er því ekki
ákvörðun sem ég er að taka núna
en er hins vegar að komast í fram-
kvæmd núna. Tilgangurinn með
þessu er að bæta vinnuaðstöðu og
nýta plássið betur. Þrjár deildir
verða sameinaðir í eina, þ.e. sekt-
arinnheimtudeild og aðrar tvær
deildir. Það gerir það að verkum
að aðrar deildir, þ. á m. umferð-
ardeild, þurfa að flytjast í bráða-
birgðahúsnæði," segir Georg Kr.
Lárusson, settur lögreglustjóri í
Reykjavík, aðspurður um málið.
„Það eru engar hugmyndir í
augnablikinu að umferðardeild
verði lögð niður. Hins vegar er allt
embættið til skoðunar í sambandi
við endurskipulagningu. Umferð-
ardeildin er eins og aðrar deildir
til endurskoðunar. Ég skil ekki
þessar gagnrýnisraddir í umferðar-
deildinni," segir Georg. -RR
SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES
SKEMMTIFERÐ AÐ NNNI UPPSKRIFT
PAR SEM PU RÆÐUR FERÐINNI
SÍMI 581 1010
SPENNANDI KOSTUR FVRIR HÓPA
Gulir
drykkir
Alltaf fctikl...
QMI teflon bón.
Góð ending !
Landsins mesta úrval af
bón- og hreinsivörum!
Sími 535 9000
Fýrstu áskrifendurn-
ir dregnir út
í hverri viku í allt sumar verður
heppinn áskrifandi dreginn úr Verð-
launapotti DV. Allir áskrifendur, nýir
sem gamlir, eru með. Nú hafa tveir
verið dregnir úr verðlaunapottinum.
Þann 5. júní var Eymundur Lúthers-
son á Akureyri dreginn út og í gær
var það Stefán Konráðsson í Reykja-
vík sem hafði heppnina með sér.
Margrét Halldórsdóttir, eiginkona
Eymundar Lútherssonar á Akureyri,
tekur við gjafabréfinu frá DV.
DV-mynd gk
Þessir áskrifendur fá Fiesta-gas-
grill, ábreiðu og úrval grilláhalda
frá Húsasmiðjunni að andvirði 30
þúsund króna. Fiesta-gasgrillin
eru bandarísk gæðaframleiðsla
sem hefur reynst mjög vel.
Þann 14. ágúst verður síðan dreg-
inn út Camp-let Apollo Lux tjaldvagn
frá Gísla Jónssyni hf. Það borgar sig
því að vera áskrifandi að DV.
Stefán Konráðsson í Reykjavík með vinning sinn, grillið frá Húsasmiðjunni.
DV-mynd Pjetur
Stuttar fréttir i>v
Landsmótshlutafélag
Hlutafélag hefur verið stofnað
um að halda
landsmót hesta-
manna í
Reykjavík árið
2000. 16 hesta-
mannafélög á
Suðurlandi, allt
frá Hvalfjarðar-
botni að Ló-
magnúpi, eru aðilar. Formaður
þess er Haraldur Haraldsson frá
Fáki. Morgunblaðið segir frá.
Sigurðarmálið
Áfrýjun dóms norsks undir-
réttar yfir útgerð og skipstjóra
Sigurðar VE hefur verið dómtek-
in í lögmannsrétti Hálogalands.
Dóms er vænst í næstu viku.
Morgunblaðið sagði frá.
Fornt skipsflak
Egill safnvörður á Hnjóti hefur
fundið skipsflak sem talið er vera
frá 1694. Flakið er við árfarveg
Hafnarvaðals í Örlygshöfn.
Olíusamlag ehf.
Olíusamlagi Keflavíkur og ná-
grennis hefur verið breytt í
einkahlutafélag. Eigið fé þess er
um 700 milljónir. Olíusamlag
Keflavíkur er einn af stærstu
hluthöfunum í Olíufélaginu hf.
Farnir úr Landsbanka
Landssími íslands hf. hefur
flutt bankaviðskipti sín frá
Landsbankanum til íslands-
banka. Bankaviðskipti fyrirtæk-
isins voru boðin út í apríl og
bauð íslandsbanki best.
Skattfríðindi
Alþingismennirnir Guðni
Ágústsson og
Hjálmar Árna-
son vilja að
skattar fólks á
landsbyggðinni
lækki miðað við
Reykjavíkur-
svæðið. Þeir
segja að dýrara
sé að búa úti á landi og vilja jafna
út þennan meinta mismun.
Veröstríö
Verðstríð er hafið miOi matvöru-
verslana á Reykjavíkursvæðinu
eftir að Hagkaup lækkaði verð á
fjölda vöruliða í sínum verslunum.
Fjarðarkaup hafa lækkað verð á
4-5 þúsund vöruliðum. Einnig hef-
ur verð lækkað í 10-11 búðunum.
Fyrstir yfir brúna
Hópur fatlaðra íslenskra ferða-
manna var í fyrsta einkabílnum
sem ók yfir Stórabeltisbrúna
miUi Sjálands og Fjóns í síðustu
viku eftir að Friðrik, krónprins
Dana, hafði formlega opnað
brúna. Fréttavefur Morgunblaðs-
ins sagði frá.
30% hækkun
Afurðaverðmæti þorskaflans
hefur hækkað um 30% á fyrstu
fjórum mánuðum ársins. Þetta er
mun meira en gert var ráð fyrir í
þjóðhagsspá. Þetta er rakið til
minna framboðs á erlendum
mörkuðum og minni afla hjá evr-
ópskum fiskveiðiþjóðum. Frétta-
vefur Morgunblaðsins sagði frá.
Sjávarútvegsnám
Eistlendingar hafa áhuga á að
senda náms-
menn tU íslands
tfl mennta í
sjávarútvegs-
fræðum. Jafn-
framt vilja þeir
auka samvinnu
landanna í sjáv-
arútvegi. Þetta
kom fram á fundi HaUdórs Ás-
grímssonar utanrikisráðherra og
Toomas Hendrik Ilves, utanríkis-
ráðherra Eistlands, í Tallinn.
Prentsameining
Prentsmiðjurnar Viðey ehf. og
Prenthönnun ehf. hafa sameinast.
Auk prentunar annast hið samein-
aða fyrirtæki margmiðlunarþjón-
ustu og hönnun efnis fyrir Netið.
Viðskiptablaðið sagði frá. -SÁ