Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1998, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.1998, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1998 Fijálst, óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EVJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 11,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1800 kr. m. vsk. Lausasöluverð 160 kr. m. vsk„ Helgarblaö 220 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Siðblinda þingmanns Umræða um siðferði, spillingu og ábyrgð í viðskiptum jafnt sem stjórnmálum hefur verið ofarlega á baugi í samfélaginu síðla vetrar og í vor. Ekki var vanþörf á enda kemur í ljós að undarlegustu hlutir hafa viðgengist. Gáleysi ríkisforstjóra í meðferð almannafjár hefur geng- ið fram af fólki. Bruðl í einkaþágu var einnig yfirgengi- legt. Þá er Alþingi reyndi að nálgast staðreyndir fékk ráðherra rangar upplýsingar sem hann síðan flutti þing- inu. Mál sem þessi hafa áður komið upp í samfélaginu. Hvellir hafa orðið en málin síðan fjarað út. Enginn hef- ur í raun axlað ábyrgð. í öðrum nálægum þjóðfélögum gæti slíkt varla gerst. Þar er mim ríkari ábyrgðarkrafa en hér. Nokkur breyting hefur þó orðið á í okkar samfélagi á liðnum vikum og mánuðum. Siðlaus háttsemi er síður liðin. Því urðu þrír bankastjórar Landsbankans að axla ábyrgð á athöfnum sínum með afsögn. Stjórnarandstaðan gekk hart fram í þinginu þá er spill- ingarumræðan stóð sem hæst. Það var að vonum. Það er beinlínis hlutverk stjórnarandstöðunnar. Þar fóru fyrir þingmennirnir Jóhanna Sigurðardóttir og Ásta Ragn- heiður Jóhannesdóttir. Einn stjórnarandstöðuþingmað- ur, Gísli S. Einarsson, virðist þó hafa verið utangátta í umræðunni um siðferði og misnotkun aðstöðu ef dæma má af gjörðum hans í liðnum mánuði. Komið hefur í ljós að Gísli sendi suður-kóreskri bíla- verksmiðju bréf í þágu sonar síns með bréfhaus Alþing- is, beinlínis til þess að gera hinum erlendu aðilum ljóst að um íslenskan áhrifamann væri að ræða og betra að bregðast við samkvæmt því. Sonur Gísla alþingismanns er einn þriggja manna sem fluttu inn 15 jeppa frá Suður-Kóreu. Skráningarstofa hef- ur ekki viljað skrá bílana hér þar sem hún telur hugsan- legt að gögn um bílana séu fölsuð. í bréfi sínu, dagsettu 5. maí, tekur Gísli S. Einarsson fram, áður en hann rekur efnisatriði, að hann sé þing- maður hinnar íslensku löggjafarsamkomu. Þá rekur hann erindi sonarins og krefst svara þegar í stað. Undir bréfið skrifar hann sem þingmaður og gefur upp síma og faxnúmer Alþingis. Fram hefur komið að Gísli alþingismaður telur sig ekki hafa misnotað aðstöðu sína í þágu eiginhagsmuna þótt hann hafi skrifað bréf þetta sem þingmaður og á bréfhaus Alþingis. Það er rangt hjá þingmanninum og lýsir siðblindu. Gísli hefur lýst því svo í viðtali að sér sýndist að ver- ið væri að brjóta lög um samhliða innflutning, mismuna aðilum og beita tæknilegum innflutningshindrunum. Sonur hans og félagar væru í vanda staddir vegna inn- flutningsins. Því hafi hann sent bréfið til þess að ýta á um lausn. Það gat Gísli S. Einarsson gert sem faðir inn- flytjandans án þess að blanda Alþingi í málið. Mistökin felast í því að undirstrika að þingmaður tali og ekki síst að nota bréfhaus Alþingis. Forseti Alþingis segir réttilega að þingmaðurinn hafi misnotað titil sinn og nafn Alþingis. Þingmaðurinn sjálf- ur virðist hins vegar ekki átta sig á blindunni þótt vörn í málinu sé engin. Það færi betur á því að þingmaðurinn bæðist afsökun- ar og viðurkenndi mistök í stað þess að verja gjörðir sín- ar. Efla verður holur tónninn í nauðsynlegri gagnrýni stjómarandstöðuþingmanna. Gísli S. Einarsson skaðar því ekki aðeins sjálfan sig heldur og félaga sína. Jónas Haraldsson Ríkiö ver hluta af skattfé almennings til þess að kosta rekstur sérstakrar deildar við Háskólann sem menntar fólk og veitir réttindi og ákveður þar með að aðrir geti ekki starfað að endurskoðun. Endurskoðun á ábyrgð annarra semina er haldið bók- hald og ráðnir starfs- menn til þess að annast það. Þar sem nauðsyn- legt er talið, meðal ann- ars vegna skattheimtu ríkisins, að treysta megi bókhaldinu er kveðið á um það í lögum að end- urskoða skrdi bókhaldið og sérstakri starfsstétt manna, löggiltum end- urskoðendum, falið að gera það. Ríkið ver hluta af skattfé almenn- ings til þess að kosta rekstur sérstakrar deildar við Háskóla ís- lands sem menntar fólk til þessara starfa og veitir þeim sem þaðan „Getur veríð að yfirgengileg eyðsla bankastjóranna þriggja í Landsbankanum árum saman hafí viðgengist vegna þess að endurskoðandinn fírrti sig ábyrgð? Það skyldi þó ekki vera meinið.u Kjallarinn Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður Við afgreiðslu ársreiknings Byggðastofnunar fyrir 1997 vakti ég athygli á afstöðu löggilts endurskoð- anda stofnunarinn- ar. Ríkisendurskoð- un ber að endur- skoða stofnunina en hefur fengið til verksins fyrir sína hönd endurskoðun- arskrifstofu í borg- inni. Fyrir endur- skoðunina þurfti að greiða tæplega 3 milljónir króna enda þessi starfs- stétt ein sú allra dýrasta á landinu. í áritun endur- skoðandans er fyrst tekið fram að ársreikningurinn sé lagður fram af stjómendum stofn- unarinnar og á ábyrgð þeirra í samræmi við lög og reglur. Það er sérkennilegt þegar verktaki er að skila af sér að þá skuli fyrst tiltekið að aðrir beri ábyrgð á verkinu. Að því loknu tekur endurskoðandinn fram að ábyrgö hans felist í því áliti sem hann láti í Ijós á árs- reikningnun á grundvelli endur- skoðunarinnar. Þegar að endur- skoðandanum kemur er ábyrgðin afmörkuð og takmörkuð. Tilgangur bókhalds Hlutverk stjórnenda stofnunar eða fyrirtækis er að stjórna, að taka nauðsynlegar ákvarðanir sem starfsmönnum er síðan falið að hrinda í framkvæmd. Um starf- ljúka prófi sérstök atvinnuréttindi og ákveður þar með að aðrir geti ekki starfað að endurskoðun. Rétt- indum eiga að fylgja skyldur sem sá verður að axla sem réttindin hefur. Hlutverk stjórnar í þessu sem öðru hlýtur að gilda að hver maður ber ábyrgð á sjálf- um sér og verkum sínum. Stjómin ber ábyrgð á ákvörðunum sínum, starfsmenn við bókhald bera ábyrgð á verkum sínum og löggilt- ir endurskoðendur bera ábyrgð á endurskoðuninni og þar með þvl að ársreikningur sé réttur. Stjórn- endum stofnunar ber að láta færa bókhald og að gera ársreikning, þeirra ábyrgð felst í því að láta vinna verkin, en ábyrgð geta þeir ekki borið á verkunum sjálfum, það verða þeir að bera sem verkin vinna. Stjórnarmenn Byggðastofn- unar eru ekki í því að færa bók- hald eða setja upp ársreikning og vita mest lítið um þau mál, þeir eru því ekki í neinum færum til þess að gefa út yfirlýsingar um að bókhald sé rétt eða að ársreikning- ur sé samkvæmt lögum. Ábyrgöarfirring Ég hef kosið að vekja athygli á þessu vegna þess að mér finnst sem ábyrgðarfirring löggiltra end- urskoðenda gangi of langt. Fyrir nokkmm ámm átti ég sæti í annarri ríkisstofnun. Eitt sinn þegar sú stjóm var að afgreiða ársreikning sinn vildi endurskoð- andinn ekki árita reikninginn fyrr en stjórnin hefði undirritað hann og þá var undirritun hans byggð á því að stjórnin hefði áður sam- þykkt reikninginn með undirritun sinni. Með öðrum orðum; ábyrgð- in af undirritun endurskoðandans var velt yfir á stjórnina. Ég var á gagnstæðri skoðun, fyrst skyldi endurskoðandinn árita og síðan á grundvelli þess staðfesti stjómin ársreikninginn. Endurskoðandinn hafði kannað bókhaldið og unnið að endurskoð- uninni að öðru leyti, ég ekki. Hvers vegna á hann að undirrita i skjóli minu ? Getur verið að yfir- gengileg eyðsla bankastjóranna þriggja í Landsbankanum árum saman hafi viðgengist vegna þess að endurskoðandinn firrti sig ábyrgð? Það skyldi þó ekki vera meinið. Kristinn H. Gunnarsson Skoðanir annarra Sparnaður í hlutabréf „Skattaafslátturinn sem átti sinn þátt í að efla hlutabréfamarkað er að fjara út og kannski þarf eitt- hvað að koma í staðinn. Manni heyrist á umræðunni að það sé brýnt að fá heimilin í landinu til að eyða minna og spara meira. Þá kemur upp spumingin hvort ekki sé áhugi að beina þeim spamaði yfir í hlutabréf, hvort sem það er gert með skattaafslætti eða öðrum leiðum." Stefán Halldórsson í viðskiptablaði Mbl. 11. júní. Flutningur Sjónvarpsins „Flutningar ríkissjónvarpsins af Laugavegi í Efstaleiti hafa áður verið gagnrýndir hér fyrir að vera yfirgengilega dýrir ... Eitt af því sem þeir sem til þekkja hafa talið gagnrýnivert við þessa flutninga er að þeir séu hreinlega ónauðsynlegir, þar sem tækniframfarir hafi gert það að verkum að öll tæki hafa skroppið saman og fleira sé tekið upp á staðn- um en færra í myndveri. Þessu til stuðnings má benda á að stjómstöð til útsendinga HM í knatt- spymu verður alla heimsmeistarakeppnina í einum bíl sjónvarpsins, þrátt fyrir að RÚV eigi tvö stór hús sem nota mætti. Ætli þetta geti ýtt við menntamála- ráðherra að endurskoða ákvörðun sína um þennan dýra og óþarfa flutning?" Úr Vef/Þjóðviljanum 9. júní. Upplýsingalögin „Þór Jónsson fréttamaður á Stöð 2 stóð sig vel þeg- ar honum hugkvæmdist að krefjast bréfs Davíðs Oddssonar forsætisráðherra til Sverris Hermanns- sonar þáverandi Landsbankastjóra. Forsætisráð- herra til hróss skal á það bent að hann stóð sig jafn vel þegar honum stóð til boða að túlka lögin gegn birtingu bréfsins, en kaus að gera það ekki... í þess- um og öðrum tilvikum áttu fjölmiðlar mjög takmark- aða möguleika á innkomu i máli. Þór Jónsson frétta- maður og Davíð Oddsson forsætisráðherra hafa nú sýnt að við erum á réttri leið, þótt hægt fari.“ Stefán Jón Hafstein í Degi 11. júní.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.