Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1998, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1998, Qupperneq 7
Eru 3% kvenna og 8% karla á Islandi þjáð afkynlífsfíkn eða er um- ræða um kynlífsfíkn hér á landi afbökun á þörfmanna á alúð og ást? Fólk sem er sjúkt í Þegar hinir heimsfrægu leikarar Rob Lowe og Michael Douglas játuðu opinberlega að þeir ættu við kynlífsfíkn að stríða beindist kastljós flölmiðla um skeið að fyrirbærinu „sexaholic". I ffamhaldi af játningum Holljrwood- stjarnanna komu fleiri fram og viðurkenndu opin- berlega að þeir ættu við vandamál að stríða og stunduðu svokallað „serial sex“. Heilsuhælin spruttu upp, „Sex Addicts Anonymous“, „Sexaholics Anonymous“ og fleiri sem taka allt að 50.000 krónur í þóknun fyrir sólarhring- inn. Nú er svo komið að bandarískir fræðingar segja að um 3% kven- manna og 8% karlmanna séu kynlífsfiklar. Ef mögu- legt er að yfirfæra þá pró- sentutölu á íslensku þjóð- ina eru það um 14.000 ís- lendingar. En er það mögu- legt? Pétur Tyrfingsson, áfengisráðgjafi á Vogi, taldi að svona fullyrðing- um ætti að taka með fyrir- vara. „Maður spyr sig hvað úrtakið var stórt þegar þessi könnun var gerð. Hvar settu þessir fræðing- ar mörkin á kynlífsfíkli og manneskju sem finnst gott að gera það og gerir það með mörgum? Hver er við- miðunin? Við sem erum í þessum ánauðargeira tök- um svona fullyrðingum með miklum fyrirvara. Þegar unglingar eru að gera það með mörgum og fara síðan að tala inn að þeir séu kynlífsffldar af því að þeim finnst gott að lúra hjá þá er þar um misskiln- ing að ræða. Þetta er eins og með þunglyndi, fólk má ekki skilja við maka sinn eða vera þungt á morgn- ana án þess að það fái sér lyf og tali um að það sé þunglynt. Þetta er bara móðgun við það fólk sem er raunverulega þunglynt og kemst ekki úr rúmi vikum saman. Ég hef ekki mikla trú á því að þetta sé vandamál hér á landi.“ Fókus varð sér úti um kynlífskönnun sem hefur verið notuð í Bandaríkjun- um og lagði fyrir nokkra íslendinga. Mörgum ís- lendingum er tamt að kalla þá kynlífsfikla sem stunda kynlíf af krafti en raunin er sú að 2—3 hjá- konur og almennur óheið- arleiki í kynlífi hefur lítið með kynlífsfikn að gera. Léttlynd svör þeirra sem tóku þátt í könnuninni benda ekki til erfiðleika heldur skemmtilegra ungra Islendinga sem maður myndi nenna að eyða kvöldstund með á pöbbnum. Lesendur geta spreytt sig á könnuninni sem er neðar á síðunni. Samkvæmt kenningu bandaríska sálfræðingsins Don Fava er kynlífsfikli lýst sem „karlmanni eða konu sem hugsar um kyn- líf allan sólarhringinn, sem nýtur kjmlífs líkam- lega eða andlega, ein(n) eða með öðrum, án tillits til þess hvort hann (eða hún) skaði aðra aðila til- finningalega eða ekki. Rétt eins og alkóhólistar eru þeir stöðugt að leita að nýju „skoti“.“Þó kynlífsfikn hljómi í eyrum margra sem mun skemmtilegri fikn en dópfikn eða áfeng- issýki þá er það samdóma álit þeirra sem eru haldnir henni að hún leiði hreint ekki til hamingju. Rétt eins og með áfengi og dóp halda fíklamir til að byija með að þeir hafi stjóm á þessu en það reynist blekking. Þeir eru þrælar fíkninnar og geta ekki losnað úr viðjum hennar hjálparlaust, hversu mikið sem þeir vilja. Samlíkingin við áfengi og dóp er samt vafasöm að mati Péturs þar sem til er útlistun á alkóhólisma allt frá því 600 f.Kr., en hann þekkir ekki dæmi þess að kynlífs- ást fíkn sé lýst sem vandamáli á spjöldum sögunnar. „Til að um kynlífsfíkn sé að ræða þarf það að vera stjórnlaust kynlíf sem er í ósamræmi við það sem maður ætlar sér. Eins og t.d. ef einhver ætlar norður á Akureyri en hverfur því hann hittir einhvern í Akraborginni sem hann stundar stjómlaust kynlíf með í nokkra daga. Það þurfa einnig að vera eftir- köst, hann þarf að skamm- ast sín, hafa sært ein- hvem. Hann þarf einnig að koma sér í vandræði með kynlífshegðun sinni þan- nig að það tmfli eðlilega funksjón hans. Þessi þankagangur er ekki þekktur úr sögunni, við- horfið til kynlífsins hefur breyst svo mikið með ámn- um. Það er nýbúið að finna upp sifjaspell en hér áður fyrr borgaði fólk páfanum til að geta misnotað bömin sín og þá var allt í lagi.“ Við lauslega athugun sem Fókus gerði á því hvort kynlífsfíkn sé stórt vandamál hérlendis virtist ekki margt benda til þess. Það að þykja gott að lúra hjá eða vera sjúk(ur) í ást er ekki vandamál heldur eðlileg hegðun þótt ítarleg könnun gæti leitt annað í ljós. -BG Páll Óskar Hjálmtýsson TVixie (Margrét Gylfadóttir) úr útvarpsdúettinum Trixie og Foxie á X-inu: 1. Nei, en þaö ferfyrst og fremst eftir því hvaða jóla- sveinn á í hlut. 2. Já! Kynlíf er of dýrmæt gjöf frá Guöi til að sniö- ganga hana. Mér þykir ákaflega vænt um kynlíf, ekki bara mitt eigið heldur líka annarra. 3. Nei, skárri væri þaö nú dónaskapurinn. „Heyröu, þið eruð svo leiöinleg að ég held ég fari bara frekar ! Öskjuhlíðina heldur en að hlusta á þetta helvítis jarm í ykkur. Veriði sæl!“ 4. Nei, ég er svo góður í rúminu að venjulega er mér þakkað fyrir eftir á. Gleymum því þó ekki að ég er náttúrlega opinber manneskja sem getur ekki ráðiö því hvenær fólk útí bæ tekur upp á því að hneykslast yfir því sem ég segi eða geri opinberlega. Kannski er einhver að hneykslast akkúrat núna? En ég get lofað þér því aö vandamálið er hjá þeim sem hneykslast en ekki mér! Sá sem hneykslast á það svo sannarlega skilið og hefur kannski bara pínulítið gott af því! 5. Já, heilbrigt og frábært kynlíf LEYSIR öll mín vandamál. Égerekki nógu mikill aumingi til að flýja! 6. Nei. Þegar ég fer að „krúsa" (mitt uppáhalds- sport) þá er leikurinn til þess gerður að örvast og stunda kynlíf með ein- hverjum sem þú þekkir helst ekki neitt. Leikurinn endar mjög oft 1—0 fyrir mér. Hefur þú einhvern tíma skammast þín fyrir að fara í fótbolta? 7. Þetta er ógeðsleg og fá- ránleg spurning! í öllu lit- rófi kynlífsins er EKKERT sem er „óviðeigandi", svo fremi sem þú veist hvað þú ert að gera, veist hvað þú filar, ert ekki fullur eða á einhverjum lyfjum og ert ekki að þröngva rekkju- naut þínum til að gera eitt- hvað sem þú VEIST að hann fílar ekki. Er það skilið? 8. Nei. Ég heiti Páll Ósk- ar. 9. Nei. Þaö er ailtaf gagn- kvæmur samningur í gangi. 10. Nei. Það eina sem hefur komið í veg fyrir mín langtímasambönd er sú blákalda staðreynd aö ég er poppstjarna. Kærast- arnir mínir í gegnum tíðina hafa ekki getað tekist á við álagið sem fylgir því að það er fylgst meö hverri hreyfingu ef ég tek þátt í einhverjum samfélagsleg- um athöfnum, s.s. fara í bíó eða á veitingastað. Ég hef ekki enn kynnst nein- um sem hefur sömu sjálfsbjargarviðleitni og ég en ég trúi því nú að hann sé þarna einhvers staðar bak við fjöllin blá að blða eftir mér... 1. Það fer allt eftir því hversu mikið brum er á þessum nýja. 2. Hmmm, kannski ekki al- veg stöðugt, ef ég gerði það þá væri hætt við að ég gæti ekki stundað vinnu eða bara svona gert alla þessa hluti sem maður þarf að gera yfir daginn, en ég hugsa samt álíka mikið og alla hina hlut- ina sem ég elska. 3. Það hefur komið fyrir, sér- staklega þegar ég var tán- ingstelpa, nýbúin að upp- götva hvernig þetta gengur allt fyrir sig, þá komst fátt annað að, en í dag get ég al- veg haldið mig á mottunni, það eykur oft bara á spenn- una. 4. Já, einu sinni krafðist ég þess að elskhuginn klæddi sig í strumpabúning, svo ætl- aði ég að hafa poppkornslag- ið skrúfað í botn á meðan við áttum aö hamast ofan á húsi verslunarinnar, en hann neit- aði og varð svo mikið um að hann hætti við mig. 5. Já, auðvitað, öll boðefna- framleiðslan sem fer af staö þegar maður gerir do do læt- ur manni llða svo vel og þá er miklu auðveldara að díla við vandamál. 6. Sko, það ætti að skipta þessari I tvennt: a) það hlýtur alltaf eitthvað að örvast í mér áður en ég ákveð að hoppa upp í til einhvers eða draga á tálar, skárra væri það nú, annars væri ég svona „mercy fucker". b) einu atviki gleymi ég aldrei, ég var 16 og svaf hjá einum sem ég hélt að væri 15 (það var svolítið mál). Seinna komst ég að því að hann var í 8. bekk svo fyrsta sjokkið kom þegar ég hélt að hann væri 14 ... ekki nóg með það, hann haföi ver- ið færður upp um bekk svo ég reiknaði með að hann væri 13... Botninn var svo sleginn úr þessu þegar ég frétti að hann væri fæddur mjög seint á árinu og væri t raun bara 12! Það tók mig nokkur ár að komast yfir þetta. 7. Ég veit nú ekki hvaö flokk- ast almennt undir „óviðeig- andi" kynlífshegðun en hjá mér er óviöeigandi að stunda kynlíf með börnum, líkum, dýrum og þeim sem langar ekki til þess. Allt annað finnst mér viðeigandi ef aliir eru til í tusk. 8. Nei, þá væri ég „solo art- ist“, einhver verðurjú að taka þátt I þessu með manni. 9. Þvert á móti, hann semur dansa og útfærir flugeldasýn- ingar til merkis um fögnuð sinn. lO.Samkvæmt Freud-kenn- ingunni þá ertvennt sem þarf að vera í lagi svo að lífið sé gott, annars vegar vinnan og hins vegar kynllfið: Ef kemi- strían flæðir ekki ! kynlífinu þá getur hinn mögulegi kær- asti/kærasta alveg eins bara veriö vinur manns. Svo ég geri það ekki og mæli ekki með því aö fólk sé saman ef þv! finnst ekki gott eöa gam- an að — sofa saman. 1. Áttu í vandræðum með að halda sambandi gang- andi eftir að nýjabrumið er farið af kynnunum? 2. Hugsar þú stöðugt um kynlíf? 3. Hlakkar þú til að samkvæmum með fjölskyldu eða vinum Ijúki svo þú komist sem fyrst út til að fá þér drátt? 4. Hefurðu einhvern tímann sært einhvern tilfinn- ingalega með kynlífshegðun þinni? 5. Hefurðu einhvern tímann notað kynlíf til að flýja vandamál? 6. Hefurðu einhvern tímann notið kynlífs með ein hverjum af þelrri einu ástæðu að þú örvaðist en sást svo eftir því eða skammaðist þín? 7. Áttu erfitt með að breyta kynlífshegðun þinni þó að þú vitir að hún er óviðeigandi? 8. Heldurðu kynlífshegðun þinni leyndri fyrir öðru fólkl? 9. Hefur hinn aðili sambandsins áhyggjur af kynlífs- hegðun þinni? 10. Hafa kynlífslanganlr þínar komið í veg fyrir að þú hafir farið í samband með langtímaskuldbinding- um? 3. júlí 1998 f Ó k U S 7

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.