Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1998, Blaðsíða 8
myndlist
OPNANIR
í Listasafni íslands veröur á
morgun opnuö yfirlitssýning yfir
íslenska myndlist á 20. öldinni.
Sýningin veröur í öllum sölum og
nær frá Þórarni B. Þorlákssyni,
Ásgrími, Kjarval o.fl. til yngstu
kynslóöar listamanna sem safn-
iö á verk eftir. Opið alla daga
nema mán. kl. 11—17.
Norræna húsið. Sumarsýning
1998: „Þeirra mál ei talar
tunga" - íslandsdætur í mynd-
íist Hrafnhildur Schram velur
verk eftir úrvalsliö íslenskra
myndlistarkvenna. Opnun 4. júli.
Frú Vlgdís Finnbogadóttir flytur
ávarp. Áshildur Haraldsdóttir
leikur á flautu. Opiö alla daga
nema mán. kl. 13—18 til 16.
ágúst.
Þorvaldur Þorsteinsson opnar
„Söngskemmtun" í samvinnu
viö Vasaleikhúsið (sem er hann
sjálfur) í 20 m2, Vesturgötu lOa,
4. júlí kl. 16. Þar gefst gestum
kostur á aö njóta söngs og hljóð-
færasláttar í þjóölegum og þor-
steinskum anda. Skemmtuninni
veröurfram haldið sun. 5. júlí kl.
15—18 og síðan á sama tíma
miö.—sun. til 26. júlí.
Listamenn á barml einhvers
opna sýningu í Nýlistasafninu á
morgun kl. 16, Magnús Sigurð-
arson, Ásmundur Ásmundsson
og Eriing Þ. V. Klingenberg og
gestir þeirra. Auk þess er Sviss-
lendingurinn Roman Signer í
Bjarta og Svarta sal. Sýn. stan-
da til 26. júlí. Opiö alla daga
nema mán. kl. 14—18.
SÍÐUSTU FORVÖÐ:
Aö sjá mannamyndir eftir Ágúst
Petersen í Ásmundarsal. Opiö á
morgun og sun. kl. 14—18.
Og sýningu Tolla, Dalvegi 16,
Kópavogi sem lýkur annaö kvöld.
Opiö frá 14-21.
SÝNINGAR I GANGI:
Gallerí Hornið, Hafnarstræti 15.
Páll Heimir Pálsson og Ólöf Sig-
ríöur Davíðsdóttir.
Gallerí Ingólfsstræti 8. Ný verk
eftir Sigurö Guömundsson.
Gerðarsafn, Kópavogi. Fimm
listakonur sýna undir yfirskrift-
inni Rmmt.
Hafnarborg. Sýning eftir ýmsa
listamenn í tilefni af 90 ára af-
mæli Hafnarfjarðar og 15 ára af-
mæli Hafnarborgar.
Hafnarhúsið. „Konur" eftir Erró.
Hallgrímskirkja. Eiríkur Smith
sýnir málverk.
Kjarvalsstaðir. Sýning á úrvali
verka úr eigu Listasafns Reykja-
víkur.
Útisýning á vegum Listahátíöar í
Reykjavík sem Myndhöggvarafé-
lagiö í Reykjavík stendur fyrir.
Sýningin er 6 km löng og nær frá
Sörlaskjóli í vestri og inn í Foss-
vogsbotn.
Listasafn ASÍ viö Freyjugötu. í Ar-
instofu: Portrettmyndir af skáld-
um.
Ljósmyndakompan, Kaupvangs-
stræti, Akureyri. Ljósmyndasýn-
ing eftir svissneska vísinda- og
listamanninn Andreas Z,st.
Listaskálinn í Hveragerði. Bubbi
(Guöbjörn Gunnarsson). Einnig
er sumarsýning 12 listamanna
sem sýna grafíkverk til 12. júlf.
Meira á www.visir.is
Díanna Dúa er
stelpan sem
fékk ekki að
taka þátt í
Fegurðarsam-
keppni Islands
afþví að hún
hafði setið fyrir
hjá karlatíma-
ritinu Playhoy.
Hún spjallar
hér um heima
og geima, nýja
pitsustaðinn
sinn, kærast-
ann, næturlífið,
pólitík og
Playboy.
Ertu það sem kallast nætur-
drottning?
„Já. Sumir halda því meira að
segja fram, í góðlátlegu gríni, að
ég sé athyglissjúk. Það er
kannski alveg rétt. Ef það stend-
ur til að fara út á lífið þá fer ég
ekki nema að vera rosa flott. Ég
fer í mín efnislitlu föt sem
kærastinn minn þolir reyndar
ekki. Hann verður bara að sætta
sig við að svona er tískan. Ég
kaupi mér samt ekki mikið af fot-
um. Ég er nefhilega nýbúin að
kaupa íbúð og peningamir fara
frekar í púða og svoleiðis."
Já, til hamingju með íbúð-
ina.
„Takk, ég keypti hana fyrir
peningana sem ég fékk fyrir
myndirnar af mér í Playboy.
Þetta var væn fúlga sem nýttist
vel.“
Hvað fannst kærastanum
þínum um þetta uppátæki
þitt?
„Fyrst var hann ekkert hrifinn.
Vildi ekki að allur heimurinn
gæti fengið að sjá það sem hann
einn á rétt á. Að lokum féllst
hann á þetta og nú er hann voða
stoltur af mér. Hann á líka íbúð
núna og getur þakkað það þessu."
Eins og frægt er orðið var
þér meinað að taka þátt í feg-
urðarsamkeppni í kjölfarið.
Þú ætlaðir ekki að kyngja því
þegjandi, var það?
„Ó, nei! Það er óþolandi að jafnt
skuh ekki ganga yfir stelpur og
stráka í þessari keppni. Þá hjá
jafnréttisráði er farið að klæja í
finguma, þá langar svo mikið að
fá þetta mál inn á borð til sín og
þar mun það enda.“
Hvað ertu annars að gera
ími þessar mundir?
„Ég var að opna pitsustað sem
heitir Pizza-pasta. Kærastinn
minn er nefnilega ferlega fljótfær
draumóramaður og vill verða rík-
ur. Hann spurði mig eitt kvöldið
hvemig mér htist á að opna pitsu-
stað. Ég sagði strax: „Nei!“ Ég kýs
fremur öryggi í fjármálum en
áhættu en í þetta skiptið tókst
honum að telja mér hughvarf.
Einhvern tíma verða draumar
hans að fá að rætast og ég sló því
til. Það er líka eins gott að þetta
klúðrist ekki!“
Þú segist vera næturdrottn-
ing. Hvert ferð þú helst til að
skemmta þér?
„Ég stunda Astró rosalega mik-
ið, sérstaklega ef ég er með vin-
konunum. Þar er hægt að sletta
ærlega úr klaufunum og það geri
ég iðulega ef ég á annað borð er á
djamminu. Hins vegar verður
Kaffi Thomsen oftast fyrir vahnu
ef kærastinn minn fer með. Þó er
ég ekki mikil kaffihúsamann-
eskja. Annaðhvort djamma ég al-
mennilega eða er bara heima.“
Hvað finnst þér um
skemmtanalífið á íslandi?
Jíg hef samanburð frá því ég
vann sem fyrirsæta í New York.
Þar var æðislegt að djamma og
ekki hægt að líkja því saman við
neitt hér. Ég var sótt á limúsínu
og farið með mig á skemmtistaði
á stærð við Kringluna og allt.
Frábært í einu orði sagt. Með
þennan samanburð get ég líka
tekið undir það að íslenskar
stelpur eru of lauslátar. Ekki
kannski allar en allt of marg£ir.
Reyndar er það auðvitað þannig
að ef par er að gera „dodo“ fyrir
framan alla niðri í bæ þá hneyksl-
ast allir á „þessari druslu“ en
gæinn sleppur við alla gagnrýni.
Það er hrikalega ljótt að sjá fal-
legar stelpur í fínum fótum, bún-
ar að rífa sokkabuxurnar og með
æluna út um allt.
Við kunnum okkur kannski
ekki hóf.“
Lendir svona sæt stelpa
eins og þú ekki oft í því að
strákar reyni við þig?
„Jú, það kemur fyrir. Verst er
að þeim er alveg sama þótt ég sé
með strák. Það finnst þeim ekki
skipta neinu máli. Það halda svo
margir fram hjá og þessi grey
gera bara ráð fyrir því að ég sé
ekkert öðruvísi en allir hinir.
Kærastinn minn þolir þetta auð-
vitað ekki og vill helst kýla aha
karlmenn kalda sem nálægt mér
koma.“
Ef þú mættir breyta ein-
hverju hér á Islandi, hvað
væri það þá?
„Ég myndi koma hér á algjöru
jafnrétti milh karla og kvenna.
Eins finnst mér skringilega farið
með peningana. Það eru til héma
fátækar fjölskyldur sem eiga ekki
í nein hús að venda. Af hveiju er
þá peningum eytt í vitleysu eins
og allt of langan harmóníku-
strætó sem gerir ekkert annað en
að þvælast fyrir á götunum? Það
hlýtur að vera hægt að forgangs-
raða peningunum einhvem veg-
inn öðruvísi, byggja fleiri hús eða
bara eitthvað. Svo finnst mér
auðvitað að skemmtistaðimir eigi
að vera lengur opnir.“
Þú ert ekkert að spá í að
hella þér bara út í pólitík?
„Jú, það hafa margir sagt mér
að gera það. Maður veit aldrei.“
Hvar ertu stödd í pólitík?
„Ég veit það ekki. Líklega
myndi ég stofna minn eigin
flokk.“
Þú heitir svolítið óvenju-
legu nafni. Hver er sagan á
bak við það?
^mma mín heitir Magnea en
er kölluð Dúa. Díanna er hins
vegar út í bláinn. Mamma og
pabbi vildu eitthvað óvenjulegt og
höfðu þess vegna tvö n en það var
víst voða mál að fá það í gegn. Æ,
það er svo spes fólk í fjölskyld-
unni minni.“ -ilk
f Ó k U S 3. júlí 1998
lod jeuiHH