Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1998, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1998, Side 21
Gamlingjamir eru góðir og glaðir og danskir öryggisverðir eiga fullt í fangi með krakkana sem leita upp á svið til þess eins að stökkva niður af því aftur og veltast í þvögunni. Annar forn birtist nú á stóra sviðinu, Bob Dylan. Hann var miklu Kflegri en í Höllinni forðum, bandið þétt og lagavalið fellur í kramið enda slagarar ijölmargir innan um ný lög og kántrí-andi svífur yfir vötnunum. Dönsku blöð- in voru ánægð með Dylan eftir há- tíðina, gagnrýnendum Ekstrablaðs- ins fannst hann t.d. besta atriðið. Hin japönsku frík í Pizzicato 5 eru með bráðskemmtilegt sjó. Söng- konan birtist í Moulin Rouge-m- únderingu á öxlunum á súmókappa en skiptir svo um fót eftir hvert ein- asta lag. Tónlistin er mest af bandi svo söngpían og verkfræðingur bands- ins fara mikinn í stuðstælum en skollóttur Japani í diskógalla hamrar gítar með rokktöktum í einu hominu. Því miður er hann einum of mik- ið á útopnu, yfirgnæfir allt með há- vaða svo ég læt mig hverfa til að tékka á Garbage sem hafa nú her- tekið stóra sviðið. Þó Shirley sé sannfærandi stuðgella er auglýs- ingastofupopp þeirra fremur dautt á tónleikum, takturinn of vélrænn og lögin of lík hvert öðm. Eða kannski var bara kominn tími til að leggja sig. Laugardagur: Rappstuð og rokk- leikhús Það er alltaf nóg að gerast á Hró- arskeldu; hægt að vaffa um, reka inn nefið og láta koma sér á óvart enda fjölbreytnin mikil. Nitin Sawhney og indverskætt- aðir kunningjar hans ffá London fara víða í tónlistarleit; flamenco, tripp-hopp og indverskt bangra hrærist saman í góðum graut og gaman er að rapparanum sem sýn- ir munnleikfimi mikla. Næstur er Money Mark, hljóm- borðsleikari Beastie Boys, sóló með losaralegri en skemmtilegri sveit og spilar jafnt á hljómborð og gítar. Gott gigg hjá meistara Mark. Echo & The Bunnymen féflu nið- ur en aðrir ellibelgir komu í stað- inn, The Stranglers. Hugh Comwell er löngu hættur með þeim en til að fylla það ófyllanlega gat eru enskir Björgvin Gíslason og Pétur Kristjánsson komnir í stað- inn. Ekki vont, en ekki rétt heldur og gamlir aðdáendur fella tár. Rétt á meðan kyrkjarar rokka tékka ég á búttaðri Tyrkjastelpu, Aziza-A, sem rappar skemmtilega á milli tveggja magadansmeyja. Nýja Pulp-platan er ffemur þung og ekki festival-væn en Jarvis er sniðugur strákur og bandið nær upp ágætu stuði, sérstaklega í Common People, sem þau taka síðast, og hendur fara á loft og svolgrað er fadöl. Magnað stuð heldur áfram á stóra sviðinu því Beastie Boys eru næstir. Þeir skoppa á svið og ekki er laust við að þvagan hreinlega ærist. Bandið á margt í pokahominu; ein- falt gamlaskólarapp, þrýstið ræflarokk og klámmyndafónk með skælifótstigi. Nýju lögin lofa góðu, fyrri flöl- breytni virðist ráða þar ríkjum og eldri smellir fá á köflum flippaða útreið þegar bandið hættir í þeim miðjum til að djóka og stuða skríl- inn. Beastie taka Sabotage í upp- klappinu og í því tilefhi kflkkast þeir gjörsamlega og Money Mark tekur fótboltafagn ofan á hljóm- borðinu sem gefur undan og hrynur í gólfið. Þótt Beastie hafi verið frábær slær þó þýska bandið Rammstein öllu við. The Verve áttu að klára kvöldið en afboðuðu sem betur fer svo Rammstein voru fluttir úr græna tjaldinu á stóra sviðið. Hljómsveitin hlýtur að vera- martröð rótarans. Sviðið fyflist nú óðum af risavöxnum sviðsmunum; fimm metra málmvifta aftan við trommusettið og gríðarstór púströr á víð og dreif. Rammstein taka hestu öfgar þýskrar menningar; karlrembu Wagners, úrkynjun millistríðsáranna og múgæsingu nasismans, smyija níðþungu tölvu- rokki yfir og negla yfir meirihluta Hróarskeldugesta sem eru mættir til að glápa dolfallnir á leikhús Þjóðverjanna. Eldtungur lýsa upp næturhimin- inn þegar púströrin fara að spúa og söngvarinn birtist með eldvörpu og gýs yfir fremstu raðimar. Hann er annars vanur að kveikja í sér í fyrsta laginu en í kvöld er vindáttin ekki hagstæð. Rammstein eru fimm vöðvabúnt klædd í anda Terminators og eitt mjótt kvikindi sem spilar á hljóm- borð. Sveitin er hrifin af sadó-masó og kvikindið er leiksoppur sveitar- innar og fær að kenna á því. í laginu Seemann birtist hann óvænt á sviðinu um borð í gúmbát og er ýtt út á mannhafið. Æst kösin blakar bátnum ffá en hvolfir hon- um og angistarsvipur hásetans á risaskerminum vekur hrifningu tugþúsundanna. Hann bjargast þó á svið en fær fyrir ferðina á ný á górum fótum í Buch Dich þegar kraftakarlinn með hljóðnemann ríf- ur hann úr nærbuxunum með tönn- unum, dregur upp gervigöndul og saman hossast þeir þangað til rót- ari setur pumpu í gang og göndull- inn tekur að spúa hvítum vökva yf- ir bak kvikindisins, upp í söngvar- ann og yfir þvöguna. Virkilega smekklaust en ffábært auðvitað. Svona heldur þetta sjúk- lega en stórkostlega sjó áffam með eldi og brennisteini og náttúruöflin eiga ekkert í Rammstein þó þau reyni að vera með og feyki lufsuleg- um eldingum um himininn. Það er ekki hægt að hlusta á meiri músík eftir þessa geggjun; heim að sofa. Sunnudagur: Allt er fimmtugum fært Grassvörðurinn orðinn ansi ræf- ilslegur þó að skipt hafi verið um allt gras á svæðinu eftir regnhátíð- ina miklu í fyrra. Veðrið er íslenskt þjóðhátíðarveður; flögg lemjast við stangir, fólk er orðið ansi sjúskað eftir þijár eða fleiri nætur í tjaldi en samt; þetta er síðasti dagur í stuði og áffam halda þúsundin að væflast milli tjalda, kneyfa pilsner og að hafa gaman af því. Eg kaupi náttúrulegan heilsu- drykk í DJ-kaffinu og hressist til muna; hraða mér yfir á Jesus & The Mary Chain en er fljótur að hlussast niður í þvoglulegt sunnu- dagsskap við það svartsýnis 4-hljó- ma gítartuð. Það virðist vera að til séu tvær tegundir af festival-hljómsveitum; bönd sem vilja vekja upp stuð og svo dýpri listamenn sem hugsa fyrst og ffemst um eigin stuðnafla. JAMC hugsa þó varla einu sinni um eigin nafla því þeim drepleiðist að þurfa að standa í þessu. Það er hins vegar mun betra stuð á Rocket From the Crypt, sex rokkabillípönkskúnkar í hljóm- sveitarbúningum sem rokka ægi- lega á stóra sviðinu. Kannski er þetta of snemma dags og of stórt svið en þeir eignast samt örugglega marga nýja vini í dag með rokkinu sínu. Nú tekur við döbb í rauða og gula fjaldinu; Dub Syndicate-menn eru nokkuð stjarfir en grúfa þó þokka- lega en mun kraftmeiri eru Asian Dub Foundation sem döbbar stífar og er ágengari. Lítið gengur þó að komast í döbb- gír enda gerði Kaupmannahafnar- lögreglan rassíu í Kristjam'u daginn áður en festivalið hófst. Buddy Guy er nú kominn á kreik, blúsar blússandi fínt og segir é ótrúlega oft. Það gerir nú Bobby Gillespie í Primal Scream líka. Þeir byija á djammi og döbbi en áhorfendur eru fyrst með á nótunum þegar bandið rennir í Rocks. Rétt á meðan beðið er eftir Iggy Pop kíki ég á bílskúrshljómsveitina The Drags sem pönkar þokkalega í bláa tjaldinu. Þetta band kemur frá Bandaríkjunum og maður hefur á tilfinningunni að þar séu til a.m.k. tvö þúsund svona bönd. En það er bara einn Iggy Pop. Hann er orðinn 51 árs en hoppar á svið ber að ofan og í aðskomum latex-buxum. Band Igga er kannski ekkert til að hrópa húrra fyrir; ein- hveijir rokklúðar sem sýna engar rósir enda Iggy þekktur fyrir að fara illa með bandmeðlimi. Hann er hins vegar í rosastuði, stæltur eins og síðhærður grískur guð og tekur öll sín helstu lög af þijátíu ára ferli. Iggy stekkur upp á magnara- stæðu og riðlast þar í hamfórum. I næsta lagi (I Wanna Be Your Dog) er hann kominn út í þvöguna en skolar aftur á svið og baðar út öng- unum. Pönkkeisarinn gefur svo skít í öryggisverðina og um tuttugu krakkar troðast á svið fyrir áeggjan söngvarans og dansa með honum í Passanger. Þetta er rokk og ról af lífi og sál, Iggy er sannur erkirokkari og mað- ur þarf ekki að kvíða ellinni með svona frábæra fyrirmynd. Danskir ellilífeyrisþegar fá frítt inn síðasta dag hátíðarinnar og því er við hæfi að The Bootleg Beatles endi með bítlalögum þó að þjóðin hafi frekar viljað vera heima að horfa á sigurinn á Nígeríu í þetta skiptið. Úrslitin á Hróarskelduhá- tíðinni voru hins vegar þessi; Þjóð- veijar fengu gullið með Kraftwerk og Rammstein en Bandaríkin sil- frið með Beastie Boys og Iggy Pop. Danir eiga svo bronsið fyllilega skilið því þótt þeir kunni ekki að rokka af neinu viti geta þeir þó haldið stórfenglegar músfkhátíðir og þær gerast varla betri en Hró- arskelduhátíðin í ár. -glh Norðanmaðurinn Theódór Krist- jánsson var á Garbage-tónleikum á Hróarskelduhátíðinni þegar hann ákvað að kasta sér upp á þvöguna og láta hana bera sig um. Öðrum skónum var stolið á þessari leið hans um þvöguna. Theódór vill enn ekki hugsa um hvað skólausi fóturlnn steig í á leiöinni út í tjald. Þetta eru Hermann, Sigrún, Birna, Hulda, Tinna og Sara. Þau voru stödd á Hróarskelduhátíðinni en vildu ekki segja hvernig Lands- bankafáninn komst í þeirra eigu. Vin þeirra, Úlfar, vantar á myndina vegna þess að hann lá í roti inni í tjaldi eftir að hafa innbyrt of stór- an skammt af koffíntöflum. Hann og Hermann gleymdu að borða kvöldmat daginn áður og ákváöu að halda sér vakandi með neyslu koffíntaflna en tóku víst of hressi- lega til taflna sinna. Þessir fræknu strákar komu tll Kaupmannahafnar mánudaginn fyrir Hróarskelduhátíðina en höföu ekki tryggt sér neítt húsnæði til að sofa í. Eftir þrautagöngu um alla Kaupmannahöfn í lelt að hót- elherbergi gripu þeir til þess ráðs að sofa f klámbíói í Istedgade þar sem þeir nutu vafasams félags- skapar manns sem var f bíóinu í allt öðrum og vafasamari tilgangl en þeir. Myndin er tekin eftir að þeir jöfnuöu sig á ævintýrinu í bíó- inu, við glæsilegar tjaldbúöir þeirra, merktar ísienska fánanum. Að eigin sögn höfðu þeir torgað 20 kössum af dönskum bjór þeg- ar myndin var tekin. Piltarnir hefta Haukur Bergmann, Theódór Ingi, Erlingur Heiðar, Sigmar Ingi, Valdimar Jóhannsson, Jakob Björnsson, Theódór Kristjánsson, Baldvin Stefánsson og Guðmund- ur Rúnar. Kraftwerksmenn eru afar allrar raftónlistar í dag. 3. júlí 1998 f Ó k U S 21

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.