Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1998, Side 3
m e ö m æ 1 i
g f n i
Næturbíó
Frábært að geta hlammað sér niður I bíó í nótt og
horft á sumarmynd Sam-bíóanna, Armageddon.
Sérstaklega hentug afslöppun fyrir barþjónana
þegar þeir eru búnir að ganga frá.
ísbúðin á Hagamel
Þjónustan þar er frábær. Þar fæst líka \
Brynjuisinn frá Akureyri. Eigendurnir eru x
mjög stoltir af því og tilbúnir að fræða
kúnnann um allt sem snertir Brynjuís-
inn góða.
Hjartsláttur
Kaffi Thomsen er gott kaffihús, Alfred More og
Martin Brew eru góðir tónlistarmenn. Þetta getur
ekki veriö einfaldara.
Nöldurslaus borð
Það er alveg jafnmikil þörf fyrir
borð á kaffihúsum þar sem bann-
að er að nöldra og borð þar sem
bannað er að reykja. Ekkert er
ömurlegra en að ganga þjakaður
út af kaffihúsi eftir óbeint nöldur
þess sem maður sat hjá. Manni á
að líða vel á kaffihúsum.
Stefán Karl Stefánsson þreytir frumraun sína á sviði
næsta fimmtudag í ærslaleiknum Þjónn í súpunni
Bjössi bolla
er fyrirmyndin
Lhooq í Arena
í júníhefti Arena er fjallaö um norrænt
popp eftir Björk og veðjar blaðið helst á
að tvær sveitir geti fylgt eftir ógnarvin-
sældum hennar. Önnur er sænsk og heit-
ir Koop. Hin er íslensk og heitir Lhooq.
Kynningin á Lhooq er mikil skemmri-
skírn og, eins og siður er í breskum blöð-
um, þá snýst hún að mestu um ísland og
þá staðreynd að það getur verið erfitt að
finna ófullan mann í Reykjavík eftir
klukkan hálfníu. Pétur Hallgrímsson ýtir
líka undir þessa furðumynd sem Bretar
hafa komið sér upp af íslandi með því að
segja að hann keyri oft í 15 mínútur út frá
Reykjavík og sé þá kominn í auðn þar
sem enginn er og ekkert heyrist. Þögnin
er því grunnurinn að tónlist Lhooq -- og
þá sérstaklega sú íslenska.
m
„Já, hann var fyrirmyndin mín í
leiklistinni þegar ég var krakki, það
var mikill heiður að vera vinur Bjössa
bollu í þá daga,“ segir Stefán Karl
Stefánsson, ungur leikari sem fer með
eitt aðalhlutverkið í sýningunni Þjónn í
súpunni sem frumsýnt verður í Iðnó þann
16. júlí. Stefán komst í Leiklistarskólann i
fyrstu tilraun árið 1994 og er nú að hefja sitt
siðasta ár í skólanum en hann hóf leikferil sinn
miklu fyrr. Á meðan vinir hans voru að læra
að drekka og ríða sem strákar var hann í Hafn-
arfjarðarleikhúsi með sitt smurða brauð og mjólk
á Soda Stream-flösku og gaf sig allan í leiklistina.
En eitt mikilvægasta tækifærið á fyrri hluta fer-
ilsins fékk hann þegar Bjössi bolla bauð honum
að sýna með sér.
„Þar fékk ég mikla og góða reynslu í að koma
fram sem ég bý enn að. En hann gerði mér einn
grikk og það var þegar við vorum að skemmta á
einni stærstu hátíðinni í Galtalæk. Ég var svona
þrettán ára gamall og lék persónu sem var köll-
uð Gutti. Hann sendi mig niður á pall til að
stjórna „Allir dansa Konga“ með
hundruðum, ef ekki þúsundum,
krakka. Þegar því var lokið kallaði
Bjössi bolla yfir mannskapinn að sá
krakki sem næði Gutta mætti kitla
hann eins mikið og hann vildi. Ég sá
þúsundir krakka snúa sér að mér og
allir lögðu þeir af stað til að ná mér.
Ég flúði sem fætur toguðu undan
þyrpingu öskrandi krakka inn í skóg
og eftir langan eltingaleik, sem náði
niður að Galtalæk og aftur inn í skóg,
þá slapp ég. Þegar ég kom til baka var
búið að taka sýninguna niður og
Magnús Ólafsson (Bjössi bolla) sat
bara í rólegheitum og át vöfilu og
hló.“
í leikritinu Þjónn í súpunni leikur
Stefán Karl þjón ásamt mörgum
þekktustu leikurum landsins: Eddu
Björgvinsdóttur, Margréti Vil-
hjálmsdóttur, Kjartani Guð-
jónssyni og Bessa Bjarnasyni.
Leikritið er skrifað af leikurunum
í samvinnu við Áma Ibsen og fjall-
ar um kokk og þjóna
sem reyna að halda
úti veitingarekstri
þrátt fyrir mörg
áfoll. „Ef áhorfend-
ur vilja borða fá
þeir háklassa mat,
gerðan af alvöru-
kokkum, en við
munum síðan bera
fram veitingarnar.
Fólk getur síðan
pantað hraða þjón-
ustu, hæga þjónustu,
ruddalega þjónustu,
smjaðurslega þjón-
ustu og allt þar á
milli. Það er ekki
nauðsynlegt að panta
sér mat á sýning-
unni en ég mæli
með því,“ segir
Stefán Karl um
veitingarnar i
Iðnó, en þess má
geta að uppá-
haldsveitinga-
staður Stefáns er
McDonald's.
-BG
Islensku 4
Playboy-stelpurnar
Helga vinnur á
St. Jósepsspítala
og sat fyrir hjá Playboy
Bara egóflipp
Söngleikjafárið
Leikhus
peningamanna 7
5 bestu söngleikirnir
og 5 verstu
Balti er bestur
Jónas Kristjánsson
Ég sakna Ítalíu 8
Rapparinn Cell 7
Þolir ekki
forsnobbaða
DeeJay
1°
___JuaKOrt
drykkjumannsins
Bærirnir í bænum
kortlagðir og metnir 1243
Dr. Gunni
16 molar úr 19
sögu Sykurmolanna
Viðvarandi meyjarhaftspína
Það rifjaðist upp fyrir mér
þegar ég horfði á Grease um
daginn hvað aðalkvenhlutverkið
er ömurlegt. Sandy er vælandi
fram að lokaatriði, að því er
manni skilst af viðvarandi
meyjarhaftspínu. í viðtali við
Selmu Bjömsdóttur kemur lika
fram að hana langaði meira til að
leika Rizzó, vondu stelpuna sem
ögrar siðferðishugmyndum sam-
félagsins og er í stuði allan
timann.
Grease er karlrembuverk, eins
og hæfir þegar fjallað er um sjötta
áratuginn. Strax i fyrsta atriði
blómstrar tvöfaldi mórallinn.
Öðrum megin á sviðinu syngur
stelpan um rómantíska kossa,
hinum megin baular strákurinn
um glæsilega landvinninga. Þau
eru að syngja um sama ástarsam-
bandið sumarið 1958 og þið megið
giska hvort þeirra segir satt.
í augum höfundanna (tveggja
karlmanna) er óreynda stúlkan,
Sandy, hundleiðinleg pía í víðu
pilsi með skjörti undir og þeir
hefna sín á henni með því að láta
hana liggja heima með nefrennsli
á aðalballinu. Sandy fær ekki að
sýna sig fyrr en hún er búin að
meðtaka boðskap Rizzóar um
hvað það sé æðislegt að sofa hjá
og að jafnvel þó að hún sé kannski
ólétt sjái hún ekki eftir neinu. Þá
skreppur Sandy fram og kemur
aftur í niðþröngri hálfsíðri brók,
hlýralausum toppi og með ljósa
hrokkna hárkollu. Strákarnir
„sjá“ hana loksins og okkur er
gefið í skyn að nú muni hún ekki
berja frá sér vinarhót Dannys
heldur njóta þeirra í botn. Og allir
fagna!
1958 hefði ekki verið fagnað
heldur spurt: Hvað helst Sandy
lengi á Danny eftir þetta? Strák-
amir máttu prófa hitt og þetta en
guð hjálpi tilraunadýrunum.
Ef höfundum Grease finnst
þessi mórall leiðinlegur skilur
maður ekki hvers vegna þeir
völdu verkinu þennan tima. 1958
voru rokk og vangadans ekki
upphitun og forleikur að öðru
meira heldur aðalútrásin. Keleri
voru nákvæmlega stigskipt og pör
voru lengi á hverju stigi. Þetta
var mjög hæg spennumynd. Þá
var engin pilla og ólétta ógiftra
stórmál. „Stelpa í næsta húsi varð
ólétt og fjölskyldan var í rúminu
þangað til hann giftist henni,“
segir Auður Haralds í Hvunn-
dagshetjunni sem er efni í betri
brilljantín-söngleiki. Foreldrar
voru ekki hræddir við neitt nema
„það“ eftir að dætur þeirra náðu
fermingaraldri — enda minna um
eiturlyf og glæpi. Dagskipunin gat
ekki verið skýrari: Ekki leyfa
honum það! Árið 1958 hefði Sandy
í víða pilsinu verið kát með sinn
meydóm.
Gagnrýnendum Grease þykir
þessi sögufolsun í besta lagi lagi
— segja bara að sagan sé léttvæg.
Góð úrvinnsla á raunveruleikan-
um væri miklu skemmtilegri. -SA
Armageddon
Loftsteinarnir
koma (aftur) 20
Hljómsveitin Rennireið 22
Ellefu ára popparar
Hvað er að gerast
Leikhús ...................6
Veitingahús................8
Klassík....................8
Popp .....................10
Myndlist..................14
Sjónvarp..................15
Bíó......................21
Hverjir voru hvar........22
Forsíðumyndina
tók ÞÖK af Cell 7
10. júlí 1998 f Ó k U S