Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1998, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1998, Blaðsíða 20
3 Schwarzenegger í End of the Days Amold Schwarzenegger hefur veriö í hvíld frá því hann lék í Batman and Robin. Hann hefur nú gert heiminum kunnugt aö hann hafi tekiö aö sér aö leika í End of Days sem stjórnaö veröur af Marc Nlspel, þekktum þýskættuðum leikstjóra auglýsinga og tónlistarmynd- banda sem er aö hefja feril í kvikmynd- um. End of Days gerist eftir aldamótin og segir frá heimsókn Satans til New York þar sem hann hyggst ná áhrifum. Sá eini sem getur stöövaö framgöngu hans er fyrrum lögga sem Schwarzen- i egger leikur. Handritiö skrifaöi Andrew Marlowe sem meöal annars skrifaöi handritið að Air Force One. Litlir hermenn Þessa helgi verður frumsýnd í Bandarikj- unum Small Soldiers og er búist viö aö hún eigi eftir aö veita dýrari myndum sam- keppni um áhorfendur. Leikstjóri er Joe Dante og segir hann að Small Soldiers sé eins og framhald af því sem hann var að gera í Gremlins. Gerist myndin í smábæ þar sem pantaöar hafa veriö hermanna- brúður í leikfangaverslunina. Það kemur í Ijós að þetta eru engar venjulegar brúður heldur forritaðir vígamenn sem ráöa yfir hættulegum vopnum. Small Soldiers er sambland af teiknimynd og leikinni mynd. í helstu hlutverkum eru Kirsten Dunst og hinn nýlátni Phil Hartman. Meöal þeirra sem Ijá raddir sínar eru Tommy Lee Jones og Frank Langella. Fékk 20 milljónir fyrir Armageddon: Götustrákurinn MALAR GULL Óstaðfestar fregnir herma að Bruce Willis hafi fengið 20 millj- ónir dollara fyrir að leika í Arma- geddon og að einhver bónus muni fylgja verði vinsældir myndarinn- ar miklar, sem ekki lítur út fyrir eins og staðan er í dag. Þessi him- inháu laun sem Willis og nokkrir aðrir eru verðlagðir á gera það að verkum að nánast cddrei er hægt að hafa þessa toppmenn saman i kvikmynd nema þeir slái verulega af taxta sínum, sem þeir gera ein- staka sinnum. Bruce Willis hefúr í nokkur ár verið einn vinsælasti kvikmyndaleikari heims og er einn fárra sem þurfa aldrei að kvíða því að myndir hans nái ekki vinsældum. Það hefur sýnt sig að það hefúr engin áhrif á vin- sældir hans sem leikara. Bruce Willis er af verkafólki kominn, fæddist í New Jersey og ólst þar upp. 1977 hætti hann í skóla og flutti til New York þar sem hann byrjaði að reyna fyrir sér í leikhúsum borgarinnar. Hafði hann þar erindi sem erfiði árið 1984 þegar hann lék í leik- riti Sams Shepards, Fool for Love. Leiddi það til þess að nn var valinn til að leika annað aðalhlut- verkið í sjónvarps- seríunni Moonlight- ing. Átti hann síðan greiða leið inn í kvikmyndfrnar þeg- ar Moonlighting hætti. Auk þess að leika hefur Bruce Willis reynt fyrir sér sem söngvari með ágætum árangri og hefúr gefið út tvær plötur sem selst hafa í milljónum eintaka. Næstu risamyndir: Zorro og Lethal Þeim fer fækkandi, stóru sumar- myndunum sem hafa verið mark- aðssettar með þvílíkum kostnaði að hægt væri að gera nokkurra ára skammt af íslenskum kvikmyndum fyrir auglýsingaherferð einnar þeirra. Næsta stóra myndin er Let- hal Weapon 4, þar sem Mel Gibson, Danny Glover og Rene Russo end- urtaka hlutverk sín, og verður hún Weapon4 frumsýnd í dag. Viku síðar, eða 17. júlí, verður síðan frumsýnd The Mask of Zorro með Antonio Band- eras og Anthony Hopkins i aðal- hlutverkum. í þeirri mynd leikur Hopkins Zorro sem hefur setið 20 ár í fangelsi þegar myndin hefst. Lítið hefur breyst og hinir ríku kúga þá fátæku. Zorro tekur því að æfa ung- an mann sem arftaka sinn. Armageddon kemur Disney í klípu Eftir að ljóst var að aðsóknin á Armageddon í Bandaríkjunum væri mun minni en búist hafði verið við fóru hlutabréf í Disney-fyrirtækinu að lækka. Þvi hafði verið spáð að Armageddon yrði eina stórmynd sumarsins sem myndi ná inn 200 milljónum dollara í aðsókn í Banda- ríkjimum. Nú spá sérfræðingar því að tekjumar verði í kringum 130 milljónir dollara sem er 10 milljón- um lægra en uppgefinn kostnaður var við gerð myndarinnar og þá er ekki talin með markaðssetning upp á 45 milljónir dollara. Framleiðand- inn, Jerry Bruckheimer, er þó bjartsýnn á að aðsóknin eigi eftir að batna. Ekki eru aðrir jafiibjartsýnir. Einn lét svo ummælt að líklegra væri að loftsteinn á stærð við Texas félli á jörðina en að Armageddon næði 200 milljón dollara markinu. ( i ( ( ( ( I 1 í I TILBOÐ I TAKTANA HEIM • TVÆR FYRIR EINA cx> ecs Styttu biðina og hringdu á undan þér! •Rwa Éakmaimfíneinii Þú kaupir pizzu eins og þú vilt hafa hana og færð aðra eins frítt með. ttrt ou ( i ( ( i ( ( i ( f Ó k U S 10. júlí 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.