Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1998, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1998, Blaðsíða 6
1 e i k h ú s Leikfélag Reykjavíkur sýnir Grease í kvöld, annað kvöld og 16. júní kl. 20. Les- endur Fókuss vita allt um það stykki. Sjá til dæmis álit valinkunnra hér til hliðar. Borgarleikhúsið, Kringlunni, s. 568 8000 ÞJónn í súpunnl eftir Áma Ibsen. Farsi um þjóna og kokka sem myndast viö að halda veitingastað á floti. Áhorfendur geta keypt mat frá veitingahúsinu á hæðinni fýrir ofan og látið Bessa BJarnason eða Eddu BJörg- vinsdóttur þjóna sér til borðs. Frumsýning 16. júlí kl. 20. Iðnó, Vonarstræti 3, s. 5303030 Carmen Negra f kvöld og annað kvöld kl. 20.00. Þó að gagnrýnanda DV fýndist sýn- ingin kát og klúr var hún afskaplega hrifin af Garöari Thor Cortes sem syngur her- manninn unga sem Carmen dregur á tálar. íslenska óperan, Ingólfsstræti, s. 5527033 Helllsbúlnn — nýtt verk næstum þvf eftir Hallgrím Helgason um samskipti kynj- anna, en þó einkum vandann að vera karlmaður þegar konurnar ráða öllu — líka þvf hvernig karlarnir eiga að vera. Sýnt annaö kvöld kl. 23 og 16. júlí kl. 21. Is- lenska óperan, Ingólfsstræti, s. 5527033 Leikritið Hról höttur frumsýnt föstudaginn 10. júlí í Húsdýragaröinum. Ævintýrasýn- ing fyrir börn á öllum aldri - eins og þar stendur. Rænt og ruplað á kostnað þeirra sem meira mega sfn. einnig á[ www.visirJs Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona: Gott Greaseball „Þetta var fjörugt og kraftmikið. Mér fannst leikaramir yflrleitt standa sig mjög vel og þá sérstaklega Edda Björg Eyjólfs- dóttir, hún var óviðjafnanleg. Þessi sýning stendur fyllilega undir sér sem gott Grease- ball. Söngur og tónlist heppnast vel þó sag- an sé minni en engin. Mér fannst þau kom- ast vel frá þessu.“ Valdimar Grímsson handboltakappi: Gott stykki „Mér fannst virkilega gaman, sérstaklega fyrir hlé, þar sem mikið fór fyrir húmor. Mér fannst hann vanta svolítið í seinni hlutanum. Annars var ég mjög hriflnn þeg- ar á heildina er litið. Þetta er gott stykki og Selma og Rúnar eru bæði frábær í aðal- hlutverkunum. Það er gott að komast að- eins af vígvellinum, gleyma áhyggjum og hugsa um eitthvað annað. Ég var mjög ánægður með þessa sýningu." plötudómur Úr söngleik — Grease Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari: Með ungling í hjarta „Mér er farið að þykja vænna og vænna um ís- land, sérstaklega með til- liti til þess að hér komast menn upp með svo margt. Listamenn fá til dæmis stökkpalla til að spreyta sig á og Grease er skólabókardæmi um það. Leikaramir komu mér þægilega á óvart og það hefði ekki mátt vera neinn annar en Rúnar í hlutverki Dannys. Það hlutverk er í eðli sínu stökkpallur að einhverju öðru og meira. Sýningin er vel unnin og virkilega flott. Ég átti þarna yndis- lega kvöldstund og á eftir var ég hress og kátur, með ungling í hjarta." Stefán Jónsson leikari: Hringdi bjöllum „Lögin hringdu bjöllum hjá mér síðan hið upprunalega „Grease-æði“ var og hét. Þetta var prýðileg sýning, góður pakki og skemmtilegur. Leikaramir eiga eftir að sjó- ast aðeins en þeir stóðu sig annars mjög vel. Það ætti enginn að verða fyrir vonbrigðum með þessa sýningu þótt hún sé kannski ekki eins tilkomumikil og væri hún sett upp er- lendis. Sonur minn, sjö ára, fór með mér og við skemmtum okkur báðir vel, feðgamir." Gerður Kristný, ritstjóri Mannlífs: Sætari en Travolta „Ég heillaðist ekki af kvikmyndinni á sínum tíma og var ekki haldin neinu „Grease-æði“. Hins vegar fannst mér rosalega skemmtilegt á söngleiknum. Leikararnir eru frábærlega hæfi- leikarikir og góðir og ég tók sérstaklega eftir Friðriki Friðrikssyni sem lék litla lúðann Eu- gene og Eddu Björgu Eyjólfsdóttur sem var rosalega skemmtileg í hlutverki Jan. Svo er Rúnar ferlega góður sem Danny og þar að auki miklu sætari en Travolta. Þessi sýning tókst vel og ég gef henni fjórar stjömur af fjórum mögulegum." Krakkar, kaggar og stuð Fyrir tuttugu árum var fátt vin- sælla í gaggó en Grease. Krakkamir fóm aftur og aftur í bíó og plastgreið- ur urðu vinsælar í rassvasa. Hársker- ar komust bókstaflega í feitt og dust- uðu rykið af brilljantíndósum síðan um stríð og smurðu á hausa. Heilan vetur haggaðist ekki hárið á gelgju- kollum í vestangarranum. Nokkrir vom með andóf og fóru aldrei á Grís. Ég var einn af þeim. Allan veturinn máttum við undirmálsmenn þola það í rútuferðum að frekustu stelpumar heimtuðu að spila Grease (og Hair) á leiðinnií einhverja fjöruna til að tína skeljar. Létum við okkur jafnvel detta í hug að fela okkur til að sleppa við rokkbaulið á leiðinni heim. Löngu seinna sá ég Grease á myndbandi og fannst bara nokkuð skemmtilegt, enda er þetta klassísk skemmtun um graða krakka, vel smurða kagga og stuð í amerískum skóla á sjötta áratugnum, áratugnum sem nostalgíuglampinn ætlar seint að mást af. Það er kannski ekki fmmlegasta hugmynd í heimi að vekja upp gamlan rokkdraug og gera vinsælan á ný en það er hugmynd sem virðist svínvirka í hvert sinn. Nú er Grease því í Borgarleikhúsinu á ís- lensku og ungir leikarar og söngvarar standa sig vel, jafnt í gelgjuballöðum og rokki. Jón Ólafsson leiðir gamal- kunnan faghóp spilara úr leikhúslíf- inu, vandvirknislegt og fágað auðvit- að, enda myndi bara geggjað bílskúrs- band fæla frá því þó rokkið hafi í upp- hafi verið uppreisn unga fólksins er minningin um framrokkið orðin slíp- uð eins og steinn í fjöru í tímans rás. Veturliði Guðnason þýðir textann og tekst alveg ágætlega að koma á köflum óþýðanlegum textanum yfir, eða hver þremilinn er hand-djæf gæi? Það er því ekkert út á dæmið að setja, platan ætti að ganga vel í rútuferðunum í haust, þó einhverjir rebelar eigi eftir að fussa eins og gengur. Gunnar Hjálmarsson verstu 1. Jesus Christ Superstar. Borgarleikhúsið 1995. Leikstjóri: Páll Baldvin Baldvins- son. Aðalhlutverk: Pétur Öm Guðmundsson, Stefán Hilmarsson, Guðrún Gunnarsdóttir og Páll Óskar Hjálmtýsson. Súsanna: „Æ!“ Sveinn: „Voðalega vond sýning og verkið slappt." 2. Carmen Negra. Islenska óperan 1998. Aðalhlutverk: Stuart Trotter. Egill Ólafsson, Garðar Thor Cortes og Caron Barnes-Berg. Sveinn: „Voðalega vond sýning og ólistræn." Sigurður: „Kveikti ekki i mér.“ 3. ffið Ijúfa lif. Borgarleikhúsið 1997. Leikstjóri: Þórarinn Eyfjörð. Aðaihlutverk: Rósa Guðný Þórsdóttir, Eggert Þorleifsson og Sóley El- íasdóttir. Sveinn: „Ekki skemmtilegt. Kunni ekki við boðskap verksins, leiður á dýrk- un á undirmálsfólki." Súsanna: „Æ! Góð hugmynd en illa unnið handrit." 4. Evíta. íslenska óperan 1997. Leikstjóri: Andrés Sigurvinsson. Aðaihlutverk: Egill Ólafsson og Andrea Gylfadóttir. Sigurður: „Virkaði ekki.“ Margrét: „Þorði ekki að sjá hana. Sumt pínir maður sig ekki til að sjá.“ Sveinn: „Sá hana einu sinni og nennti ekki að sjá hana aftur." 5. Stone Free. Borgarleikhúsið 1996. Leikstjóri: Magnús Geir Þórðai-son. Aðal- hlutverk: Ingvar E. Sigurðsson, Emilíana Torrini, Kjartan Guðjónsson og Jóhann G. Jóhannsson. Súsanna: „Verkið er innantómt en uppfærslan ágæt.“ Margrét: „Leiknu atriðin drukknuöu í tónlistinni. Skrýtið frá höfundar- ins hendi." Sigurður: „Kveikti ekki í mér.“ 6 f Ó k U S 10. júlí 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.