Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1998, Blaðsíða 7
Eitthvað nýtt, takk
Peningar virðast vera ástæðan
fyrir söngleikjafárinu sem riðið
hefur yfir þjóðina á undanfornum
árum, að minnsta kosti ef tekið er
mark á orðum Viðars Eggerts-
sonar, fyrrverandi leikhússtjóra.
„Það er kominn nýr flokkur
manna í leikhúslífið sem sam-
anstendur af ungum framleiðend-
um. Hugmyndin hjá þeim er að fá
pening í vasann og val þeirra á
söngleikurinn sem ég sá. Mér
fannst hann mjög frumlegur og
það sem heillaði mig mest var lík-
lega sá íslenski veruleiki sem
kom fram í honum. Mér fannst
handritið mjög gott og er enn
þeirrar skoðunar að þetta sé lang-
besti söngleikur sem sýndur hef-
ur verið hér á íslandi. Hins vegar
held ég að það sé ógerlegt að setja
hann upp aftur svo vel verði.“
Hárið er besti söngleikurinn sem hefur verlð settur upp hérlendis og Ifka sá söng-
leikur sem hratt bylgjunni af stað.
söngleikjum ber keim af því
markmiði. Þeir velja margreynda
og trausta söngleiki enda er lítil
áhætta fólgin í að setja þá upp,“
segir Viðar og bætir því við að
betra hefði verið að sjá framsækn-
ari hugmyndir hjá þessum annars
dugmiklu framleiðendum.
Síðan Hárið var sett upp hefur
ekkert lát verið á dugnaði leik-
húsfólks í þessum efnum og hver
söngleikurinn á fætur öðrum,
flestir gamlir slagarar, hefur ver-
ið færður á fjalirnar. Nú vilja
leikhúsgestir fara að sjá eitthvað
nýtt.
Kraftinn vantar
Eyþór Arnalds segir að upp-
færslur á söngleikjum eins og
Hárinu og Stone Free séu tíma-
skekkja. í þá vanti kraftinn sem
var einkennandi í fyrri uppfærsl-
um þegar efniviðurinn snerti
samfélagið. Hann segir frumleik-
ann vanta og vill sjá eitthvað nýtt.
„Poppleikurinn Óli var fyrsti
Eyþór segir að þeir sem standi
sig einna best í söngleikjastuðinu
núna séu nemendur Verslunar-
skóla íslands.
„Þar eru krakkar að gera alveg
frábæra hluti. Ýmsir ungir leik-
stjórar og upprennandi leikarar
hafa fengið að njóta sín í upp-
færslum Nemendamótsins og að-
sóknin á leiksýningamar hefur
verið afburðagóð. Þessi hópur er
nú að skila sér í leikhúsin og þess
vegna býst ég við að betri tímar
séu fram undan í þessum efnum.“
Eitthvað nýtt?
Viðar segir kostinn við
söngleikjafárið þann að
sumrin í leikhúsunum séu
orðin skemmtilegri. Áður var
leikárið átta mánuðir en er nú
tólf þar sem venjan hefur verið
að setja söngleikina upp að
sumri til.
„Einhvem tíma hlýtur samt
söngleikjasjóðurinn að klárast og
þess vegna hljótum við að fara að
sjá eitthvað nýtt,“ segir Viðar.
„Erlendis hafa tveir splunkuný-
ir söngleikir verið að slá í
gegn. Annar er The
Black Rider eftir Ro-
bert Wilson en
hann hefur farið
víða og notið
hylli hvar-
vetna, meðal
annars á
Norðurlönd-
unum. Hinn
heitir Rent og
er ánægjulegt
til þess að vita
að Þjóðleikhúsið
hefur tryggt sér
rétt til að setja
hann upp. Kannski
gerist það næsta
vetur,“ segir
Viðar.
-ILK
Baltasar Kormakur viröist vita
manna best hvernig á aö setja upp
almennilegan songleik hér á landi.
Þaö er hægt aö lesa úr listunum yfir
bestu og verstu songleikina. Hann á
þrjá af fimm bestu sóngleikjunum og
engan af þeim fimm verstu.
íslenska klámsteypan
Friörlk Þór Frlöriksson hefur nú lokiö
tökum á Ijösblárri stuttmynd sem sett
veröur í sjónvarpsdreifingu. Myndin er
hluti af störri seriu þar sem ýmsir þekkt-
ir og næstum-þekktir leikstjórar spreyta
sig á klámi eða næstum-klámi. Friðrik
hefur lítið vilja gefa út um efni myndar-
innar en það mun vera eitthvað á þessa
leið: Kona glápir á sjónvarpið uppi á ís-
landi og gælir við sig á meðan. Hún
teygir sig eftir grýlukerti og fróar sér
með því. Á sama tíma er maður í Ástral-
íu að setja stóran ísklump upp á
pikkupinn sinn. Hann ekur með hann út
eyðimörkina, finnur planka og
bindur við hann hengingar-
snöru. Hann stendur upp á
ísklumpnum með snöruna
um hálsinn og þegar sólin
bræðir klumpinn hengist
hann. Eins og sjá má af
þessu er djúp-fraudísk-
ur undirtónn í þessu
hjá Friðriki Þór. Kon-
an þræöir upp undir-
stöðuna sem maö-
urinn stendur á og
hengir hann því með
sínum holdlegum
fýsnum.
Söngleikjafár síðustu ára:
Bestu og verstu söngleikirnir
5
bestu
Baltasar
1. Hárið. íslenska óperan 1993. Leikstjóri: Baltasar Kormákur. Aðalhlutverk: Hilm-
ir Snær Guðnason, Margrét Vilhjálmsdóttir og Hinrik Ólafsson.
Davíð Þór: „Enginn söngleikur hefur komist með tæmar þar sem Hárið
hafði hælana."
Súsanna: „Kraftmikill og gaman að sjá ungt fólk vinna svona vel saman."
Sigurður: „Feykilega skemmtileg sýning. Held upp á hana.”
bestur
2. Rocky Horror. Loftkastalinn 1995. Leikstjóri: Baltasar Kormákur. Aðalhlutverk:
Helgi Björnsson, Björn Jörundur Friðbjörnsson, Valgerður Guðnadóttir og Hilmir Snær
Guðnason.
Margrét: “Frumleg innskot leikstjóra gerðu útkomuna mjög skemmtilega."
Sigurður: “Gaman að sjá það aftur, vel gert.“
Andrea: „Mjög gott. Flott sýning.“
Hárið er besti söngleikurinn,
Baltasar besti leikstjórinn og
Borgarleikhúsið vonlaus staður
fyrir söngleikjahald samkvæmt
áliti þess leikhúsfólks sem Fók-
us hafði samband við. Hér kem-
ur listi yfir þá fimm söngleiki
sem þóttu takast best og jafn-
framt þá fimm sem slakastir
verða að teljast. Eins og berlega
kemur í ljós hér að neðan virð-
ist Jesus Christ Superstar hafa
misheppnast gjörsamlega og fær
slaka dóma. Borgarleikhúsið á
þrjá af fimm verstu söngleikjun-
um og Baltasar Kormákur virðist
vita hvað hann syngur: leik-
stýrði þremur af þeim fimm
bestu.
Kabarett er söngleikur sem
lagðist misjafnlega í fólk og
komst því ekki á blað. Hann
fékk ólík ummæli og því hvorki
hægt að flokka hann sem góðan
né slæman. Þegar sumir segja
hann frumlegan og frábæran
telja aðrir að þar hafi verið á
ferðinni skelfilegasta leiksýning
íslandssögunnar. Þeir sem létu
skoðanir sínar í Ijós eru Sigurð-
ur Sigurjónsson leikari, Sveinn
Einarsson, formaður Listahátíð-
ar, Davíð Þór Jónsson skemmti-
kraftur, Súsanna Svavarsdóttir
blaðamaður, Margrét Vilhjálms-
dóttir leikkona og Andrea Gylfa-
dóttir söngkona.
-ILK
3. Vesalingarnir. Þjóðleikhúsiö 1988. Leikstjóri: Benedikt Árnason. Aðalhlut-
verk: Egill Ólafsson, Edda Heiðrún Backman, Sigrún Waage, Jóhann Sigurðarson
og Sverrir Guðjónsson.
Sigurður: “Feiknagóð sýning."
Súsanna: “Mjög góð sýning."
Sveinn: “Ansi gott verk og ljómandi vel
flutt.“
4. Latibær. Loftkastalinn 1997. Leikstjóri: Baltasar Kormákur. Aðalhlutverk:
Magnús Scheving, Steinn Ármann Magnússon og Selma Björnsdóttir.
Sigurður: “Afskaplega einföld sýning sem fór vel í börn.“
Davið Þór: “Mjög vel lukkaö stykki."
5. Fiðlarinn á þakinu Þjóðleikhúsið 1997. Leikstjóri: Kolbrún Halldórsdótt-
ir. Aðalhlutverk: Jóhann Sigurðarson og Edda Heiörún Backman.
Sigurður: „Klassískur og góður.“
Sveinn “Fínn söngleikur og skemmtileg sýning."
10. júlí 1998 f Ó k U S
7