Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.1998, Side 8
Norski organistinn Ivar Mæland leikur
fjögur verk í Hallgrímskirkju á morgun kl.
12.00-12.30:
Skálholtsklrkja laugardag kl. 15.00: Verk
tyrir strengi og orgel eftir Hafliða Hall-
grímsson, m.a. frumflutningur verksins
Prédikun á vatni. Kl. 17.00 verða flutt verk
eftir rússneska tónskáldið Sófiu Gubaldul-
Inu, m.a. hugleiðing um sálmaforleik
Bachs: ,Vor deinen Thron tret ich hi-
ermit".
Reykjahlíðarklrkja laugardag kl. 21.00:
Pétur Jónasson gftarleikari leikur á Sum-
artónleikum á Norðurlandi.
Skálholtsklrkja sunnudag kl. 15.00 og
16.40: Flutt verður úrval úr efnisskrám
laugardagsins. Kl. 17.00: Messa með
þáttum úrtónverkum helgarinnar. Stólvers
úr fornu íslensku sönghandriti í nýrri út-
setningu Snorra Sigfúsar Blrglssonar.
Akureyrarklrkja sunnudag kl. 17.00:
Karsten Jensen orgelleikari frá Kaup-
mannahöfn ieikur á Sumartónleikum á
Norðurlandi.
Hallgrímsklrkja sunnudag kl. 20.30: Tón-
leikar úr röðinni Sumarkvöld viö orgelið.
Norski organistinn Ivar Mæland leikur
m.a. sex norsk orgelverk. Athugið breytta
tímasetningu.
Stykklshólmsklrkja mánudag ki. 21.00:
Mosaic-gitarkvartettlnn frá Barcelona
heldur tónleika sem eru hluti af Sumar-
tónleikaröð kirkjunnar.
Spunatónleikar Tenu Palmer í lönó þriðju-
daginn kl 20.30.
Svalbarðsklrkja í Þistilfiröi fimmtudag kl.
21: Gunnar Kvaran sellóleikari og Haukur
Guðlaugsson orgelleikari leika á Sumar-
tónleikum á Norðurlandi.
[einnig á[
www.visir.is
m a t u r
Hjartað slær
á Kaffi Thomsen
„Við viljum að meira sé fókuser-
að á tónlistina en minna á djamm-
ið,“ segir Snorri Sturluson, eða Hr.
Örlygur einsog hann er kallaður,
um tónleikaröðina Hjartslátt. En á
sunnudagskvöldið verða haldnir
fjórðu tónleikarnir í tónleikaröð
sem Björk Guðmundsdóttir, Gus-
Gus og Hr. Örlygur hófu þann 22.
mars síðastliðinn. Björk þarf ekki
að kynna en frá Gus-Gus hefur
plötusnúðurinn Alfred More komið
einna mest að kvöldunum. Snorri
Sturluson (Hr. Örlygur) er heim-
spekingur sem m.a. stóð fyrir
Drum’n base kvöldunum ‘96-‘97 í
samstarfi við Stefán (More) og Agga
í Elf 19. Til að auðvelda fólki að
njóta tónlistarinnar án truflunar frá
ölvuðum gestum eru tónleikarnir
jafnan á sunnudagskvöldum sem
eru þekkt að öðru en að vera djamm
kvöld. „Hugmyndin með Hjartslætti
var að lífga upp á tónlistarlíf
Reykjavíkur með því að flytja inn
tónlistarmenn og þá helst plötu-
snúða sem eru einnig tónlistar-
menn, þ.e. gefa út tónlist eftir sjálfa
sig,“ heldur Snorri áfram. Enda
ágæt flóra danstónlistarmanna sem
spilað hafa fram að þessu. Fyrsta
kvöldið í Hjartsláttar-röðinni var
haldið þann 22. mars síðastliðinn og
var troðfullt hús á meðan dj Sam úr
hljómsveitinni State of Bengal frá
London lék sína tónlist ásamt dj Ai-
fred More. Annað kvöldið var síðan
haldið 26. april og spilaði Harvey
frá dreifmgar- og kynningarfyrir-
tækinu zonked í London ásamt dj
Alfred More. Þann 7. júní kom síðan
dj Q-Bums Abstract Message frá
Astralwerks-útgáfunni í New York
sem m.a. gefur út listamenn eins og
Air, Fatboy Slim, Wagon Christ og
fleiri. En þess má geta að Q-Bums
er nýbúinn að re-mixa tónlist með A
tribe called Quest.
„Þó við höfum haldið okkur við
plötusnúða er ekkert víst að við ein-
skorðum okkur við þá í framtíðinni,
því er bara þannig farið að þar er
mesta gróskan í tónlistinni í dag,
svo er þetta ódýrt og þægilegt form
til innflutnings. Skapandi plötu-
snúðar hafa einnig orðið svolítið út-
undan á undanfomum ámm í ís-
lensku tónlistarlífi,“ sagði Snorri.
Á sunnudagskvöldið verða plötu-
snúðamir Alfred More og Martin
Brew. Þeir munu spila ólíka tónlist,
Alfred More verður með hæga hipp
hopp, tripp popp tónlist en Martin
Brew vinnur með trip popp tónlist i
hraðari takti. Hjörtu Bjarkar, Gus-
Gus og Hr. Örlygs hafa ekki slegið
sitt síðasta slag, það er von á fleiri j
konfektmolum í tónleikaröðinni
Hjartasláttur á Kaffl Thomsen i
sumar.
-BG
Ef einhver hefur staðið í þeirri
trú að lyf flokkuðust undir heil-
brigðismál þá hefur sá vaðið í
villu og svíma. Lyf eru nefnilega
tískuvara eins og allt annað.
Lyfjafyrirtækin keppast ekki að-
eins við að bjóða læknum upp á
dulbúnar lystireisur sem á yfir-
borðinu virðast vera ráðstefnur
heldur reyna þau ekki síður að ná
beint til neytend-
anna - þeirra
sem eru ekki
alls kostar
ánægðir með
eigin líðan. Og
þar sem lyfja-
fyrirtækin mega
ekki auglýsa þá
hafa þau ráðið til
sín alla heimsins bestu hönnuði
til að skapa nýtt „lúkk“ á pillurn-
ar sínar. Hér að ofan má sjá dæmi
um andlitsupplyftingu á nokkrum
pillum. Þetta eru hlutir sem til-
heyra ekki lengur
sterílum spítölum
og hvítum slopp-
um heldur sóma
þeir sér vel í
hvaða baðher-
bergisskáp sem
er og við hliðina
á ilmvatnsflöskuin
og andlitskremskrukk-
um. Lyfjafyrirtækin
stefna auðsjáanlega á
að neytendur sækist
eftir lyfjunum í
framtíðinni; ef ekki
vegna þess að þeir
þurfa á þeim að
halda þá vegna
þess að þau eru svo
djöfúll smart.
Poppaðar
pillur
veitingahús
/
Italía ★★
Argentína **★
Barónsstíg lla, s. 551 9555. Oþiö 18—
23.30 v.d., 18—3 um helgar.
Elnar Ben ★★
Veltusundi 1. 5115090. Oþiö 18—22.
Ég sakna Ítalíu
Hótel Holt ★★★★
Bergstaðastræti 37, s. 552 5700. Opiö
12—14.30 og 19—22.30 v.d., 12—
14.30 og 18—22 fd. og Id.
Hótel Óöinsvé ★★
v/Óðinstorg, s. 552 5224. Opiö 12—15
Og 18—23 v.d., 12—15 Og 18—23.30
fd. og Id.
Lauga-ás ★★★★
Laugarásvegi 1, s. 553 1620. Opiö 11—
22 og 11—21 um helgar.
Lækjarbrekka ★★
Bankastræti 2, s. 551 4430. Opið md.—
mid. 11—23.30, fid.—-sd. 11—0.30.
Mlrabelle ★★★
Smiðjustíg 6., s. 552 2333. Opið 18—
22.30.
Naustlö 0
Vesturgötu 6—8, s. 551 7759. Opiö 12—
14 og 18—01 v.d., 12—14 og 18-03 fd.
og Id.
Rauöará ★
Rauðarárstíg 37, s. 562 6766. Opiö frá
kl. 18 og fram eftir kvöldi. Hversu lengi fer
eftir aðsókn.
Skólabrú ★★★
Skólabrú 1, s. 562 4455. Opiö frá kl. 18
alla daga.
Thalland 0
Laugavegi 11, 551 8111.
leinnig á
www.visir.is
Við voram komin hálfa leið til
Ítalíu. Veitingamaðurmn á Lauga-
vegi 11 stóð við skenkinn og vakti
traust með því að kallast í síma á
við birgjana, svo aö ómaði um all-
an sal. ítalska og íslenzka víxluð-
ust á ýmsa vegu með hæfilegum
úða af „perfetto“ og „ciao“.
Eignarhaldið er ítalskt, kokkarn-
ir era ítalskir, gæðaþjónustan er
hálfítölsk, vel valið vínið er að
mestu ítalskt og tilviljanalegar
veggskreytingar era ítalskar. Það,
sem tæpast hékk í ítölskunni, var
matreiðslan, sem þætti í slöku
meðallagi heima fyrir. Bakaðar
kartöflur og amerískar pítsur era
raunar einkennistákn hennar.
Fullmikið elduð pöstu og hrís-
grjón gátu ekki talizt stinn upp á
ítölsku og bezt gæti ég trúað, að pa-
stað væri úr pökkum. Hvort
tveggja var þó gott á mælikvarða
íslenzkrar hefðar. Pitsur staðarins
vora gallalausar, jafnar og mjúkar,
meö hæfilega hörðum kanti.
ítölsk matreiðsla er eðlisgóð, ein-
fóld og eðlileg, hættir sér ekki í
franskar flækjur og ofgerir ekki. ís-
lenzk áhrif valda því hins vegar, að
Ítalía við Laugaveginn víkur af
sporinu með óhóflegum sósum og
olíum, sem deyfa aðalbragðið og
sjónmenga réttina.
Sjávarrétta-spaghetti leið fyrir
f Ó k U S 10. júlí 1998
þetta, flaut miður kræsilega í
mildri tómatsósu, en var eigi að
síður bragðgott. Betur tókst til með
tómatsósulaust sjávarrétta-risotto,
þar sem góða, steikta hrísgrjóna-
bragðið náði fram að koma.
Yfirþyrmandi ostaþak á fiski
dagsins skyggði á góða smálúðu-
bragðið. Spínatgrunnurinn var
hins vegar góður, átti vel við fisk-
inn og fól í sér hæfilegt meðlæti að
ítölskum hætti. Bakaða kartaflan
var utangátta.
Of mikið olíuvætt árstíðarsalat
með blönduðum sjávarréttum var
ofviða þunnum pappírsþurrkum.
Blaðsalatið var þó ljómandi ferskt
og sjávarréttimir meyrir og bragð-
góðir. Pönnusteiktu, hvít-
laukskrydduðu og snarpheitu
sveppfrnir vora betri og einfaldari
forréttur, en bornir fram með heil-
hveiti-geymslubrauði.
Annar bezti rétturinn var eld-
bökuð og mintukrydduð lambakór-
óna, bleik og mjúk, borin fram að
bandarísk-íslenzkum hætti með
hrásalati og gettu nú: Bakaðri kart-
öflu. Hinn bezti rétturinn var
feneysk tiramisu, kaffi- og
kakókrydduð ostakaka, hæfilega
þurr, með þeyttum rjóma og vín-
berjum.
Súpur eru staðarsómi, indæl
hvíld frá íslenzkum kremsúpum.
Jafnvel linsubaunasúpa reyndist
vera góð, matarleg og létt í senn,
tómatlöguð grænmetissúpa. Súpa
dagsins með aðalrétti dagsins fæst
á góðu verði í hádeginu, 750 krón-
ur. Annars er verðlagið fremur
hátt, tæpar 3.800 krónur að meðal-
tali þríréttað með kaffi.
Ítalía hefur frá upphafi verið
vinsæl meðal ungs sporgöngufólks
og ferðamanna, sem sitja þröngt og
sátt i gerviblómahafi og drekka vín
úr eftirréttaskálum. Andrúmsloftið
er fjörlegt og gott, en ég sakna ítal-
íu.
Jónas Kristjánsson