Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1998, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1998, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998 Neytendur Flugleiðir Olíufélagið Skeljungur Tæknival Síidarvinnslan Pitsur eru vinsælar hjá ungu kynslóöinni. Pitsa án osts Þegar búin er til pitsa er afar mikUvægt að botn hennar sé góður. Hér á eftir fylgir uppskrift að hefð- bundnum pitsubotni sem er u.þ.b. 25-30 sm í þvermál. Uppskrift: 175 g af hveiti 1/4 tsk. salt 1 tsk. þurrger 120-150 ml volgt vatn 1 msk. ólífúolía Þótt gaman sé um verslunarmannahelgina má fólk ekki gleyma nesti og nýjum skóm. V erslunarmannahelgin: Nesti og nýir skór Verslunarmannahelgin er á næsta leiti og sjálfsagt margir farn- ir að undirbúa ferðalög henni tengdri. En ekki er nóg að hafa með sér góða skapið og gúmmískó því nauðsynlegt er að hafa með sér nesti ef leggjast á út 1 tjald. Neyt- endasíða DV fór á stúfana og kann- aði verð á því sem kalla mætti sýn- ishorn af hefðbundnu verslunar- mannahelgarnesti í þremur versl- unum. Verð var kannað hjá Nóa- túni, 10-11 og Hagkaupi. Kannað var verð á átján vörutegundum og var í öllum tilvikum um nákvæmlega sama magn að ræða. Skýrt skal tekið fram að hér er einungis um verðsamanburð að ræða og því ekkert tillit tekið til mismunandi þjónustustigs þessara verslana. Sitt lítiö af hverju Kannað var verð á: Sveppaosti (250 g), tveimur tegundum af Knorr- bollasúpum, AB-mjólk (1/21), venju- legu Maryland-súkkulaðikexi, tólf stykkjum af trópifernum (1/4 1 hver ferna), súrmjólk með blönduðum ávöxtum (1/2 1), SS pylsusinnepi, Freyjustaurum (2 stk.), Smjörva (300 g), Nóa kroppi (150 g), 5 stykkjum af pylsubrauðum frá Myllunni, Jac- ob’s tekexi, Celestial-ávaxtatei, einnota grilli, samlokubrauði frá Samsölubakaríi, SS vinarpylsur (558 g) og sex flöskum af hálfs lítra Coca-Cola. Hvað kostar útilegumaturinn 4.500 kr. 4.000 3.500 3,?]1 B3.PJR 3.000 2.500 2.000 1.500 1.000 500 )j»V4 Hagkaup 10-11 Nóatún Langlífismataræði í langlífismataræði (makróbíó- tísku mataræði) eru allar matarteg- undir flokkaðar í jin og jang. Mark- miðið er að ná fullkomnu jafnvægi í mataræði með tilliti til mismunandi jin/jang-þarfa einstaklingsins. Sam- kvæmt langlífiskenningunni er slíkt grundvöllur góðs heilsufars. Matur er tilreiddur, skorinn og eldaður á ákveðinn hátt til að við- halda jin/jang-einkennum hans. Til að finna jafnvægi verður fólk sem býr í jang-umhverfí (heitt og þurrt) að öðlast meira jin (kalt og blautt) og öfugt. Jin-fæðutegundir sem vaxa í heitu og þurru loftslagi (t.d. í Aust- urlöndum nær) eru lyktarmeiri, bragðsterkari, ilmrikari og vatns- auðugri, meyrari og safaríkari en jang-fæðutegundir sem vaxa í köldu, röku loftslagi (s.s. í Norður- Evrópu) og eru þurrari, styttri og harðari og einnig saltari og súrari. í megindráttum skiptist langlífis- mataræði svona: 50% kommeti, s.s. hrísgrjón, bók- hveiti, hirsi, heilhveiti, rúgur, hafr- ar, bygg og maís sem ýmist er soðið, steikt eða bakað. Einnig brauð, pasta og núðlur. 25% ferskt innlent grænmeti, matreitt á ýmsa vegu, s.s. hrátt, soð- ið, bakað, steikt eða súrsað. 10% prótín, fengið úr fiski sem veiddur er í ám og vötnum landsins og hafinu í kring, baunum og soja- baunaafurðum, s.s. tofu eða tempeh. 5% sjávargróður, notaður í súp- ur, kássur og krydd. 5% súpur, s.s. grænmetissúpur, fiskisúpur, baunasúpur og miso- súpur. 5% ábætisréttur sem í eru ávext- ir, ferskir, soðnir eða bakaðir, ýms- ar korntegundir, þörungar, fræ og hnetur ásamt hreinu jurtatei og kaffi sem búið er til úr ýmsum korntegundum. -GLM Grill og pylsur í heildina litið var þessi helgar- pakki ódýrastur i Hagkaupi, á 3.211 krónur. í miðið kom verslun- arkeðjan 10-11 með pakkann á 3.218 krónur og þar á eftir Nóatún með pakkann á 4.054 krónur. Sama verð var á SS-pylsunum í öllum verslunum enda var tekið nákvæmlega sama magn í öllum tilvikum. Stór pakki af SS-pylsum kostaði alls staðar 445 krónur. Sama verð var einnig á einnota grillunum í öllum verslununum þremur. Grillin voru öll af sömu tegund og kostuðu 198 krónur stykkið. Mjög svipað verð var á flestum vörunum í Hagkaup og 10-11 en verðið í Nóatúni var í flestum til- felliun hærra. Taka verður þó með í reikninginn að Nóatún er öðru- vísi verslun en Hagkaup og 10-11 því þjónustustigið er hærra í Nóa- túni en i Hagkaupi og 10-11. Brauðverð mismunandi Af þeim vöriun sem voru áber- andi lægri í einhverri verslananna má nefna að samlokubrauðið sem kannað var kostaði 196 krónur í Hagkaup en 207 krónur í 10-11 og Nóatúni. Verslanir 10-11 bjóða hins vegar ódýrasta pylsubrauðið í könnuninni á 88 krónur pokann. Sama magn af pylsubrauðum kost- ar 94 krónur í Hagkaup og 96 krón- ur í Nóatúni. Stórmarkaðimir ættu því allir að geta satt hungur tilvonandi ferðamanna sem ætla sér að leggja land undir fót um helgina. -GLM Aðferð: Sigtið hveitið og saltið saman í stóra skál. Bætið gerinu við og hrærið öllu saman. Bætið vatninu og ólífuolíunni saman við og hrærið þar til deigið er orðið mjúkt. Hnoðið deigið í höndunum á hveitistráðu borði í um tíu mínútur þar til það er orðið alveg mjúkt og teygjanlegt. Setjið deigið í skál sem er smurð með smjörlíki að innan og setjið plastfilmu yfir skálina. Géymið hana á volgum stað í u.þ.b. eina klukkstund eða þar til deigið hefur tvöfaldað sig. Fletjiö deigið síðan út á hveiti- stráðu borði þar til það hefur náð réttri stærð og lögun og setjið það á smurða bökunarplötu. Þá er komið að því sem setja á ofan á pitsuna. Uppskrift: 6 litlir tómatar 3 msk. ólífuolía 1 tsk. salt 1 rauð paprika 1 gul paprika 2 saxaðir hvítlauksgeirar 50 g ansjósur svartur pipar basillauf til að skreyta Aðferð: Skerið tómatana i tvennt og takið innan úr þeim, skerið helmingana síðan i langar ræmur og setjið þá í skál með 15 ml af ólífuolíunni og salti. Látið liggja í leginum í hálf- tíma. Á meðan má skera paprikum- ar í helminga og taka innan úr þeim og grilla þær í ofhi (holi hlutinn snýr niður), þar til hýðið á þeim hef- ur dökknað. Leyflð paprikunum síð- an að kólna í smástund og flysjið hýðið af þeim. Skerið þær síðan í strimla. Penslið síðan pitsubotninn með 15 ml af olíunni. Þerrið tómatana og setjið þá ásamt paprik- unum og lauknum á botninn. Sker- ið ansjósumar 1 bita og kryddið þær með svörtum pipar og setjið þær á pitsuna. Hellið afganginum af olí- unni yflr pitsuna og bakið hana í 15-20 mínútur. Skreytið með basillaufum. -GLM i-r" 1385 L50 L450 140 L35 1 II 0 71,48 115,35 40,01 0,5029 : 500 1108,04 0.55 0,53 0,50 Eimskip

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.