Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1998, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1998, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998 Utlönd Stuttar fréttir i>v Sendimenn Evrópusambandsins í Kosovo: Skæruliðar tapa enn einu vígi Serbneskar öryggissveitir náðu enn einu vígi albanskra skæruliða í Kosovohéraði á sitt vald i gær þeg- ar skæruliðar flúðu frá bænum Malisevo í vesturhluta héraðsins. Fall Malisevo er enn eitt áfallið sem skæruliðar aðskilnaðarsinna hafa orðið fyrir í stórsókn Serba í Kosovo undanfarna flmm daga. Níu af hverjum tíu íbúum Kosovo eru af albönsku bergi brotnir. Upplýsingamiðstöð Albana í Kosovo segir að tugþúsundir flótta- manna komist nú hvergi vegna framsóknar serbnesku hermann- anna í tveimur þorpum nærri Malisevo. Alban- irnir halda því fram að hætta sé á að flóttamennirnir verði drepnir. Sendinefnd Evr- ópusambandsins mun eiga viðræður við leiðtoga al- banska meirihlut- ans í Kosovo í hér- aðshöfuðborginni Vopnaður serbneskur bóndi í Pristina i dag. Því Kosovo fylgist með. næst er áformað að fulltrúarnir fari í skoðunarferð á bar- dagasvæðin, ef hægt verður að koma því við öryggis þeirra vegna, til að skoða hvernig almennum borgurum hefur reitt af í sókn serbnesku sveit- anna. Heimildarmenn úr röðum stjórnar- erindreka segja að Vesturlönd láti sem þau sjái ekki stórsókn Serba í þeirri von að Frels- isher Kosovo átti sig á því að sjálf- stæði Kosovo verði ekki sótt á víg- völlinn, heldur verði að setjast að samningaborðinu. Vesturlönd hafa þó varað við að þau muni ekki líða sprengjuárásir á óbreytta borgara eins og gerðist í marsmánuði síðastliðnum. Þau hafa hótað hemaðaríhlutun NATO til að stöðva drápin, ef nauðsyn krefur. Albanir segja að allsherjarstríð sé háð í Kosovo á degi hverjum og að heimurinn sitji aðgerðalaus hjá. Martha má ég kynna Frank, Daniel &Laurence Bráðskemmtileg og rómantísk gamanmynd. Heitir þú Marta eða Martha? (að fyrra eða seinna nafni) Ef svo er bjóða Háskólabíó og DV þér í bíó á morgun. bað eina sem þú þarft að gera er að koma í bíóið (með skilríki) á sýninguna kl. 21. Þú færð að sjálfsögðu bæði miða fyrir þig sjálfa og gest að eigin vali! Ein heppin Marta fær sérstakan glaðning frá Háskólabíói! BTk*l HASÍCÓLABIO Bílarisar á golfvelli Yfirmenn bílaverksmiðjanna Volkswagen og BMW gengu frá samningi þess eíhis að BMW fær yfirráð yfir Rolls árið 2002 og VW yfir Bentley. Bílarisamir kusu að ganga frá samningnum á golfvelli í Bæjaralandi. Viðskiptabann Bill Clinton, forseti Bandaríkj- anna, hefur fyrirskipað viðskipta- bann á sjö rúss- nesk risafyrir- tæki vegna grans um að þau hafi aðstoð- að írani við smíði eldflauga. Þá sagði Clinton bandarísk stjórnvöld ekki mundu skirrast við að refsa öðrum fyrirtækjum sem yrðu uppvís að vopnasölu til írans. Sprenging í lest Gassprengja sprakk í lest í Suð- vestur-Kína i gær. Lestin var að fara í gegnum göng þegar spreng- ingin varð. Göngin hrundu með þeim afleiðingum að 80 manns létu lífið. Morðingjar fá frelsi Blökkumennirnir fjórir, sem myrtu Amy Riehl rétt áður en að- skilnaðarstefnunni í S-Afríku var hrundið, hafa fengið frelsi. Þeir sögðust hafa framið morðið í bar- áttunni viö aðskilnaðarstefnuna. Það þótti dómara gild afsökun. Bjartsýnn á bata Hussein Jórdaníukóngur gengst nú undir geislameðferð vegna krabbameins í eitlum. í viðtali við jórdanska sjón- varpið kvaðst Hussein bjart- sýnn á bata og fullvissaði þegna sína um að hann myndi örugglega ná sér. Hussein dvelur á spítala í Minnesotaríki í Bandaríkjunum. Tvíburar með tvíburum Fjöldi manna safnaðist saman í Addis Ababa í Eþiópíu til þess að verða vitni að því þegar tvíbura- bræður gengu að eiga tvíbura- systur. Berjast gegn smygli Bresk stjómvöld ætla að skera upp herör gegn þeim sem smygla tóbaki og áfengi til landsins. Toll- vörðum hefur veriö fjölgað um 100 en talið er skatttekjur sem breska ríkið verður af vegna smygls nemi allt að 90 milljörðum á ári hverju. Út að viðra Ijónið Það getur verið hættulegt að fara út að ganga með ljón. Sú varð í það minnsta raunin á Suður- Spáni þar sem maður varð uppvís að því að halda ólöglega tvö ljón á heimili sínu. í göngutúr ærðust ljónin og særðu þrjár konur illa. Hetjur kvaddar Þúsundir syrgjenda viös vegar að úr heiminum lögðu leið sína i þinghúsið i Washington í gær til að kveðja lögregluþjónana tvo sem féllu í skotárás geðbilaðs manns fyrir helgi. Blair búinn í bili Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, lauk endurskipulagn- ingu ríkisstjóm- ar sinnar í gær. Mannaval Bla- irs þykir benda til aukinnar áherslu hans á viðskiptamál og Evrópusam- vinnu og minna vægis skoskra þjóðemissinna. Khatami vill frelsi Mohammad Khatami, forseti írans, hvatti í gær til þess að tján- ingarfrelsi fjölmiöla og trúfrelsi yrðu gerð að hornsteinum is- lamska lýðveldisins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.