Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1998, Qupperneq 9
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998
9
DV
Kenneth Starr saksóknari í máli Clintons Bandaríkjaforseta:
Lewinsky veitt frið-
fyrir ósannsögli
Lögmenn Monicu Lewinsky og móöur hennar skýröu fréttamönnum frá því í gær að samið heföi verið um friðhelgi
til handa þeim mæðgum gegn því að þær segðu ákærukviðdómi frá sambandi Monicu við Clinton forseta.
kemur fyrir ákærukviðdóminn. Blað-
ið Washington Post sagði í morgun
að Lewinsky hefði sagt saksóknurum
að Clinton hefði stungið upp á ýms-
um leiðum til að komast hjá því að
eiga samvinnu við lögmenn Paulu
Jones sem sakaði forsetann um kyn-
ferðislega áreitni.
Á vefsíðu New York Times er þvi
haldið fram að Monica muni segja
kviðdóminum að Clinton hafi æft
með henni vitnisburð hennar.
Talsmaður Clintons sagði að for-
setinn væri ánægður með samkomu-
lagið fyrir hönd Monicu.
helgi
Monica Lewinsky, fyrrum lærling-
ur i Hvíta húsinu og miðpunkturinn
í kynlífs- og ljúgvitnihneykslinu sem
velgir nú Bill Clinton forseta undir
uggum, hefur fallist á að koma fyrir
ákærukviðdóm í málinu gegn því að
verða ekki sótt til saka.
Vitnisburður Lewinsky gæti auk-
ið þrýstinginn á Clinton sem hefur
neitað því í eiðsvarinni yflrlýsingu
að hafa átt í kynferðislegu sam-
bandi við stúlkuna. Forsetanum hef-
ur einnig verið stefnt fyrir kvið-
dóminn.
Monica Lewinsky neitaði því
einnig í eiðsvarinni yfirlýsingu sem
hún gaf í málaferlum Paulu Jones
gegn forsetanum að hún hefði átt í
ástarsambandi við Clinton. Það
stangast hins vegar á við það sem
hún sagði Kenneth Starr, sérlegum
saksóknara í málinu, og starfs-
mönnum hans í viðtali í New York
á mánudag, að sögn heimildar-
manns sem er nákunnugur málinu.
Á þeim fundi sagðist Monica hafa
átt í kynferðislegu sambandi við
Clinton. Hún sagði enn fremur að
aldrei hefði verið þrýst á hana að
ljúga til um það, eins og Starr er
meðal annars að reyna að sanna.
Samkomulag Starrs við Lewinsky
og lögmenn hennar hefur ekki verið
gert opinbert í smáatriðum. Ýmsum
sögum fer af því hvað lærlingurinn
fyrrverandi muni segja þegar hún
Útlönd
Vilja kosningar
sem fyrst
Tillaga um að boðað verði til
kosninga verður lögð fyrir ísra-
elska þingið í dag. Þingmenn vilja
kosningar strax í haust en þær eru
ekki áætlaðar
fyrrenárið2000.
Verði tillagan
samþykkt veik-
ir það stöðu
Netanyahu for-
sætisráðherra
til muna en
hart hefur verið
sótt að honum og stjórn hans und-
anfarið. í síðustu viku voru lagð-
ar fram fimm vantrauststillögur á
hendur stjórninni en engin hlaut
nægilegt fylgi.
Þótt tillagan um að boðað skuli
til kosninga verði samþykkt í dag
þá verður hún að fara þrívegis í
gegnum þingið áður en hún telst
að fullu samþykkt. Netanyahu og
stjóm hans er aðallega legið á
hálsi fyrir að hafa klúðrað friðar-
viðræðunum við Palestínumenn.
Óttast um
heilsu Suu Kyi
Aung Suu Kyi, stjórnarand-
stæðingur i Búrma og friðarverð-
launahafi Nóbels, hefur nú setið í
5 daga í bíl sínum á brú í 50 kíló-
metra fjarlægö frá höfuðborginni
Rangoon. Suu Kyi er að mótmæla
því að henni var meinað að hitta
stuðningsmenn sína.
Mary Robinson, yfirmaður
mannréttindastofnunar SÞ hvatti
í gær stjórnvöld í Burma til að
virða réttindi þegna sinna og
leyfa þeim að ferðast óáreittir um
landið. Þá kvaðst Robinson hafa
áhyggjur af heilsufari Suu Kyi og
krafðist þess að læknir fengi að
líta á hana.
Aivöru útsala
Frábær greiðslukiör:
Engin útborgun og lán til allt að 48 mánuða Fyrsta afborgun getur verið eftir
allt að 3 mánuði. Visa/Euro Raðgreiðslur til allt að 36 mánuða.
Hyundai Accent árg. 1995
soe#eo- 650.000
BÍLAHÚSIÐ
(í húsi Ingvars Helgasonar og Bílheima) • Sævarhöfða 2 • Reykjavík
Símar: 525 8020 - 525 8026 - 525 8027 • Símbréf: 587 7605
MMC Lancer árg. 1991
480.000
Subaru Coupé 1,8 árg. 1989
Asoroee- 350.000
Daihatsu Charade árg. 1993
62ÍLOee-520.000
Nissan Sunny árg. 1995
Ö0^e0'590.000
Nissan Primera 2,0 SLX árg. 1993
WPSe^KTO 975.000
MMC Sapparo árg. 1989
sée^etr 400.000
Subaru Legacy 2,0 árg. 1993
J-rO9eKJ0O 700.000
Daihatsu Charade árg. 1991
ÁOOroee- 300.000
Subaru Legacyárg. 1991
^TOreee- 760.000
Daihatsu Applause árg. 1991
590reee-460.ooo
Subaru Legacy 2,0 árg. 1992
JL26er0OO 950.000
Toyota Carina II 2,0 árg. 1990
290reee- 610.000
Daihatsu Charade árg. 1990
4SOreee-290.ooo
Nissan Sunny Wagon 4x4 árg.
1992,-79etfO0 600.000