Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1998, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1998, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998 Spurningin Ferðu reglulega í sund? Tómas Bjömsson verslunar- stjóri: Já, tvisvar í viku. Magnús Guðmundsson blaðburð- ardrengur: Já, stundum. Steinvör Baldursdóttir sjúkra- liði: Nei. Fjóla Björk Jónsdóttir rekstrar- fræðingur: Já, fimm sinnum í viku. Lilja Ragnarsdóttir hárgreiðslu- kona: Já, ég geri það nú. Sunna Hafsteinsdóttir og Guð- mundur Láms Guðmundsson, 10 ára: Já, á hverjum degi. Lesendur________________ Sjómannaafslátturinn mælir meö sér sjálfur Willard Helgason skrifar: Þessar línur set ég á blað eftir að hafa lesiö grein eftir Snjólf Ólafsson í DV 29. f.m. - Einhvem veginn finnst mér ég hafa séð skrif eftir hann í svipuðum dúr, þar sem hann virðist sjá kölska í hverju homi út af skattafríðindum okkur sjómönn- um til handa. Hvort skyldi nú ástæða skrifanna vera öfund eða réttætiskennd? Ýmissa spuminga mætti spyrja sem lesendur geta svo svarað um leiö því rökin fyrir sjómannaafslættinum vantar ekki. - Hvers vegna skyldu Noregur og Danmörk hafa skattahlunnindi fyrir sjómenn? Hvers vegna held- ur Snjólfur að Færeyingar velti því nú fyrir sér að taka upp svipað kerfi og hér er? Hvers vegna em Bretar með skattleysi gagnvart sínum sjómönnum eftir 180 daga eða meira á sjó? Skyldi Snjólfur vera einn þeirra ágætu Islendinga sem hefur ekki enn áttað sig á því á hverju við lifum í þessu landi? Við getum þakkað það Islenskum sjómönnum og auðvitað útgerðarmönnum, svo og öllum þcim fjölda af fólki í landi sem unnið hefur við fisk gegnum tíðina, að við búum hér í dag, í einu tæknivæddasta þjóðfélagi heims. Með afkastamesta fiskiskipaflotann. Snjólfur talar líka um öfund, Hvemig rökstyður hann að prófess- orar og kennarar eru á launum allt árið? Eru skólar ekki lokaðir i júní, júlí og ágúst? Mætti ekki nota þá fjármuni sem spömðust með því að afnema þau fríðindi í eitthvert fjár- lagagatið? Við Snjólfur hljótum að vera sammála um að þessi nefndu fríðindi prófessora og kennara er ekki jöfnuður gagnvart flskverka- konum og hafnarverkamönnum. Þau ásamt okkur fara í launalaust sum- arfrí. Eru Snjólfur og hans skoðana- bræður ekki komnir i kringum sjálfa sig með tuðinu út i það smáræði sem við sjómenn fáum fyrir að halda þessu þjóðfélagi gangandi? Fullyrða má að við sjómenn lét- um sjómannaasfsláttinn af hendi umyrðalaust, værum viö á launum þær veiðiferðir sem við tökum frí. En svo gott verður það víst ekki i bráð svo að skattahlunnindin verða að duga. Ég hef þá bjargföstu trú að fjár- málaráðherra sé það skynsamur að gera sér grein fyrir þvi hvað við sjó- menn erum þjóðfélaginu mikilvæg- ir með störfum okkar og láti sér ekki detta í hug að skerða hlut okk- ar og kemur lítillega til móts við þá aðstöðu okkar og hinna sem stunda vinnu ffá 9 til 5 og eru auk þess heima. - Lærum aö lifa með hver öðrum, Snjólfur og kennarar með launaða fríið og ég með skattaaf- sláttinn. Fýrirspurn til fjármálaráðherra Eitt mcginverkcfni þi:t næstu mánuöina veröur aö undirböa Ijárlög næstn ðrs. Háðlr leljtmt viö aö forverl þlnn hafi staðið sík vci i siarfl og þaö gotiorðiö crfitt fyrir þig aö feta.I fötspor hans. Þaö ætti þó að vcra léltverk fyrir þig íiö sniöa elnn agntia af ijárlögununi scm honum tókst ckkl aö gcnt. „Það ættl akkl að þurfa langa íhugun tll að sjáaö allt mællr með því að sjámannaafslátturinn verði afnumlnn". Fyrirspum mín varöar þennan agnöa: Ætlar þú aö bcita þér fyr- ir þvl aö sjömannaafsiátturlnn vcrði afnuminn? Kfokki, hvercru rtik þln fyrir honum? Óréttlát og forréttindl óhagkvæm Það ætt! ekki aö þurfa Innga ihugun tU aö sjá nð alit mælir mcð því aö sjómannaaCsiátturinn vcröi afnuminn. I>aÖ nægir jafnvcl aö bcnda á tvenn mcginrök: 1 fyrsta lagi cr það stoftia rlkisstjömnrinn- iu: «ð allir skulinivcnt jafr.ir f>rir lögum. Sjömannaafslálturimi gcr- ir það að verkum aö ckkicru aliir jaftiir l\Ttr Qárlðgurn. í 6ðm lagi adti alinenna rcglan uin milli- færslur aö vcra sú aö ftura fö frá þcim, scin hafa mikiö umlcikis, tii þcirra scm minr.a mega sln. Sjðmannaafálátt* urinn færir hins vegar fé frá hin- um almenna skattgreíöanda tii hálaunastétt- ar, cn það lcikur jú cnginn vafi á þvi nö sjömcnn eni hálaunastétt. Ef ég man rétt þá kostar sjómannaafslátturinn rikissjóð M,5 milljaröa króna ár- lega. scnv cr sennilcga svipuö upp- ha.*ö cg þyrfll til aö leysa liinn mikla og bráöa vanda sjúkrafiús- nnna. i gcgnom tíöina liala orðiö (11 alls kyns forrétiindi af hinusti og þcssum ústatðum................. •1 cj: mcnn vinna r.ú Ifiallarínti raarkvisst aö þvi HjaiKIimil aö afnema þcssi forréttindi. Efst á baugi siö- ustu vikumar hafa verið lax- vciölfbrréttindi nokkurra rikis- starfsmanna. Biessaöir banka- stjórarnir hafa ckki „haft efni á" cö grciða fyrir tómstundaiökun sina og látið al- múgann borga brúsann í\rir sig, bcint cða óbeint Stutt er siöan ríkissljórnin lét Snjólfur Ólafsson prófessor (Háskóla Islands AJþingi samþykkjn lög um ríkis- starfsmenn þar scm þcir voru sviptir ýnisum réttintíusn. Þctfa var gert þrátt fyrir hávœr mót- tnæli minnihluta Aiþingis og laun- jxjgasamfaka. Moginrökln voru þau að aliir asttu að standa jaftvt, rikisstarrsmonr. og saufsmenn i cinkageirnnuni. En cr |iá ckki rétt aó sjó- nicnn standi eLnnJg jafnt? Rök fyrlr sjö- mannaafslætti A undaruRjmum árum hnfa koraið frnm ótal rðk fyrír sjóraannanfsliiittJ cn cngin scm sfar.dost gngnrýna skoðun. Mtt rökin séu af ýrnsuin toga þá bcra þau 611 þcss merki aö vcra sctt franv af sjómönnura eða full- trúum þeirra og þlng- mönnuin scm liafa troyst á ntkvæði sjó- manna. Ég mlnnist þess til dæmis ekki að FYiö- rik Sóphusson hafi nokkru slnni fært ncin rök fyrir sjómannaafslættinum. Ætlar þú að bcifa þér fyrir þvi að sjömannaafslátturinn vcrði af- numinn’ Ef svo er. í hvaða áföng- ura sérö þú ÍVrir þér aö það gerist? Ef ckkL hver eru incginrök Qár- máiaráöhorrn fyrir sjómannaaf- slajttinum? Snjólfur ólafsson Bréfritari skírskotar til greinar Snjólfs Ólaffssonar ■ DV þann 29. f.m. Tennisíþróttinni verði betur sinnt Villa Bogga skrifar: Ég hef búið erlendis um skeið og kynnst þar tennisíþróttinni. Þegar ég hef verið héma heima á sumrin hef ég gjarnan farið út á völl á kvöldin með félögum mínum, eða þá í Tennishöllina, þegar ekki hefur vel viðrað. Ég hef verið hér heima í góöa veðrinu undanfarnar vikur en ég hef ekki átt kost á því að spila tenn- is úti. Völlurinn hjá Þrótti er alltaf harðlæstur og þar er ekki nokkra sálu að sjá. Sama er að segja um vellina á bak við Tennishöllina. Félagar mínir hafa ekki hugmynd um hvernig á þessu stendur. Það skal þó tekið fram að vellirnir hjá Víkingi hafa verið opnir en þeir em bara svo hræðilega vondir, og þar að auki rándýrt inn á þá. Ég hef eitthvað heyrt um að tennisíþróttin væri á uppleið hér á landi, en ég á erfitt með að trúa því, þegar svo annars ágætir vellir em hafðir lokaðir um kvöld og helgar. Ég held að það vekti athygli á tennisíþróttinni, sem er mjög góð og skemmtileg íþrótt, ef þessir vellir væm hafðir sem mest opnir og ódýrt væri að taka þá á leigu. Þá væri þar líka líf og fjör og börn og unglingar sem aðrir veittu íþrótt- inni athygli í stað þess að spyrja til hvers þessir vellir séu yfirleitt. Almenningur og Hvalfjarðargöngin Tala útlenskir kvótamenn til okkar í gegnum Hval- fjaröargöng? til okkar og við okk- ur af þeim sem sjá um svona fram- kvæmdir, t.d. borun Hvalfjarðarganga, eins og við séum van- vitar. Tala hér út- lenskir kvótamenn til okkar? Og það er víðar sem undran og aðdáun er beint til okkar út af Hvalfjarðargongun- um dönsku. í þættin- um í vikulokin sl. laugardag var spurt hvað helst hefði vak- ið athygli viðmæl- enda í þeirri vikunni. Einn viðmælendanna lét auðvitað ekki hjá líða að minn- ast á göngin. Hann var gagntekinn Halldór Ólafsson skrifar: Það er þetta með Hvallfjarðar- göngin og sdmenning í landinu. Mér finnst vera búið að heilaþvo fólk af fréttum af þessum göngum sem þó era ekki annað en framhald af sam- göngubótum í landinu; Strákagöng, Múlagöng og Vestfjarðagöng. Nýja- bmmið er löngu farið af gangagerð hér á landi. Rétt eins og um heim allan þar sem verið er að grafa og bora göng alla daga ársins. Ég las feikn góða og gamansama grein í Lesbók Mbl. sl. laugardag eftir Eyvind Erlendsson. Hann fer á kostum um „byltinguna" sem Hval- fjarðargöngin hafa verið nefnd und- anfamar vikur og mánuði. Hann tengir umfjöllun sína brotthvarf Akraborgarinnar sem margir sakna nú sárt á þessum tíma árs. - „En þetta er víst þróunin“, segja menn með aulalegri blöndu af drýldni og uppgjöf í fasi““, lýkur svo Eyvindur grein sinni í Lesbókinni. En grínlaust: Hvað er að koma yfir okkur íslendinga? Það er talað af hrifingu yfir því að hafa farið göngin. Einum kunningja mínum sem hlustaði á þáttinn varð að orði: Hann talar nú bara eins og hann sé tengdasonur Hvalfjarðarganga. Ég hváði. Er hægt að komast svo langt í aðdáun á verklegri framkvæmd að „mægjast" t.d. jarðgöngum? Kvótamálin góð eins og er Sigurjón hringdi: Vegna yfirgengilegs fimbulfambs um kvótamálin að mínu mati og umræðna um veiðileyfagjald á út- geröarmenn og aðra sem draga fisk að landi vil ég skora á skynsama karla og konur að bera nú ljósið aö augum sínum. Kvótamálin era í góðu lagi eins og þau era í dag. Veiðileyfagjald er réttlætanlegt lí einhverju formi en það veröur hins vegar aldrei til lykta leitt með skyndiákvörðunum, hvorki af sijómvöldum né embættismanna- kerfinu. Að taka kvótann af mönn- um sem hafa yfirgefið sjósókn er sjálfsagt mál og réttlátt. Það eitt ætti að koma ró og friði á mál sjáv- arútvegsins, um nokkurra ára skeið a.m.k. Hlýnar í veðri - og kólnar G.K.Á. skrifar: Mörgum finnst bregða til veru- lega betri tíðar hér sunnanlands í sumar. Það sem af er hefur verið hér einmunatíö eins og allir hafa fundið. Ef menn hafa fylgst með fréttum og heyrt umsagnir vísinda- manna af veðurfari um veðráttuna hér á norðurhveli jarðar næstu árin er ljóst að spá þeirra er að ræt- ast; sólin er sterkari vegna þynnra ósonlags en um leið bræðir hún sí- fellt meira og meira úr Grænlands- jökli og ísjakana rekur um hafíð m.a. í átt til íslands. það veldur hinu kalda lofti norðanlands. Þetta gæti því endað með ósköpum hér á landi og það fyrr en fólk almennt ætlar. Japanskir bílar að hækka í verði? Páll hringdi: Mér finnst einkennilegt ef verð á nýjum bílum frá Japan hækka í veröi um leið og gengi japanska jensins verður sífellt hagstæðara okkur íslendingum til kaupa frá Japan. Mig minnir að nýir japansk- ir fólksbílar, meðalstórir, hafi kost- að þetta um eða í kringum milljón- ina eða 1,2 eða 1,3 milljónir. Nú kosta svipaðir bUar um 1,5 eða 1,6 milljónir! Ekki kennum við verð- bólgunni hér um núna. Hér er þá bara kannski um að ræða hækkun álagningar. Maður verður vissu- lega að hafa augun opin. Flugleiðir inn í SAS? Guðjón skrifar: Ég var að lesa eins konar úttekt á rekstri Flugleiða hf. í mánudags- blaði DV. Félagiö sé að bregðast við taprekstri undanfarinna missera og leita verði leiða til að styrkja ímyndina. Þetta á ekki að koma ís- lendingum mjög á óvart ef þeir hafa fylgst með gangi mála hjá fé- laginu í gegnum fréttir um mUli- uppgjör félagsins og viðbrögð á verðbréfamarkaðinum hér. Eins og málum er nú komið hjá Flugleiðum tel ég ekki annað vænna en að fé- lagið leiti hófanna hjá SAS um sameiningu. Það yrði áreiðanlega auðsótt hjá hinum norrænu frænd- þjóðum. Nú er Sverrir á niðurleið Þorgrímur hringdi: Ég sé ekki betur en að fylgi Sverris Hermannssonar, sem mikið var gumað af í skoðanakönnunum, sé nú svo tU dottið niður. Þrjú pró- sent fylgi í könnun þýðir það eitt að það verður ekkert þegar lengra hð- ur. Enda hvaðan ætti Sverrir Her- mannsson að fá fjöldafylgi við fram- boð til Alþingis? Hann hljóp burf af Alþingi, hann hljóp burt úr bankan- um og hann hleypur burt frá skoð- unum sínum nú. Hann er líkt og sætabrauðsdrengurinn i ævintýr- inu. Og hann verður hvergi í sviðs- ljósinu aö nokkram tíma liðnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.