Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1998, Page 15
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998
15
Að misnota verka-
lýðshreyfinguna
Eins og GÁS ætti aö vita er verkalýöshreyfingin samansett af fólki úr ölf
um pólitiskum flokkufn eða samtökum, segir m.a. í grein Magnúsar.
Guömundur Ámi
Stefánsson alþingismað-
ur skrifar grein í DV 22.
júlí sl. í tilefni af um-
mælum sem eftir mér
vora höfö í ríkissjón-
varpinu þann 6. júlí sl.,
vegna ummæla for-
manns Alþýðubanda-
lagsins, þar sem sagt
var að undirbúningur
að sameiginlegu fram-
boði vinstriflokkanna
hefði verið unninn í
samvinnu við verka-
lýðshreyfinguna.
f umræddri frétt
Sjónvarpsins var sagt:
„Magnús L. Sveinsson,
formaður VR, segir
verkalýðshreyfínguna
vera faglega hreyfingu
fólks úr öllum stjórnmálaflokkum.
Það yrði því skref aftur á bak ef
gera ætti verkalýðshreyfinguna að
verkfæri stjórnmálaflokka. Það
væri löngu liðin tið sem ekki hefði
gefist vel. Hann segir Margréti for-
m£mn því hafa talað heldur óvar-
lega um þessi mál.“
GÁS segir þessi ummæli tilefni
greinar hans þar sem hann segir
m.a.: „Mér þótti þetta kröftuglega
mælt hjá þessum forystumanni i
verkalýðshreyfmgunni sem í gegn-
um árin hefur einnig verið í
fremstu röð í Sjálfstæðisflokknum
og eftir því sem ég best veit ekki
haft samviskubit vegna þeirra
tengsla." Þessi setning segir allt
um viðhorf GÁS til pólitískra
tengsla verkalýðshreyfingarinnar.
Ekki fulltrúi verkalýðs-
hreyfingarinnar
Þetta viðhorf kom einnig vel
fram á flokksstjóm-
arfundi Alþýðu-
flokksins þann 5.
júlí sL, þar sem
samþykkt var að
standa að sameigin-
legu framboði.
Signý Jóhannes-
dóttir, formaður
Vöku á Siglufirði,
var beðin að ávarpa
fundinn og þegar
hún var kynnt var
sagt að hún talaði
fyrir hönd ASÍ! Hér
er verið að gefa í
skyn, að verkalýðs-
hreyfingin standi
að sameiningartil-
raunum A-flokk-
anna. Hér er Al-
þýðuflokkurinn að
misnota verkalýðshreyfinguna í
flokkspólitískum tilgangi. Signý
setti ofan í við Alþýðuflokkinn eft-
ir frásögn fjölmiðla af fundinum og
sagði í Mbl. 8.
júlí: „Auðvitað
er ég formaður í
verkalýðsfélagi
og varamaður í
miðstjórn Al-
þýðusambands-
ins en ég leit
aldrei á mig sem
neinn sérstakan
fulltrúa verka-
lýðshreyfingarinnar og hef ekkert
vægi sem slík.“
í verkalýöshreyfingunni er
fólk úr öllum flokkum
Eins og GÁS ætti að vita, er
verkalýðshreyfingin samansett af
fólki úr öllum pólitískum flokkum
eöa samtökum. Og það er vel
þekkt að einstakir forastumenn í
verkalýðshreyfingunni hafa valist
meðal forustumanna í einstökum
pólitískum flokkum og átt sæti í
sveitarstjómum og Alþingi sem
fulltrúar pólitiskra flokka en ekki
sem fulltrúar verkalýðshreyfing-
arinnar.
Ég kannast ekki við að undir-
búningiu- að sameiginlegu fram-
boði A-flokkanna hafi verið rædd-
ur á vettvangi verkalýðshreyfing-
arinnar. Enda áréttaði Margrét
Frímannsdóttir, formaður Alþýðu-
bandalagsins, það eftir að ég hafði
gert athugasemd við þau ummæli
að verkalýðshreyfingin ætti aðild
að sameiningarmálunum, að svo
væri ekki, heldur væri það fólk
sem væri að vinna innan verka-
lýðshreyfingarinnar, sem hefði
tekið þátt í undirbúningnum. Á
þessu er grundvallarmunur.
Afstaöa forseta ASÍ
Afstaða Grétars Þorsteinssonar,
forseta ASÍ, er mjög skýr og af-
dráttarlaus þegar hann svarar
spumingu Steingríms J. Sigfús-
sonar um flokksleg tengsl ASÍ við
stjórnmálasamtök félagshyggju-
fólks. Forseti ASÍ segir orðrétt í
svari sínu í Mbl. 1. júlí sL: „Þú
spyrð hvort vænta megi beinna
flokkslegra tengsla ASÍ við stjórn-
málasamtök félagshyggjufólks. Því
er fljótsvarað: Nei. Verkalýðs-
hreyfingin hlýtur að starfa sjálf-
stætt en ekki með flokksleg tengsl
við stjórnmálaflokka."
Af því sem hér hefur verið sagt
er ljóst að ég er ekki einn um þá
skoðun að verkalýðshreyfingin á
ekki að vera flokkslega tengd við
stjómmálaflokka.
„Alþýðuflokksmenn hugsa
meö skelfingu"
Ef Guðmundur Ámi Stefánsson
telur að það verði launþegum til
góðs að leggja Alþýðuflokkinn nið-
ur, þá hef ég auðvitað ekkert við
það áð athuga. Kannski að eitt-
hvað sé til í því sem sagt var í
fréttum Sjónvarpsins fyrir
nokkram dögum, þegar rætt var
um sameiningartilraunir vinstri
manna, þar sem sagt var: „Ög-
mundur Jónasson, þingmaður Al-
þýðubandcdagsins og óháðra, segir
marga alþýðuflokksmenn hugsa
með skeifingu til þess hvemig Sig-
hvatur Björgvinsson og forysta
flokkins hélt á málum, til að
mynda heilbrigðismálum, síðast
þegar flokkurinn var í ríkis-
stjóm."
Magnús L. Sveinsson
Kjallarinn
Magnús L.
Sveinsson
formaöur VR
„Ef Guðmundur Árni Stefánsson
telur að það verði launþegum til
góðs að leggja Alþýðuflokkinn
niður, þá hef ég auðvitað ekkert
við það að athuga
Of háir vextir
í Biblíunni er talað um 1-3%
vexti sem hæfilega ávöxtun á ppn-
ingum. Menn hafa hér gengið
undir manns hönd við að lækka
8% vexti, ýmist með handafli eða
með tilvísun til lágra vaxta erlend-
is. Forsætisráðherra landsins fékk
bágt fyrir að skrifa aðalbanka-
stjóra ríkisbankans bréf þar sem
tekið var á vandamálunum þá með
þeim tökum er ein dugá í kerfi
með mörgum prinsum. Ráðherra
fór þá með sigur af hólmi eins og
góðum stjórnanda sæmir og vext-
irnir lækkuðu
daginn eftir.
En markaður-
inn er óvirkur til
frekari lækkunar
á vöxtum í kerfi
þar sem ríkisbank-
ar ráða stærstum
hluta lánamarkað-
arins. Tilvist Is-
landsbanka og
hálfopinberra
sparisjóða nægir
ekki til að skila almenningi lægri
vöxtum.
Stöönun fram undan?
Peningar hrúgast inn í bankana
og innlánsvextir era eins og í Jap-
an um 1%. en útlánsvextir um 10%
með verðtryggingu. Mismunurinn
er hafður til að reka óskilvirkt
kerfi sem gengið er sér til húðar.
En á sama tíma er markaðurinn
á neysluvarningi að mettast. Ekki
er endalaust hægt að framleiða fyr-
ir þá er hafa allt af öllu. Við sjáum
það í húsgagnasölu, í byggingu at-
vinnuhúsnæðis, í hestasölu, á
listaverkamarkaði, að Rín tekur
ekki endalaust við. Yngri kynslóö-
ifTIeggur meiri áherslu á gæöi og
það er í tísku að nýta góða nytja-
hluti genginna kynslóöa. Á lista-
markaðinum hafa menn eftir-
þanka af viðskiptum með fólsk
verk gamalla meistara en bankam-
ir, græningjamir hjá opinberum
söfnum og hinir nýríku, héldu
uppi háu verðlagi. Kaupmenn ótt-
ast ekkert eins og hálftómar
Kringlur og víst er að sú banka-
kreppa sem hófst í Japan er ekkert
„Að hér skuli verðlag vera með
því hæsta í heimi má eflaust að
einum þriðja rekja til miðstýring■
ar í bankakerfinu og hárra vaxta
en tveimur þriðju til legu iands■
ins, fákeppni í flutningum og
strjálbýlis
einstakt austurlenskt
fyrirbrigði. Ofgnóttin
knýr á um breytingar
og nýtt verðmætamat.
Þegar arðsemin verð-
ur lítil verður erfitt að
greiða jafnvel lága
vexti.
Unga fólkiö borgar
Ömurlegt er því nú
að horfa upp á ungt
fólk taka framtíðarlán
sem hljóða upp á 10%
vexti með verðtrygg-
ingu hjá lánastofnun-
um þegar fyrirsjáan-
legt er að vextir eiga
eftir að lækka, en
hægt að greiða upp
flest ný lán á lánstím-
anum ef menn þess
óska.
Dráttarvextir 16% era helmingi
of háir og furðulegt er að fyrirtæki
og einstaklingar með tryggingu
geti ekki farið yfir á reikning án
þess að fá mörg prósent sektar-
greiðslur. Unga kynslóðin hefur
ekki tima til umbyltinga á meðan
hún kemur undir sig fótunum og
stendur í barnauppeldi en hún
borgar meðan hún getur. Þegar
hún þroskast og fær yfirsýn koll-
varpar hún væntanlega þessu
Kjallarinn
Sigurður
Antonsson
framkvæmdastjóri
kerfi sem hefur
blómstrað í skjóli
miðstýringar.
Hátt verölag
Háir vextir eru öðr-
um þræði ávísun á
hærri launakröfur og
meiri greiðslur fyrir
alls konar þjónustu.
Að hér skuli verðlag
vera með því hæsta i
heimi má eflaust að
einum þriðja rekja til
miðstýringar í
bankakerfinu og
hárra vaxta en
tveimur þriðju til
legu landsins, fá-
keppni í flutningum
og strjálbýlis. En
ekki er endalaust
hægt að gera kröfur
til hærri þóknunar í heimi sem
smækkar óðum. Norðurlönd og
Sviss verða ekki endalaust sér á
báti hvað verðlag snertir. Það er
ekki sjálfgefið að vextir lækki ef
bankamir verða seldir til ólíkra
aðila í þjóðfélagi fámennisins.
Handaflsaðferðin getur virkað ef
aðrar aðferðir ná ekki fram að
ganga. Til þess kusum við ráða-
menn að þeir geti stjórnað.
Sigurður Antonsson
Með og
á móti
Eiga útihátíöir rétt á sér?
Magnús Már
Þorvaldsson,
framkvæmda-
stjóri Halló Ak-
ureyri.
Bærinn
blómstrar
„Eg miða
eðlilega um-
fram allt við
Halló Akureyri
sem ég er
framkvæmda-
stjóri fyrir.
Með tilkomu
Halló Akureyri
áriö 1994 var
brotið blað í
sögu útihátíða
að því-leyti að
svokallaðar
útihátíðir um
verslunar-
mannahelgina, hverjar voru eftir-
litslitlar haldnar á víðavangi,
voru færðar inn í bæinn. Við það
gjörbreyttist bæjarlífið um versl-
unarmannahelgina. Áður hafði
bærinn verið heldur daufur þessa
helgi og lítið um að vera. Þá sótti
einkum yngra fólk eittlivert ann-
að, t.d. í Húnaver hér fyrir norð-
an, en eftir að Halló Akureyri
kom til sögimnar hefur dæmið
snúist við. Með hátíðinni höfum
við í raun útvíkkað ferðaþjónust-
una í bænum. Aðilar í ferðaþjón-
ustunni hér, s.s. hótel, veitinga-
staðir, verslanir og aðrir hafa not-
ið góðs af þessari hátíð sem fyllt
hefur bæinn af fólki og lífi.
Einnig má segja að með því að
halda Halló Akureyri inni í bæn-
um getum við veitt mun betri lög-
gæslu og sjúkraþjónustu heldur
en úti á víðavangi og bæjarbúar
sjálfir veita visst aðhald. Það má
því segja að með því að halda há-
tíðina í bænum höfum við betri
stjóm á henni og getum veitt
virkara og betra aðhald en ella.“
Vímuefna-
neysla á úti-
hátíðum
„Ég er á móti
því að ungling-
ar sem era ekki
sjálfráða fari
einir á útihátíð-
ir. Það er allt of
oft sem ég fæ
unglinga sem
komnir era á
kaf í vímuefhi
sem segjast
hafa byrjað
vímuefhaneysl-
una um versl-
unarmanna-
helgina. Þess'i
krakkar fara
hratt niður í neyslunni.
Flestum ef ekki öllum fullorðn-
um finnst að unglingar eigi ekki
að neyta vímuefiia en það vantar
oft á að foreldrar fylgi því eftir.
Það að segja „NEI elskan mín, þú
ferð ekki án okkar á útihátíð um
verslunarmannahelgina," ætti að
duga. En ég fæ mörg simtöl þar
sera foreldrar segja að ef þau segi
nei verði allt vitlaust, hvað með
það? Allt gæti orðið enn þá vitlaus-
ara ef unglingamir fara.
Unglingadrykkja á íslandi er
þjóðarskömm og foreldrar verða
að vera samstiga og fá stuðning frá
hver öðrum. Foreldrar ættu að
vita það að unglingadrykkja leiðir
oft til kynlífs sem getur haft alvar-
legar afleiöingar fyrir bam
þeirra.“ -GLM
Sigrún Hv.
Magnúsdóttir,
félagsráögjafi
og forstööu-
maóur Vímu-
lausrar æsku.
Kjallarahöfundar
Athygli kjallarahöfunda er
vakin á því að ekki er tekið við
greinum í blaðið nema þær ber-
ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu-
diski eða á Netinu.
Netfang ritstjórnar er:
dvritst@centrum.is