Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1998, Qupperneq 26
26
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998
Afmæli_____________________
Baldvin G. Baldursson
Baldvin Grani Baldursson, bóndi
og fyrrv. oddviti í Ljósavatnshreppi,
Rangá, Þingeyjarsýslu, er sjötíu og
fimm ára í dag.
Starfsferill
Baldvin er fæddur aö Ófeigsstöð-
um í Ljósavatnshreppi. Hann stund-
aði nám við Laugaskóla 1941^12.
Baldvin byggði sér nýbýlið Rangá
á landi Ófeigsstaða og hefur verið
bóndi þar frá 1945.
Baldvin var formaður ungmenna-
félags sveitarinnar um skeið og í
stjóm þess í mörg ár. Auk þess var
hann formaður Héraðssambands
Suður-Þingeyinga um nokkurra ára
skeið. Hann var formaður Búnaðar-
félags Ljósavatnshrepps í yfir
tuttugu ár, sat í sveitarstjórn frá
1970-94 og var oddviti frá 1978-94, í
stjóm Kaupfélags Þingeyinga frá
1967-88 og þar af formaður í nokkur
ár. Þá sat hann í stjórn Laxárvirkj-
unar frá 1971 og þar til hún var lögð
niður. Hann var deildarstjóri Kinn-
ardeildar Kaupfélags Þingeyinga frá
1972-98, sláturhússtjóri hjá Kaup-
félagi Þingeyinga um langt árabil, í
stjórn Búnaðarsambands Þingey-
inga frá 1973-88, formaður sóknar-
nefndar Þóroddsstaðakirkju frá
1978, formaður héraðsnefndar Þing-
eyinga frá stofnun 1989-94, var for-
maður framsóknarfélags Þingey-
inga um skeið og formaður fram-
sóknarfélags sveitar sinnar lengi.
Fjölskylda
Baldvin kvæntist 7.7. 1945 Sig-
rúnu Jónsdóttur, f. 17.11.1923, d. 30.
6. 1990, húsmóður. Hún var dóttir
Jóns Friðrikssonar, bónda að Hömr-
um í Reykjadal, og Friðriku Sigfús-
dóttur húsfreyju.
Böm Baldvins og Sig-
rúnar era fimm. Þau era
sr. Jón Aðalsteinn, f. 17.6.
1946, sendiráðsprestur í
London, kona hans er
Margrét Sigtryggsdóttir
og eiga þau Sciman tvö
börn en eitt bam átti Jón
fyrir; Baldur, f. 13.3. 1948,
bifreiðastjóri á Húsavík,
kona hans er Sigrún Að-
algeirsdóttir og eiga þau
þrjú börn; Baldvin Krist-
inn, f. 23.2. 1950, bóndi í
Torfunesi, en kona hans
er Brynhildur Þráinsdóttir og eiga
þau tvö böm; Hildur, f. 10.11. 1953,
hárgreiðslumeistari á Húsavík, gift
Garðari Jónassyni og eiga þau tvö
börn; Friðrika, f. 2.2. 1961,
aðstoðarmaður tannlæknis á Húsa-
vik en sambýlismaður hennar er
Stefán Haraldsson og
eiga þau eitt bam auk
þess sem hún á tvö börn
frá fyrrv. hjónabandi.
Systkin Baldvins Grana
eru Svanhildur, f. 25.4.
1936, gift Einari Krisjáns-
syni, bónda á Ófeigsstöð-
um, og eiga þau fimm
börn; Ófeigur, f. 31.1.
1940, d. 15.5. 1985,
lögregluþjónn á Akur-
eyri, var kvæntur Þor-
björgu Snorradóttur og
eignuðust þau eitt barn.
Baldvin var sonur Bald-
urs Baldvinssonar, f. 8.4.1898, d. 4.7.
1978, bónda og oddvita á Ófeigsstöð-
um, og Hildar Friðgeirsdóttur, f.
4.12. 1895, d. 30.7. 1923, húsfreyju.
Baldvin Grani
Baldursson.
Einar Jónsson
Einar Jónsson, fyrrv. gjaldkeri
Sambandsins, Furagrund 30, Kópa-
vogi, er áttatíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Einar fæddist að Reyni í Mýrdal í
Vestur-Skaftafellssýslu og ólst þar
upp. Hann var fjögur ár í Bama-
skólanum í Vík og eitt ár i ung-
lingaskóla þar.
Einar réðst sem verslunarmaður
til Kaupfélags Skaftfellinga i Vík
1928 og starfaði þar til 1930, en flutti
þá til Hafnarfjarðar með stjúpmóð-
ur sinni, Þórunni Karítas Ingi-
mundardóttur, er bæði foreldrar
hans voru látnir. Þar stundaði
hann verkamannavinnu og síma-
vinnu sumarið 1931 og síðan sjó-
mennsku.
Einar starfaði í vörageymslu SÍS
1932-33, var starfsmaður í vefnaðar-
vörudeild SÍS 1933-52 var jafnframt
deildarstjóri hjá SÍS í viðlögum á
stríðsáranum og kaupfélagsstjóri
nýstofnaðs Kaupfélags Suður-Borg-
firðinga á Akranesi í nokkra mán-
uði 1938.
Einar var gjaldkeri í fjármála-
deild SÍS 1953-84 en stundaði síðan
ýmis störf á árunum 1984-89.
Einar sat í stjóm starfsmannafé-
lags SÍS um skeið og var formaður
TBR og Badmintonsambands ís-
lands í nokkur ár.
Einar varð fyrsti íslandsmeistar-
inn í badminton, þá þrjátíu og sex
ára að aldri, og íslands-
meistari tvíliðaleiks
mörgum sinnum. Hann
hætti keppni er hann var
fjöratíu og níu ára og
vann þá keppni í tvíliða-
leik, en stundar þó bad-
minton enn þann dag í
dag.
Einar hefur haldið
bókhald um laun sín og
skatta alla tíð en segja
má að laun hans og skatt-
ar segi sögu hans um
marga áratugi. Þá hefur
hann haldið saman staðreyndum
um þær íþróttir sem hann hefur
stundað. Einar yrkir þó nokkuð en
mætti vera meira að eigin sögn. í
frístundum sínum auk badmintons
stundaði Einar brigde, og silungs-
og laxveiði.
Fjölskylda
Einar kvæntist 1937 Sigrúnu
Þórðardóttur, f 24.8. 1916, d. 1981,
húsmóður. Hún var dóttir Þórðar
Jónssonar, starfsmanns hjá Pósti og
sima, frá Sumarliðabæ í Rangár-
vallasýslu, og k.h., Jóhönnu Jó-
hannesdóttur húsmóður.
Böm Einars og Sigrúnar era Jón
Reynir Einarsson, f. 11.4.1940, múr-
arameistari og bóndi á Efri-Steins-
mýri í Meðallandi, kvæntur Mar-
gréti Ólafsdóttur húsfreyju og eiga
þau fimm börn; Jóhann Þór Einar-
son, f. 4.6. 1947, veggfóðr-
ari, búsettur í Kópavogi,
kvæntur Bára Magnús-
dóttur verslunarmanni
og eiga þau eina dóttur;
Sigurður Einarsson, f.
23.9. 1949, húsgagna- og
húsasmíðameistari, bú-
settur í Reykjavík og á
Sigríð-
ur Einarsdóttir, f. 18.6.
1951, húsmóðir og við
heimilishjálp, búsett í
Reykjavik, gift Ágústi
Ágústssyni múrarameist-
ara og eiga þau þrjá syni; Brandur
Einarsson, f. 23.6. 1953, stýrimaður,
búsettur á Tálknafirði; Einar Ein-
arsson, f. 28.4. 1955, sjómaður í
Reykjavík.
Seinni maka kynntist Einar fyr-
ir nokkram árum, Jóhönnu Elínu
Aðalbjörgu Árnadóttur, f. 24.7. 1922,
húsmóður. Foreldrar hennar vora
Árni Hallgrímsson, verkamaður á
Akureyri, og k.h., Ingibjörg Þor-
steinsdóttir, iðnverkakona. Jó-
hanna og Einar giftust árið 1987.
Jóhanna á tíu böm sem hafa
reynst Einari góðir vinir. Þau era
Haukur Björnsson, trésmiður í
Reykjavík; Bjami Sveinsson, skip-
stjóri á Akranesi; Ingibjörg Sveins-
dóttir, húsmóðir i Reykjavík og við
heimilisþjónustu; Úndína Sveins-
dóttir, hárgreiðsludama í Reykja-
vík; Ásmundur Sveinsson, stýri-
maður, búsettur í Reykjavík; Ámi
Sveinsson, smiður í Reykjavík;
Rúnar Sveinsson, bifreiðastjóri í
Reykjavík; Sigrún Sveinsdóttir,
bankastarfsmaður í Reykjavík; Jón
Þór Sveinsson, sölumaður, búsettur
í Hafnarfirði; Róslind Sveinsdóttir,
sölumaður hjá Olís, búsett 1 Reykja-
vík.
Alsystur Einars era Sigríður
Jónsdóttir, f. 1910, húsmóðir í Hafn-
arfirði; Ragnhildur Jónsdóttir, f.
1912, búsett í Reykjavík; Ingibjörg
Jónsdóttir, f. 1915, lengst af hús-
freyja í Mýrdal, nú búsett á Laugar-
vatni.
Hálfsystkini Einars, samfeðra,
era Elin, búsett i Bandaríkjunum;
Þorsteinn Jón Jónsson, f. 1926, bú-
settur í Kópavogi.
Foreldrar Einars vora Jón Ólafs-
son, f. 31.5.1881, d. 7.4.1927, kennari
í Vík og Reynishverfi, þá var hann
líka einkaritari fjögurra sýslu-
manna, og f.k.h., Sigríður Einars-
dóttir frá Reyni, f. 10.2. 1887, d.
25.5.11. 1916.
Ætt
Föðurforeldrar: Ólafur Ólafsson
og Ingibjörg Jónsdóttir. Móðurfor-
eldrar: Einar Brandsson og Sigríður
Brynjólfsdóttir.
Einar og Jóhanna ætla að dvelja í
Kanada á afmælisdaginn og heyra
og sjá sögu Vestur-íslendinga á
þjóðhátíðardegi þeirra.
Afmælisgreinar um verslunarmannahelgi:
Næsta helgarblað DV kemur út föstudaginn 31.7. Upplýsingar vegna
afmælisgreina sem eiga að birtast í helgarblaðinu þurfa því að berast
ættfræðideildinni eigi síðar en í dag, miðvikudaginn 29.8.
Fréttir
Þrír á ofsahraða
Mikil umferð var víða um land og gekk hún að
mestu leyti áfallalaust fyrir sig. Sums staðar freist-
uðust ökumenn þó til að stíga aðeins of fast á bens-
íngjöfina. Lögreglan á Sauðárkróki tók þrjá öku-
menn um helgina fyrir ofsaakstur á meira en 130
km hraða. Á Selfossi voru einnig nokkrir teknir fyr-
ir of hraðan akstur og tveir fyrir ölvunarakstur.
-GLM
Róleg helgi
Lögreglumenn víðs vegar um land era sammála
um að nýliðin helgi hafi verið ákaflega róleg að
flestu leyti. Umferðin gekk að mestu leyti vel fyrir
sig og lítið var um óspektir. Lögreglumenn óttast þó
að helgin nú hafi verið lognið á undan storminum,
fólk hafi einfaldlega verið að safna kröftum fyrir
verslunarmannahelgina. -RR
Sumarbridge í Mitchell-tvímenning
23. júlí spiluðu 32 pör Mitchell tvímenning.
Spilaðar vora 14 umferðir. Meðalskor var 364 og
þessi pör urðu efst:
NS
1 .Gísli Steingr. - Hróðmar Sigurbjöms. 427
2. Þorsteinn Erlings. - Alfreð Kristjáns. 410
3. Helgi Viborg - Agnar Kristinsson 402
AV
1. Magnús Odds. - Láras Hermanns. 432
2. Pétur Antons. - Vilhjálmur Sigurðs. jr. 418
3. Þórður Sigurðs. - Guðmund. Gunnars. 387
4. Svala Pálsd. - Hanna Friðriksd. 384
Föstudaginn 24. júlí mættu aftur 32 pör til
leiks. Árangur efstu para varð þessi:
NS
1. Jón V. Jónmunds. - Leifur Aðalsteins. 503
2. Þröstur Ingimars. - Siguijón Tryggva. 483
3. Svala Pálsdóttir - Gísli Torfason 457
4. Stefania Skarphd. - Aðalsteinn Sveins. 417
AV
1. Sigurður Steingrs. - Gísli Steingríms. 423
2-3. Sigrún Pétursd. - Ámína Guðlaugsd. 388
2-3.Ómar Olgeirsson - Kristinn Þórisson 388
Eftir tvímenninginn var að venju spiluð út-
sláttarsveitakeppni. Tólf sveitir vora skráðar til
keppni. Spilaðar voru 4 umferðir og til úrslita
spiluðu sveitir Svölu Pálsdóttur (Gísli Torfason,
Dúa Ólafsdóttir og Þórir Leifsson, auk Svölu) og
Eyjólfs Magnússonar (Kristján B. Snorrason, Jón
Viðar Jónmundsson, Leifur Aðalsteinsson, Alda
Guðnadóttir og Hermann Friðriksson, auk Eyj-
ólfs). Lokatölur urðu 40-13 fyrir sveit Eyjólfs.
Til hamingju
með afmælið
29. júlí
90 ára____________
Ingiríður M. Bjömsdóttir,
Hringbraut 50, Reykjavík.
Victor J. Gestsson,
Hringbraut 50, Reykjavík.
85 ára
Guðrún Sigurðardóttir,
Lækjarhvammi 7, Búðardal.
Hálfdán G. Viborg,
Hrafnistu, Reykjavík.
80 ára
Ólafur Thoroddsen,
Álfheimum 15, Reykjavík.
75 ára
Jóhanna Anna
Einarsdóttir frá Dunk,
Vallhólma 10,
Kópavogi,
varð sjötíu og fimm ára s.l.
mánudag. Eiginmaður hennar
var Gestur Sigurjónsson,
bóndi á Dunk. Þessi tilkynn-
ing féll niöur s.l. mánud. vegna
mistaka og er beðist velvirð-
ingar á því.
Guðrún Jónsdóttir,
Hellisgötu 19, Hafnarfirði.
Guðrún Nieísen,
Lerkihlíö 2, Reykjavík.
Kristrún Magnúsdóttir,
Kjarrhólma 22, Kópavogi.
Sólveig B. Guðmundsdóttir,
Sunnubraut 12, Keflavík.
Stella Guðmundsdóttir,
Hófgerði 8, Kópavogi.
70 ára
Ragnheiður Blöndal,
Brúsastöðum, Áshreppi.
60 ára
Áslaug Hafsteinsdóttir,
Klettagötu 2, Hafnarfirði.
Halldóra Marinósdóttir,
Þórólfsgötu 16, Borgamesi.
Hrefna Gunnarsdóttir,
Stifluseli 5, Reykjavik.
50 ára
Guðmundur
Sigurjónsson,
launafulltrúi
hjá SVR,
Fiskakvísl 1,
Reykjavík.
Eiginkona hans er Margrét
Sverrisdótir, starfsm. hjá
Nýherja. Hann tekur á móti
ættingjum og vinum að
Dugguvogi 12,1 dag milli kl.
20.00 og 22.00.
Amdís Finnbogadóttir,
Eyrargötu 6, ísafirði.
Sigrún Bjömsdóttir,
Ásgötu 12, Raufarhöfn.
Sigui ður Eyþórsson,
Skúlagötu 78, Reykjavík.
40 ára
Ingi Gunnar
Jóhannsson,
leiðsögumaður og
tónlistarmaður,
Tjarnargötu 10,
Reykjavík.
Hann mun halda upp á daginn
á Rolling Stones-tónleikum í
Kaupmannahöfh.
Anna Björk Eðvarðsdóttir,
Fomuströnd 17,
Seltjamamesi.
Guðbjörg Kristín
Amardóttir,
Hátúni 6, Reykjavík.
Ragnheiður
Sveinbjörnsdóttir,
Bræðratungu, ísafirði.
Sigurjón Héðinsson,
Suðurvöllum 16, Keflavík.
Víðir Gissurarson,
Árbakka 4, sameinað sveitar-
félag, Vestur-Húnavatnssýslu.