Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1998, Side 28
28
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 1998 T*y
onn
Ummæli
Hverjir eiga að
fá að lifa?
„Heilbrigðismálin eru hægt en
örugglega að breyt-
ast úr því að öllum
eigi að líkna og alla
beri að lækna í það
að forgangsraða
eigi eftir ýmsum
leiðum en umfram
allt, leggja beri
efnahagslegt mat á hverjir fá að
lifa.“
Hrafnkeil A. Jónsson héraðs-
skjalavörður, í Morgunblaðinu.
Þorskur og ekki þorskur
„Aldrei í manna minnum hef-
ir verið jafnmikill þorskur í sjón- j
um um allt land og nú. Vegna
verðlags á þorski koma bátar
ekki að landi með smærri fisk en
9-10 kíló. Menn eru ekki að eyða
dýrkeyptum kvótum á ruslfisk
sem skilar allt of litlu í verði.“
Önundur Ásgeirsson, fyrrv. for-
stj. Olís, í DV.
Stofnanabragur
á kirkjunni
„Það er óneitanlega oröinn
svolitill stofnana-
bragur á kirkjunni
og hin lúterska
kirkja kannski að
því leyti komin í
andstöðu við Lúter
sjálfan sem gerði
uppreisn gegn stofn- í
anaveldi kaþólsku kirkjunnar." j
Hjálmar Arnason alþingismaður,
í Degi.
Endemis kjaftæði
•■í svokölluðum stefnuágrein-
ingi þeirra sem leggjast gegn
sameiginlegu framboði í Alþýðu-
bandalaginu er brugðið fyrir sig
vinstri og hægri. Við í Alþýðu-
flokknum erum hægri kratar,
þeir eru vinstra fólk. Ég er leið á f
þessu endemis kjaftæði."
Rannveig Guðmundsdóttir al-
þingismaður, í Degi.
Hrossaræktun
I
.Þetta ástand sem viö búum
við núna, þar sem
geðþóttaákvarðanir 1
eru allsráðandi og
mönnum hyglað út
og suður á meðan
aðrir eru lagðir í
einelti, það hrein-
lega gengur ekki.“
Magnús Eiðsson hrossabóndi,
um starf hrossaræktarráðu-
nauta, í DV.
Mynstrið á
klósettpappímum
„Það er undarleg hugmynd að
menn þurfi að vera sammála
nánast um mynstrið á klósett-
pappírnum á flokksskrifstofunni
til að geta verið saman í flokki." J
Daníel Freyr Jónsson kennara-
nemi, um sameiningarmálin á
vinstri vængnum, í Morgunblað-
Sigríður Halldórsdóttir, prófessor við Háskólann á Akureyri:
Mikill heiður að vera
metin hæf sem prófessor
Sigriður Halldórsdóttir.
DV-mynd gk
DV, Akureyri:
„Þetta breytir heilmiklu í minni
vinnu. Það auðveldar mér að sækja
um styrki til rannsókna því það má
segja að ég sé búin að sanna mig fyr-
ir fræðaheiminum, þetta auðveldar
mér að fá birtar niðurstöður rann-
sókna og þá er þetta kjaralegt atriði.
Ég lít á það sem mikinn heiður fyrir
mig að vera metin hæf sem prófessor
og það má í sjálfu sér orða það þannig
að nú sé uppskerutími, að ég sé að
uppskera laun erfiðisins undanfarin
ár,“ segir Sigríður Halldórsdóttir sem
er nýskipaður prófessor í hjúkrunar-
fræðum viðHáskólann á Akureyri og
fyrsti prófessor í hjúkrunarfræðum
hér á landi.
Sigríður er fædd í Reykjavík en að
hluta uppalin í Dalasýslu. Hún lauk
verslunarprófí frá Verslunarskólan-
um í Reykjavík og síöar stúdentsprófi
frá Menntaskólanum við Hamrahlið.
Hún stundaði nám á námsbraut í
hjúkrunarfræðum við Háskóla fs-
lands og lauk BS-prófi 1978 og prófi í
uppeldis- og kennslufræðum meö
kennsluréttindi frá félagsvísindadeild
ári síöar. Eftir það starfaði hún sem
hjúkrunarfræðingur og fékkst einnig
við kennslustörf. Sigríður lauk
mastersnámi frá UBC-háskólanum í
Vancouver i Kanada 1988 og doktors-
námi frá Linköping-háskóla í Sviþjóð
árið 1996.
Frá árinu 1991 hefur Sigríður veitt
forstöðu heilbrigðisdeild Háskólans á
Akureyri. Hún segir að deildin hafi
eflst mjög undanfarin ár og segist að
hluta til líta á skipun sína í stöðu pró-
fessors sem viðurkenningu fyrir
deildina. „Þetta er ekki fjölmenn defld
en nemendur fá mikla athygli frá
kennurum sem er mjög jákvætt fyrir
báða aðila. Um 25 nemendur hafa út-
skrifast árlega og stefnt er að því að á
næstu árum verði þeir um 30.
Maður dagsins
Stór hluti af nemendum deildarinn-
ar hafa komið af landsbyggðinni og
það er skemmtilegt að segja
frá þvi að margir þeirra
hafa prófað að starfa í
Reykjavík að námi
loknu en hafa síðan
leitað í störf úti á
landi, öfugt við
nemendur sem
hafa útskrif-
ast í Reykja-
vik en þeir
hafa gjarnan
starfað á
landsbyggð-
inni í 1-2 ár að
námi loknu og
síðan flutt aftur
til Reykjavík-
ur.
Þessi þróun varðandi nemendur okk-
ar á Akureyri hefur leitt til þess að
landsbyggðin er nú mun betur sett
með hjúkrunarfræðinga en verið hef-
ur.“
Sigríðm1 er gift Gunnlaugi Garðars-
syni, sóknarpresti í Glerársókn á Ak-
ureyri, og eiga þau þrjú böm, dæturn-
ar Sunnu Kristrúnu, 17 ára, og Maríu
Guðrúnu, 13 ára, og soninn Jóhannes
Benedikt sem er 4 mánaða. Sigríður
segir að heimili þeirra endurspegli
mikið helsta áhugamál þeirra hjóna.
„Á heimili okkar er óstjórnlega
mikið af bókum og ef við eig-
um frjálsa stvmd erum við
að lesa. Lestur okkar
tengist fræðigreinum
okkar beggja og það
er svo skemmtilegt að
við höfum áhuga á
fræðasviði hvort
annars og ræðum
þau mál mikið. Þá
höfum við gaman
af að hlusta á sí-
gilda tónlist og
við reynum
einnig að komast
í gönguferðir þegar
við höfum til þess
tíma.“
-gk
Krakkar
hafa í
gegn-
um tíð-
ina lært
aö búa
til ýms-
ar af-
urðir í
skóla-
görðun-
um.
Fjölskyldudagur
í Skólagörðum
í dag er fjölskyldudagur í
Skólagörðum Reykjavíkur.
Fjölskyldur þeirra barna
sem eiga garð í skólagörð-
unum eru hvattar til að
koma í heimsókn og kynna
sér starfsemina. Starfs-
menn skólagarðanna veita
upplýsingar um það græn-
meti sem börnin eru að
rækta. Skemmtilegum upp-
skriftum verður dreift og
upplýsingum um geymslu
og frystingu á grænmetinu
okkar.
Útivera
Söguferð í
Skaftafelli
í fyrramálið kl. 10 verður
fariö í skoðunarferð með
landverði í Skaftafefli upp
Gömlu tún, upp með
Eystragili og Vestragili og
upp meö því að Svartafossi
og þaðan í Selið og til baka
í þjónustumiðstöðina, það-
an sem lagt er af stað frá
landlíkaninu. Ferðin tekur
tvo og hálfan til þrjá
klukkutíma.
Leirburður Myndgátan hér aö ofan lýsir athöfn.
Fyrri leik ÍA og FK Zalgiris, sem
leikinn var á Akranesi, lauk meö
sigri ÍA.
Evrópuleikir
í dag leika tvö íslensk félög síð-
ari leiki sína í fyrstu umgerð í
Evrópukeppninni í knattspymu.
ÍBV, sem tekur þátt í forkeppni
Evrópukeppni meistaraliða, á
heimaleik gegn júgóslavneska lið-
inu FK Obilic. Róðurinn verður
erfiður því ÍBV tapaði úti 2-0.
Leikurinn hefst kl. 18. ÍA, sem tek-
ur þátt í Evrópukeppni félagsliða,
lék á heimavefli fyrst gegn FK Zal-
giris Vilnius frá Litháen og vann
þann leik. í dag kl. 16 að íslensk-
um tíma leikur ÍA í Litháen og
það þykir ekki mikið að fara með
eitt mark í plús á erfiðan heima-
völl svo ÍA þarf á öllum sínum
styrk aö halda eigi liðið að komast
áfram.
íþróttir
Einn leikur er í úrvalsdeildinni
í kvöld. Á Hlíðarenda leika Valur
og Þróttur. Valur, sem er að berj-
ast fyrir lífí sínu í úrvalsdeild-
inni, þarf á sigri að halda svo lið-
ið lendi ekki í bullandi fallhættu.
Þróttarar gefa örugglega ekkert
eftir því þótt þeir sigli lygnan sjó
um þessar mundir þá má ekkert
út af bera svo þeir lendi ekki í fall-
hættu.
Bridge
Flestir kannast við orðalagið
„kinverska svíningu1' um þau tilvik
þegar sagnhafí stelur slag af and-
stöðunni með „svíningu" sem á
ekki rétt á sér. Ekki veit ég af
hverju þjófnaður af þvl tagi er kall-
aður „kínversk svíning" en eitt er
víst aði Kínverjar kunna að beita
henniSmaí síð-
astliðnum voru
spilaðir Asíu-
leikarnir í
sveitakeppni í
bænum Kobe í
Japan. Sveitir
Ástralíu og Kín-
verja spiluðu til úrslita í kvenna-
flokknum og þar kom þetta spil fyr-
ir. Vestur var gjafari og enginn á
hættu. Á öðru borðanna pössuðu
vestur og norður en ástralska lands-
liðskonan opnaði á fjórum spöðum t
austur. Þar enduöu sagnir og sagn-
hafi lét sér nægja að taka 11 slagi í
þeim samningi eftir að vörnin hafði
spilað ÁK í laufi i upphafi. Á hinu
borðinu gengu sagnir þannig:
* 5
* K543
* 973
* D9654
4 Á109
* D10982
4- K5
* 872
4 864
«4 G6
4 G842
* ÁKG3
Vestur Norður Austur Suður
YuZ Bardon Weinfei Tully
pass pass 1 4 pass
2 * pass 24 pass
2* pass 4 * dobl
pass pass 44 pass
4* pass 4 grönd pass
54 pass 64 p/h
Vörnin hófst á sama hátt á þessu
borði: laufás og síðan laufkóngur.
Weinfei trompaði seinna laufið,
spilaði spaða á ásinn og síðan
hjartadrottningu úr blindum. Þegar
norður setti lítið spil hafði kín-
verska svíningin heppnast hjá Kín-
verjanum. ísak Öm Sigurðsson