Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 31.07.1998, Blaðsíða 6
m a t u r Argentína ★★★ Barónsstíg lla, s. 551 9555. „Bæjarins besta steikhús hefur dalað. Dýrustu og enn þá bestu nautasteikur landsins, en ekki alveg eins innanfeitar og safa- rikar og áður.“ Opiö 18- 23.30 v.d., 18-3 um helg- ar. Einar Ben ★★ Veltusundl 1. 5115090. „Fremur þemahús en veitingahús og leggur meiri áherslu á umbúðir en innihald. Einar Ben. býður yfirleitt ekki upp á vondan mat og verður því seint jafn vinsæll og Fashion Café eða Planet Hollywood." Opiö 18-22. Fiðlarinn á þakinu ★★★ Sklpagötu 14, Akureyrl, s. 462 7100 „Matreiðslan stóö ekki undir háu veröi en hún hefur batnað. Þjónustan var alltaf góö en nú er of mikið treyst á lærlinga." OpiO 12.30- 14.00 og 18.00-22.00. Hótel Holt ★★★★★ Bergstaöastræti 37, s. 552 5700. „Listasafniö á Hótel Holti ber í matargerðarlist af öörum veitingastofum landsins. Þar fara saman frumlegir réttir og nærfær- in matreiðsla, sem gerir jafnvel baunir að Ijúfmeti." Opiö 12-14.30 og 19- 22.30 v.d., 12-14.30 og 18-22 fd. og Id. Hótel Óðinsvé ★★ v/Óöinstorg, s. 552 5224. „Stundum góður matur og stundum ekki, jafn- vel í einni og sömu máltíð." Opiö 12-15 og 18- 23 v.d., 12-15 og 18-23.30 fd. og Id. Ítalía ★★ Laugavegl 11, s. 552 4630. „Eignarhaldið er ítalskt, kokkarnir eru ítalskir, gæðaþjónustan er hálfítölsk, vel valið vínið er að mestu Italskt og tilviljanakenndar veggskreytingarnar eru ítalskar. Það, sem tæpast hangir í ítölskunni, er matreiðslan. Bakaðar kartöflur og ameriskar pítsur er ein- kennistákn hennar." OpiO 11:30-11:30. Játvarður, Akureyri ★★★ „Skemmtilega hannaður staður með fínlegri matreiðslu, ef sneitt er hjá fiski, svo og elsku- legri þjónustu sem getur svarað spurningum um matinn." OpiO 11.30-14.00 og 18.00- 22.00. Lauga-ás ★★★★ Laugarásvegi 1, s. 553 1620. „Franskt bistró að íslensk- um hætti sem dregur til sín hverfisbúa, sem nenna ekki að elda í kvöld, barnafjölskyldur utan úr bæ og ferðamenn utan að landi og frá út- löndum. Hér koma hvorki uppar né fmyndarfræðing- ar." OpiO 11-22 og 11-21 um helgar. Lækjarbrekka ★★ Bankastrætl 2, s. 5514430. „Matreiðslan rambar út og suður, góð, fram- bærileg eða vond eftir atvikum. Með annarri hendinni eru gerðar forvitnilegar tilraunir en með hinni er farið eftir verstu hefðum." OpiO md.-mid. 11-23.30, fld.-sd. 11-0.30. Mirabelle ★★★ Smlðjustíg 6., s. 552 2333. „Gamal-frönsk matreiðsla alla leiö yfir í profiteroles og créme brulée. Mirabelle er komin á gott skrið." OpiO 18-22.30. Naustið O Vesturgötu 66, s. 551 7759. „Hamborgarastaðurfrá þjóðvegi eitt, sem hef- ur rambað á vitlausan stað á notalegar og sögufrægar innréttingar og þykist vera enn ffn- ni en Holtið." OpiO 12-14 og 18-01 v.d., 12-14 og 184)3 fd. og Id. Rauðará ★ Rauðarárstíg 37, s. 562 6766. „Túrista-steikhús. Nautasteikin getur veriö góð, en hún getur Ifka verið óæt. Yfirþjónninn er svo önnum kafinn við að vera kammó að hann tekur ekki alvarlega ábendingar um að nautakjöt sé skemmt." OpiO frá kl. 18 og fram eftir kvöldi. Hversu lengi fer eftír aOsókn. Skólabrú ★★★ Skólabrú 1, s. 562 4455. „Matreiðslan er fögur og fín, vönduð og létt, en dá- lítið frosin. Þjónustan er kurteis og hófsöm." OpiO frá kl. 18 alla daga. Thailand 0 Laugaveg! 11, 5518111. „Óvenjuljótur kvöldverðarstaður með fremur dýrum mat, stundum bragðgóðum en oftar grimmilega ofelduðum." OpiO frá kl. 18-23 alla daga. Kondu margblessuð og sæl, Akureyri '98 Þegar Quarashi sótti um að spila á Halló Akureyri fékk hún þau svör að um verslunar- mannahelgi vildu krakkarnir miklu frekar fá sveitaball- apakkann meö Sál- inni, Greifunum og Stjórninni. í staöinn fýrir að játa sig sigr- aða ætlar Quarashi að halda sjálf rokktónleika í beinni samkeppni við Hallóið og fékk Maus og 200.000 naglbfta til að spila með. „Þetta verður alvöru- rokk og ról og við ætlum að afsanna það f eitt skipti fyrir öll að krakkarnir vilji bara sveitaballaógeðið um þessa helgi." Quarashi og Maus hafa ekki spilað á Akur- eyri í langan tfma og þar er fólk orðið langeygt eftir þessum vinsælustu rokkböndum lands- ins. Þetta verða sfðustu tónleikar Quarashi f nokkurn tfma þvf hljómsveitin er á leið f hljóö- ver að byrja á plötu sem þó er ekki á útgáfuá- ætlun fýrr en 1999. Þeir félagar hræðast ekki samkeppni helstu plötusnúða landsins sem snúa plötum sfnum f Ráðhúskaffi á Halló Ak- ureyri. „Nei, við erum að spila lifandi tónlist, þetta eru bara einhverjir steindauðir plötusnúðar." Tónleikaball sveitanna fer fram á Renni- verkstæðinu á föstudags- og laugardagskvöld og hefur ekki fengið neitt nafn. „Bless, Akur- eyri gengur ekki alveg," sagði Eggert f Maus. „Hæ, Akureyri væri skárra en ekki nógu gott. Það er líka óþarfi að kalla þetta eitthvað. Þetta verður bara æðislegt rokkbali." Ef mark er takandi á talsmönnum Quaras- hi og Maus verður þvf fjörið á Akureyri um helgina, hvort sem fólk vill sveitaballaógeð, steindauða plötusnúða eða æöislegt rokkball! Halló Klapparstígur Hrafn Jökulsson, bar- og blaöamað- ur, stendur fýrir há- tíðinni Halló Klapp- arstfgur á Grand- rokk um verslunar- mannahelgina. Dagskráin er ætluð þeim sem nenna ekki úr bænum en vilja samt gera sér dagamun. Það er ekki nóg með það að Geirfuglarnir spili á laug- ardeginum heldur munu ýmis skáld bjóða gestum staðarins upp á lestur úr verkum sfn- um á sunnudeginum. Hápunktinum verður svo náð á sunnudagskvöldinu með tónleikum hljómsveitarinnar Megasukk sem mynduö er af Megasi og Súkkat. Á myndinni eru: 1. Daniela von Waberer, 2. Ásta Ólafsdóttir, 3. Hrafnkell Sigurðsson, 4. Wolfgang Mullert, 5. Tina Born, 6. Tumi Magnússon, 7. Ósk Vilhjálmsdóttir, 8. Antje Dorn og 9. Hulda Hákon. Of og van í senn Café Ópera ★ Ekki veit ég hvers vegna hvít- lauksristaður, frekar þurr, en ekki beinlínis seigur skelfiskur heitir Brak og brestir á matseðli Cafés Óp- eru. Þetta voru rækjur, hörpudiskur og kræklingur, sem bjargað var fyr- ir hom með ágætlega krydduðu og rjómuðu skelfisksoði. Undarlegir stælar af ýmsu tagi einkenna oft veitingahús, þar sem takmarkaður áhugi er á matreiðslu. Salat Lyonnaise er skólabókaræf- ing, sem ætti að gefa möguleika, en hér var það einfalt jöklasalat með ristuðum brauðteningum, eggi og agnarögn af reyktu fleski, næsta ómerkur forréttur. Betri var rifinn hrálax með jöklasalati, eggjarauðu, rauðrófu og kapers, nákvæm og eðli- leg stæling á buff tartar. Ekki veit ég, hvers vegna steina- steik með humar og grófskornu grænmeti heitir Brim og boði á mat- seðlinum. Hins vegar veit ég, að gestir eiga auðvelt með að sigla i strand, þegar þeir hafa ekki einu sinni hliðardisk til að reyna að jafna steikartíma í tveggja tíma borð- Hópur listamanna frá íslandi og Þýskalandi hafa unnið í pörum undanfarna mánuði að sýningu sem verður opnuð í kvöld í Nýlistasafninu haldi. Rétturinn ætti að heita Of og van í senn. Hráefnið er raunar meyrt og ferskt, en ókryddaður Gall- oway er bragðlaus. Steinasteikin hefur árum saman hentað athafnafiklum, sem vilja heldur borga 2.890 krónur á steikina og 4.460 krónur á þríréttaða máltíð fyrir að fá að steikja undir þaki í miðborginni í stað þess að þurfa að grilla ókeypis í roki og rigningu úti í garði heima hjá sér. En hafa verð- ur í huga, að verðlagið er nálægt ís- landsmeti. Fiskur er ekki í náðinni í eldhús- inu. Þunnar sneiðar af grillaðri stór- lúðu voru einstaklega þurrar, greinilega frystar, bornar fram með miklu af rækjum, grænmeti á teini, bakaðri kartöflu og ágætri hvít- laukssósu. Grimmdarsteiking var líka á andakjöti í sterkri og svartri sósu, sem hét glóaldinsósa, en með- fylgjandi grænmeti var hóflega steikt. Eftirréttir voru ekki merkilegir. Þurr terta með ostarönd var kölluð bakaður ostamarmari, borin fram með tvenns konar súkkulaðisósu, ljósri og dökkri. Epli var hóflega djúpsteikt með óvenjulega þéttum ávaxtaís og mangósósu. Minniss- stæðast, frumlegast og bezt var súkkulaðihúðað spaghetti, sem dempaði sætubragðið af sósunni. Á löngum og hægum hnignunar- tíma matreiðslunnar hefur Ópera jafnan verið vel sótt. Krárstemning er oftast góð í þægilegum tréstólum við glansandi viðarlíki í borðum. Umgerðin er notaleg á efri hæð „Undarlegir stælar afýmsu tagi einkenna oft veitingahús, þar sem takmarkaður áhugi er á matreiðslu.“ gamla hússins á horni Lækjargötu og Austurstrætis. Lítillega ofhlaðn- ar rustaskreytingar hæfa gömlu húsi, marrandi trégólfl, bitalofti og rómantískum smágluggum með for- tíðarútsýni til Bemhöftstorfunnar. Jónas Kristjánsson Kortalaus sigling I kvöld verður opnuð í Nýlistasafn- inu sýningin „Leitin að snarkinum" en það er samsýning sex þýskra og sex íslenskra listamanna. Einsog venja er til sýna listamennirnir inn- an ramma þess þema sem sýningar- stjórarnir setja þeim, en samt ekki, því hvers konar þema er snarkur? Yf- irskrift sýningarinnar er tekin úr ljóði eftir Lewis Carroll sem bar sama nafn. Ljóðið fjallar um hóp landkrabba sem fer í sjóferð í leit að snarkinum. Skipstjórinn dregur fram kort sem að hans eigin sögn er full- komið en á því er nákvæmlega ekk- ert. Eftir þess konar korti sigla land- krabbarnir í leit að snarkinum og innan ramma þess konar þema unnu listamennirnir sem sýna verk sín í Nýlistasafninu. Þess má síðan geta að eftir langa sjóferð sem lýst er í 141 erindi þá lýkur kvæðinu á eftirfarandi línu: „For the snark was a Boojum, you see.“ En merking orðs- ins Boojum er jafn ókunn og snarks. Hjálmar Sveinsson, sem er annar sýningarstjóranna, vill meina að þó það sé virðingarvert að sýningar- stjórar taki völdin í sínar hendur og setji tjáningu listamannanna undir ok þemans, þá þurfi ekki allir að gera það sama og því hafl hann og Michel Glasmeier sem stýra sýningunni gef- ið listamönnunum efni sem ætti ekki að hefta þá, þó þeim séu ekki gefnar frjálsar hendur. í vali þemans má að mati sýningarstjóranna sjá samlík- ingu í kortinu sem er án lína og sam- tímans sem hef- j ur tapað ■ mörgum mikil- ’ vægum línum einsog landamærum, hugsjónum, berlínarmúrum og manifestum sem áður strikuðu sterkum litum línur milli manna og samfélaga. Sýningar- stjóramir hafa parað listamennina saman þannig að einn Þjóðverji og einn íslendingur mynda sex dúetta sem spila misjafnlega mikið saman. Þeir hafa haldið e-mail sambandi í vetur og undirbúið sýninguna sem nú verður opnuð í Nýlistasafninu. Ef allt fer að óskum verður síðan önnur sýning haldin með sömu listamönn- um i Berlín að ári, en allir listamenn- irnir annað- hvort búa eða j eiga rætur í w>r . þessum tveimur T§gj| % borgum. -BG, „Hvað mun okkur varða um Merkators kvarða, um hans miðbauga og belti og þá grein?“ Æpti kafteinn um mar, en hans menn veittu svar: „Slík merki eru siðvenjan ein!“ (þýð. Þórarinn Eldjárn) meira sl www.visir.is 6 f Ó k U S 31. júlí 1998

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.